Morgunblaðið - 30.10.1975, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.10.1975, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTOBER 1975 Plastbát stolið A TlMABILINU 15. september s.l. til 12. október var stolið vestur á Akrasandi 9—10 feta hvítum plastbát. Báturinn var geymdur á mjódd milli Sandvatns og Ný- lenduvatns. Báturinn var við- gerður á botni, trélistar að innan og málmlistar að utan, þar sem byrðingur og botn mætast. Borð- stokkurinn var úr harðvirði og var hann byrjaður að flagna. Báturinn þarfnast viðgerðar. Það eru tilmæli lögreglunnar í Borgarnesi, að allir þeir sem ein- hverjar upplýsingar geta gefið um hvarfið á bátnum gefi sig fram hið allra fyrsta. Frumvarp Eyjólfs K. Jónssonar: Stjórnmálaflokkar bók- halds- og framtalsskyldir 1 GÆR vóru lögð fram á Al- þingi frumvörp að lögum um bokhalds- og framtalsskyldu stjórnmálaflokka. Flutnings- maður beggja frumvarpanna er Eyjólfur Konráð Jónsson, al- þihgismaður. Annarsvegar er um að ræða frumvarp til breyt- ingar á lögum um hókhald nr. 51/1968, þar sem gert er ráð fyrir því að orðið stjórnmála- fíokkur bætist við aðra tiltekna bókhaldsskylda aðila f 5. tl. 2. gr. laganna, hinsvegar breyt- ingu á lögum um tekjuskatt og eignaskatt nr. 68/1971, þar sem gert er ráð fyrir framtalsskyldu stjórnmálaflokka, þó ekki verði þeir skattskyldir. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því að gjafir til stjórnmála- Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður. flokka, þó ekki yfir 5% af skatt- skyldum tekjum gefenda, skuli skattfrjálsar, og lagaheimild til að undanþiggja happdrættis- vinninga skattskyldu á sama hátt og nú er um vinninga í happdrættum, sem haldin eru í þágu ýmissar sérgreindrar starfsemi. 1 greinargerð með frumvarp- inu segir svo: Frumvarp þetta fjallar um fjárreiður stjórnmálaflokka. Meginefni þess er annars vegar að stjórnmálaflokkar verði framtalsskyldir, enda þótt þeir séu skattfrjálsir, en hins vegar að auðvelda flokkum að afla sér nokkurs fjár með frjálsum framlögum almennings. Er þar um að ræða skattfrelsi einstakra gjafa til stjórnmála- flokka, sem þó mega ekki nema umfram 5% af skattskyldum tekjum gefenda, og heimild til að undanþiggja happdrættis- vinninga skattskyldu á sama hátt og nú er um vinninga í happdrættum, þar sem ágóðan- um er varið til menningarmála, mannúðarmála eða kirkju- legrar starfsemi. I öðru frumvarpi, sem lagt hefur verið fram, eru tekin af öll tvímæli um það, að stjórn- málaflokkar skuli vera bók- haldsskyldir. Talsverðar umræður hafa öðru hverju orðið um fjár- reiður stjórnmálaflokka og eftirlít með fjármálum þeirra. Þannig urðu til dæmis tals- Framhald á bls. 16 Reyndú að taka land- helgisbrjótinn úr tjaldi RÚSSNESKIR verksmiðjutogar- ar hafa að undanförnu sópað upp ungkarfa við Austur-Grænland og mun mikið af þessum karfa hafa farið f bræðslu um borð f veiði- skipunum. Þetta er fslenzkum fiskifræðingum mikið áhyggju- efni, þar sem sami karfastofninn er við A-Grænland og tsland og vitað var, að mikið af ungkarfa er f vexti og hefði átt að nytja á næstu árum. Dr. Jakob Magnússon fiskifræð- ingur sagði f viðtali við Morgun- blaðið f gær, að fslenzkir togarar hefðu komið að fimm rússnesk- um verksmiðjutogurum á karfa- veiðum við Austur-Grænland f LANDHELGISGÆZLUNNI hef- ur oft gengið illa að ná einstaka fslenzkum landhelgisbrjótum, þrátt fyrir að viðkomandi hafi marg sinnis verið kærðir. Nokkuð rammt hefur að þessu kveðið á Skagafirði á undanförnum miss- erum og er þess skemmst að minnast að starfsmenn gæsl- unnar gómuðu einn togbát á Skagafirði í fyrra með þvf að leigja sér trillu og sigla út fjörð- inn. t sumar og haust hafa margir aðilar við Skagafjörð kært vél- bátinn Berghildi frá Siglufirði fyrir ólöglcgar togveiðar f firð- inum, en þrátt fyrir ftrekaðar til- raunir tókst ekki að ná bátnum. Þó munaði einu sinni litlu, en þá voru starfsmenn Landhelgisgæzl- unnar f tjaldi f Skagafirði og fylgdust með fcrðum bátsins. Þröstur Sigtryggsson skipherra sagði er Mbl. hafði samband við hann, að hann, Hálfdán Henrys- son og Kristján Jónsson hefðu farið norður fyrir nokkru til að huga að ferðum þessa báts, en verið var að kæra hann í sifellu fyrir ólöglegar togveiðar. Með einhverjum hætti hafa skips- stjóra bátsins sennilega borizt njósnir um ferðir gæzlumanna, þvi báturinn fór aðeins einu sinni á sjó meðan þeir voru fyrir norðan, en þar gistu þeir i tjalai. ,,Við vorum í vikutíma í Skaga- firði,“ sagði Þröstur, „en stuttu eftir að við komum norður, hætti báturinn róðrum og skipstjórinn fór að vinna i húsbyggingu. Við sáum bátinn leggja net í firðinum og einu sinni sáum við hann toga frá dvalarstað okkar. Það var í ljósaskiptunum eitt kvöldið. Því Litsjónvarpstæki af frílista Háð gjaldeyris” og innflutingsleyfum svo að ríkið getur stjórnað innflutningnum VIÐSKIPTARAÐUNEYTIÐ ákvað f gær að taka litsjónvarps- tæki af frflista og verða slfk sjón- varpsviðtæki nú eftirleiðis háð innflutnings- og gjaldeyrisleyf- um, Ifkt og gildir um örfáa vöru- flokka sem fluttir eru hingað til lands — svo sem brennsluolfu, sykur, landbúnaðarvörur og feiti ýmiss konar. Hefur ráðuneytið þegar gefið út breytingu á reglu- gerð um innflutnings- og gjald- eyrisleyfi, sem felur f sér framan- greinda skipan mála varðandi innflutning sjónvarpsviðtækja fyrir útsendingu f lit. Innflytjendur litasjónvarps- tækja verða þannig eftfrleiðis að senda umsókn til gjaldeyrisdeild- ar bankanna í hvert sinn sem leyst eru út tæki og umsóknir eru þar teknar til sérstakrar íhugunar f stað þess að gjaldeyrisdeildin hefur til þessa verið skyldug til að veita sjónvarpstækjainnflytj- endum gjaldeyrisyfirfærslu athugasemdalaust úr því að varan var á frílista. Samkvæmt upplýs- ingum sem Mbl. hefur aflað sér f viðskiptaráðuneytinu er markmið þessarar nýju skipunar við inn- flutning litasjónvarpstækja fyrst og fremst það að stjórnvöld geti haft stjórn á innflutningnum. Sjónvarpsinnflytjendur og selj- endur sem Mbl. átti tal við í gær töldu birtast ástæðulausan ótta f þessari ráðstöfun stjórnvalda og hún væri með öllu óþörf. Einn þeirra, Rafn Johnsson hjá Heimil- istækjum, sagði reyndar, að enn væri ekki að fullu séð hvað vekti fyrir ráðuneytinu með þessari nýju ráðstöfun en taldi hana frá- leita ef henni væri ætlað að stöðva algjörlega innflutning á litasjónvarpstækjum vegna þess að nú stæðu fjölmargir frammi fyrir því að endurnýja tæki sín. Líklegra væri þó, að stjórnvöld hygðust ætla að hafa einhverja stjórn á innflutningnum og fyrir- byggja að allir hlypu til á sama tíma til að fá sér litsjónvarpstæki. Eftir væri þá að sjá hvaða að- Framhald á bls. 20 Beið bana í bifreiðarslysi BANASLYS varð á Fagradal skömmu fyrir hádegi á þriðju- dag. Vilhjálmur Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri á Egilsstöð- um, beið bana, er bifreið hans lenti ofan f Fagradalsá. Vilhjálmur var á leið til Reyð- arfjarðar á bfl sínum og var mikil hálka á veginum. Rétt f þann mund, sem hann kom að Neðstu- brú, en það er neðsta brúin á Fagradal nærri Reyðarfirði, sner- ist bíll Vilhjálms á veginum og við það lenti bíllinn á einum brú- arstöplinum með þeim afleiðing- um, að hann steyptist ofan f ána. Vörubifreið var skammt á eftir bfl Vilhjálms og sá bílstjóri henn- ar hvað kom fyrir. Hafði hann strax samband við Seyðisfjarðar- radfó og bað um aðstoð. Kranabíll var sendur á staðinn til að lyfta Framhald á bls. 20 miður náðum við honum ekki þá, en við ætluðum að bíða eftir þvi að hann kastaði trollinu aftur, sem hann ekki gerði. Eftir þetta eina hal fór hann ekki á sjó. Annars var þessi ferð mikil til- breyting fyrir okkur. Við höfðum það mjög gott við Þórðarhöfða, borðuðum vilt jarðarber með rjóma út á.“ lok september s.l. og hefðu þeir augsýnilega mokað upp smákarfa og bræðslur allra skipanna verið 1 gangi. — Okkur er þettá sérstakt - áhyggjuefni, sagði Jakob, vegna þess að vitað er að við A- Grænland er mikið af smákarfa í uppvexti, en sami stofninn er við ísland og A-Grænland. Karfa- stofninn hefur verið f lægð undanfarið, en með tilliti til þess mikla magns af smákarfa, sem er í vexti höfum við verið nokkuð bjartsýnir, en nú er þessi stofn í hættu. Jakob kvaðst ekki vita nákvæm- lega um framvindu þessara mála, en Rússar hefðu ekki stundað veiðar á þessum slóðum áður. — Það er vá fyrir dyrum. Verk- VAFALAUST hafa margir velt því fyrir sér, hvort Landhelgis- gæzlan reynist þess megnug að verja nýju fiskveiðilögsöguna, ef samningar við Breta og V- Framhald á bls. 20 --------------------------------- fcessi rússneski verksmiðjutogari lá 1 Sundahöfn 1 gær. Ljósmynd Sv. Þorm. smiðjuskipin liggja í aflanum og þurfa ekkert að skilja eftir. Rúss- ar eru þekktir fyrir að fara ekki Framhald á bls. 20 Herskipin yrðu erfið Vilhjálmur Sigurbjörnsson Rússar moka upp ung- karfa við A-Grænland

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.