Morgunblaðið - 27.09.1975, Síða 16

Morgunblaðið - 27.09.1975, Síða 16
J0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975 fltotigtitilklftfrffr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuðí innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. orgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna i Reykjavík hefur tekið ákvörðun um að óska eftir því við saksóknara ríkisins, að hann beiti sér fyrir sakadómsrannsókn vegna þeirra ásakana, sem hafðar hafa verið í frammi í garð borgarstjórnarmeirihlut- ans vegna úthlutunar lóðar til byggingarfélagsins Ár- mannsfells. Að loknum fundi í fyrradag undirrit- uðu allir viðstaddir borgar- fulltrúar og varaborgar- fulltrúar Sjáifstæðisflokks- ins bréf til Þórðar Björns- sonar saksóknara ríkisins um þetta efni. í bréfi þessu segir m.a.: „Að undan- förnu hafa birzt á opinber- um vettvangi ásakanir um það, að meint misferli hafi átt sér stað við úthlutun lóðar til byggingarfélags- ins Ármannsfells h/f, sem samþykkt var í borgarráði hinn 29. f.m. Borgarráð hefur samþykkt að skipa nefnd til að rannsaka málið en ljóst er af yfirlýsingum einstakra borgarráðs- manna, að ekki muni nást samstaða sú, sem þarf um skipun nefndarinnar. Það er því ósk okkar aðal- og varaborgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins til yðar, hr. saksóknari, að þér felið Sakadómi Reykjavíkur að kanna hvort saknæmt at- ferli hafi átt sér stað í sam- bandi við framangreinda lóðaúthlutun.“ Það mun einstætt í síðari tíma stjórnmálasögu á Is- landi, að stjórnmálaflokk- ur óski með þessum hætti eftir sakadómsrannsókn vegna framkominna ásak- ana á hinum pólitíska vett- vangi en sakir þær sem bornar eru á borgarstjórn- armeirihluta sjálfstæðis- manna vegna hins svo- nefnda Ármannsfellsmáls eru slikar, að óhjákvæmi- legt var orðið að óska opin- berrar rannsóknar á þeim. I tilefni þessarar beiðni sagði Birgir fsleifur Gunn- arsson borgarstjóri í sam- tali við Morgunblaðið í fyrradag: „Við borgarfull- trúar og varaborgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins héldum fund í dag til að ræða viðhorfin í þeim póli- tísku árásum sem nú er að okkur beint. Við urðum sammála um það, að eftir yfirlýsingu borgarráðs- manna minnihlutaflokk- anna væri ekki möguleiki á samstarfi um skipan sér- stakrar rannsóknarnefnd- ar á vegum borgarinnar, enda er það mín skoðun eftir nánari umhugsun að slík rannsókn eigi bezt heima hjá rannsóknardóm- ara.“ f viðtali við Morgunblað- ið í gær segir Albert Guð- mundsson borgarfulltrúi og formaður húsbygginga- nefndar Sjálfstæðisflokks- ins m.a. um beiðni þessa um Sakadómsrannsókn: „Það var ætlun mín frá því þetta mál kom fyrir al- menning frá andstæðing- um Sjálfstæðisflokksins og þá sérstaklega í Alþýðu- blaðinu að fara þess á leit. að ásakanir þær, sem born- ar hafa verið fram verði kannaðar til hlítar og sá rógburður sem fram hefur komið í þessu svokallaða Ármannsfellsmáli verði kveðinn niður í eitt skipti fyrir öll. Ákvörðun um op- inbera rannsókn hefur aft- ur á móti tafizt, bæði vegna fjarveru borgarstjóra sem er forystumaður borgar- stjórnarflokks sjálfstæðis- manna og eins vegna fram- kominnar tillögu frá borg- arfulltrúa Alþýðuflokksins í borgarráði um skipun sér- stakrar nefndar innan borgarráðs til þess að rann- saka þær fullyrðingar sem fram hafa komið í þessu máli.“ Með greinargerð borgar- stjóra á blaðamannafund- inum á dögunum og þeirri ákvörðun að óska eftir Sakadómsrannsókn hefur borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna gert hreint fyrir sínum dyrum. En hitt er alveg ljóst, að við Sakadómsrannsókn og niðurstöður hennar verður ekki látið staðar numið. Þær ásakanir sem bornar hafa verið fram í sambandi við lóðaúthlutun þessa og aðrar af því tagi sem bryddað hefur á síðustu daga verði væntanlega til þess að öll fjármál stjórn- málaflokka og þeirra blaða sem þeir standa að útgáfu á verði tekin til skoðunar og í kjölfar þess settar reglur um fjármál og fjáröflun stjórnmálaflokka og blaða þeirra og strangt eftirlit tekið upp með því að þeim reglum verði framfylgt. Sakadómsrannsókn | | Nína Björk Árnadóttir: □ FYRIR BÖRN OG FULL- ORÐNA. □ Helgafell 1975. TRÚARLEG yrkisefni hafa löngum verið skáldum hug- fólgin. Meðal íslenskra skálda, sem ort hafa trúarleg Ijóð, er Nína Björk Árna- dóttir. Ljóðabók hennar Fyrir börn og fullorðna fjallar um Krist. í bókinni eru 30 stutt Ijóð og mynda þau flokk Fyrri hluti Fyrir börn og unglinga er einkum helgaður myndum úr lífi Krists, en síðari hlutinn er hvatning að fara að dæmi hans, reyna að skilja hvað hann boðaði Skáldkonan beinir Ijóði sínu gegn turnum gróðans, lyg- innar og valdsins. Kristur hefur sverð á loft og heggur niður þessa turna. Auðnum á að deila milli fátækra. Sjálfur er Kristur byltingin: Hrópum það — hrópum það að myrku andliti heimsins segjum það við kúgaða manninn við konur með frost í augum segjum þaðvið börnin sem bera hungurmerkin segjum það við hvort annað segjum það við hvort annað að byltingin sé komin að þú sért kominn að þú sért kominn Jesús Kristur Kristur er sá, sem ..flettir af okkur blekkingunum / sóp- ar burt lygunum''. Boðskapur skáldkonunnar er hiklaus og einarðlegur: Nafni mínu hafið þið breytt í væmnisstunu og hann flettir burt píslarblæjunni sem við höfum sveipað hann Bókinni lýkur á ákalli til fólks um að vakna, fara út og sá ást: „sáið af alúð og með tár í augum/sáið — sáið'. Fyrir börn og fullorðna er ekki eingöngu vegsömun Krists, lofgjörð um hann, heldur áminning til fólks í heimi illskunnar að glata ekki kærleikanum, láta orð Krists vera leiðarljós, ekki helgidóm án tengsla við lífið. I sumum Ijóðunum verða orð skáld- konunnar máttug og gædd skáldlegu lífi þótt bókin í heild sé ekki ýkja frumleg: Hið stóra hlið kærleikans vildir þú opna öllum mönnum ilmþungt er blóm hins illa hatrið stóð vörð um blómið heimsins dómur glotti við öll hjartahlið Bðkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON Þetta stutta Ijóð um hlið kærleikans, hjartahliðin, blóm illskunnar, hatrið og dóm heimsins sýnir hvernig unnt er í knöppu formi að koma orðum að hugsunum sínum. En slíkt er aðeins á færi þeirra, sem náð hafa umtals- verðum þroska í list sinni. Fyrir börn og fullorðna eykur enn hróður Nínu Bjarkar Árnadóttur og er merkilegt framlag til trúarlegs skáld- skapar á (slandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.