Morgunblaðið - 04.07.1975, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JULI 1975
Sigurður H. Olafs-
son — Minningarorð
Sigurður Helgi Ólafsson bóksali
andaðist 29. júní siðastliðinn eftir
fárra daga sjúkdómslegu, 82. ára
að aldri.
Hann var fæddur 21. október
1892 i Kirkjuvogi i Höfnum, elzt-
ur barna þeirra hjóna Ólafs
Ketilssonar frá Kotvógi, sem síðar
var bóndi á Kalmanstjörn, og
konu hans Steinunnar Odds-
dóttur prests Gíslasonar. Eru þrjú
barna þeirra Ólafs og Steinunnar
enn á lifi: Eva, Ketili bóndi í
Höfnum og Oddur læknir og
alþingismaður.
Sigurður ólst ekki upp i for-
eldrahúsum, heldur hjá frú Stein-
unni Sívertsen í Kirkjuvogi, sem
áður hafði fóstrað móður hans.
Naut hann hjá henni hins bezta
uppeldis. Á uppvaxtarárum Sig-
urðar voru mikil umsvif til sjós og
lands á þessum slóðum, tók hann
snemma að ^tunda sjóinn og varð
bátsformaður i Höfnum.
Kona Sigurðar, Jónína
Guðmundsdóttir frá Nýjabæ í
Krísuvík, lifir mann sinn, nú
komin fast að áttræðu. Bjuggu
þau Sigurður um skeið í Kirkju-
vogi, en fluttust sfðar til Reykja-
víkur.
Sigurður Ólafsson stundaði
nám við Stýrimannaskólann og
var um hríð i millilandasiglingum
á erlendum skipum og fór þá víða
um höf og lönd. Siðar fékkst hann
einkum við verzlunarstörf, og
mörg seinni árin rak hann forn-
bókaverzlun, sem hann starfaði
við til dauðadags.
Þeim Sigurði og Jónínu varð
fimm barna auðið. Eru dætur
þeirra, Steinunn og Kristín, báðar
látnar. Steinunn dó á æskuskeiði,
en Kristín fyrir tveimur árum.
Synir þrír lifa föður sinn, Ólafur
og Guðmundur bifreiðastjórar og
Vilhjálmur starfsmaður við póst-
húsið í Reykjavík.
Sigurður Ólafsson var maður
hógvær og hjartahlýr. Greindur
var hann vel og fróður um margt.
Hann var einstaklega góður og
umhyggjusamur heimilisfaðir, þó
að efni væru lengstum af skorn-
um skammti. Líktist hann að
mörgu mjög Steinunni móður
sinni, en hún var alkunn að mildi
og hjartagæzku við menn og mál-
leysingja og mátti ekkert aumt sjá
né vita á nokkurn mann hallað,
enda mun og Sigurður sonur
hennar aldrei hafa eignazt neina
óvildarmenn. Hann var glaðsinna,
skemmtinn í orði og jafnlyndur,
— Minning
Þorgils
Framhald af bls. 27
sambands íslands breytt og í stað
fulltrúa fjórðungssambandanna
kom sambandsráð Í.S.Í. og i stað
stjórnar Í.S.L korn framkvæmda-
stjórn. Var þá Þorgils Guðmunds-
son kosinn gjaldkeri sambandsins
og var í þvi starfi i eitt ár.
Öll sin störf fyrir íþrótta- og
ungmennafélagssamtökin vann
hann af áhuga, mikilli nákvæmni
og samviskuserni og gat því eigi
öðruyfsi farið en hann hlyti
margskonar sóma af. Þorgils var
gerður að heiðursfélaga Ung-
mennafélagsins Drengs i Kjós og
Ungmennasambands Borgarfjarð-
ar. Heiðursfélagi Iþróttasam-
bands Islands var hann kjörinn
árið 1953.
Ilér að framan hafa verið rakin
helstu afskipti Þorgils af félags-
inálum, en því má bæta við að
hann var keppandi og mikill
afreksmaður á sviði iþrótta,
glíminn, vel enda glímukennari
Glímufélagsins Ármanns um ára-
bil, og fimleikamaður var hann
svo af bar, svo eigi séu gerð skil
getu hans í frjálsum íþróttum.
Nú þegar Þorgils Guðmundsson
er allur má þess minnast að þar
var á ferð hinn sanni iþrótta-
maður. Fáir munu þeir vera, sem
fylgt hafa á jafn ríkan hátt boð-
orði iþróttamannsins „Heilbrigð
hvað sem á móti blés og skapaði
fjölskyldu sinni við hlið ágætrar
eiginkonu griðastað og hlýtt
athvarf börnum og barnabörnum,
sem sakna nú vinar í stað, en
minningar um ástríki hans og
umhyggju munu ylja þeim öllum
um ókomna tíma, þó að leiðir
skilji að sinni.
Blessuð sé minningin um Sig-
urð, frænda minn. Hann gekk
ætíð fram á þessari jörð hógvær
og óáleitinn, en slíkum mönnum
hefur drottinn gefið mikil og fög-
ur fyrirheit.
Margrét Vilhjálmsdóttir.
sál i hraustum likama“. Þetta
hvortveggja sameinaðist hjá
Þorgils. Fimleiki hans og snilli
sem íþróttamanns voru mótuð af
skapgerð hans er einkenndist af
drenglyndi og heiðriku hugarfari.
íþróttahreyfingin stendur í
mikilli þakkarskuld við Þorgils
Guðmundsson, mun minning hans
lifa í hugum þeirra er þeim
málum sinna og með honum störf-
uðu, sem hin sanna fyrirmynd.
Iþróttasamhand fslands.
— Minning
Unnur
Framhald af bls. 26
hélt höfðinglegri reisn sinni til
hinztu stundar. Skapgerð hennar
var fastmótuð, trúkona mikil en
dul á skoðanir slnar. Hún var
orðvör svo af bar, vildi engan
styggja eða særa með orðum sín-
um en hlý og ljúf f viðmóti. Hún
var vinamörg því að allir, sem
hún kynntist á langri ævi, báru til
hennar vinarhug og sjálf hélt hún
órjúfandi tryggð við vini sína og
frændur. Hún var væn kona.
Unnur Ingibergsdóttir er
ógleymanlegur persónuleiki fyrir
tíguleik sinn, göfgi I orðum og
háttum, tryggð og kærleiksþel til
alls sem Iifir. Handtak hennar var
hlýtt á kveðjustund, er hún
kvaddi vini sina, um leið og hún
beindi björtum augum sínum og
hlýju svipmóti móti þeim. Veit ég
að ótaldir vinir hennar senda
henni hlýjar kveðjur og þakkir
um leið og hún er lögð til hinztu
hvildar við hlið manns sfns og
tryggra vina þeirra hjóna. Von
min er sú að hún finni á hinni
ókunnu strönd jafn einlæga hlýju
og hún veitti okkur samferða-
mönnum sínum meðan hún dvaldi
hér I heimi.
Með virðingu og þökk kveð ég
hana, um leið og ég sendi nánustu
vinum hennar dýpstu samúð okk-
ar hjóna. Blessuð sé minning
hennar.
Ingim. Olafsson.
— Tvær vikur
Framhald af bls. 3
fyrir manninn, ef farið er á alla
staðina, en flugvallarskattur er
samtals 1225 kr. I þvf tilviki. Ef
fjölskylda fer, þá greiðir fjöl-
skyldufaðir fullt gjald, en konan
og börnin á aldrinum 2—19 ára
greiða hálft gjald, og börn undir 2
ára aðeins tryggingu, sem er inn-
an við 1000 kr. Börn yngri en 12
ára greiða hálfan flugvallarskatt,
en börn undir tveggja ára aldri
engan
— Laxabændur
Framhald af bis. 36
leyfðar f Hvitá og þar sem eftir-
litssvæði Trausta er allt frá Hft-
ará að Botnsá i Hvalfirði, má
sjá að hann hefur ærið að starfa
þær 40 klukkustundir í viku,
sem honum eru ætlaðar til
þessa starfs, enda segir hann
sjálfur að auka þurfi eftirlitið
til mikilla muna, en slfkt hafi
ekki hlotið hljómgrunn hjá yf-
irvöldum til þessa. Trausti seg-
ist láta eftirlitið með netaveið-
inni ganga fyrir. Auk þessara
50 laxanetalagna f Hvítá eru
nokkrar lagnir fyrir silung, svo-
kölluð lagnet. Laxanetin eru öll
króknet. Trausti sagði að ef
þessir aðilar yrðu fundnir sekir
af dómstólunum um að hafa
brotið lög um laxveiði i net, þá
mundu þeir liklegast fá svo lág-
ar sektir að lögbrotið borgaði
sig. Sagði hann að ljóst væri að
slíkt gengi ekki. Þá nefndi
hann þriðja tilfellið um sams
konar brot, þar sem sjónar-
vottar eða vitni væru að, sem
tilbúin væru að staðfesta með
eið að lagnir hafi verið látnar
liggja yfir nótt í algjöru logni.
Þegar stórstreymt er eins og
var síðastliðinn föstudag er eitt
áðurnefndra brota var framið,
gengur mikill lax upp ána, og sá
lax sem gengur upp að nætur-
lagi er að sjálfs'Bgðu ætlaður til
göngu upp árnar, m.a. í Grímsá.
Þar hefur veiði verið mjög treg
i sumar og sagði Trausti að
stangveiðimenn kenndu eðli-
lega slíku háttarlagi sem þessu
um. Veiði í ám í Borgarfirði
hefur í vor verið frekar léleg
nema i Þverá og Norðurá.
— Rafvirkjar
Framhald af bls. 2
ýmsar breytingar voru gerðar á
starfsaldurshækkunum og þær
færðar niður. Ymsar trygginga-
upphæðir j^oru og hækkaðar um
allháar prósentutölur eða um allt
að 50% Gildistími samningsins er
til 1. febrúar 1976.
Nýtt rafverk-
takafélag
Akranesi, 3. júlí —
FÉLAGAR úr Rafverktakafélagi
Vesturlands hafa stofnað með
sér hlutafélag, sem hlaut nafnið
Rafverktakar Vesturlands h.f.
Lögheimili og varnarþing þess er
á Akranesi. I stofnsamningi segir,
að markmið félagsins sé að
taka að sér meiriháttar verkefni f
rafvirkjun á félagssvæðinu, sem
einstakir rafverktakar eiga siður
kost á.
Stjórn félagsins skipa eftirtald-
ir menn: formaður Sigurdór
Jóhannsson rafvirkjameistari á
Akranesi, ritari Einar Stefánsson
rafvirkjameistari í Búðardal,
meðstjórnandi Haraldur Gfslason
rafvirkjameistari i Stykkishólmi.
— Júlfus.
r
Ok af árekstursstað
FÖSTUDAGINN 27. júni um kl.
15 var ekið á bifreiðina G — 3809,
sem er af Taunus-gerð, grá að lit,
þar sem hún stóð á Grettisgötu við
Austurbæjarbíó. Eftir þvf sem
næst verður komizt var það Cev.
Blazer með svartri rönd sem á
bifreiðina ók, en til bifreiðarinn-
ar sást er hún ók af árekstursstað.
Er ökumaður hennar beðinn um
að gefa sig fram við rannsóknar-
lögregluna.
Veski gleymdist
í leigubíl
DÖNSK hjón sem hér eru á ferða-
lagi urðu fyrir þvf óhappi, að
maðurinn tapaði veski sínu og
hefur það að öllum likindum
gerzt í ljósbrúnni leigubifreið,
sem ók hjónunum frá Kjarvals-
stöðum að Hótel Garði um kl.
17:45 á miðvikudag. Leigubíl-
stjórinn er vinsamlegast beðinn
að hafa samband við rannsóknar-
lögregluna vegna málsins.
Vífilsmótið
um helgina
UM HELGINA verður sjötta
Vffilsmótið haldið, en það er
skátamót, sem skátafélagið Vffill
f Garðahreppi gengst fyrir. Móts-
staðurinn er fyrir ofan Garða-
hrepp á sléttum, er nefnast
Urriðavatnsdalir. Rammi mótsins
er helgaður spakmælinu:
„Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér“. Til
mótsins er sérstaklega boðið skát-
um af Suðurnesjum.
Lýst eftir sláttuvél
MILLI kl. 7 og 8 á miðvikudags-
morgun kom maður að húsi við
Miðtún i Reykjavík og tók þar
rauða sláttuvél af Husqvarna-
gerð, nýuppgerða, en skildi eftir
aðra vél, nýja að sjá, af Folbate-
gerð, sem hann hafði komið með
sjálfur að húsinu. Konan sem á
Husqvarna-vélina vill endilega fá
hana aftur og er þvf skorað á
manninn að koma henni til skila,
en hinnar vélarinnar getur hann
vitjað hjá rannsóknarlögreglunni
í Reykjavík.
------» ♦ «-----
Ekið á bíl
AÐFARANÓTT miðvikudags á
tímabilinu kl. 24—08, var ekið á
ljósgráa Volkswagen-bifreið, R-
40413, við Sæviðarsund 42 og
vinstra frambrettið dældað mikið.
Þeir sem kynnu að geta gefið upp-
lýsingar um ákeyrsluna eru beðn-
ir að láta rannsóknarlögregluna í
Reykjavík vita.
— Frumathugun
Framhald af bls. 2
á hati úti og nauSsyn á að bæta
kennsluna I heilsufræði við
sjómannaskólana þannig að
hægara yrði að veita hjálp I viðlög-
um um borð og að gefa upplýsing-
ar og sækja ráð með fjarskiptum.
Þá voru menn einnig ásáttir um
nauðsyn þess að hafa góða skrá-
setningu á veikindum og dauðs-
föllum meðal sjómanna til þess að
fá örugga þekkingu á hvaða sjúk-
dómar væru algengastir og hvar
helzt þyrfti að beita fyrirbyggjandi
aðgerðum. Einnig urðu menn
ásáttir um nauðsyn þess að sam-
ræma þyrfti heilsufræðikennsluna
og heilbrigðisþjónustuna á milli
Norðurlanda að svo miklu leyti
sem unnt væri og að nauðsynlegt
væri að framkvæma sam-
norrænar rannsóknir á ýmsu sem
varðaði vinnuaðstöðu, félagsleg-
og heilsufarsleg vandamál
sjómanna sjálfra og fjölskyldna
þeirra. Var I þessu sambandi bent
á ýmis verkefni sem taka þyrfti
upp til nánari rannsóknar svo sem
áhrif hávaða, titrings, veðurfars,
vaktaskipta og hinna sérstöku
félagslegu aðstæðna sem
sjómannsstarfinu fylgja á heilsu-
far sjómanna og fjölskyldna
þeirra."
Af Isiands hálfu tóku þátt I þess-
ari ráðstefnu auk Tómasar sjálfs,
Ólafur Bjarnason prófessor, Þor-
björn Broddason lektor og
Guðmundur Hallvarðsson, fulltrui
Sjómannasambands fslands.
Ætlunin var að Vilhelm Þorsteins-
son fulltrúi Félags Islenzkra botn-
vörpuskipaeigenda tæki einnig
þátt I ráðstefnunni en vegna
starfa I samninganefnd gat hann
ekki komið þvl við. Guðmundur
Hallvarðsson og Tómas Helgason
fluttu framsöguerindi á ráðstefn-
unni um sjómannsfjölskylduna og
heilsufar sjómanna og sjómanna-
fjölskyldna. Auk ofangreindra
vinna Haraldur Ólafsson lektor og
Gylfi Ásmundsson dósent að þess-
um rannsóknum.
— Ford
Framhald af bls. 17
haföi ætlað að hitta Solzhenitsyn á
mánudaginn var en þann dag
ávarpaði rithöfundurinn fund
bandarísku verkalýðssamtak-
anna, AFL-CIO, og sagði meðal
annars að Bandarikjamenn ættu
að gæta sín vel, er þeir
friðmæltust við Sovétríkin.
Kaffi einn pakki á 109 kr.
Strásykur 50 kg. 9.500 kr.
Smjörlíki 1 stk. 138 kr.
Hveiti Pilsbury 25 kg. 2.530 kr.
Tómatsósa 3 pelar 249 kr.
Kellogs cornflakes 12 oz. 160 kr.
Molasykur 206 kr.
Fiskibollur 1 /2 dós 88 kr.
Toiletpappír Regin 52 kr.
Kjöt í heilum skrokkum
Opið alla föstudaga til kl. 10
Kostaboó á
kjarapöllum
KJÖT OG FISKUR
SELJABRAUT 54, SlMI: 74200