Morgunblaðið - 04.07.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚLI1975
17
APsímamynd.
FYRRVERANDI LÖGREGLUÞJÖNAR STÖÐVA UMFERÐ. — Lögregluþjónar í
New York, sumir'með fjölskyldum sínum, standa á akstursleið að Brooklynbrú,
eftir að borgin hafði sagt þeim upp í sparnaðarskyni. Umferð um brúnna
stöðvaðist i 15 mínútur. Áður höfðu lögregluþjónar haldið mótmælafund í
nágrenninu.
• •
Qngþveiti og gjaldþrot í New York:
Reiðín vex til jafns
við sorphaugana
New York 3. júlí — Reuter.
• SITTHVAÐ er rotið í New
York, — og það á ekki aðeins
við þær þúsundir tonna af sorpi
sem nú metta andrúmsloftið á
strætum borgarinnar. Brúða,
— eftirlfking af Abraham
Beame borgarstjóra hangir
ofan úr Ijósastaur yfir einni
daunillri sorphrúgunni sem
tákn þeirrar reiði sem nú sýður
og bullar f íbúum stærstu borg-
ar Bandarfkjanna, — sem raun-
ar er einnig á hvfnandi kúp-
unni.
• Sorphreinsunarmenn hafa
farið f verkfall og slökkviliðs-
menn eru annað hvort lagztir f
rúmið allir sem einn eða eru f
mótmælaverkfaili, og ástæðan
er sú að um það bil 40.000
borgarstarfsmenn eiga upp-
sögn yfir höfði sér þar eð borg-
in á ekki til peninga til að
greiða þeim laun. Lögreglu-
menn eru einnig að verða
óþolinmóðir, en leiðtogar
þeirra hafa hins vegar snúizt
gegn slfkum mótmælaaðgerð-
um.
I austurborginni jafnt sem
vesturborginni eru menn held-
ur vondaufir. Innflytjendur
sem settust að í New York í leit
að atvinnuöryggi hvöttu börn
sfn og barnabörn til að vinna
hjá borginni vegna þess að þar
væri alltaf traust atvinna. En
nú er þetta atvinnuöryggi fyrir
bí, og reiðin og örvæntingin vex
i borginni til jafns við sorp-
haugana á gangstéttunum.
„Þetta er allt á 11. stundu",
segir Beame borgarstjóri, mað-
urinn sem er í eldlínunni í þess-
um verstu erfiðleikum í New
York siðan i kreppunni á fjórða
áratug aldarinnar. Til þessa
hefur honum ekki tekizt að fá
embættismenn New York ríkis
til að hækka útsvör og koma i
veg fyrir uppsagnir. Þegar er
búið að segja upp 19.000
borgarstarfsmönnum.
Einn þeirra, sorphreinsunar-
maður, segir: „Haldið þið að
mér þyki gaman að sorpi? Hald-
ið þið að ég hafi farið í þetta
starf af þvi að mér þyki gaman
að sorpi? Ónei, ég kom hingað
vegna atvinnuöryggisins."
Hann var einn þeirra 2.900
sorphreinsunarmanna sem sagt
var upp í sparnaðarskyni. Af-
leiðingin varð sú að allir hinir
10.000 sorphreinsunarmenn
New York fóru i verkfall s.l.
mánudag. Um 40.000 tonn af
sorpi hafa safnazt saman á
götunum. Borgin sem eitt sinn
var kölluð „fjörborg" er nú
kölluð „fýluborg".
Þegar ekið er eftir 57. stræti,
einni af fínni götum Manhatt-
an, sér maður svarta plastpoka í
endalausri röð fulla af sorpi
sem kraumar í í sterkri sumar-
sólinni. Enginn vegfarenda
veitir þeim athygli nema fjór-
fætlingar. Umhverfis sorp-
hreinsunarstöðina við Hudson-
fljótið eru stræti barmafull af
rusli, niðursuðudósum, brotn-
um leikföngum og matarleif-
um, ásamt flugum og pöddum.
En hinir risastóru sorp-
flutningabílar hreyfa sig
hvergi.
„Þið verðið að skilja að við
erum að berjast fyrir lífi
okkar“, segir Peter Miceli,
tveggja barna faðir úr hópi
sorphreinsunarnianna. „Við er-
um að berjast fyrir lifsviður-
væri okkar. Við viljum vinna.
Ég er búinn að vinna í þessu i
sex ár i næsta mánuði, og þá er
mér sagt upp starfinu.“
Þrátt fyrir það að sorp-
hreinsunarmönnunum hafi ver-
ið skipað að snúa aftur til vinnu
með dómsúrskurði og Beame
hafi hótað að notfæra sér laga-
heimild til að svipta verkfalis-
menn eftirlaunaréttindum sin-
um og leggja á þá þungar fjár-
sektir heldur verkfallið áfram.
Sumir af þeim 5000 lögreglu-
mönnum sem misst hafa atvinn-
una ollu miklum umferðahnút-
um er þeir stöðvuðu bílaumferð
fyrir utan borgarstjórnarskrif-
stofurnar. Aðrir, eins og Joel
Natale lögreglumaður, unnu
starf sitt fram á síðustu stundu.
Natale var á leið til að afhenda
lögreglumerkið sitt og byssuna
þegar hann staldraði við og gaf
sértíma til að handtaka mann
sem var að skjóta af byssu út i
loftið í Brooklyn. „Ég vissi að
ég væri búinn að missa at-
vinnuna“, sagði Natale, „en
mér fannst ég þurfa að stöðva
þennan náunga áður en honum
tækist að myrða einhvern“.
Hinn almenni New Yorkbúi
virtist taka öngþveitinu með
meiri sorg en reiði. Maður einn
i Harlemblökkumannahverf-
inu, þar sem atvinnuleysi hefur
verið árum saman, sagði: „Ég
vorkenni þessu fólki. Það hefur
rétt til að vinna. Við höfum það
öll.“
Umdeild lokayfirlýs-
ing kvennaráðstefnu
Auður Auðuns:
Kvennaráð-
stefnan mis-
notuð í póli-
tízkuni tilgangi
Sérstaklega
gegn Israel
Mbl. hafði samband við Auði
Auðuns, fyrrv. ráðherra, en hún
er ein þriggja kvenna, sem sæti
eiga i fslenzkri sendinefnd á
kvennaráðstefnunni, sem nú er
nýafstaðin f Mexfkó.
Við náðum sambandi við Auði f
Mexikó og sagði hún m.a.:
„Ráðstefnunni lauk í gær-
kvöldi, en siðustu daga hefur ver-
ið mjög annasamt og hafa fundir
staðið fram eftir nóttu. Það tókst
að afgreiða það, sem fyrir ráð-
stefnunni lá og hafa verið sam-
þykktar margar ályktanir.
Eitt merkilegasta málið, sem af-
greitt hefur verið, er 10 ára áætl-
un um aðgerðir til að bæta stöðu
kvenna í heiminum, og er ákveðið
að gera úttekt á því starfi þegar
þetta tfmabil er hálfnað eða árið
1980. Hér hefur mikið verið talað
og verið mikið um pólitiskar
hnippingar. Við Islenzku konurn-
ar erum sammála um það, að ráó-
stefnan hefur I alltof miklum
mæli verið misnotuð í pólitfskum
tilgangi, sérstaklega gegn Israel.
Þetta er skaði, þar sem tilgangur-
inn með ráðstefnunni var auðvit-
að sá að fjalla um málefni kvenna
fyrst og fremst."
Eins og áður segir er islenzka
sendinefndin væntanleg heim nú
um helgina, og mun viðtal við
Auði Auðuns birtast í blaðinu í
næstu viku.
fjórar klásúlur þar sem ráðizt er
á zfonisma, nýlendustefnu,
aðskilnaðarstefnu I kynþáttamál-
um og ójafnaðinn f efnahagskerfi
heimsins, þar sem sagt er að brýn
og knýjandi þörf sé á aðstoð við
fátæku löndin. Aðeins Danmörk
Israel og Bandarikin greiddu at-
kvæði gegn lokayfirlýsingunni,
89 voru með en 18 vestræn rfki
sátu hjá.
Francoise Giroud ráðherra sem
fer með málefni kvenna i Frakk-
landi, sagði í Paris i dag, en hún
ávarpaði ráðstefnuna í fyrri viku,
að ráðstefnan hefði verið ,,að öllu
leyti fáránleg, hávaðasöm og
heldur sársaukafull . .. og algjör-
lega misheppnuð". Hún skírskot-
aði til yfirlýsingarinnar þar sem
því er haldið fram að heimsvalda-
stefnan komi í veg fyrir frelsun
konunnar: „Kannski kemur þetta
í veg fyrir frelsun konunnar, en
það kemur líka i veg fyrir að
maður geti málað með olíulitum
eða farið í hjólreiðatrú á sunnu-
dögum. Þetta er allt alveg fárán-
legt."
Mexico City, París 3. júlí
Reuter — AP
KVENNARAÐSTEFNU Samein-
uðu þjóðanna lauk f gær og var
samþykkt lokayfirlýsing hennar.
Var yfirlýsingin barin í gegn af
fulltrúum ríkja þriðja heimsins
án þess að umræður um hana
fengjust, og er f henni krafizt
efnahagslegra umbóta um heim
allan og útþurrkunar zfonisma.
Neituðu þessi rfki að ræða við
vestrænu fulltrúana á nefndar-
fundi um texta yfirlýsingarinnar.
Umdeildustu atriði hennar eru
Giroud — fáránleg ráðstefna
Ford neitaði að
hitta Solzhenitsyn
Washington 3. júlí — AP
GERALD Ford forseti Bandarfkj-
anna neitaði að hitta sovézka rit-
höfundinn Alexander Solzhenit-
syn, þegar hann heimsótti
Washington f siðustu viku. Var
þetta að ráði dr. Henry Kissingers
utanrikisráðherra, að sögn
heimildarmanna i Hvíta húsinu á
fimmtudag. Sagt er að Kissinger
hefði verið á móti þvf að Ford
hitti Nóbelsverðlaunahöfundinn,
sem er f útlegð, þar sem það gæti
vakið óánægju sovézkra
embættismanna og tafið fyrir til-
raunum til að draga úr spennunni
milli austurs og vesturs. Ford
Framhald á bls. 20
Knattspyrnusamband íslands
Flugfélag Islands og Loftleióir
gangast fyrir hópferðum íslenskra knattspyrnuunnenda á eftirtalda landsleiki
íslendinga, við Frakka í París 3. sept., við Belga í Liege 6. sept., og við Sovét-
menn í Moskvu 10. sept.
Væntanlegir þátttakendur gefi sig fram á söluskrifstofu Flugleiða í Lækjargötu 2.