Morgunblaðið - 10.09.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1975 7
l
Kaupbinding
í Bretlandi
Þing brezka Alþýðu-
sambandsins, sem háð
var i sl. viku, var athyglis-
vert fyrir ýmsra hluta sak-
ir. Þar var samþykkt með
rúmlega tvöföldum meiri-
hluta að styðja stefnu
brezku jafnaðarmanna-
stjórnarinnar, þess efnis,
að næstu 12 mánuði megi
kaup ekki hækka meira
en sem svarar sex sterl-
ingspundum á viku, — i
áföngum — og engin
kauphækkun skuli koma
til þeirra, sem hafa yfir
8500 sterlingspunda árs-
laun. Þessi kaupbinding
er talin frumskilyrði þess,
að hægt verði að ná þvi
marki, sem að er stefnt,
að lækka verðbólguvöxt-
inn niður í 10% á árs-
grundvelli fyrir mitt ár
1976. Verðbólguvöxtur-
inn i Bretlandi hefur verið
um 25% á ársgrundvelli
eða helmingi hægari en
hérlendis.
Brezkir námumenn,
sem þótt hd^a harðir i
kaupkröfugerð, sam-
þykktu nú með miklum
meirihluta stuðning við
stefnu rikisstjórnarinnar
um framangreind kaup-
gjaldsmörk, þrátt fyrir áð-
ur gerðar verulega hærri
kaupkröfur.
Krónuhækkun
launa og
kaupmáttur
Afstaða brezka Alþýðu-
sambandsins mun m.a.
hafa byggzt á niðurstöð-
um kannana, sem leiddu i
Ijós, að kauphækkun i
krónutölu er ekki einhlit
leið til kjarabóta. Nýjar
skýrslur um kaupmátt
launa þar i Jandi, undir
stjórn jafnaðarmanna,
sýndu sem sé fram á, að
Harold Wilson, forsætisráð-
herra, leiðtogi brezkra jafn-
aðarmanna.
þrátt fyrir 20% krónu-
hækkun launa sl. niu
mánduði hafði kaupmátt-
ur þeirra rýrnað um 7% á
sama tirha. Len Murray.
framkvæmdastjóri Al-
þýðusambandsins. lét
þess getið i yfirlitsræðu,
að ef kauphækkanir héldu
áfram, eins og verið hefði,
yrði útilokað að draga úr
verðbólgunni, samkeppn-
isaðstaða brezkra at-
vinnuvega myndi enn
versna og atvinnuleysið
aukast, en víðtækt at-
vinnuleysi hrjáir nú brezk-
an vinnumarkað.
Meðal þeirra verkalýðs-
foringja, sem studdu
stefnu rikisstjórnarinnar á
þinginu. var fram-
kvæmdastjóri Sambands
flutningaverkamanna,
Jack Jones, sem er úr
vinstri armi brezka Verka-
mannaflokksins. Hann er
og talinn hafa átt mestan
þáttinn i að móta kaup-
bindingarstefnu brezku
jafnaðarmannastjórnar-
innar.
Ástandið á brezkum
vinnumarkaði hefur verið
mjög alvarlegt lengi und-
anfarið. Atvinnuleysi hef-
ur verið mikið og sam-
dráttareinkenni skýr i at-
vinnurekstri. Verðbólga
hefur verið mjög ör, mið-
að við önnur Evrópuriki.
Aðeins írland kemst i
sambærilegan verðbólgu-
vöxt. ef miðað er við önn-
ur riki Mið- og Norður-
Evrópu, að Islandi einu
undanskildu, sem i þvi
efni á ótvirætt Evrópu-
met.
Afstaða þings brezka
Alþýðusambandsins er
mjög eftirtektarverð, ekki
sízt með hliðsjón af því,
hvað framundan er i kaup-
gjaldsmálum hér á landi,
en samningar aðila vinnu-
markaðarins hér renna út
um nk. áramót.
spurt &
Hringið í síma 10100
milli kl. 10.30 og 11.30
frá mánudegi til
föstudags og spyrjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
GETUR RÁÐUNEYTIÐ
HEIMILAÐ
INNFLUTNING
A AFENGUM BJÓR?
Haraldur Blöndal, Grenimel
2, Reykjavfk, spyr:
„Gefin hefur verið út ný
reglugerð um innflutning toll-
frjáls varnings, þar sem m.a.
sjómönnum og flugliðum er
leyft að koma með inn í landið
ákveðið magn af áfengum bjór
en samkv. áfengislögunum er
fortakslaust bannað að flytja
þennan hættulega drykk inn í
landið og er þar engin undan-
þága gefin. Þrátt fyrir ítrekaða
leit hef ég hvergi fundið, að
Alþingi hafi hvikað í þessu
máli. Er mér því nauðsynlegt
að spyrja fjármálaráðuneytið
eftirfarandi:
Eftir hvaða heimildum fer
ráðuneytið, þegar það leyfir
innflutning á áfengum bjór?
Telur ráðuneytið, að það geti
með útgáfu reglugerðar breytt
fortakslausu banni á innflutn-
ingi ákveðinna vörutegunda og
veitt leyfi til ákveðinna stétta
til innflutnings, og t.d. leyft
innflutning á landbúnaðar-
afurðum, til þeirra, sem gegnt
hafa ritstjórastarfi á Visi?
Telur ráðuneytið sig hafa
heimild til þess að leyfa ferða-
mönnum almennt að flytja inn
áfengan bjór með vísan i sömu
heimildir og undanþáguna til
sjómanna?"
Þorsteinn Olafsson, deildar-
stjóri tolla- og eignadeildar
f jármálaráðuneytisins, svarar:
„I 7. gr. 2. mgr. nýsettrar
reglugerðar nr. 362/1975 er að
finna heimildir þær, sem reglu-
gerðin er byggð á. Þar segir, að
reglugerðin sé sett samkvæmt
heimild f 4. og 5. tl. 2. gr. toll-
skrárlaga nr. 6 5. mars 1974 og
42. tl. 3. gr. sömu laga. Heimild-
in í 42. tl. 3. gr. tollskrárlaga
skiptir megin máli varðandi
fyrirspurnir Haralds og þykir
því rétt, að efni hennar komi
hér fram.
Samkvæmt nefndum 42. tl. 3.
gr. er fjármálaráðuneytinu
heimilt að „fella niður með
reglugerð aðflutningsgjöld af
varningi, allt að ákveðnu
hámarki hverju sinni sem far-
menn og ferðamenn hafa
meðferðis frá útlöndum um-
fram þá muni, sem greinir f 4.
og 5. tölulið 2. gr„ enda sé ekki
um verslunarvöru eða annan
innflutning i atvinnuskyni að
ræða. Undanþágu samkvæmt
næstu málsgrein hér á undan
má binda skilyrðum varðandi
tollmeðferð varningsins, enn
fremur um, að hún nái ekki til
ákveðinna vöruflokka eða sé
takmörkuð við sérstakt hámark
vissra vörutegunda. Að öðru
leyti gilda ekki innflutnings-
hömlur um slíkan varning aðr-
ar en þær, sem settar eru vegna
sóttvarna eða annarra öryggis-
ráðstafana“.
1 umræddri reglugerð þótti
nægilegt að vitna til nefndra
heimilda. En af gefnu tilefni
má jafnframt benda á 3. mgr. 1.
gr. laga nr. 63/1969 um verslun
ríkisins með áfengi, tóbak og
lyf. Þar segir, að ráðherra (fjár-
málaráðherra í þessu tilviki) sé
heimilt að setja sérreglur um
innflutning ferðamanna og
áhafna skipa og flugvéla á
áfengi og tóbaki. 1 lagasafni
1973, sem Ármann Snævarr,
hæstaréttardómari, hefur tekið
saman, er við 3. gr. nefndra
laga visað til eldri reglugerðar
um sama efni nr. 117/1972.
Hún var felld úr gildi með
hinni nýju reglugerð, sem hef-
ur engar efnislegar breytingar
að geyma i þessu efni.
I 3. gr. áfengislaga nr.
82/1969, sbr. brl. nr. 84/1971
segir: „Þó skal óheimilt að
flytja til landsins öl, sem hefur
inni að halda meira en 2V4 % af
vinanda að rúmmáli.“ Ákvæði
þetta eitt sér, slitið úr sam-
hengi við aðra löggjöf og skilið
eftir orðanna hljóðan, leiðir að
sjálfsögðu til þeirrar niður-
stöðu Haralds Blöndal, að inn-
flutningur á öli sé fortakslaust
bannaður. En löglærðir borgar-
ar landsins verða að gæta
varúðar í ályktunum sem þess-
um og skýra réttarheimildir
með hliðsjón af öðrum
ákvæðum löggjafarinnar.
Nefnda 3. gr. áfengislaga
verður þvi að skoða og skýra
með hliðsjón af þvi ákvæði 42.
tl. 3. gr. tollskrárlaga, þar sem
segir m.a., að aðrar innflutn-
ingshömlur en þær, sem eru
vegna sóttvarna eða annarra
öryggisráðstafana gildi ekki um
slíkan varning, þ.e. varning
ferðamanna og farmanna. Af
því, sem nú hefir verið rakið
má vera ljóst, að með útgáfu
margnefndrar reglugerðar hef-
ir ráðuneytið eigi breytt for-
takslausu banni á innflutningi
ákveðinna vörutegunda, heldur
stuðst við réttarheimild, sem til
hefur orðið með stjórnskipu-
legum hætti. Til enn frekari
áréttingar skal vitnað til
athugasemda við lagafrumvarp
það, sem varð að lögum nr.
102/1965 og lagði grundvöll að
heimildinni í 42. tl. 3. gr.
tollskrárlaga:
„Jafnframt því, að varningur,
sem til landsins kemur á þenn-
an hátt, verður að vissu marki
fyrir hvern farmann eða far-
þega gerður tollfrjáls er einnig
gert ráð fyrir, að sérstakar inn-
flutningshömlur eða innflutn-
ingstakmarkanir í sérlögum
verði innflutningi þessum ekki
til hindrunar, nema innflutn-
ingstakmarkanir, sem eiga rót
sína að rekja til öryggisráðstaf-
ana, svo sem sóttvarna.“
(Alþingistíðindi 1965, A-deild,
bls. 656.)“
I NYJU HUSNÆÐI
AÐ
LAUGAVEGI 66
i sama húslvlð
hllðlna á verzlun
oKkar
Látið ekki |
happ
úr hendi
sleppa
Ótrúlega
lág verð fyrir
1. fl. vörur.
Laugavegi 66, sími 28155
J
MALASKOLI
26908
Danska, enska, þýzka, franska, spænska
ítalska og íslenzka fyrir útlendinga.
Innritun#daglega
Kennslz hefst 22. sept.
Skólinn ertil húsa að Miðstræti 7.
Miðstræti er miðsvæðis.
26908
Halldórs
Nudd- og snyrtistofa
Ástu Baldvinsdóttur
Hrauntungu 85, Kópavogi.
Andlitsböð,
húðhreinsun,
fót- og handsnyrting.
Megrunar- og
afslöppunar-
nudd og nudd
við vöðvabólgum.
VIL VEKJA SERSTAKA
ATHYGLI A:
10 tíma megrunar- og afslöppunar-
kúrum.
Nudd,s sauna, vigtun mæling og
matseðiU.
OPIÐ TIL KL. 10 ÖLL KVÖLD.
Bílastæði. Sími 40609.
pjazzBaLLettekóu búpu
L_ W
ui jozzbollell
Skólinn tekur til. starfa
1 5. sept.
1 3 vikna námskeið.
KENNT VERÐUR:
JAZZBALLETT
MODERN
SHOW-DANSAR
NÝJUNG
LEIKLIST—TJÁNING
Leiðbeinandi: Edda
Þórarinsdóttir, leikkona.
Upplýsingar og innritun í næstu viku í síma
83730.
Ath. framhaldsnemendur hafi samband við skól-
ann sem allra fyrst.
□ jazzBaLLettsKóU bópu
□ □ □ Jozzóaiiettsköii bópu