Morgunblaðið - 27.09.1975, Side 12

Morgunblaðið - 27.09.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975 Frönsk- íslenzk ljósmynda- sýning ÞANN 27. sept. vcrður opnuð ljós- myndasýning í franska bókasafn- inu að Laufásvegi 12. Þeir sem sýna eru tveir ungir Frakkar, Philippe Patay og Christian Roger. Christian Roger er 27 ára gamall atvinnuljósmyndari, sem á síðastliðnu ári hlaut fyrstu verð- laun fyrir myndir sínar í hinum fræga ljósmyndaklúbbi Parisar ,,Le Club Photographique de Paris“. Christian sýnir um 50 svarthvítar Ijósmyndir teknar bæði á Islandi og í Frakklandi. Viðfangsefni hans er aðallega mannlífið. Philippe Patay, 24 ára gamall, Christian Roger hefur verið með annan fótinn á Islandi undanfarin fjögur ár. Philippe er mikill náttúruskoðari og sýnir hann 15 litmyndir af fuglum og íslensku landslagi. I Frakklandi hefur Philippe haldið sýningar á myndum frá Islandi Philippe Patay. sem hlutu mikið lof gagnrýnenda (sjáMbl. 20. júní 1975). Sýningin stendur yfir frá 27. sept. til 19. okt. og er opin daglega frá kl. 15 til 22. Myndirnar eru allar til sölu. Aðgangur er ókeyp- is. onnssiffiti sTvnmssonnR SIÐASTI INNRBTUNARDAGUR SÍÐASTI INNRITUNARDAGUR ER Á MÁNUDAG 29. SEPT Innritun daglega frá kl. 1 —7. REYKJAVÍK Brautarholt 4. Símar 20345, 25224 og 38126. Árbær símar 20345, 25224 og 38126. Breiðholt. Kennt verður í nýju húsnæði að DrafnarfellL. símar 20345, 25224 og 38126. ' KÓPAVOGUR FélagsheimilkS -simar 20345, 25224 oa 38126. KEFLAVÍK Tjarnarlundur sími 1690 kl. 5 — 7 mánudaginn 6. janúar. UNGLINGAR Allir nýjustu táningadansarnir svo sem: Suzie Q, Junes Funky, Bongo Rock, Macky Messer, Football, Spider Pelican, Street Walk og fl. BRIDGEÞATTURINN hefur nú göngu sína að nýju eftir langt sumarfrí og verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Mun hann að lfkindum verða í blaðinu tvisvar i viku en ekki hefir enn verið ákveðið hvaða daga né hvar i blaðinu hann kemur til með að birtast svo væntanlegir lesendur verða því bara að fletta og leita fyrst um sinn en vonandi rætist úr þess- um vandamálum fljótlega. Ýmislegt hefir borið á góma siðan þátturinn fór í fri en að- eins verður minnst á eitt atriði sem hæst bar á sínum tíma — en það er Evrópumótið sem fram fór í Brighton á Englandi i sumar þar sem íslenzka lands- liðið hafnaði í næstneðsta sæti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um keppni þessa en vil að- eins vona fyrir hönd okkar sem þekkjum kóng frá gosa að við þurfum ekki að lesa eins hörmulegar fréttir af okkar mönnum á erlendri grund — um óeiningu innan liðsins — og að aðeins hafi verið formsatriði að ljúka siðustu leikjunum — svo eitthvað sé nefnt. Einnig vonum við bridgeunnendur að stjórnendur Bridgesambands Islands taki upp að nýju „klíku- aðferðina" ef svo má að orði komast til að velja landsliðið og gleymi „hinni aðferðinni" sem nú þegar hefir sýnt árangur sinn. XXX Bridgeþátturinn birtir allar fréttir sem honum berast en æskilegast er að fréttir utan af landi séu skrifaðar undir nafni. Þátturinn vonast til að verða fréttaþáttur fyrir allt landið. Bridgespilarar ættu að ýta undir blaðafulltrúa með að senda þættinum fréttir. Fréttir utan af landi eru ekki siður lesnar af bridgespilurum af höfuðborgarsvæðinu og öfugt. Utanáskrift þáttarins er: Bridgeþátturinn Aðalstræti 6 Reykjavík XXX silfurmerki fyrir góð störf í þágu félagsins. Frá Bridgefélaginu Asunum f Kópavogi. Vetrarvertfðin er fyrir nokkru hafin hjá okkur og hófst hún á tvimenningskeppni þriggja kvölda og er lokið tveimur umferðum. Staða efstu para er nú þessi: Magnús Aspelund — Steingrímur Jónasson 494 Jón Andrésson — Garðar Þórðarson 481 Sverrir Ármannsson — Ármann J. Lárusson 453 Trausti Finnbogason — Magnús Þorvaldsson 445 Gestur Sigurgeirsson — Vilhjálmur Þórsson 442 Jón P. Sigurjónsson — Jón Hilmarsson 434 Meðalskor er 420. Aðalfundur félagsins verður haldinn á laugardaginn kemur í Félagsheimili Kópavogs og hefst klukkan 2.30. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Síðasta uthferð tvímennings- keppninnar verður svo á mánu- dagskvöld og hefst stundvíslega klukkan 20. Spilað er í Félags- heimilinu. XXX Frá Bridgefélagi Kópavogs. Starfsemi félagsins hefst í kvöld klukkan 20. Spilaður verður tvímenningur eins kvölds og skýrt frá fyrirhuguð- um keppnum til áramóta. Spil- að er í Þinghól við Álfhólsveg. XXX Frá bridgefélagi Reykjavíkur. Starfsemi félagsins hófst 10. september og aðaltvímenning- ur félagsins 17. sept. sl. Spilað er í sex kvöld og raðað „þvers- um“ þar til síðasta kvöldið að tólf efstu spila í A-riðli tólf næstu í B-riðli og tólf neðstu í C-riðli. Staða efstu para birtist síðar í þættinum. XXX Frá Tafl- og bridgeklúbbnum Aðalfundur TBK var haldinn 15. sept. sl. og voru þessir aðilar skipaðir í stjórn félagsins næsta keppnistímabil: Eiríkur Helgason formaður, Helgi Einarsson varaformaður, Sig- urjón Tryggvason gjaldkeri, Kristján Jónasson ritari og Ingólfur Böðvarsson áhalda- vörður. Þá voru tveir félagar heiðraðir fyrir vel unnin störf í þágu félagsins, fráfarandi for- maður, Tryggvi Gislason, hlaut æðstu viðurkenningu félagsins, gullmerki, og Haraldur Snorra- son fyrrverandi gjaldkeri hlaut Eftir fyrstu umferð í fimm umferða tvímenningskeppni Bridgedeild Breiðfirðinga eru þessir efstir: Böðvar Guðmundsson og Kristján Árnason með 288 stig. Björn Gíslason og Ólafur Guttormsson 266 stig. Magnús Björnsson og Benedikt Björnsson 259 stig. Eiríkur og Ragnar 249 stig. Óliver og Óiafur 249 stig. Gisli og Jón St. 248 stig. Jón Þ. og Gissur 247 stig. ívar og Þórarinn 243 stig. Magnús og Magnús 239 stig. Kristín og Hafliði 231 stig. A.G.R. Sýrlendingar tala ekki við ísraela Beirut 24. sept. NTB. — SÝRLENDINGAR vilja ekki eiga viðræður við ísraela um Gólanhæðirnar, sagði utanrfkis- ráðherrann, Abdelhalim Khaddam, í dag. Hann sagði að fréttir um viðræður fulltrúa þjóð- anna tveggja eða með þátttöku fleiri þjóða væru ósannar og Sýr- lendingar myntíu aldrei óska eft- ir slfkum viðræðum. Khaddam tók enn dýpra f árinni í yfir- Iýsingum sfnum en Ayoubi for- sætisráðherra gerði á mánudag, en þá sagði hann að Sýrlendingar vildu ekki fá Golanhæðirnar aft- ur ef samið yrði um slíkt upp á sömu skilyrði og Egyptar hefðu gert varðandi Sinai. Khaddam, sem er einnig að- stoðarforsætisráðherra, var í Beirut til að miðla málum milli stríðandi stjórnmálasamtaka í borginni. Þar var allt með kyrrum kjörum í kvöld, eftir að Karami forsætisráðherra sagði frá því að enn eitt vopnahléið hefði verið samið. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.