Morgunblaðið - 04.07.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JULl 1975
7
Á að lækka
vexti?
Þórarinn Þórarinsson
fjailar í forystugrein
Tímans i gær um þá
spurningu, hvort gera
eigi atvinnuvegunum
auðveldara með að
greiða þær kauphækk-
anir, sem samið hefur
verið um, með þvi að
lækka vexti og segir i
þvi sambandi: „Það er
tvimælalaust, að vaxta-
byrðin er orðin atvinnu-
fyrirtækjum mjög þung-
bær og þó einkum þeim,
sem hafa staðið i mikl-
um framkvæmdum eða
þurfa að hafa mikið
rekstrarfé handa á milli,
en það gildir t.d. um
stóran hluta verzlunar-
innar. Nokkur dæmi
þess, hve mikil vaxta-
byrðin er hjá sumum fyr-
irtækjum, er það, að
vaxtagreiðslur Áburðar-
verksmiðju rfkisins
námu hærri upphæð á
s.l. ári heldur en allar
kaupgreiðslurnar. Mörg
svipuð dæmi mætti
nefna. Slikum dæmum
mun þó enn fjölga vegna
síðustu kjarasamninga,
þar sem fyrirtækin þurfa
að auka rekstrarfé og
vaxtagreiðslurnar munu
hækka i samræmi við
það. Þegar þessi mál eru
ihuguð dugir ekki að
horfa á eitthvert meðal-
tal vaxtagreiðslna hjá
fyrirtækjunum eins og
hagfræðingum hættir til
að gera, þvi að mörg
fyrirtæki greiða litla
vexti og lækka þannig
meðaltalið. Það verður
einkum að lita á fyrir-
tækin, sem þurfa að
greiða mikla vexti, enda
eru það þau, sem standa
höllustum fæti og þaðer
vegna þeirra, sem efna-
hagsráðstafanir eins og
gengisfellingar eru gerð-
ar. Lækkun vaxta getur
munað verulegum fjár-
munum fyrir slik fyrir-
tæki."
Hagsmunir
sparifjár
eigenda
Siðan fjallar Þórarinn
Þórarinsson um hags-
muni sparifjáreigenda i
þessu sambandi og seg-
ir: „Rökin fyrir háum
vöxtum eru þau, að þeir
séu nauðsynlegir vegna
sparifjáreigenda. Vissu-
lega fná ekki gleyma
sparifjáreigendum t
þessu sambandi, þvi að
enga hefur verðbólgan
leikið grálegar en þá. En
háir vextir, sem t.d.
leiða til meiri gengisfell-
ingar en ella, eru ekki i
þágu sparifjáreigenda.
Ekkert leikur sparifjár-
eigendur verr en gengis-
fellingarnar. Mjög kem-
ur þvi til álita hvort ekki
sé réttara að tryggja
hlut sparif járeigenda
með nokkurri verðtrygg-
ingu, en hafa þá vextina
lægri. Þetta hefur oft
komið til umræðu en
ekki komið til fram-
kvæmda, þegar sala
verðtryggða skuldabréfa
eru undanskilin "
Áhrif
vaxtastefnu
á Islandi
Þessar hugleiðingar
Þórarins Þórarinssonar
eru tvimælalaust þess
verðar, að um þær sé
fjallað og raunar hafa
margir velt þvi fyrir sér
að undanförnu, i kjölfar
nýjustu kjarasamning-
anna, hvort unnt væri
að létta undir með at-
vinnurekstrinum með
þvi að lækka vexti veru-
lega. í öðrum löndum
eru vextir notaðir til
þess að draga úr eftir-
spurn eftir lánum.
Hækkun á vöxtum, sem
nemur aðeins broti úr
prósenti getur haft við-
tæk áhrif i þeim efnum.
En sannleikurinn er sá,
að hér á landi hefur
hækkun vaxta aldrei
haft þau áhrif að draga
úr eftirspurn eftir lánum
svo nokkru nemi, ein-
faldlega vegna þess, að
þrátt fyrir háa vexti hef-
ur verðbólgan i landinu
verið slik, að það hefur
samt borgað sig fyrir
menn að taka lán, sem
siðan yrðu endurgreidd
með fleiri verðbólgu
krónum. En að sjálf-
sögðu er vandamálið
fólgið i þvt að tryggja
hag sparifjáreigenda.
Lækkun vaxta mundi
draga úr rekstrarkostn-
aði atvinnufyrirtækja,
en hún mundi einnig
hafa þau áhrif að spari-
fjáreigendur yrði enn
verr leiknir en þeir þó
eru nú. i því sambandi
varpar Þórarinn fram
hugmyndum um verð-
tryggingu sparifjár, en
hver á að borga þá verð-
tryggingu? Eiga
bankarnir að lána út fé
með tiltölulega lágum
vöxtum, en greiða verð-
tryggingu af spariinnlán-
um? Það gefur auga
leið, að litið yrði eftir af
bankakerfinu eftir örfá
misseri ef þannig yrði
haldið á málum. Hér er
um mikinn vanda að
ræða, sem fjalla þarf um
og í þeim umræðum má
ekki gleyma þvi, að það
er sparifé almennings.
hvort sem um er að
ræða einstaklingsbund-
in innlán eða saman-
safnaður sparnaður i
ýmsum sjóðum, sem
stendur undir öllu út-
lánakerfi bankanna.
Oryggi og þ jálfun listdansara
0 Doreen
Wells
Fyrir stuttu birtum við hér i Listasprangi greinarkorn um
ballettsýninguna á Sleeping Bautv í London Festival Ballet (Þyrni-
rús) við tðnlist Tchaikovskys. Hér koma til gamans nokkrar myndir
af dönsurum London Festival
Ballet til að sýna hve hreyf-
ingar og stöður ballettdansara
geta verið fagrar og hve feiki-
leg þjálfun hlýtur að liggja að
baki hjá beztu dönsurum.
sprang
Eftir
Arna Johnsett
% Bernard Hourseau
% Gay Fulton
Peningamenn
Get ávaxtað fé yðar á öruggan hátt. Viljirðu
hagnast þá sendu tilboð til Mbl. merkt Verð-
bréfahagnaður — 4421 .
FORD
£/órd
^ KB. KHISTJÁNSSON H.F
[I M R n fl I fl SUÐURLANDSBRAUT 2, VlÐ HALLARMÚLA
LF IVI □ U u I U SÍMAR 3°53Qo (35301 — 35302).
FORD HUSINU
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
Verðlækkun
Verðlækkun á brezkum Ford-bílum
Cortina verðlækkun kr. 50000 -
Escort verðlækkun kr. 40000 -
SVEINN
EGILSSON HF
Opið til kl. 10 í kvöld
og til hádegis á morgun
Bergstaóastræti 4a Sími 14350
PLÖTUPORTIÐ LAUGAVEGI