Morgunblaðið - 04.07.1975, Qupperneq 36
NÚ EINNIG
NÝ VERSLUN
í HA^FNARSTRÆTI 17
* myndidjan^
ASTÞORhf
HLAÐNAR
ORKU
. 'T T
MIKILL fjöldi túrista var f gær f Keykjavík. Þetta voru teroamenn af| ^
skemmtiferðaskipinu Sagafjord. Ferðamennirnir notuðu tækifærið ogl
fóru f minjagripaverzlanir og keyptu sér sitthvað, sem þeim leizt vel á.
Stóra myndin sýnir Sagafjord á ytri höfninni, en Akraborg koma inn.
Minni myndirnar eru af túristum f Reykjavfk. —
Töluvert loðnumagn
á Vestfjarðamiðum
Stöðvast skuttogar-
ar Eskfirðinga vegna
skorts á geymslum?
SAMÚÐARVERKFALL það, sem
vélstjórar á kaupskipaflotanum
efndu til með vélstjórum á tog-
araflotanum, hefur haft alvarleg-
ar afleiðingar vfða úti á landi, þar
sem ekki hefur verið unnt að af-
skipa frystum fiskafurðum og eru
þvf allar afurðageymslur þar
löngu fullar.
I viðtali, sem Mbl.
átti f gær við Aðalstein Jónsson á
Eskifirði, kom þetta m.a. fram og
sagði Aðalsteinn að Eskfirðingar
hefðu þurft að flytja um 3 þúsund
kassa af fiski til Reyðarfjarðar og
fyrirsjáanlegt væri að flytja
þyrfti meira.
Aðalsteinn sagði að með til-
komu skuttogaranna hefði afla-
magn aukizt mjög, sem á land
kæmi. Hann sagðist t.d. hafa sótt
um það að stækka geymslur sínar
vegna þessa ófremdarástands, þar
eð geymslur væru orðnar allt of
litlar í samanburði við fyrirtækið
í heild. Sölumiðstöðin segði sér að
stækka, en lánastofnanir veittu
enga fyrirgreiðslu og því stæði
málið allt í hnút. Kvað Aðalsteinn
það mjög brýnt mál, að unnt yrði
að stækka geymsluhúsnæði fyrir
frystar fiskafurðir. Þetta ástand
gæti jafnvel haft það i för með sér
að stöðva þyrfti skuttogarana.
Játuðu á sig stór-
þjófnað 1 Stálvík
.
LOÐNA virðist nú vera á
stóru svæði úti fyrir Vest-
ur- og Norðurlandi. í gær
skýrði Morgunblaðið frá
því, að togarar hefðu verið
að finna mikið loðnumagn
úti fyrir Norðurlandi og í
gær frétti blaðið að togarar
á Vestfjaröamiðum hefðu
fundið loðnu víða á togara-
Farafonov
sendiherra:
Færið ekki út
í 200 sjómílur
MORGUNBLAÐIÐ hefur
fregnað, að sendiherra Sovét-
rfkjanna á Islandi, Georgi
Nikolaevieh Farafonov, hafi
gengið á fund utanrfkisráð-
herra og borið fram þá ósk, að
Islendingar færðu ekki úl fisk-
veiðimörk sín f 220 sjómflur.
Landhelgisnefnd var á fundi
í gær og var þar rætt um fyrir-
hugaða útgáfu reglugerðar um
útfærslu fiskveiðilögsögunnar.
Ekki var ákvörðun tekin um
dagsetningu útfærslunnar.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins hefur verið ákveðið að hún
verði kölluð saman á mánudag
klukkan 5, til þess að ræða
viðhorfin i landhelgismálinu.
slóðum, en þó mest í
Reykjafjarðarál. Loðnan
sem er nú í Reykjafjarðar-
ál hefur verið fitumæld og
reyndist hún vera 8,7%
feit.
Björn Dagbjartsson forstöðu-
maður Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að loðnan
sem þeir fitumældu hefði verið
fengin hjá skuttogaranum Dag-
rúnu frá Bolungarvík og veiðzt
28. júnfs.l.
Þótt loðnan sé ekki með nema
8,7% fituinnihald enn sem komið
er, þá fitnar hún mjög ört næstu
vikurnar og ætti að nálgast 18% f
lok þessa mánaðar.
Hálfdán Einarsson í Bolungar-
vík sagði, að skipstjórum á Vest-
fjarðatogurunum bæri saman um,
að töluvert væri um Ioðnu úti af
Fimm seldu
FIMM sfldveiðiskip seldu góóan
afla í Hirtshals og Skagen f gær,
og fengu öll gott verð fyrir afl-
ann, eða yfir 40 kr. pr. kg. AIls
seldu þau 345 lestir fyrir 15,1
millj. kr.
Hrafn GK seldi 46 lestir fyrir 2
millj. kr. og var meðalverðið kr.
46, Reykjaborg RE seldi 80 lestir
fyrir 3,6 millj, kr., meðalverð kr.
45, Skarðsvík SH seldi 68 lestir
fyrir 2,9 millj. kr., meðalverð kr.
44, Faxaborg GK seldi 68 lestir
fyrir 3,1 millj, kr., meðalverð k.r.
46 og Hilmir SK seldi 82 lestir
fyrir 3,4 millj, kr., meðalverð kr.
43.
FÖSTUDAGUR 4. JULÍ 1975
Vestfjörðum. Ekki væri mikið um
þéttar torfur, en loðnuna mætti
vel veiða í flottroll. Togararnir
fengju alltaf nokkuð af loðnu í
vörpuna, en eðlilega mest, þegar
þeir notuðu flottrollið.
PILTARNIR þrfr sem brutust inn
f bæjarskrifstofurnar f Kópavogi
á dögunum og stálu þar um 1360
þús. krónum hafa játað við yfir-
heyrslur hjá rannsóknarlögregl-
unni f Kópavogi að vera valdir að
fjórum innbrotum allt frá þvf f
fyrravetur. Stærsti þjófnaðurinn
var framinn f skipasmfðastöðinni
Stálvík f Garðahreppi f fyrravet-
ur, er þeir stálu peningum og
skjölum að verðmæti á áttunda
hundrað þúsund króna.
Piltarnir, sem eru 18 og 19 ára
gamlir, sitja í gæzluvarðhaldi á
meðan rannsókn mála þeirra fer
fram. Auk fyrrgreindra innbrots-
þjófnaða hafa þeir játað á sig inn-
brot i hús í Garðahreppi, skrif-
stofur í Edduhúsinu í Reykjavík
og í verzlunina örnólf við Snorra-
braut, en þar var hvorki um mikl-
ar skemmdir né þjófnaði að ræða.
Hins vegar varð talsvert tjón
vegna skemmda í innbrotunum í
Stálvík og bæjarskrifstofurnar og
mun því að vænta talsvert hárra
bótakrafna á hendur þeim.
I innbrotinu í Stálvík stálu þeir,
eins og fyrr segir, peningum og
skjölum, samtals að andvirði 776
þús. kr. Þar af voru 50 þús. kr. í
peningum, en hitt í víxlum og
ávísunum. Talsvert af þeim skjöl-
um hefur verið endurnýjað, en
raunverulegt tjón í innbrotinu
nemur hátt á þriðja þúsund krón-
um.
Piltarnir höfðu lítillega komið
við sögu lögreglunnar áður en
þeir voru handteknir fyrir þjófn-
aðinn úr bæjarskrifstofunum.
Ekki allir
sem fiska
ÞÖ að nótaskipið Sigurður hafi
fiskað mjög vel við Nýfundnaland
í sumar, hefur ekki öllum loðnu-
skipunum, sem landa í Norglobal,
gengið jafn vel. Átta skip leggja
upp Ioðnu í Norglobal, en aðeins 2
— 4 þeirra fyrir utan Sigurð
munu hafa fengið einhvern afla,
og Sigurður er lang aflahæsta
skipið, en sum skipin eru stærri
eða jafnstór og Sigurður.
Sigurður Einarsson hjá Isfelli
h.f. sagði í gær, að þótt útgerðin
slyppi við að kaupa kassa og ís á
þessum miðum þá væri margur
annar kostnaður mjög hár, eins og
t.d. siglingin frá Islandi og heim
aftur, og sjómennirnir fengju
borgaðan löndunarkostnað. Ef ná
þyrfti í varahluti þyrfti að fara til
Nýfundnalands og jafnvel bíða
þar eitthvað.
Laxabændur deila
um netalagnir í Hvítá
LAXASTRlÐ mikið hefur nú
hafizt á bökkum Hvftár f Borg-
arfirði og hafa tveir bændur
þar sinnhvorum megin árinnar
kært hvor annan fyrir ólögleg-
ar netalagnir f ánni. Um er að
ræða bóndann f Ferjukoti Krist
ján Fjelsted, annars vegar og
Hannes Olafsson bónda á Hvft-
árvöllum hins vegar. Sfðastlið-
inn föstudag voru 18 laxar gerð-
ir upptækir úr lögn, sem kærð
hafði verið og var verðmæti
þess um, eða yfir 20 þúsund
krónur.
Trausti Jónsson veiðieftirlits-
maður sagði f viðtali við Mbl. í
gær að um gamlar erjur væri að
ræða, sem margnazt hefðu upp
að nýju. Hafa bændurnir tekið
upp net hvor fyrir öðrum, í
einu tilvikinu var um ólöglega
lögn að ræða, en í binu síðara
verða dómstólar að skera úr
málum. I því tilfelli er deilt um
veður og ber öllum saman um
að veður hafi verið gott, nema
eiganda netanna. Er nú beðið
eftir vottorði frá Veðurstofu Is-
lands, um veður á þessum slóð-
um umræddan dag, en veðurat-
huganir fara fram á Hvanneyri
og einnig er vindsíriti í Borgar-
nesi.
Trausti sagði að menn skipt-
ust nokkurn veginn í tvo hópa í
héraðinu í máli þessu, en yfir-
leitt sagði hann að ekki væri
unnt að trúa nokkrum, þar sem
sögur um þessa atburði hefðu
magnazt mjög. Hins vegar sagði
hann að fremur leiðinlegt veð-
ur hefði verið framan af degi
síðastliðinn föstudag og þegar
hann hafi komi á staðinn hafði
annar bóndinn tekið upp net
fyrir hinum og var allt komið í
háaloft. Sagði Trausti að málið
væri orðið alvarlegt, er menn
væru farnir að fela net í ánni,
svo að þau sjáist ekki frá landi.
Slíkt kvað hann hafa verið
stundað fyrir um áratug, en nú
grunaði marga að slíkt tíðkaðist
ef til vill enn.
Landslög segja svo fyrir að
netalagnir megi ekki liggja í
ám eftir klukkan 22 að kvöldi
og verður að taka upp netin
fyrir þann tíma, nema Iíf liggi
við, t.d. vegna veðurs, ef farið
er út á ána. Umræddar lagnir
voru svokallaðar Hvanneyrar-
lagnir og ölvaldsstaðalagnir, en
þeim er ekkí unnt að ná upp, ef
vindur er meiri en 6 stig. Þó má
ef til vill gera þær óvirkar, þótt
vindur sé svo hvass.Lögnin sem
var með 18 laxa, var sú bezta,
en fleiri lagnir eru í ánni, svo
að Trausti sagði að búast hefði
mátt við að í öllum lögnunum
hafi verið tugir laxa.
Um 50 netalagnir eru nú
Framhald á bls. 20