Morgunblaðið - 04.07.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JULl 1975
5
Fransiskusregla-
an í 40 ár,í
Stykkishólmi
Stykkishólmi 24. júní
SUNNUDAGINN 22. þ.m. var
þess minnzt að 40 ár eru liðin
síðan st. Fransiskusreglan hóf
starfsemi hér í Stykkishólmi og
reisti hér stórt og vandað sjúkra-
hús sem þær systur hafa starf-
rækt síðan af mesta myndarbrag,
aukið við það og endurbætt að
kröfum tímans. Ein systirin,
María, hefir starfað að hjúkrun
við sjúkrahúsið öll þessi ár. Bisk-
upinn sr. Henrik Freuhen, var
mættur og flutti hátíðarmessu kl.
10 um morguninn með aðstoð séra
Hákonar Loftssonar sem nú
þjónar hér. Minntist hann í mess-
unni hins mikla starfs og fórnar-
lundar sem systurnar hefðu sýnt
hér. A eftir var öllum viðstöddum
boðið í kaffi og þar afhenti
sveitarstjóri, Sturla Böðvarsson,
f.h. hreppsnefndar Stykkis-
hólmsh. gjafabréf þar sem hrepp-
urinn gefur sjúkrahúsinu fagran
og upplýstan kross á kirkjuna.
Einnig flutti Xrni Helgason
nokkur þakkarorð til þeirra
systra. Konur I Stykkishólmi
efndu um daginn til kaffisam-
sætis til heiðurs systrunum á
sjúkrahúsinu þar sem þeim voru
færðar gjafir hverri og einni og
svo sjúkrahúsinu vandað útvarps-
tæki til afnota fyrir sjúkra-
stofurnar. Priorinnan, systir
Hildigunnur, sem nú lætur af
störfum þakkaði gjafir og vin-
semmd alla. Var dagurinn allur
hátíðlegur.
Fréttaritari
Siglfírðinga lengir
eftir sérleyfisbílum
Siglufirði 30. júní.
MIKIL óánægja er meðal bæjar-
búa með að ekki skuli enn vera
hafnar sérleyfisferðir milli Akur-
eyrar og Siglufjarðar. Slíkar
ferðir hafa verið daglega á hverju
sumri strax og Lágheiðin hefur
opnazt og hefur þá raunar verið
um framlengingu á sérleyfis-
ferðum til Ölafsfjarðar að ræða.
En nú er talsvert um liðið síðan
Lágheiðin var opnuð og létt hefur
verið öllum þungatakmörkunum
af vegum á þessari leið — en ekki
bólar á sérleyfisferðunum.
— Matthlas.
Langdýrast
í Stokkhólmi
Genf, 2. júli. Reuter.
Dýrara er að lifa I Stokkhólmi
en nokkurri annarri borg Evrópu
og þar næst I Ósló samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknar alþjóðlegr-
ar vfsindastofnunar I Sviss.
Stokkhólmur á ekki aðeins
Evrópumet í framfærslukostnaði
heldur líka heimsmet. Tokyo ætti
heimsmetið ef húsnæðiskostnað-
ur væri meðtalinn. Næst á eftir
koma Osaka og Kobe.
I Evrópu eru „dýrustu" borg-
irnar auk Stokkhólms og Ösló
samkvæmt rannsókninni Genf,
Ziirich, Kaupmannahöfn, París,
Vín, Diisseldorf, Haag, Frankfurt
og Amsterdam.
Ödýrara er að lif a í borgum eins
og Dyflinni, Barcelona, Madrid,
Róm, London og Mílanó.
Dr. Kissinger og
Gromyko funda
Washington, 2. júlí. AP.
Utanrfkisráðherrarnir Henry
Kissinger og Andrei Gromyko
ræðast við f Genf f næstu viku um
ástandið f Miðausturlöndum og
tilraunir til að koma á nýju sam-
komulagi um kjarnorkuvfgbúnað
að sögn bandarfskra embættis-
manna f dag.
TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
l!qn KARNABÆR
^■1^81 AUSTURSTBÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SÍMI FÁ SKIPTIBORÐI 28155
☆ Kjólar — Mikið úrva!
☆ Stutterma jersey-skyrtur
herra og dömu
■ff Kápur
☆ Pils og vesti úr Denim
☆ Stuttjakkar 4
☆ Herraskyrtur ji
☆ Dömublússur Æ
☆ Stór skósending o.m fl.
LÆKJARGÖTU 2
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155