Morgunblaðið - 27.09.1975, Síða 23

Morgunblaðið - 27.09.1975, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975 23 um höfð. Faðirinn óvenju „músik- kalskur" og fjölskyldan öll unn- andi fögrum tónum. Árni tók hljómlistaráhugann i arf. Að loknu skyldunámi hóf hann nám í rafvirkjun og lauk því ásamt iðnskólanámi. Stundaði hann þau störf um árabil. Sam- hliða gerðist hann sýningarstjóri við Laugarásbíó og gegndi því starfi til ársins 1971 er hann tók við rekstri kvikmyndahússins sem forstjóri og starfaði þar til dauðadags. Þannig er í stórum dráttum hinn ytri rammi hins til- tölulega skamma lífshlaups hins látna vinar. Með hverjum einstaklingi býr annað og meira en að almenningi snýr, þ.e. einkalífið. Þar var hinn látni lánsamur. Fyrst í uppeldi hjá góðum foreldrum. Á unglings- árunum laus við að lenda í glepj- andi solli og aðeins 21 árs gamall að lenda í faðmi sinnar elskulegu konu Helgu Henrysdóttur Hálf- dánarsonar og konu hans Guð- rúnar. Við þau þáttaskil hefst hin raunverulega sameiginlega bar- átta ungra, hraustra og dug- mikilla hjóna við að skapa sér og sínum lífsskilyrði og framtíðar- öryggi. Allt gengur það að vonum. Þeim fæðast 6 mannvænleg börn, sem reynzt hafa foreldrunum vel. Tvö eru innan fermingaraldurs, tvær dætur flognar úr hreiðrinu til eigin búsetu, hin fjögur heima. Hinn látni var frá frumbernsku hæglætur, hugsandi og um- gengnisgóður. 1 orðinu hæglátur fellst ekki að hann hafi verið hægfara, þvert á móti hélt hann öruggur og lífsglaður baráttunni við hlið sinnar góðu konu. — Árangurinn er ekki lítill. Fyrir allmörgum árum festu þau kaup á húsinu Bröttubrekku 5 í Kópa- vogi, sem þau stðan hafa bætt og prýtt svo að til fyrirmyndar er. Það ásamt uppeldi 6 barna er átak til eftirbreytni. Nú voru æsku- draumarnir allir að rætast. Fram- tíðin blasti við björt og meira heillandi en nokkru sinni áður. Að vísu var menntun barnanna ekki lokið, en þar var ekkert áhyggjuefni eins og nú horfði. Þá brá skugga á. Snemmsumars þ.á. veikist hann snögglega við vinnu sína. Gat naumlega hringt í konu sína og tjáð henni hvernig komið væri. Hann hafði fengið fyrir- varalaust hjartaáfall og var flutt- ur f Borgarsjúkrahúsið, þar sem hann dvaldi alllengi. Þráin var að komast heim. Það tókst og líðanin var allgóð. Jafnvel betri en á horfðist. Starfsviljinn var óbreyttur, en starfsþrekið tak- markað að sögn lækna hans. Hugurinn var bundinn störfunum og þeirra vegna var ferðin til Lundúna farin, sem endaði á þann veg sem i upphafi þessa greinarstúfs segir. Hér hafa snögg umskipti orðið. Eiginkonan, sem ásamt móður sinni fór utan til að hitta mann sinn og dvelja þar með honum, fór, ef svo má að orði komast, til að kveðja hann hinztu kveðjunni, því þar andaðist hann í faðmi hennar, varð bráðkvaddur. Sorg hennar og barnanna er mikil og sár. Þá má ekki gleyma Önnu móður hans, sem oft hefur horfzt í augu við skin og skúrir snöggra umskipta milli lífs og dauða. Hún er öldruð en sterk og stendur von- andi þetta áfall af sér eins og önnur, með hægð og festu. Minningarnar lifa. Hér er um ljúfar minningar að ræða, um góðan son, maka, föður og glaðan heimilisföður, sem eins og áður segir, unni góðri hljómlist og fegurðinni í hvaða mynd, sem hún birtist. Um leið og við hjónin og fjöl- skylda okkar sendum aðstandend- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur, biðjum við þann sem sólina skóp að senda vermandi ylgeisla á framtíðarbraut syrgj- andi ástvina. Þorgr. St. Eyjólfsson. I dag verður til moldar borinn Árni Hipriksson forstjóri. Árni var sonur hjónanna önnu Árnadóttur Wagle og Hinriks Wagle, sem lézt fyrir tólf árum. Eftir að hafa lokið rafvirkja- námi réðst hann sem sýningar- stjóri hjá Laugarásbíói, og síðar sem forstjóri, og gegndi hann því starfi til dauðadags. Ég, sem þessar línur rita, þekkti Árna frá því að hann var 10 ára gamall, og féll aldrei skuggi á vináttu okkar. Alltaf var hann reiðubúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda, og taldi ekki eftir, alltaf sama ljúfmennið á hverju sem gekk. Með Árna er genginn mætur maður sem ekki mátti vamm sitt vita, traustur og áreiðanlegur. I einkalífi var Árni gæfumaður. Hann var kvæntur Helgu Henrysdóttur, hinni mætustu konu og áttu þau sex mannvænleg börn. Mikill harmur er nú kveðinn að fjölskyldu Árna, börnunum sex, eiginkonu og aldraðri móður hans. Orð eru lítils megnug þegar sorgin ber að dyrum, en með þess- um línum sendi ég aðstandendum Árna mínar innilegustu samúðar- kveðjur, og vona að þeir fái styrk og þrek til að bera þessa þungu sorg. Blessuð sé minning hans. Anna Clara Sigurðardóttir. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því, að hann Árni sé horfinn frá okkur. Þessi maður sem alltaf gat dregið sólskinsgeislann niður um skýin. Hann gat alltaf séð björtu hliðarnar á vandamálum dagsins. Já, hann var kvaddur héðan Iangt fyrir aldur fram, kall- aður burtu frá yndislegri konu, börnum, ástvinum og kunningjum. Okkur setur hljóða. Örlögin verða ekki umflúin og oft er erfitt að sætta sig við að góður vinur sem við höfum þekkt svo glaðan og bjartan skuli svo skyndilega vera horfinn sjónum okkar. Menn lýsa ekki vináttu, menn finna hana. Því finn ég sárt til og hvarmar vökna er í dag ég kveð vin minn og samstarfsmann, Árna Hinriksson. Það er brostinn hlekkur í keðju góðra sam- starfsmanna sem vinna að stórum velferðarmálum Sjómannasam- taka íslands, sem hafa að mark- miði að gera ævikvöld aldraðra sem bezt. Það tekur langan tíma að græða í hugum okkar það sár sem okkar samtök urðu fyrir. Sam- starfsvilji og lipurð hans var svo mikill, og eigum við Hrafnistu- menn og konur honum mikla þökk að gjalda fyrir þann mikla áhuga sem hann hafði jafnan á að útvega okkur dægrastyttingu sem hann lagði til f húsakynnum sam- taka okkar. Við hjónin færum konu hans og börnum, tengdabörnum og öðr- um aðstandendum innilegar sam- úðarkveðjur. Ég veit að hann var öllu fólki sínu umhyggjusamur, börnum sinum góður faðir og nærgætinn. Góðar minningar eru að leiðarlokum meira en allt annað. Rafn Sigurðsson Hrafnistu. „Skjótt hefúr sól brugðið sumri“ kom okkur f hug þegar við, starfsfólkið við Laugarásbfó, fréttum að Árni Hinriksson, for- stjóri, hefði orðið bráðkvaddur f London þann 18. sept. s.l. aðeins 45 ára að aldri. Við vissum að vísu að hann gekk ekki heill til skógar en maður gerir sér sjaldan grein fyr- ir því, að dauðinn geti verið eins nálægur og hér varð raunin á. Við, sem störfuðum með honum við Laugarásbió minnumst ágæts starfsfélaga og húsbónda, sem jafnan vildi allan vanda leysa með lipurð og sanngirni. Hann hóf starf sitt sem sýningarmaður við kvikmynda- húsið en varð síðan forstjóri, sá um útvegun mynda og um annað, er snerti þennan atvinnurekstur. Þetta starf er ekki eins einfalt og virðast kann í fljótu bragði. Úr miklu og misjöfnu er að velja, hvað kvikmyndir snertir, og þegar um rekstur kvikmyndahúss er að ræða ber jafnan að hafa það f huga, að það geti orðið sem bezt skemmti- og menningartæki. Árni Hinriksson skilur eftir í hugum okkar, sem störfuðúm með honum, hinar beztu minningar um ljúfmennsku og lipurð í starfi. Þá var hann Iengi starfandi í félagi sýningarmanna kvik- myndahúsa (F.S.K.) og honum var það mikið áhugamál að þessi störf færu öll sem bezt úr hendi og að félagsmenn sýndu sem mesta leikni og kunnáttu f starf- inu, og fylgdust vel með öllum nýjungum á þessu sviði, og sjálf- ur var hann mjög vaxandi maður í þessu starfi. Við hörmum það að Arna Hinrikssyni skyldi ekki verða lengra lífs auðið og sendum móður hans, konu hans og börnum og ástvinum hans öllum innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim styrks og huggunar við hið sviplega fráfall hans. Starfsfólk Laugarásbíós. FH. félags syningarmanna kvik- myndahúsa (F.S.K.) Kristinn Evmundsson Eiríkur Ásgrímsson Laugarvatni - Minning Fæddur 3. maf 1952. Dáinn 20. september 1975. Eiríkur Ásgrímsson hefur á sviplegan hátt kvatt sitt jarð- vistarlíf. Hann var Laugvetn- ingur, uppalinn í húsinu Rein á Laugarvatni. Eiríkur var mann- vænlegur drengur og nú erum við harmi lostin sem mest og bezt kynni höfðum af honum. Ég þekkti Eirfk Ásgrímsson vegna þess, að hann var nánasti nágranni minn í tuttugu ög þrjú ár, eða öll árin sem hann lifði. Hann var á fyrsta ári er fundum okkar bar saman að Laugarvatni. Því er ekki að furða þótt ég sé harmi slegin og gráti eins og lítið barn sem hefur misst uppáhalds gullið sitt. Fyrst man ég hann bjartan yfir- litum, í fallegu jólafötunum sínum, ofurlítið hlédrægan en þó einarðlegan og skýran. Ég man systur hans, Guðrúnu, í garðinum þeirra í Rein er hún sem var aðeins eldri að árum gætti Eiríks og Konna bróður hans. Þar voru þau öll að leik hljóðlát og æðru- laus og aldrei heyrðist frá þeim hnjóðsyrði. Eiríkur var yngsta barn for- eldra sinna, Ásgríms Jónssonar, garðyrkjumanns, sem kominn er út af skagfirzkum fræðimönnum, og Þorbjargar dóttur séra Eiríks og Sigurlaugar á Torfastöðum. Þorbjörg var eina barn foreldra sinna sem komst til fullorðinsára, en bróðir hennar, Stefán, andað- ist um fermingaraldur, þegar hinn „hvíti huldumaður“ læddist inn á mörg heimili landsins og lagði að velli unga fólkið, án þess að nokkur meðul fengjust til varnar. Stefán bróðir Þorbjargar var mjög harmaður af systur sinni, móður og föður, þótt hljótt væri um þann harm. Engan undraði því þótt Þorbjörg léti sinn elzta son heita Stefán, en hann er nú við guðfræðinám í Háskóla Islands. Eiríkur var sólargeisli sinnar fjölskyldu, svo og allra annarra sem honum kynntust. Eftir því sem ég bezt veit var hann á allri sinni skólagöngu alltaf á sínum stað, með hugann við efnið og mér er ekki kunnugt um nein mistök á námsferli hans. Eiríkur bar nafn afa síns, séra Eiríks á Torfastöðum, en á efri árum byggðu þau afi hans og amma hús sitt áfast við Rein, sem þau nefndu Auðkúlu eftir bernskuheimili séra Eiríks. Eirfkur litli fékk ærið verkefni að vinna, strax og hann komst á legg, við að snúast i kring um afa sinn og ömmu. Hann svaraði uppi öllum þeirra óskum og þörfum sem lipur og umhyggjusamur afa- og ömmudrengur. Amma hans Sigurlaug, vinkona min, talaði oft fagurlega um þennan einstæða dreng, sem boðinn og búinn væri til þess að veita þeim á efri árum margskonar umönnun og hjarta- hlýju. Ef séra Eiríkur ætlaði sér ekki af og datt í hug að gera eitthvað sem honum var um megn, til dæmis að æða út í storm og stór- hríð, þá var það Eiríkur litli (eins og v við kölluðum hann meðan báðir lifðu) með sinni nærgætni og ljúfmennsku sem fékk afa sinn til að snúa við. Slíkan einlægan kærleika og traust báru þeir nafnarnir hvor til annars. Eiríkur Asgrimsson var hag- leiksdrengur. Jafnframt því sem hann var farsæll námsmaður á bóklegar greinar fékkst hann af miklu yfirlætisleysi við ýmis- konar smíðar en um það vissu fáir. Fyrir rúmri viku bauð Ásgrímur faðir hans mér að sjá litlu íbúðina sem byggð var við hliðina á Auðkúlu. Þá íbúð innréttaði Eirikur með aðstoð skólafélaga úr Menntaskólanum á Laugarvatni. Eirikur var þá að lesa undir próf, sem hann tók i vikunni sem leið, en hann stundaði nám í islenzkum fræðum við Háskóla Islands. Til þess að flýta námi sínu sat hann og Ias í helgireitnum sinum á Laugarvatni. Á Laugarvatni vildi Eiríkur helzt vera og unni þar fjöllum og byggð hugástum. Síðast þegar ég sá Eirik var hann að slá flötina fyrir utan bernskuheimilið sitt. I sambýli sínu við jörðina eins og allt annað var hann mjúklátur og vandvirk- ur. Nú stendur flötin græn og slétt og stráin vaxa í átt til himins. Flötin hefur fengið svo góða nær- ingu hjá Eiríki. Þótt stráin fölni áður en þau ná til himins, fölnar aldrei minningin um góðan dreng. Ég votta ástvinum hans fyllstu samuð. Blessuð sé minning vinar míns Eiríks Ásgrímssonar. Jensfna Halldórsdóttir. Fregnin kom sem reiðarslag. Eiríkur er dáinn. Frammi fyrir slíkum tiðindum skynjum við bezt okkar eigin van- mátt, I hóp okkar hefur verið höggvið skarð, sem ekki verður fyllt. Þessi hægláti drengur var einhver sterkasti persónuleikinn í okkar hópi. Margar skemmti- legar minningar eru honum ná- tengdar, minningar um gáska og alvöru námsáranna, um speki bókmenntanna, um vináttu og tryggð. Enga lofgjörð á hér að skrifa, enda væri það fjarri hans vilja. Sá sem leitar hins góða í fari sér- hvers manns, hlýtur að hafa áhrif á þá sem hann umgengst. Eiríkur vildi hvers manns götu greiða, slíkt var honum sem innri þörf. Þegar við lítum yfir farinn veg S.l. sunnudag barst mér sú fregn að tveir nemendur mínir hefðu farist í bifreiðarslysi. Við slíka fregn verður mönnum að sjálfsögðu orða vant, svo átakan- legt er að sjá unga menn hrifna brott þegar æskuvorið stendur sem hæst og manndómsárin fram- undan. Ég vil þó ekki láta hjá líða að reyna að minnast hinna látnu með örfáum orðum. Eiríkur Ásgrímsson var fæddur að Laugarvatni 3. mai 1952 og átti hér heima alla ævi. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum að Laugarvatni vorið 1973 og stundaði síðan nám við Há- skóla íslands. Hann var vaxandi námsmaður og efldist jafnt og þétt, þroskaðist á þann hátt i námi sem oft er affarasælast. Eiríkur var óvenju elskulegur piltur i framkomu, prúður og glaðvær. Þegar í bernsku vann hann hug og hylli allra heima- manna hér á Laugarvatni og óhætt er að fullyrða að á því varð engin breyting þegar hann óx upp og varð fulltíða maður. Ljúf- menni var hann í öllum sam- skiptum, einkar geðþekkur nem- andi sem átti óskorað traust fé- laga sinna og kennara. Sveinn Gunnarsson var fæddur í Keflavík 7. ágúst 1955. Hann var nemandi í Menntaskólanum að Laugarvatni 1971—75 og lauk stúdentsprófi s.l. vor. Sveinn var drjúgur námsmaður og fór vax- andi. Þroski hans og framfarir virtist mér koma best í ljós siðasta vetur hans hér og duldist engum að hann var gott mannsefni. Framkoma hans var óvenju ljúf- mannleg, hann var glaðvær og brosmildur dagfarslega en undir hinu glaðlega yfirborði bjó djúp og rifjum upp samskipti okkar við Eirík, er eins og hann hafi alltaf verið til. Byrjunina merkjum við vart, en hann skipaði sífellt stærra og stærra rúm í hugum okkar. Erfitt er að hugsa sér Laugar- vatn án Eiríks. Til hans vorum við alltaf velkomin og þangað sóttum við. I Rein var oft glatt á hjalla og hann hrókur alls fagnaðar. Hann var unnandi íslenzkrar tungu og vel heima í mörgum fræði- greinum. Tilfinningar okkar á þessari stundu megna orð ekki að tjá. Við munum sakna hans sárt, en þótt holdið sé horfið mun minningin lifa. Foreldrar hans og systkini sjá nú á bak ástkærum syni og bróð- ur. Við vottum þeim innilega sam- úð okkar og biðjum alla góða vætti að styrkja þau og hugga. Bekkjarsystkin frá Laugarvatni. íhygli. Góðvild mótaði skapgerð hans og aflaði honum vináttu og trausts. Ég hugsa til þessara ungu nem- enda minna með söknuði sem ein- göngu er blandinn ljúfum minn- ingum. Foreldrum þeirra og öðr- um ástvinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur og bið þess að minningin um góða drengi megi varpa birtu í huga þeirra og sefa sorgir, Kristinn Kristmundsson. ATHYGH skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á I mið- vikudagsblaði, að berast 1 sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með gððu Ifnubili. Eiríkur Ásgrímsson og Sveinn S. Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.