Morgunblaðið - 27.09.1975, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975
NÝJASTI skólinn í Reykjavík, Ölduselsskóli í Breiðholti II, tók
til starfa í gaer. Við þeim skóla hefur tekið nýr skólastjóri,
Áslaug Friðriksdóttir, og var hún ásamt kennurunum að taka
á móti nemendum í fyrradag þegar fréttamann og Ijósmyndara
bar að garði. Sjö ára börnin voru þar með foreldrum slnum,
sex ára börnin höfðu komið daginn áður til skrásetningar og
8—11 ára börn fyrr um morguninn. 1 2 ára börn reyndust enn
of fá í hverfinu og sækja þau því aðra skóla fyrst um sinn. í
gær byrjaði regluleg kennsla.
Nýr skóli og
nýr skálastjóri
ínýjasta hverfínu íReukjavík
Ölduselsskóli er fyrsti skólinn
í hverfinu, sem er enn í bygg-
ingu, en síðar. verður annar
skóli reistur ofar í hverfinu.
Skólinn er í Seljahverfi og
stendur þar sem fagurt er út-
sýni út yfir Reykjavík og Sund-
in. Aðeins 90 börn voru skráð á
þessu ári, en með aukinni
byggð er búist við að þeim
muni fjölga, er fólk flytur í nýju
húsin eftir áramót. í sumar var
þarna gengið frá skólalóð og
settar niður 4 lausar kennslu-
stofur, sem notaðar hafa verið í
Fossvogsskóla, og ein úr Fella-
skóla. En búið er að teikna nýtt
skólahús og hefur fræðsluráð
farið fram á að byrjað verði á
grunninum í vetur, og hægt
verði að byrja að kenna í því
næsta haust.
i—Kaupendaþjónustan-
Lítið einbýlishús í
Austurhverfum
borgar-
innar óskast i
skiptum fyrir góða
4ra herb. ibúð.
Sér hæð i Laugarnes
hverfi óskast til
kaups.
Til sölu
Hæð og ris
á Melunum.
Einbýlishús
við Laufásveg.
Lítið hús við
Bergstaðastræti.
4ra—5 herb. vönduð
ibúð í Sölheimum
Sjö ðra bömin koma f fyrsta sinn I Ölduselsskóla með foreldrum slnum. Skólastjórinn, Áslaug Friðriksdóttir, (fyrir
miðju) tekur ð móti þeim ðsamt Hildi Sigurðardóttur kennara (til vinstri)
eldra og börn, áður en kennsla
hæfist daginn eftir.
Áslaug Friðriksdóttir skóla-
stjóri hefur verið kennari í
Reykjavík í yfir 20 ár, fyrst í
Eskihlíðarskóla og síðar Hlíða-
skóla, þar sem hún á seinni
árum var mikið í sérkennslu
barna, sem á einhvern hátt áttu
í erfiðleikum. Og í tvö ár var
hún settur skólastjóri Hlíða-
skóla. Á undanfprnum árum
hefur hún kynnt sér nokkuð
opinn skóla og kennsluhætti í
Ameríku og á Norðurlöndum.
— Það get ég sagt af heilum
hug, að mér hefur alltaf þótt
mjög ánægjulegt að kenna og
yfirleitt vera með börnum og
unglingum í leik og starfi, sagði
Áslaug er yið spurðum hana
um kennarastarfið. Raunar
hlýtur svo að vera, því hún
hefur í fjöldamörg ár starfað
með unglingum í skátahreyf-
ingunni. Og hún mótmælir því
ákveðið að börn og unglingar
séu annað eins vandamál og
margir vilja vera láta.
— Ég held að við séum öll
ánægð með húsakynni, eins og
sakir standa. Stofurnar eru hlý-
legar þegar inn er komið, sagði
Áslaug skólastjóri, er hún sýndi
okkur skólahúsnæðið. Og það
er orð að sönnu. Stofurnar
fjórar, sem áður voru í opnum
skóla svokölluðum í Fossvogs-
skóla, eru samtengdar og
samgangur á milli, þó hver sé
2ja herb. íbúð við mið-
bæinn
hentar vel fyrir einstaklings-
íbúð eða fyrir léttan iðnað.
2ja herb. kjallaraíbúð
á Teigunum, snotur ibúð.
3ja herb. íbúð
á annarri hæð við Njálsgötu.
Kvöld- og helgarsími
30541.
Þingholtsstræti 15,
— sími 10220.
Ófáanlegar
Eru frummyndir meistara eins og Turner, en tækni nútímans gerir oss
kleift að bjóða myndir sem gefa þeim lítið eftir. Nýkomið mikið úrval
mynda eftir heimsþekkta listmálara. Opið um helgina að Fremristekk 4.
HRANNIR SF.
SIMI 74522.
út af fyrir sig. Þar verða
bekkjardeildirnar. —
— Ætlunin er að síðar verði
hér opinn skóli, en við þurfum
og fáum aðlögunartíma. Einn
kennarinn hefurað undanförnu
kynnt sér sérstaklega slíka
kennslu erlendis. Við munum
nú þegar hafa samstarf milli
bekkja og ekki binda börnin
alveg í deildirnar eftir aldri.
Kennsla verður samfelld á
morgnana. Börnin koma öll í
skólabíl í skólann og verður
ekið heim, nema 10 og 11 ára
börnunum, sem ganga. Sé
veður mjög vont er þó mögu-
leiki á að láta þau hætta
klukkutíma fyrr og fara líka
með skólabílnum.
í fimmtu kennslustofunni,
sem er aðgreind frá hinum,
verður kennd handavinna,
teikning og hreyfileikir, sem
koma í stað leikfimi. Og þarna
er kennarastofa og skrifstofa.
Kennarar eru 6 og voru þeir að
safnast saman í kennara-
stofunni með skólastjóra, er við
fórum, og ætluðu að ræða það
sem fram hafði komið um
morguninn í viðtölum við for-
— Ég hlakka til að byrja hér
og hygg gott til glóðarinnar, þó
ég sakni líka míns gamla skóla
og félaganna þar, sagði hún að
lokum er við kvöddum, til að
tefja ekki fyrir. Því annir voru
miklar I þessum nýja skóla.
Land í Grímsnesi
Til sölu er rúmlega 1 hektara land, fallega kjarri
vaxið, á bezta stað í Grímsnesi.
Væntanlegir kaupendur sendi tilboð til Morgun-
blaðsins, merkt: „Ró og næði". — 8603.
Blaðberar —
Hafnarfjörður
Blaðbera vantar í nokkur
hverfi í Hafnarfirði.
Uppl. í síma 50374.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU