Morgunblaðið - 27.09.1975, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBSR 1975
Þrjú heimsmet í yfírþungavigtar-
flokknum á heimsmeistaramótinu
SOVÉTMENN hlutu flest stig og
flest verðlaun á beimsmeistara-
mótinu I lyftingum sem lauk f
Moskvu nýlega. IUutu þeir sam-
tals 90 stig f keppninni og átta
verðlaun, fjögur gull og fjögur
silfur. Búlgarir urðu f öðru sæti
með 78 stig og þeir hlutu alls 8
verðlaun sem skiptust þannig: 3
gull, 2 silfur og 3 brons. Aðrar
þjóðir sem hlutu stig f keppninni
voru: PóIIand 62 stig, Austur-
Þýzkaland 55 stig, Ungverjaland
48 stig, Tékkóslóvakía 32 stig,
Japan 23 stig, Vestur-Þýzkaland
21 stig, Finnland 18 stig, Banda-
rfkin 11 stig, Svfþjóð 10 stig,
Grikkland 9 stig, Frakkland 9 stig
og Sviss 7 stig.
Einn íslenzkur keppandi var á
mótinu, Gústaf Agnarsson, en
hann lauk ekki keppni vegna
meiðsla.
Hámark keppninnar að þessu
sinni var viðureign risanna í yfir-
þungavigtarflokknum, en þar var
sett hvert heimsmetið af öðru. 1
snörun setti Búlgarinn Christo
Plachkov heimsmet með því að
Iyfta 195 kg. Sovézki björninn
Aleksejev varð annar, lyfti 187,5
kg og þriðji varð Gerd Bonke frá
Austur-Þýzkalandi með 180 kg.
Hafði því Búlgarinn gott forskot
þegar að jafnhöttuninni kom, en
þá sýndi hins vegar Sovétmaður-
inn hæfni sína og krafta og setti
nýtt heimsmet, lyfti 245,5 kg.
Samanlagður árangur hans var
Navratilova
fær samning
TÉKKNESKA tennisstjarnan
Martina Navratilova, sem baðst
hælis í Bandarfkjunum sem póli-
tískur flóttamaður fyrir skömmu
hefur nú undirritað samning við
Clevelands Nets og fær í sinn hlut
um 300.000 dollara.
Navratilova sem verður 19 ára
8. október n.k. þarf því ekki að
kvfða framtíðinni. — Ég er loks-
ins frjáls að því að gera það sem
mig langar til, sagði hún á blaða-
mannafundi þar sem samningur
hennar við Clevelands Nets var
kynntur, — tilvera mín snerist öll
um tennis og í Bandarikjunum fæ
ég að stunda iþrótt mina í friði og
án þess að fylgzt sé með mér allan
sólarhringinn.
einnig nýtt heimsmet, 427,5 kg.
Annar varð Bonke með 422,5 kg
og Plachkov varð að sætta sig við
bronsverðlaunin með 420 kg.
í fjaðurvigtarkeppninni setti
Búlgarinn Georgy Todorov heims-
met með því að lyfta 285 kg
samanlagt, en i þeim þungaflokki
varð Nikolai Kolasnikov frá
Sovétríkjunum annar með 277,5
kg og Anatonin Pawlak frá Pól-
landi þriðji með 275 kg.
I milliþungavigt varð Peter
Wenzel frá Austur-Þýzkalandi
sigurvegari. Lyfti hann samtals
335 kg. Annar varð Iordan Mitkov
frá Búlgarfu með 332,5 kg og
þriðji varð Nedelencho Kolev,
einnig frá Búlgaríu, með 325 kg.
I léttþungavigt varð Sovét-
maðurinn Valerij Sjarij sigur-
vegari og lyfti samtals 357,5 kg.
Silfurverðlaun í þessum þyngdar-
flokki hlaut Trendafil Stojevhev
frá Búlgaríu sem lyfti, 357,5 kg
einnig en var þyngri en Sjarij.
Þriðji varð svo Juhani Avellan
frá Finnlandi sem lyfti samtals
350 kg og voru bronsverðlaun
hans einu verðlaunin sem Norð-
urlandabúi hlaut á mótinu.
I þungavigtarflokknum vann
svo hinn 19 ára gamli Sovét-
maður, Valentin Khristov frábær
afrek og setti þrjú heimsmet með
því að snara 180,0 kg., jafnhatta
237,5 kg. og ná því 417,5 kg.
samanlagt. 1 þessum þyngdar-
flokki varð Vasili Mozheikov,
Sovétrikjunum annar með 390 kg.
og Jurgen Zizke þriðji með 390
kg.
Tvö kringlu-
kastsmet
ERLENDUR Valdimarsson varð
tveimur Íslandsmetum fátækari
eftir kastmót ÍR sem fram fór á
miðvikudagskvöld. Það voru þeir
Óskar Jakobsson, IR, og Þráinn
Hafsteinsson, HSK, sem kræktu
frá honum unglinga- og drengja-
metum f kringlukasti og unnu
þeir báðir glæsileg afrek. Kastaði
Oskar kringlunni 53,66 metra og
bætti unglingametið um 42 sendi-
metra, en Þráinn kastaði 50,12
metra og bætti drengjametið um
1,55 metra. Má til gamans minna
á að bezta afrek Gunnars Huseby
f kringlukasti var 50,13 metrar og
stóð það sem íslandsmet f árarað-
ir.
Erlendur Valdimarsson varð
sigurvegari f keppninni og kast-
aði hann 57,72 metra og Guðni
Halldórsson, HSÞ, varð fjórði,
kastaði 48,36 metra.
Ekki er ótrúlegt að þeir Karl Þórðarson og Jón Alfreðsson verði f strangri gæzlu hjá
Kvpurmönnum á morgun, cn þeir tveir voru beztu menn Akranesliðsins f leiknum á Kýpur.
\mm NU LOKS ISLENZKllR SIGUR?
íslenzk lið hafa aldrei unnið Evrópuleik á heimavelli
en Akurnesingar eiga nú möguleika
KL. 15.00 á morgun hefst á Laugardalsvellinum leikur íslandsmeistara
Akraness og Kýpurliðsins Omonoia I Evrópubikarkeppni meistaraliða. Sem
kunnugt er er þetta seinni leikur liðanna, en hinn fyrri unnu Kýpurbúarnir á
heimavelli sínum, 2—1. Þurfa því Akurnesingar að sigra í leiknum I dag
minnst með 1—0 til þess að komast I aðra umferð í keppninni. en á þvl aettu
að vera mjög góðir möguleikar, a.m.k. ef tekið er mið af fyrri leik liðanna á
Kýpur, sem var mjög jafn. Nú er hins vegar allar aðstæður Akurnesingum I
hag, og er ekki ólíklegt að kuldinn og þungur völlur muni gera Kýpurbúum
verulega erfitt fyrir.
Á fundi sem forráðamenn ÍA héldu með fréttamönnum I fyrradag kom fram,
að I leiknum á Kýpur hefðu Akurnesingar yfirleitt verið betri aðilinn, og sótt
mun meira. — Leikurinn var einkum Ifflegur eftir að Omonia hafði náð
forystu I leiknum, sögðu Akurnesingarnir, — en eftir það lékum við stifan
sóknarleik i þeirri von að ná jafntefli og tókst okkur að skapa okkur góð færi,
sem ekki nýttust.
Að sögn Akurnesinga er leikaðferð Kýpurliðsins nokkuð einhæf. Sóknarleik-
urinn byggist mest upp á einum manni, en hins vegar er vörn liðsins nokkuð
góð svo og markvarzlan. Kýpurbúarnir munu vera mjög harðir i horn að taka
en þegar leikið var á Kýpur sá dómarinn mjög í gegnum fingur við þá, en var
hins vegar óspar á að dæma á Skagamennina. Var dómari leiksins frá
Búlgaríu, landi þjálfara Omonoia.
Kýpurliðið hefur nokkrum sinnum tekið þátt i Evrópubikarkeppni i knatt-
spyrnu og staðið sig mæta vel. Árið 1966—1967 lék það við Munchen 1860
f Evrópubikarkeppni meistaraliða. Leikurinn á Kýpur fór 2—1 fyrir Þjóðverj-
ana og leikinn í Þýzkalandi unnu þeir einnig, 8—0. 1972—1973 keppti
Omonoia við norður-irskt lið i Evrópubikarkeppni meistaraliða. Vann heima-
leik sinn 2—0, en tapaði útileiknum 1—2. Þar með tókst liðinu að komast í
aðra umferð og fékk þá ekki slakari mótherja en Bayern Munchen. Báðir
leikirnir voru leiknir ( Þýzkalandi og fóru 9—O og 4—0 fyrir Bayern. 1965
tók Omonoia þátt I Evrópubikarkeppni bikarhafa og mætti þá gríska liðinu
Olympiakos og tapaði fyrri leiknum 0—1, en gerði jafntefli í hinum síðari
1 — 1.
Omonia mun vera langbezta lið á Kýpur um þessar mundir, en 15 lið leika þar
i 1. deild og 15 lið i annarri deild. Allir leikmenn liðsins tilheyra hinum griska
hluta eyjarinnar, og nýtur liðið þar mikilla vinsælda. Það hefur fimm sinnum
hlotið Kýpurmeistaratitil: 1961, 1966, 1972, 1974 og 1975 og bikarmeist-
ari varð liðið 1965, 1972 og 1974.
Lið Akurnesinga mun óþarft að kynna fyrir islenzkum knattspyrnuáhuga-
mönnum. Frá því að þeir urðu í fyrsta sinn islandsmeistarar árið 1951 hefur
liðið jafnan verið i fremstu röð hérlendis og íslandsmeistaratitilinn hefur það
hlotið niu sinnum: 1951, 1953, 1954, 1957, 1958. 1960, 1970,1974 og
1975. Tvtvegis hafa Akurnesingar tekið þátt i Evrópubikarkeppni áður, en
léku þá leiki sina á útivelli. Er leikurinn á morgun þvi fyrsti leikur
Akranesliðsins I Evrópubikarkeppni hérlendis, og nái þeir að sigra i leiknum
verður það jafnframt í fyrsta sinn sem islenzkt lið vinnur Evrópubikarleik á
heimavelli. Reyndar hefur ísienzkt lið aðeins einu sinni sigrað i Evrópubikar-
leik, en það var er Fram bar sigurorð af liði frá Möltu I leik, sem fram fór
þarlendis.
En þótt Akurnesingar eigi mikla sigurmöguleika i leiknum á morgun verður
róðurinn örugglega erfiður. Lið Omonoia mun örugglega leggja alla áherzlu á
varnarleik í leiknum á morgun, og mynda múr sem erfitt verður fyrir
Skagamenn að yfirstiga, jafnvel þótt þeir eigi að skipa beztu framlinumönn-
um á íslandi.
Sigurvissan
hœttuleg
George Kirby, þjálfari Islandsmeistaraliðs Akraness I knatt-
spyrnu, gaf sér ekki tfma til þess að mæta á blaðamannafundi ÍA
vegna Evrópubikarleiksins, en sendi þess f stað stutta greinar-
gerð um möguleika Akurnesinga f leiknum á sunnudaginn. i
henni segir Kirby m.a.:
Akurnesingar eiga mikla möguleika á þvf að sigra f leik þessum
og komast þar með f aðra umferð keppninnar. Aðstæður hér
heimafyrir, kuldi, vindur og þungur völlur munu valda
Omonfaliðinu erfiðfeikum, áður óþekktum.
Að tvennu leyti stendur Omonfa betur að vfgi fyrir leik þennan.
t fyrsta lagi nægir þeim jafntefli til að komast áfram f keppn-
inni og munu þeir ugglaust haga leik sfnum f samræmi við það
og í öðru fagi hafa þeir betri boitameðferð.
Það sem Akurnesingar verða að varast f leik þessum er of mikil
sigurvissa. 1 knattspyrnu verður að hafa fyrir sigrinum, hann er
ekki reiddur fram á silfurfati.
Með réttu hugarfari er sigur Akurnesinga vís.
Leigðu sér hótelherbergi
til þess að geta farið í bað
— ÉG LEYFI mér að fullyrða, að
það muni fátítt að íþróttaflókkur
sýni jafnmikla fyrirmyndarfram-
komu eins og Akurnesingar gerðu
á Kýpur, sagði Þórður Ásgeirsson,
skrifstofustjóri i sjávarútvegs-
ráðuneytinu, sem var fararstjóri
Islandsmeistara Akraness í ferð
þeirra til Kýpur á dögunum, en
Þórður er vel kunnugur á þessum
slóðum — starfaði þar í nokkur
ár.
— Það er t.d. ekki hægt að segja
að nokkur maður hafi bragðað
áfengi í ferðinni, og andinn innan
liðsins og aginn virtist með ólík-
indum góður. Þegar við fórum
kom hótelstjórinn til okkar og
kvaðst vilja koma á framfæri sér-
stöku þakklæti til okkar. Á hóteli
hans höfðu margir íþróttaflokkar
gist og dvalið, en hann sagði að
Skagamenn hefðu verið í algjör-
um sérflokki hvað varðaði prúð'
mannlega framkomu reglu-
semi.
Leikur Kýpurliðsins og Akra-
ness fór fram á kalkvelli á Kýpur,
mjög þurrum og hörðum, en nán-
ast mun útilokað að koma upp
sæmilegum grasvelli á eynni
vegna þurrka. Búningsaðstaðan á
velli Omonia var hins vegar mjög
slæm og sóðaleg og gerðu Akur-
nesingar athugasemd við hana, og
fór svo að lokum að þeir leigðu
sér herbergi á hóteli þar í grennd-
inni til þess að hafa fataskipti og
fara síðan í bað að leik loknum.
Þegar Akurnesingar voru að þvf
spurðir hverju hefði einkum ver-
ið ábótavant við búningsaðstöð-
una, svöruðu þeir því til, að þar
hefði fyrst og fremst verið mikill
sóðaskapur og slík ólykt að þar
hefði varla verið vært inni. Þegar
þeir kvörtuðu fengu þeir þau svör
að þeir myndu venjast lyktinni.