Morgunblaðið - 27.09.1975, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
309. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975 PrentsmiSja Morgunblaðsins.
Málamiðlun um
12 % olíuhækkun?
Vínarborg 26. september.
AP — Reuter
OLÍUMÁLARÁÐHERRA 13
aðildarlanda OPEC, samtaka olíu-
útflutningsríkja, slitu i kvöld
fundi sínum í Vinarborg án þess
að hafa komizt að samkomulagi
um hækkun olíuverðs, en ákváðu
að halda aukafund á morgun,
laugardag, eftir að hafa ráðfært
sig við rikisstjórnir sínar I þeirri
von að málamiðlun takist. Ekki
benti margt til að sættir væru að
takast milli helztu andstæðing-
anna, Saudi-Arabíu og írans, um
hversu mikil hækkunin á að vera,
en þó sagði olíumálaráðherra
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna, Man Saeed Al-Otaiba, að
svo virtist sem samkomulag kynni
að takast um málamiðlun sem
hann hefði lagt fram fyrr um dag-
inn og fæli í sér 12% hækkun.
Ahmed Zaki Yamani, olíumála-
ráðherra Saudi-Arabíu, sagðist
halda fast við þá afstöðu sína að
takmarka hækkunina við 5% frá
1. október og önnur 5% frá 1.
janúar. Fregnir hermdu að yfir-
gnæfandi meirihluti OPEC-
ráðherranna hefði náð innbyrðis
samkomulagi um 15% hækkun,
þ.á m. íran.
Simamynd AP
RÁÐHERRAVIÐRÆÐUR — Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, og Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þjóðverja, áttu i gær viðræðufund í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Umræðuefnið var fiskveiðideila þjóðanna og fyrirhuguð útfærsla fiskveiðilögsögunnar við ísland í 200
sjómflur. Myndin er af ráðherrunum á viðræðufundinum. —■ Sjá frétt á baksíðu.
DAUÐADÆMDIR — Þetta eru fimmmenningarnir, sem átti að taka af lífi á Spáni I nótt. F.v. Sanchez tíravo, Garcia Sanz, Baena Alonzo
Otaegui og Parades Manotas.
Spassky fær
græna ljósið
Moskvu 26. september
—Reuter.
BORIS Spassky, fyrrum heims-
meistari f skák, fékk f dag leyfi
sovézkra stjórnvalda til að kvæn-
Bandaríska öldunaadeildin:
Viðskiptanefndin
styður 200 mílur
Washington 26. september
AP — Reuter
VIÐSKIPTANEFND öldunga-
deildar Bandarfkjaþings sam-
þykkti einróma í gær frumvarp,
sem gerir ráð fyrir útfærslu
bandarfsku fiskveiðilögsögunnar
úr 12 í 200 mflur. Frumvarpið er
svipað því frumvarpi sem kaup-
siglinganefnd fulltrúadeildarinn-
ar hefur þegar samþykkt, svo og
því frumvarpi, sem öldungadeild-
Framhald á bls. 18
ast Marinu Stcherbatcheff,
frönskum sendiráðsritara, næst-
komandi þriðjudagsmorgun, að
því er Spassky sagði f samtali við
Reuter-fréttastofuna f kvöld.
Fyrr f þessum mánuði hafði skák-
meistarinn sagt, að hann óttaðist
að stjórnvöld f Moskvu væru að
reyna að koma f veg fyrir gifting-
una. Spassky sagði f kvöld, að
hann hefði komið á skráningar-
skrifstofuna f dag til að kanna
hvað liði umsókn sinni um að fá
að flvta brúðkaupsdeginum, sem
upphaflega var ákveðinn 11. nóv-
ember. „Mér var sagt að við gæt-
um ákveðið hvaða dag sem er og
við kusum 30. scptember.“
Spassky, sem í gær kom til
Moskvu úr frfi á Svartahafsströnd
ásamt Stcherbatcheff, sagði:
„Þetta eru dásamlegar fréttir."
Og brúðurin tilvonandi sagði:
„Við erum mjög hamingjusöm."
Spassky sagði að þau hefðu í
Framhald á bls. 18
Ný öryggissveit á að
koma á ró í Portúgal
Lissabon. 26. september.
AP — Reuter.
BYLTINGARRÁÐ hersins f
Portúgal setti f dag á laggirnar
nýja öryggisgæzlusveit f landinu,
sem ætlað er að koma á friði og ró
„með tilliti til hins alvarlega
hernaðar- og stjórnmálaástands“
eins og segir í yfirlýsingu ráðsins.
Hin nýja öryggissveit kallast
MiIIigöngusveit hersins (AMI),
og verður skipuð hermönnum úr
þremur greinum hersins, flota,
flug- og landher. Hún verður und-
ir æðstu stjórn Francisco da
Costa Gomes, forseta, en yfir-
maður hennar verður Nuno de
Melo Egido hershöfðingi. Mynd-
un þessarar sveitar telja frétta-
menn f Lissabon vera merki um
veika stöðu hinnar nýju stjórnar
Jose Pinheiro de Azevedo, forsæt-
isráðherra, og um leið virðist
verksvið öryggissveitar hersins,
COPCON, og vald hins róttæka
yfirmanns hennar, Otelo Saraiva
de Carvalho, sem hingað til hefur
stjórnað allri öryggisgæzlu f land-
inu eftir eigin geðþótta, f óvissu.
# Ákvörðun byltingarráðsins var
tekin eftir mótmælafund um
20.000 vinstri sinnaðra hermanna
og stuðningsmanna þeirra f gær-
kvöldi f Lissabon. Voru mótmæl-
endurnir vopnaðir, og f morgun
umkringdu þeir herfangelsi eitt
og tókst áð knýja fram að tveimur
hermönnum, sem handteknir
höfðu verið vegna agabrota, var
sleppt. Er mótmælafundinum I
gærkvöldi lauk létust þrfr menn f
sprengingu f bifreið sinni f borg-
inni, og er talið að þeir hafi
sjálfir haft sprengjuna
meðferðis.
Mótmælafundurinn í gærkvöldi
var skipulagður af félögum í
kommúnísku hermannasamtök-
um, „Sameinaðir hermenn munu
sigra“, sem krefjast aukins valds
alþýðunnar, þ.á.m. vopnavalds, og
Framhald á bls. 18
Vopnahlésbrot
enn í Líbanon
Fimm verða líflátnir í dag en lífi sex þyrmt:
Ákvörðun Francos mætir
miklu og víðtæku andófi
Madrid 26. september AP—Heuter.
§ FIMM ungir Spánverjar, sem
ákærðir eru fyrir morð á lög-
reglumönnum munu f dögun á
morgun laugardag verða teknir af
lffi, annaðhvort fyrir aftökusveit
eða með hinum svokallaða „garr-
ote“, eins konar járnkraga sem
sker sundur mænuna. Þrátt fyrir
gffurleg mótmæli hvaðanæva að
úr heiminum breytti Francisco
Franco, einræðisherra Spánar
ekki Ifflátsdómunum yfir fimm-
menningunum, en hins vegar
þyrmdi hann lffi sex annarra
hermdarverkamanna, sem einnig
höfðu verið dæmdir til dauða,
þ.á.m. tveggja stúlkna og eins
Baska, sem er með heilaskemmd-
ir. Stúlkurnar tvær eru að sögn
lögfræðinga þeirra barnshafandi,
en spánski upplýsingamálaráð-
herra, Leon Herrera, sem skýrði
frá ákvörðun einræðisherrans í
dag, sagði að aðeins önnur þeirra
væri með barni. Tugþúsundir
tóku f kvöld þátt f mótmælafund-
um f ýmsum borgum Evrópu
vegna ákvörðunarinnar.
0 Ákvörðun Francos og stjórnar-
innar, sem sögð er hafa verið klof-
in í afstöðu sinni til málsins, er
talin lýsa óánægju með fram-
komu Evrópulanda gagnvart
Spánverjum jafnt sem ótta við
Framhald á bls. 18
Beirut 26. september
NTB — Reuter
HIÐ fimm daga gamla vopnahlé í
Líbanon var í dag rofið hvað eftir
annað er vopnaðar sveitir vinstri
og hægri manna skiptust á skot-
um með vélbyssum, beittu
sprengjuvörpum og eldflaugum í
ýmsum hverfum Beirut. Tala lát-
inna í bardögunum síðustu viku
er nú komin hátt í 300, og tvöfalt
fleiri hafa særzt. Báðir aðilar saka
hinn um að rjúfa vopnahléið. I
yfirlýsingu falangistahreyfingar
kristinna manna segir, að hún
telji sig ekki bundna af vopna-
hléssamkomulaginu á meðan and-
stæðingarnir brjóti það. Rikisút-
varpið í höfuðborginni hvatti
borgarbúa til að halda sig að
mestu innandyra á meðan leyni-
skyttur eru enn á ferli, en f dag
fundust lík tveggja manna, sem
talið er að hafi fallið fyrir kúlum
leyniskyttnanna.