Morgunblaðið - 27.09.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975
3
Davíð Oddsson, borgarfulltrúi,
í viðtali við Morgunblaðið:
I UMRÆÐUM um hið svo-
nefnda Ármannsfellsmál hefur
komið fram, að einn af borgar-
fulitrúum Sjálfstæðisflokksins
f Reykjavfk, Davfð Oddsson,
bar fram fyrirspurn á fundi
borgarstjórnarflokks sjálfstæð-
ismanna fyrir nokkrum vikum
um það, hvort hugsanlegt
tengsl væru á milli framlagt
Ármannsfells f byggingarsjóð
Sjálfstæðisflokksins og lóðaút-
hlutunar til byggingarfélags-
ins.
Morgunblaðið sneri sér f gær
til Davfðs Oddssonar, borgar-
fulltrúa, og innti hann álits á
þeirri stefnu, sem mál þetta
hefur nú tekið, cr allir borgar-
fulltrúar og varabofgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins f
Reykjavfk hafa óskað eftir
sakadómsrannsókn á þeim sök-
um, sem borgarstjórnarmeiri-
hluti sjálfstæðismanna er bor-
inn f máli þessu. Davfð Odds-
son sagði:
— Ég fagna því að niðurstað-
an varð sú, að sakadómi var
falið að rannsaka málið ur þvi
sem komið var. Ég var frá önd-
verðu á móti þvi, að skipuð yrði
sérstök rannsóknarnefnd af
hálfu borgarráðs enda höfðu
fulltrúar minnihlutaflokkanna
þegar skýrt frá væntanlegri
niðurstöðu sinni í sjónvarpi áð-
ur en nefndin var sett á lagg-
irnar.
Ég á hins vegar ekki vona á
að út úr þessari rannsókn komi
mikið annað en það, sem þegar
hefur komið fram hjá borgar-
stjóra, og hún sé því einkum til
þess fallin að binda enda á
ómálefnaleg skrif andstæðinga-
blaðanna.
— Hvers vegna kom fyrir-
spurn þín um lóðaúthlutun
þessa upphaflega fram?
— Mér hafði borizt til eyrna
þrálátur orðrómur um, að
tengsl kynnu að vera á milli
fjáröflunar til Sjálfstæðishúss-
ins og úthlutunar lóðar til Ár-
mannsfells. Og er ég heyrði
þessar frunsemdir frá heimild-
um sem ég taldi marktækar,
þótti mér eðlilegt, að ég spyrði
þann, sem gerst mátti vita og
sögunum var beint gegn,
Albert Guðmundsson, hreint út
um málið. Ég gerði það á lokuð-
um fundi borgarfulltrúa og
varafulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins og gat þess f upphafi, að ég
mundi trúa svari Alberts Guð-
mundssonar fyrirvaralaust. Al-
bert svaraði skýrt og skorinort,
að ekkert samband væri þarna
á milli. Hinsvegar mislíkaði
honum, að ég skyldi bera fram
slfka spurningu í þetta fjöl-
mennum hópi, þótt um trúnað-
armenn flokksins væri að ræða.
Ég tel hin vegar, að borgar-
fulltrúar verði að tala umbúða-
laust hver við annan og í full-
um trúnaði og að lokaðir fundir
þeirra séu vettvangur til þess.
Af þessu tilefni urðu nokkrar
orðahnippingar milli okkar Al-
berts, en lýsing Alþýðublaðs-
ins, sem fjölmiðlar hafa hingað
til stuðzt við á þessum orða-
skiptum, er vægast sagt mjög
villandi. Þar eru bæði mér og
Albert gerðar upp fullyrðingar,
sem eru rakalaus þvættingur.
Ég vil ekki draga fjöður yfir
það, að ég er ósammála þeim
vinnubrögðum, sem viðhöfð
hafa verið i sambandi við þessa
úthlutun. Ég tel, að slíkar lóðir
eigi að auglýsa sérstaklega og
atvik öll í kringum skipulagn-
ingu lóðarinnar eru ekki með
þeim hætti, sem ég hefði kosið
og ég tel það skipulag ekki hafa
leitt til þeirrar forsendu, að Ar-
mannsfelli bæri að fá lóðina
þegar af þeirri ástæðu, en um
það má deila. Það voru aðeins
3—4 borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins sem tóku ákvörðun
um þessa lóðaúthlutun og ég
frétti fyrst um, að hún væri á
döfinni, þegar ég las um úthlut-
unina í dagblöðum, og allt var
um garð gengið.
— Hvaða lærdóm telur þú að
draga megi af þessu máli?
— Lóðaúthlutun hlýtur alltaf
að vera mjög erfið. Ég kann
enga algilda lausn á þvi, hvern-
ig með þær skuli fara, en tel, að
lóðir eigi jafnan að auglýsa
nema mjög brýnar ástæður séu
til annars, en síðan eiga borgar-
fulltrúar að skera úr eftir beztuv
samvizku, en ég er algerlega
ósammála því, sem stundum
hefur verið stungið upp á, að
um lóðir yrði dregið.
Umræður þessar vekja upp
ýmsar spurningar um fjármál
stjórnmálaflokka. Þeir eiga
ekki í annað hús að venda í
þeim efnum en til stuðnings-
manna sinna og velunnara.
Allir þeir sem gefa fé til stjórn-
málaflokka vilja fá eitthvað
fyrir sinn snúð. Þeir vilja að
fjármunir þeir sem þeir láta af
hendi rakna, verði notaðir til að
fylgja fram og vinna góðum
málstað fylgi. Við þetta er ekk-
ert að athuga og er bæði sann-
gjarnt og heiðarlegt. Sjálfsagt
eru þeir einnig til sem vilja láta
hygla sér og sinum í einhverri
mynd i tilefni fjárgjafa til
stjórnmálaflokka. Slikt er
óheilbrigt og óheiðarlegt.
Islenzkir stjórnmálaflokkar
fara svo pukurlega með fjármál
sin, að undrum sætir. Þeir
skjóta sér I skálkaskjól þess, að
þeir eru ekki bókhaldsskyldir.
Pukrið gengur svo langt að ein-
ungis fáum trúnaðarmönnum í
hverjum flokki er Ijóst hvernig
fjármálum þeirra er farið í
raun og veru. Þessi lýsing á við
um alla stjórnmálaflokka og
býður óneitanlega upp á tor-
tryggni almenings, kjósend-
anna, sem ekki geta valið aðra
en einhverja þessara sömu
manna til að stjórna sinum
sameiginlegu málum. Þessari
tortryggni þarf að eyða. Stjórn-
málaflokkarnir verða að reka
flekklausa fjármögunarstarf-
semi og slíkt geta þeir þvi að-
eins, að það sé gert fyrir opnum
tjöldum.
Ég harma í hvaða farveg
þetta mál hefur fallið, en
meginástæðan til þess að svo
fór, var, að ýmis flokksblöð
leyfðu sér að gera sögusagnir
og dylgjur að röksemdum fyrir
málflutningi sínum og eins hitt,
að borgarstjórinn í Reykjavík,
sem sat uppi með nauðsynlegar
upplýsingar, var í sumarleyfi,
þegar málið kom upp.
Sérstaklega hefur spjótunum
verið beint að Albert
Guðmundssyni, borgarfulltrúa,
enda er kannski þægilegt að
gera hann að skotspóni i máli
sem þessu. Hann stendur í um-
fangsmiklum byggingarfram-
kvæmdum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn annars vegar og er
ötull og dugmikill borgarfull-
trúi hins vegar, og það leiðir af
sjálfu sér, að ekki er erfitt með
illum vilja að gera störf manns,
sem annast jafn vandmeðfarin
og viðkvæm verkefni tortryggi-
leg. En ég vona og trúi, að sú
sakadómsrannsókn, sem nú er
fyrir dyrum, reki allan þennan
söguburð heim til föðurhús-
anna.
„ Vona og trúi, að sakadóms-
rannsóknin reki söguburð-
inn heim til föðurhúsanna ”
Rjómi fluttur að
norðan í vetur
Mjólkurframl. minnkaði um 7,7% í ágúst
INNVEGIN mjólk hjá mjólkur-
samlögunum hefur minnkað um
2,5 milljónlr Iítra eða 3,1% fyrstu
8 mánuði ársins og er minnkunin
mest f ágúst eða 7,7% miðað við
sama mánuð I fyrra. Þessi minnk-
un hefur orðið mest hjá mjólkur-
samlögum á Suður- og Vestur-
landi en búin á þessu svæði sjá
Drengur fyrir
bíl í Eyjum
UMFERÐARSLYS varð á Báru-
götu í Vestmannaeyjum í gærdag.
Sex ára drengur, Þorsteinn Sverr-
isson, Birkihlíð 9, hljóp út á göt-
una í veg fyrir bfl og meiddist á
höfði og hálsi. Þorsteinn var flutt-
ur í sjúkrahúsið í Eyjum og liggur
þar, en samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar mun hann ekki lífs-
hættulega slasaður.
Tildrög slyssins voru þau, að
Þorsteinn var að leik á gangstétt
við Bárugötu og hljóp skyndilega
í veg fyrir bifreið, sem þar átti
leið um. Bifreiðin var á hægri
ferð, en ökumanni tókst þó ekki
að forðast árekstur við drenginn.
Stór-Reykjavfkursvæðinu fyrir
neyzlumjólk. Ljóst er þvf að strax
f október verður að fara að flytja
rjóma frá Norðurfandi og suður
til að anna eftirspurn og má gera
ráð fyrir að flytja verði eitthvað
af mjólk suður seinna f vetur.
Að sögn Péturs Sigurðssonar,
mjólkurtæknifræðings hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins, hefur
minnkun mjólkurframleiðslunn-
ar orðið tilfinnanlegust í ágúst en
þá minnkaði framleiðslan um 1
milljón lftra eða 7,7% miðað við
sama mánuð í fyrra. Þessi minnk-
un bætist við 1,5 milljón lftra
minnkun, sem varð fyrstu 7 mán-
uði þessa árs og hefur því heildar-
minnkun innveginnar mjólkur
það sem af er árinu orðið 2,5
milljónir lftra. Mestur hefur sam-
drátturinn verið hjá samlögunum
í Reykjavík, Borgarnesi, Búðardal
og hjá Mjólkurbúi Flóamanna.
Pétur sagði, að Ijóst væri að flytja
þyrfti rjóma að norðan og hingað
suður á aðalneyzlusvæðið og
mætti jafnvel gera ráð fyrir að
flytja þyrfti mjólk suður seinna f
vetur. Á undanförnum árum hef-
ur nokkuð verið flutt af rjóma
suður en mjólk hefur lítið verið
flutt suður síðan árið 1970, en þá
var lægð i mjólkurframleiðslunni.
Framhald á bls. 18
Geir Zoéga
heiðraður
íHull
GEIR Zoega eldri hefur nú látið
af störfum sem umboðsmaður
brezkra togara á íslandi eftir 51
árs samfleytt starf og var hann í
gær heiðraður sérstaklega í Hull
af Samtryggingum brezkra tog-
araeigenda við hátíðlega athöfn í
St. Andrewsfiskmarkaðinum f
Hull. Formaður samtrygginganna
Tom Boyd eldri afhenti Geir
Zoega heiðursverðlaunin „Silfur-
rósaskálina" og sagði f ræðu að
hann gæti ekki hugsað sér nokk-
urn mann á tslandi, sem hefði
getað leyst störf sfn jafn óaðfinn-
anlega af hendi og Geir Zoéga.
„öll þessi ár hefur enginn brezk-
ur sjómaður af þúsundum, sem
haft hafa samskipti við Geir
Zoéga þurft að kvarta undan einu
einasta atriði. Sagði hann að son-
ur Geirs, Geir Zoéga yngri, sem
nú tæki við af föður sínum ætti
erfitt hlutverk fyrir höndum að
feta í fótspor föðurins.
Bolungarvík:
Mótmæla
misræmi
í skattskrá
UM 50 einstaklingar á Bolungar-
vlk hafa sent skattstjóra Vest-
fjarðarumdæmis bréf, þar sem
þeir mótmæla misræmi f skatt-
skrá fyrir Bolungarvíkur-
kaupstað.
I bréfi fimmtíumenninganna
segir, að f skattskránni komi
fram, að allir þeir, sem vélbátaút-
gerð stunda, séu skattlausir, en
ekki fari milli mála, að tekjur
margra þeirra séu miklar (sbr.
siglingar, bflakaup o.f 1.).
Þá segir, að þessir menn stundi
þessa atvinnu ár eftir ár en virð-
ist ekki hafa tekjur á við land-
verkafólk á sjötugsaldri sam-
kvæmt skattskránni. Konur
sumra þessara manna afli einnig
tekna t.d. við fiskverkun, svo
hlutur húsbóndans sé þá ætið
lítill, þar sem dæmi eru um, að
einhleypar verkakonur og ein-
stæðar mæður, sem stunda vinnu
við hlið áðurgreindra kvenna,
hafi 100—200 þús. kr. í tekju-
skatt.
Ofangreint eigi ekki einungis
við um þá, sem vélbátaútgerð
stunda, heldur sé hér tekið dæmi,
þar sem skattleysi þeirra er mjög
áberandi við lauslega athugun á
skattskrá.
Ármannsfellsmálið í sakadómi:
Beiðni saksóknara
tekin fyrir eftir helgina
ÞÓRÐUR Björnsson, saksókn-
ari rfkisins, sendi f gær fyrir
hádegi beiðni til Halldórs Þor-
björnssonar yfirsakadómara
um að sakadómsrannsókn færi
fram á lóðaúthlutun Borgar-
ráðs Reykjavfkur til byggingar-
fyrirtækisins Ármannsfells h.f.
Þórður sagði í gær að hann
hefði sent bréfið áleiðis til yfir-
sakadómara með kröfu um að
rannsókn færi fram á þvf, hvort
um saknæmt athæfi hefði verið
að ræða. Jafnframt hafi hann
óskað eftir þvf að rannsókn yrði
hraðað, en allt þetta er svo til
samhljóða bréfi þvf, sem borg-
arstjórnarflokkur Sjálfstæðis-
flokksins sendi saksóknara rfk-
isins.
Halldór Þorbjörnsson stað-
festi f gær að bréfið hefði bor-
izt sér. Hann sagði að bréfið
hefði enn ekki verið tekið fyrir,
en bjóst við þvf að það yrði
tekið til meðferðar strax eftir
helgina.