Morgunblaðið - 27.09.1975, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1975
29
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Kerfið
Einstæð móðir f Vest-
mannaeyjum skrifar:
„Komdu sæll, Velvakandi.
Nú get ég ekki orða bundizt
lengur. Þannig er mál með vexti,
að ég á þriggja mánaða gamlan
son og allt frá þvf að hann fæddist
hef ég staðið I þrasi við að fá
meðlagið greitt, en ekkert
gengur.
Ekki vegna þess að faðir barns-
ins vilji ekki viðurkenna það, nei,
siður en svo. Ástæðan er silaskap-
ur skrifstofanna, sem eiga að sjá
um svona nokkuð.
Sagan er svona I stórum
dráttum:
Strax eftir að ég varð ferðafær
eftir barnsburðinn fór ég í skrif-
stofurnar hér I bæ og gaf mína
skýrslu. Fyir kunningsskap gekk
mjög fljótt að afgreiða skýrsluna
hér. Síðan lá hún I tvo mánuði I
skrifstofunni, sem hún var send
til. Þegar starfsmenn þar sendu
loks föðurnum tilkynninguna
kom hún tveimur dögum of seint,
þvl að hann var farinn á sild-
veiðar. Hann á mjög hugulsama
móður, sem fór strax i skrifstof-
una og bað um að fá að koma
skýrslunni til sonar sins og láta
hann skrifa undir. Én, nei, sá
möguleiki var útilokaður. Þeir
hafa sennilega haldið, að henni
væri ekki treystandi.
Nú er liðinn þó nokkur tími
síðan þetta gerðist og sonur minn
er nú þriggja mánaða og þriggja
vikna. Eg er búin að athuga hvort
þeir á skrifstofunni, sem skýrslan
var siðast send I, eru búnir að
senda hana I næstu skrifstofu, en
svo heppin er ég nú ekki.
Jæja, til að kóróna allt saman
hringdi ég i tryggingarnar og
spurðist fyrir um hvort þeir gætu
eitthvað hjálpað mér. Svo var nú
ekki en þeir gátu glatt mig með
þvi að segja mér, að ef ég hefði
ekkert fengið greitt þegar sex
mánuðir væru liðnir þá gæti far-
ið svo að þessir sex mánuðir
fyrndust. Hvernig I ósköpunum
er þetta hægt? Ekki get ég látið
það fyrnast að ég á son og hann
þarf að fá fæði og klæói.
Nú hugsa kannski sumir: Fara
út að vinna. Það væri sjáifsagt ef
það væri möguieiki, en hér eru
engar vögglistofur eða konur á
hverju strái sem taka að sér að
hugsa um ungabörn, þannig að ef
ég ætti ekki sérlega góða móður,
veit ég ekki hvar ég væri á vegt
stödd, en ég get ekki endalaust
treyst á hana.
Það sem mér þykir verst er, að
þetta bitnar alltaf á móðurinni,
því að ég veit um fieiri svona
tilvik. Samt hef ég nú alltaf vitað
að það þyrfti tvo til.
Kær kveðja,
einstæð móðir.“
David gekk ákveðnum skrefum
upp og hringdi á bjölluna hjá
Elviru Foster. Andartaki sfðar
heyrði hann rödd hennar f dyra-
slmanum.
— Hver er það?
— Ungfrú Foster. Það er Link
rannsóknarlögreglumaður. Má ég
koma upp og spjalla við yður
stutta stund ...?
Og ekki varð David sfður undr-
andi, þegar hann hringdi dyra-
bjöllunni hjá Diane Quain og hún
var þá komin heim — eiginlega
hafði slzt hvarflað að honum að
hún væri þar. Hann sá nú að
lokum Ifnurnar I mynstrinu og að
öll atriði voru að renna saman I
eina heildarmynd ...
Hún virtist ekki fagna komu
hans sérlega sannfærandi en
hann skeytti þvf engu og arkaði
framhjá henni og inn f setustof-
una. Þar nam hann staðar þrumu
lostinn þcgar hann koni auga á
Ronald Gibbon, sem hafði
hreiðrað um sig makindalcga í
hægindastól.
— Ja, heimurinn er lítill, finnst
Fyrst taoir drengsins er eKKi
með neitt múður og er reiðu-
búinn að gangast við honum og
takast á hendur þær skyldur, sem
slíku fylgja, hvernig væri þá að
gera langa sögu stutta og gefa frat
í hið stirða og leiðinlega kerfi?
Væri ekki möguleiki, að faðirinn
sendi sitt meðlag beint til móður-
innar? Þannig þyrfti kerfið ekki
að hafa amstur af þessu, skuld
föðurins yrði afmáð og móðir og
barn fengju sitt. Annars er sosum
allt eins liklegt, að þá fyrst færi
kerfið í kerfi.
0 Er tollskráin
æðsta heimiid
f jármála-
ráðuneytisins?
Haraldur Blöndal skrifar:
„Fyrir nokkru beindi ég
spurningu í Velvakanda til fjár-
málaráðuneytisins um, hvaðan
þeim kæmu heimildir til þess að
leyfa ákveðnum stéttum inn-
flutning á áfengu öli þrátt fyrir
að í 1. 84/1971 segi: „Þó skal
óheimilt að flytja til landsins öl,
sem hefur inni að halda meira en
21/4% af vínanda að rúmmáli."
Fjármálaráðuneytið hefur nú
svarað þessari spurningu með þvi
að segja, að nefnd lög „verði því
að skoða og skýra með hliðsjón af
því ákvæði 42. tl. 3. gr. tollskrár-
laga, þar sem segir m.a. að aðrar
innflutningshömlur en þær sem
eru vegna sóttvarna eða annarra
öryggisráðstafana (leturbreyting
mín) gildi ekki um slíkan varning
þ.e. varning ferðamanna og far-
manna.“
Af svari ráðuneytisins er ljóst,
ao tollskráin er æðsta stjornskipu-
lega heimild þess, og önnur lög
þ.m.t. stjórnarskráin hljóta að
víkja. Slik rukkunarsjónarmið
eru ef til vill eðlileg í þessu ráðu-
neyti, en eru þó tæpast viður-
kennd af dómstólum þessa lands
ennþá. í samræmi við þetta
sjónarmið, er áfengi í augum
þessa ráðuneytis ekki uppspretta
gleði og ánægju eða böls og
haturs, heldur tekjulind, sem
sjálfsagt er að virkja sem bezt.
i fyrstu grein áfengislaga segir:
„Tilgangur laga þessara er sá að
vinna gegn misnotkun áfengis í
landinu og útrýma því böli, sem
henni er samfara."
Með öðrum orðum: Áfengislög-
in eru öryggisreglur settar af lög-
gjafanum til þess að sporna gegn
áfengisbölinu. Eitt meginatriðið,
sem löggjafinn styðst við, er bann
við innflutningi á áfengu öli. Að
mati löggjafans er öl stórhættu-
legt, og er þess vegna forboðið i
landinu. Mönnum er að sjálfsögðu
frjálst að hafa sínar skoðanir á
þessu, einnig fjármálaráðuneyt-
inu. En þvi ráðuneyti hefur enn
ekki verið gefið vald til þess að
breyta að eigin geðþótta vilja al-
þingis.
Þess vegna er það rangt hjá
ráðuneytinu að hald^ þvi fram, að
innflutningur á áfengu öli brjóti
ekki í bága við setningu „annarra
öryggisráðstafana."
Að lokum ein litil spurning til
ráðuneytisins: E þess að vænta,
að aðrar stéttir geti í framtiðinni
fengið að flytja inn áfengt öl eftir
reglugerðum og tollskrárlögum
en gegn áfengislögum?
Haraldur Blöndal."
HÖGNI HREKKVÍSI
Ó, Ó, — við gleymdum sundfötunum hans Högna!
OPID TIL HÁDEGIS
LUXO
er Ijósgjafinn,
verndið sjónina,
varist eftiriíkingar
SENDUM I POSTKROFU
LANDSINS IMESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suöurlandsbraut 12
sími 84488
Hausttízkan
☆
☆
ULLARKÁPUR
FLAUELSKÁPUR
TWEEDKÁPUR
KÁPUR MEÐ SKINNUM
TERYLENEKÁPUR
JAKKAR MEÐ KULDAFÓÐRI
LEÐURJAKKAR
FLAUELSJAKKAR
HÚFUR OG HATTAR
HANDTÖSKUR
vörur
í hverri
viku
þernhard lax^al
2. HÆÐ
KJÖRGARÐ/