Morgunblaðið - 04.07.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚLl 1975
23
Hugleiðing til félaga
Matsveinafélags SSÍ
Nú er komið að lokum þessa
langa verkfalls sem við höfum
verið aðilar að. Er því rétt að doka
við og lita á samningsstöðuna eins
og hún liggur nú fyrir. Hverju
höfum við áorkað eftir tíu vikna
verkfall? Utkoman er neikvæð;
við stöndum nákvæmlega i stað,
og á ég þar við þau sérákvæði sem
við félagar i Matsveinafélagi SSÍ
settum á oddinn i upphafi deil-
unnar.
Það skal hér viðurkennt af
fenginni reynslu að við höfum átt
við ramman reip að draga. Þar á
ég við samninganefnd sjómanna,
sem vill fótum troða okkur og
jafnvel feiga. Við erum ekki sjálf-
stæðir samningsaðilar þar sem við
getum ekki samið beint við út-
geröarmenn. Þær kröfur sem við
leggjum fram þurfa þeir að kríti-
sera og reka krumlurnar i. Kemur
þar bæði fram öfund og tor-
tryggni. Við slikt fyrirkomulag
getum við ekki búið öllu lengur.
Það er mál að linni.
Það mætti skrifa langa grein
um það misrétti sem við matsvein-
ar á togurunum höfum orðið að
þola við síðustu og næst síðustu
samninga á sama tíma og rétt-
lætismálum flestra er fullnægt.
Ég ætla mér að leiða fólk í sann-
leikann um þetta, en mun gera
langt mál stutt.
Frá minum sjónarhóli séð er
þetta furðuleg staða sem blasir
við. Máttvana formaður okkar
hefur látið hina og þessa teyma
sig á asnaeyrunum, en skellt
skollaeyrum við þeim þrýstingi
sem hann svo sannarlega varð
fyrir af vissum mönnum úr
stjórninni. En það dugði bara
ekki til. Formaðurinn, Ársæll
Pálsson, var orðinn svo svæfður
af eiginhagsmunarsjónarmiðum
formanns Sjómannasambands Is-
lands og formanns Sjómanna-
félags Akureyrar. Þetta eru báðir
menn á áttræðis aldri en eru þó
enn harðir í horn að taka og halda
vöku sinni, þó manni fyndist
sanngjarnt, þar sem þeir eru
komnir á ellilaun, að yngri menn
væru setztir í sæti þeirra. En
þetta eru einmitt foringjarnir
sem hafa Iagt snöru að hálsi okkar
matsveina.
Það sem skeði í næst síðustu
samningum var það, að þá feng-
um við i hausinn öll þrif á þessum
nýju skipum. Þar á ég við alla
ganga, sem er mest á þremur hæð-
um á stærstu skipunum, þ.e. þeim
spönsku, og er það geysileg yfir-
ferð, því þar er hátt til lofts og
vítt til veggja. Þessu var okkur
öllum matsveinunum sem á þess-
um skipum vinnum mikið kapps-
mál að ná út úr samningunum, en
það tókst ekki í þetta skipti. Eins
fórum við fram á „rauða daga“
eða álagsdaga, sbr. hátíðisdaga
svo sem jól, páska o.s.frv., því að
ef nokkur maður á að fá þá um
borð í einu skipi þá er það mat-
sveinninn. Það vita þeir sem til
þekkja og sanngjarnir eru. Eins
fórum við fram á að ekki þyrfti að
bíða með mat fyrir stýrimanninn
fram eftir á kvöldin eins og tíð-
kast af gamalli hefð, en ekki að
neins staðar standi stafur fyrir
því. Þessum þremur atriðum var
hafnað, en í þeirra stað kom
nokkurs konar miðlunartillaga
sem felur í sér fæðingu einnar
nefndarinnar enn. Á að fara fram
starfsmat á vinnu matsveina um
borð í skipunum og á nefndin að
vera búin að skila áliti fyrir 1.
desember næstkomandi.
Ekki er ég hræddur við úrskurð
þessarar nefndar, þ.e.a.s. ef það
verður ekki nefnd embættis-
mannakliku, formanns Sjómanna-
sambandsins eða formanna
sjómannafélaganna — allt fjand-
menn matsveina. Þar skulu sitja
óvilhallir menn með ósýkta dóm-
greind. Með tilliti til þess úr-
skurðar sem nefndin skilar af sér
(segir í miðlunartillögunni) má
taka upp nýjar samningaviðræður
um kjör matsveina á gildistima
nýgerðu kjarasamninganna. En
þá er líka rétt að hafa það hugfast
að þegar að þeim viðræðum kem-
ur þarf stjórnin að vera sameinuð
en ekki sundruð eins og segja má
að hún hafi verið allan samnings-
timann vegna þess að þeim tveim-
ur mönnum, sem i landi hafa ver-
ið og eru i stjórninni, hefur verið
ýtt til hliðar, en formaðurinn val-
ið sér einn mann af sjálfsdáðum
sem honum hefur fundizt sér
handhægari.
En hefur þú vald til slíks, Ár-
sæll Pálsson? Þriðjudaginn 24.
júni var haldinn fundur i Mat-
sveinafélagi SSI á Hrafnistu
(DAS). Þar voru samþykkt af öll-
um mættum mótmæli, uppsögn og
ósk um sérviðræður við útgerðar-
menn. Og auðvitað fór formaður-
inn með hið umrædda plagg á
sáttafund sem haldinn var þá síð-
ar um daginn. En hann tók ekki
stjórnina með sér, heldur þennan
handhæga. Það er þvi ljóst að
formaðurinn hefur leikið aðal-
hlutverk stjórnarinnar allrar. Það
var og meining félagsmanna að
hann sæti ekki áðurnefndan
fund, en það gerði hann þvert
ofan i mótmælin. Og ekki fengum
við neina staðfestingu á því að
hann hafi afhent mótmælaplaggið
(sem hann sagðist hafa gert og
þeir sagt það ólöglegt), og má
segja að það hafi verið merkileg
málsmeðferð og alræðisdómsvald
með einu pennastriki. Undirritað-
ur og Skúli Einarsson hringdum í
formanninn þegar við vissum hið
sanna og lýstum andúð okkar á
aðgerðum hans. Kl. 12.30 aðfara-
nótt miðvikudagsins 25. júní feng-
um við áðurnefndir skipun um að
mæta á sáttafund og sátum hann
ásamt formanninum og hans
handhæga manni. Við fengum sér
viðtal með þremur sáttasemjur-
um (og það verð ég að segja að
það andaði köldu frá þeim til
okkar), og svo siðar viðtal við þrjá
útgerðarmenn og var allur annar
biær á þeim viðræðum, og kann
ég þeim beztu þakkir fyrir. Þó svo
að útkoman hafi orðið neikvæð i
þetta sinn þá var það ekki þeim að
kenna, og eygi ég von þar vegna
sáttfýsi þeirra þegar til kastanna
kemur um nýjar viðræður sem
eins og áður segir gætu hafizt í
desembermánuði.
Að lokum þetta. Allt sem á
undan er gengið og lýst er hér að
framan gefur tilefni til að íhuga
það hvað væri það bezta sem
Ársæll Pálsson gerði nú fyrir
Matsveinafélag SSI. Tvímæla-
laust lýsi ég vantrausti á for-
manninn, en bezta jólagjöfin á
þessu ári sem félagið fengi frá
honum væri uppsögn hans í starf-
inu. Með nýjan formann i brúnni
hjá Matsveinafélagi SSl mættum
við eiga von á að endurreisa félag-
ið úr þeirri lægð sem það nú er í.
Auðunn Hafnfjörð Jónssnn
I. matsveinn á togaranum Bjarna
Benediktssyni.
— Orð í eyra
Framhald af bls. 4
Það lítur út fyrir að þeir haldi
að menntun á atómöld i há-
þróuðu velferðarþjóðfélagi sé
eilífur lestur og puð og streð.
En það er nú eitthvað annað.
Félagslegur þroski og svoleið-
isnokkuð er sko það sem skipt-
ir máli. Og kennurum á ekki að
líðast að fella nemendur. Það
er skaðræði fyrir sálina. Eg
tala nú ekki um að neita fólki
um próf, þó svo það hafi brotið
einhvur reglugerðarslitur sem
Broddi eða Torlasius geyma
inní skáp. Ég stend sko
hundrað prósent með mann-
vitsbrekkunum i Kennara-
skólanum.
— Akkúrat, sagði ég og fletti
blaðinu.
PERMA
UTANHUSS OLIU — LIMMALNING
Hentar vel á ný hús og gamalmáluð, með vatnsmálningu eða
„snowsemi". Engin afflögnun, sprungur, né upplitun hefur átt sér
stað í þau 8 ár sem málningin hefur verið notuð hér á landi. 18
fallegir litir.
8 ARA REYNSLA A ISLANDI
Höfum einnig ýmis konar þéttiefni í sprungur og til glerísetningar.
Bituthene
pappi á flöt þök, steyptar rennur og til þéttingar á hverskonar lekum
stöðum.
Pappinn er sjálflímandi og í sérstökum gæðaflokki.
Opið daglega frá 9 til 18 og laugardaga frá 10 til 12
Sendum í póstkröfu um land allt.
Sigurður Páisson, bygglngam.,Kambsveg 32
Símar 38414 og 34472.
Tjöld,
alls
konar
Utigrill
Svefnpokar
mjög vandaðir, margar gerðir
Picnic töskur
Gassuöuáhöld
alls konar
Víndsængur
Einnig ferðafatnaður
í miklu úrvali
GEYSiP