Morgunblaðið - 27.09.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.09.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975 7 Tillaga Alberts og Guðmundar J. í Tímanum i fyrradag birtist slúðurfrétt undir fyrirsögninni: Greiddi Eimskip i byggingarsjóð- inn? Þar sagði: „Eimskip var fyrir skömmu úthlutað griðarstórri lóð austast i Sundahöfn en sú lóð var hin síðasta sem bygging- arhæf verður nú um langt skeið. Eimskip hafði áður fengið lóðir við Sunda- höfn og rætt hafði verið um að Hafskip fengi þessa einu lóð, sem eftir var. — En þá gerðist það öllum á óvart, að Albert Guð- mundsson formaður hús- byggingarsjóðs Sjálf- stæðisflokksins, sem sæti á i hafnarstjórn, gerði til- lögu um það á fundi, að Eimskip fengi þessa lóð undir vöruskemmur. Hið undarlega var, að þegar Albert lagði fram þessa tillögu, lá ekki einu sinn fyrir beiðni frá Eimskip um lóðina. Þessi lóð er mjög stór — miklu stærri en sú sem Ármannsfelli var útlflutað. Nú spyrjum við: Hefur Eimskipafélag íslands greitt i byggingar- sjóð Sjálfstæðisflokksins og þá hvenær og hversu mikið?" Vilyrði um lóðaúthlutun þessa til Eimskipafélags íslands var samþykkt á fundi hafnarstjórnar hinn 10. júlf s.l. í fundargerð segir svo um þessa lóða- úthlutun: „ Hafnarstjórp samþykkti að úthluta Eim- skipafélagi Íslands lóð nr. 5 og 7 i Sundahöfn til þess að reisa á þeim vöru- geymslur og til afnota sem útigeymslusvæði vegna vöruflutninga fé- lagsins um höfnina enda greiði félagið gatna- gerðargjöld af þeim lóðum svo og lóðinni Vatnagarð- ar 3, sem áður er úthlut- að, f samræmi við tillögu hafnarstjóra dagsett 14. maf s.l. og leggi fram til- lögur með tímaáætlun um hagnýtingu og byggingu á lóðunum sem hafnar- stjórn samþykkir. Bygg- ingarskilmála og frekari samningsákvæði setur hafnarstjóri. Samþykkt samhljóða. Albert Guð- mundsson og Guðmundur J. Guðmundsson gera það að tillögu sinni að Eim- skipafélagi Islands verði gefið vilyrði fyrir úthlutun á lóðum nr. II og IV við Sundahöfn samkvæmt korti hafnarstjórnar nr. 455 — 01,016 og félag- inu þar með gefinn kostur á að gera ráðstafanir til frambúðarúrlausnar fyrir starfsemi sfna. Úthlutanir þessar eru til viðbótar þeim úthiutunum, sem Eimskipafélag Íslands hef- ur þegar fengið úthlutað við Sundahöfn. Samtfmis verði vilyrði um úthlutun við norðurhluta Sunda- hafnar til Eimskipafélags íslands tekin til endur- skoðunar." Samkvæmt þessari bók- un kemur f Ijós, að það var ekki aðeins Albert Guðmundsson heldur og einnig Guðmundur J. Guðmundsson, varafor- maður Dagsbrúnar og full- trúi Alþýðubandalagsins f hafnarstjórn, sem sam- eiginlega gerðu tillögu um þetta vilyrði um lóð til Eimskipafélags íslands. Getur svo hver fyrir sig dæmt um það. hvort Guð- mundur J. Guðmundsson hefur með þessum tillögu- flutningi verið að reka annarleg erindi á vegum Sjálfstæðisflokksinsll „Áhrifamikill Álþýðuflokks- maður” Fyrir nokkru var athygli á þvl vakin hér í þessum dálkum, að borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, Björgvin Guðmundsson, sem gagn- rýnt hefur harkalega lóða- úthlutun til Ármannsfells h/f, án sérstakrar auglýs- ingar, hafi eindregið hvatt til þess, að byggingarfé- lagið Breiðholt h/f fengi lóð úthlutað án sérstakrar auglýsingar. í tilefni af þessari ábendingu í Stak- steinum Morgunblaðsins, gat að líta þessa klausu í Þjóðviljanum í fyrradag, sem undirrituð var af fréttastjóra blaðsins. Klausan er svohljóðandi: „ Framkvæmdastjóri Breiðholts h/f er að vísu áhrifamikill Alþýðuflokks- maður, sem sjálfsagt hef- ur lagt Alþýðuflokknum lið þótt ekki verði það rætt hér að sinni." Það skyldi þó aldrei vera, að eitthvað samhengi sé á milli þess, sem þarna er að vikið í Þjóðviljanum og hins, að Björgvin Guð- mundsson borgarf ulltrúi Alþýðuflokksins var sér- stakur hvatamaður Þess- arar umræddu lóðaúthlut- unar til Breiðholts h/f án sérstakrar auglýsingar? DÓMKIRKJAN — Messa kl. 11 ard. Séra Óskar J. Þorláks- son dómprófastur. ÁRBÆJARPRESTAKALL — Guðsþjónusta í Arbæjarkirkju kl. 11 árd. Altarisganga. Æsku- lýðsfundur f Árbæjarskóla kl. 8.30 síðd. Séra Guðmundur Þorsteinsson. HALLGRIMSKIRKJA — Messa kl. 11. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Messa kl. 5 síðd. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson. FELLA- OG HÓLASÓKN — Messa í Fellaskóla kl. 2 sfðd. Séra Hreinn Hjartarson. LANGHOLTSPRESTAKALL — Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra Árelfus Níelsson. FRlKIRKJAN REYKJAVlK — Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. LAUGARNESKIRKJA — Messa kl. 11 árd. Séra Garðar Svavarsson. BUSTAÐAKIRKJA — Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Ólafur Skúlason. DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS 1 LANDAKOTI — Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 sfðd. KIRKJA ÓHAÐA SAFNAÐ- ARINS — Messa kl. 2 siðd. Séra Emil Björnsson. NESKIRKJA — Messa kl. 11 árd. Séra Frank M. Halldórsson. GRENSÁSKIRKJA — Guðsþjónustakl.. 11 árd. Séra Magnús Guðmundsson fyrrum prófastur messar. Sóknar- prestur. FlLADELFlA — Almenn guðsþjónusta kl. 8 siðd. Ræðu- maður WiIIy Hansen. Einar J. Gíslason. ÁSPRESTAKALL — Messa kl. 11 að Norðurbrún 1. Séra Grímur Grfmsson. HÁTEIGSKIRKJA — Messa kl. 11 árd. Séra Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Jón Þorvarðarson. ELLIHEIMILIÐ GRUND — Messa kl. 10 árd. Altarisganga. Séra Lárus Halldórsson. BREIDHOLTSPRESTAKALL — Fjölskyldumessa kl. 2 f Breiðholtsskóla. Haust- fermingarbörn eru beðin að mæta. Séra Lárus Halldórsson. KÓPAVOGSKIRKJA — Guðsþjónusta kl. 11. árd. Séra Þorbergur Kristjánsson. IIAFNARFJARÐARKIRKJA — Messa kl. 2 siðd. Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Fluttur verður helgileikur. Séra Garðar Þorsteinsson. FRÍKIRKJAN I HAFNAR- FIRÐI — Guðsþjónusta kl. 2 síód. Fermd verða: Agnes H. Svansdóttir Strand- götu 19 og Auðunn H. Stígsson Skúlaskeiði 26. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. KEFLAVlKURKIRKJA —• Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra Páll Þórðarson prédikar. Æskulýðssamkoma kl. 8.30 siðd. Séra Ólafur Oddur Jóns- son. HVALSNESKIRKJA — Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. STOKKSREYRARKIRKJA — Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. GAULVERJABÆJAR- KIRKJA — Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Sóknarprestur AKRANESKIRKJA — Messa kl. 2 sfðd. Séra Björn Jónsson. Skákþing Bandaríkjanna 1975 Skákþing Bandaríkjanna 1975 var háð í borginni Oberlin 7. — 30. júnf siðastliðinn. Þátt- takendur voru 14 og urðu úrslit sem hér segir: 1. W.S. Browne 8,5, 2. K. Rogoff 8 v„ 3. M. Vukcevich 7,5 v„ 4. — 5. R. Byrne og S. Reshevsky 7 v„ 6. — 9. W. Lombardy, A. Bisguier, J. Tarjan og K. Commons 6,5 v„ 10. — 13. L. Kavalek, J. Peters, E. Mednis og J. Erefe 5,5 v„ 14. P. Benkö 5v. Úrslit mótsins koma nokkuð á óvart. Sigur Browe er þó lítið undrunarefni. Hann hefur um skeið verið í fremstu röð stór- meistara. K. Rogoff er hins veg- ar ungur og efnilegur skákmað- ur, sem Bandarikjamenn vænta mikils af i framtíðinni. Vukcevich er Júgóslavi, sem hefur verið búsettur í banda- ríkjunum um skeið. Hann var þekktur skákmaður í Júgóslav- íu á sinni tíð, og tefldi m.a. í Júgóslavneska ólympíuliðinu árið 1960. Fyrir nokkrum árum hlaut hann, ásamt fleirum Nó- Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR belsverðlaunin í eðlisfræði. Slakur árangur Kavaleks og Benkös kemur vissulega á óvart, en Benkö tókst ekki að vinna eina einustu skák i mót- inu. Annar keppandi vann enga skák, en það var Bisguier, sem gerði allar skákir sínar jafn- tefli. Vinningshlutfallið i mót- inu er annars mjög lágt, og þess Framhald á bls. 21 Mercedes Benz Ti/ sö/u er mjög ve/ með farirm einkabíll Merce des Benz, 250, ekinn 68 þ. km. Sjálfskiptur, leðursæti, aflstýri og hemlar. Upplýsingar í síma 43415. 77/ sýnis að Brúarflöt 1, Garðahreppi. LISTAR alls konar Sérlega hagstætt verð ^ TIMBURVERZIUNIN VÖLUNDUR hf Klapparstíg 1. Skeifan 19. Símar 18430 — 85244. \ & & \ & \ \ & \ & \ £ & Lærið a * að f & ^ dansa Eðlilegur þáttur í almennri menntun hvers einstaklings ætti að vera að læra að dansa. Ath. Afsláttur ef 3 systkini eða fleiri eru í dansi. Auka afsláttur ef foreldrar eru líka. Innritun stendur yfir Dansskóli Heiöars Ástvaldssonar Reykjavík: '20345, 24959, 74444 Se/tjarnarnes: 84829 Kópavogur: 84829 Hafnarfjörður: 84829 Keflavík: 1690 Dansskóli Hermanns Ragnars Beykjavík: 36141 Dansskóli Sigvalda Reykjavík: 84 750 Akranes: 1630 Borgarnes: 7287 Ballettskóli Eddu Scheving Reykjavík: 43350 Ballettskóli Sigriðar Ármann sími: 32 153 \ \ \ DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000 TRYGGING fyrir réttri tilsögn í dansi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.