Morgunblaðið - 30.10.1975, Side 16

Morgunblaðið - 30.10.1975, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1975 ÞRIÐJI fundur fyrstu umræðu um frumvarp Gylfa I>. Gfslasonar um Framkvæmdastofnun rfkisins fór fram f neðri deild Alþingis f gær. Umræðu lauk ekki fremur en fyrri daginn. Er deildarfundi var frestað á fimmta tfmanum voru nokkrir þingmenn enn á mælendaskrá. Fundi átti að halda áfram kl. 9 sfðdegis. MÓTVÆGI GEGN BYGGÐARÖSKUN Tómas Arnason <F) ræddi fyrst um framkvæmdasjóð. Vék hann að gagnrýni tiltekins bankastjóra á aðhaldsleysi um lánveitingar sjóðsins. Sagði hann nettó- útlánaaukningu viðkomandi banka, Landsbankans, milli ár- anna 1973 og 74, hafa verið 4440 m.kr. en sambærilega aukningu framkvæmdasjóðs, m.a. til ýmissa fjárfestingarsjóða, hafa verið 427 m.kr. Þessi sami bankastjóri leyfði sér að koma fram i gervi „Gróu frá Leiti“ í Sjónvarpsþætti í getsökum um Framkvæmda- stofnun, „með allt niður um sig I þokkabót“, sbr. framangreindan samanburð, sagði þingmaðurinn. Því næst ræddi þingmaðurinn um ákveðin markmið byggða- sjóðs, sem veitti viðbótarlán til fjárfestingar i grundvallarat- vinnuvegum þjóðarinnar. Sá til- gangur væri að vinna gegn þjóð- hættulegri byggðaröskun, sem viðgengist hefði i áratugi. Sem dæmi mætti nefna að á tímabilinu 1950—1970 hefði fólksfjölgun Is- lendinga orðið 66.000 manns; þar af hefðu 54.600 komið í hlut höfuðborgarsvæðisins. Hér væri um hættulega mannfjöldaþróun að ræða, ekki sízt með tilliti til þess, að veigamiklir þættir fram- leiðslu og verðmætasköpunar í þjóðarbúskapnum grundvölluð- ust á byggðajafnvægi, þ.e. byggð í landinu öllu. Þegar þetta megin- markmið byggðasjóðs væri haft í huga skyti það skökku við, að fjargviðrast yfir því, að lánveit- ingar hans færu frekar til lands- byggðar en höfuðborgarsvæðis- ins. Tómas rakti síðan lánveitingar byggðasjóðs til endurnýjunar skipastóls og frystiiðnaðar i land- inu, sem og annarra þátta at- vinnulífsins, og taldi víðtæka at- vinnubyltingu hafa átt sér stað, sem gjörbreytt hefði atvinnu- og afkomuöryggi fólks til hins betra í öllum landsfjórðungum, svo sem ótvíræð reynsla segði til um. Þingstörf í gær: Dómsmálaráðherra, Ólafur Jóhannesson. mælti fyrir tveim- ur stjórnarfrumvörpum í neðri deild Alþingis i gær. Frumvarp til laga um breytingu á hegn- ingarlögum, sem m a fela í sér ný ákvæði um reynslunáðun fanga, til samræmis við tillögur norrænu refsilaganefndarinnar, en þetta frumvarp hefur áður verið skýrt hér á þingsiðu blaðs- ins Ennfremur frumvarpi til um- ferðarlaga, sem samið er af um- ferðarlaganefnd og felur i sér niðurfellingu um skráningar bif- reiða, sem seldar eru milli lög- sagnarumdæma, þ e nýtt skrán- ingarkerfi bifreiða i landinu, sem og að bifreiðaeftirlitið annist skráningu bifreiða í stað lög- reglustjóra Frumvarpið fjallar og um fleiri atriði, skráningu belta- bifreiða, beltabifhjóla, lengd ökutækja, tryggingarfjárhæðir ökutækja o fl Frumvarpinu var vísað til 2 umr og allsherjar- nefndar deildarinnar Samgónguráðherra, Halldór E. Sigurðsson, mælti fyrir frum- varpi um störf kafara, réttindi þeirra og starfsskyldur, sem og öryggisreglur Frumvarp þetta er nýmæli, þ e engin lög hafa til þessa gilt um þetta efni Frum- varpinu var vlsað til 2 umr og allsherjarnefndar. Þá var ennfremur rætt um frumvarp Gylfa Þ. Glslasonar um Framkvæmdastofnun ríkisins (sjá frásögn á öðrum stað hér á síðunni) __ |. fl 1 I 1 . „ SVIPMYND FRA ALÞINGI. Jafnt á metum, tvær konur, tveir „Hreppapolltlk Og Iiokkahagsmunir : karlar;tvötilvinstriogtvötilhægri:SvavaJakobsdóttir, Ellert B. -------—---!------------------------------------- Schram, Geir Gunnarsson og Geirþrúður Hildur Bernhöft. Þingmaður svarar Landsbankastjóra þol miða okkar, Iánsfjárþátt verð- bólguvaxtar og skort á trausti aðila vinnumarkaðarins í garð Framkvæmdastofnunar. Það væri ekki von á góðu, þar sem meira mættu sín „hreppapólitík og flokkahagsmunir“ en almanna- heill og heildarsjónarmið. önnur vinnubrögð þyrftu hér til að koma, sem á öðrum sviðum atvinnú- og efnahagsmála okkar, ef ekki ætti að stefna beint að þjóðargjaldþroti. Þingmaðurinn tók fram að gagnrýni sín væri ekki meint per- sónulega til eins eða neins, heldur beindist að fyrirkomulagi vals framkvæmdastjórnar og starfs- aðstöðu sérfræðinga, sem ynnu að þörfum viðfangsefnum, sem og byggðamismunun í lánafyrir- greiðslu. Þá ræddi hann um afskipti fyrri og núverandi stjórnar af málefnum byggðasjóðs. Eftir regl- um vinstri stjórnar hefði framlag rfkissjóðs í ár til byggðasjóðs átt að vera, með álgjaldi, 195 m.kr. og á árinu 1976 240 m.kr. Samkvæmt ákvæðum í núverandi stjórnar- sáttmála yrði hlutur byggðasjóðs I ár 860 m.kr. og árið 1976 1123 m.kr. Hér skakkaði því meir en hálfum öðrum milljarði á tveimur árum, svokallaðri „hægri“ stjórn í vfl. TÓLITlSK VIÐHORF TORVELDA EÐLILEGA STARFSHÆTTI Jón Skaftason (F) sagði að þjóðin mætti nú hrikalegri efna- hagsvanda en nokkru sinni fyrr frá stofnun Iýðveldisins. Þessi vandi væri að nokkrum hluta til orðinn vegna skipulagsleysis I f járfestingar- og lánamálum. Hann sagðist sagðist hafa varað við þvl I þingflokki sínum, að framkvæmdaráð Framkvæmda- stofnunar væri skipað með þeim hætti, sem nú væri gert, þ.e. eftir kommissakerfi. I Framkvæmda- stofnun væri samankomið meira vald á einum stað en dæmi væri til um, nema e.t.v. hjá Fjárhags- ráðinu sáluga. Þar ætti ekki að ríkja pólitískt kommissaravald. Rétt hefði verið að aðskilja Þjóð- hagsstofnun frá Framkvæmda- stofnun. Þá las hann úr skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 1974, þar sem fram kemur hörð gagn- rýni sérfræðinga stofnunarinnar, einkum áætlanadeildar á starfs- skilyrði sín, m.a. af þvi tagi, að stjórnkerfi stofnunarinnar og pólitísk viðhorf torvelduðu eðli- lega og heilbrigða starfshætti. Þetta er ekki fallegur lestur, sagði þingmaðurinn, og engin furða, þó vart verði „efnahags- legra óhappa", þegar svona er I pottinn búið. Þá vék þingmaðurinn að byggðasjóði, sem vanrækt hefði uppbyggingu skipastóls I slnu kjördæmi, Suðurnesjum, með þeim hætti, að þar væru nú hæsti meðalaldur fiskiskipa I veiðiflota Islendinga. Þannig hefði á árinu 1974 verið veittar 125 m. kr. I Austfirðingafjórðung en tæpar 23 m. kr. í Reykjaneskjördæmi og aðeins ein milljón til Reykja- víkur. Þingmaðurinn ræddi ofvöxt I skipastól landsmanna, miðað við — Stjórnmála- flokkar Framhald af bls. 2 verðar deilur um þetta efni fyrir tveimur árum I tilefni af tillögum I Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins um eftirlit með fjárreiðum stjórnmálaflokka og aðgerðir til að létta þeim fjár- öflun á þann veg sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir. En þótt slíkar umræður hafi farið fram hefur ekkert verið aðhafst til úrbóta I þessu efni, og þess vegna er frumvarp þetta fram komið. Ljóst er að ýmislegt gæti orkað tvímælis við framkvæmd tillagna þeirra, sem hér eru fluttar, ef að lögum yrðu, en svo er raunar um ýmis fleiri atriði skattalaga, svo sem kunnugt er. Þannig er til dæm- is hvergi I íslenskri löggjöf skil- greint hvað stjórnmálaflokkur sé, og kann því að orka tvímælis hve langt bæri að ganga i að heimta framtöl frá stjórnmála- félögum. Væntanlega yrðu Iög þessi skýrð þröngt, ef slíka skýrgreiningu skorti, þegar þau kæmu til framkvæmda, en tækju I öllu falli til aðalskrif- stofu flokkanna, rekstrar fasteigna og útgáfustarfsemi. Hugmyndir hafa þó verið uppi um að nauðsyn bæri til að setja löggjöf um réttindi og skyldur stjórnmálaflokka og mundi þá margt skýrast. En flutnings- maður telur eðlilegt að á þessu stigi málsins verði um þetta fjallað I þingnefnd, þar sem fulltrúar mismunandi sjjórn- málaflokka hafa aðstöðu til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Nefnd sú, sem fær frumvarp þetta til meðferðar, metur hvort ástæða sé til að kveða nánar á um fil hverra framtalsskyldan skuli ná eða um fyrirkomulag framtala flokkanna. Ljóst er að I nútima þjóð- félagi þurfa stjórnmálaflokkar á talsverðu fjármagni að halda til starfsemi sinnar. Heil- brigðast og eðlilegast er að þeir afli fjár með frjálsum framlög- um frá almenningi, eins og þeir raunar gera þegar I rlkum mæli. I skattalögum eru nú þegar ákvæði um að einstakar gjafir til menningarmála, vls- indalegra rannsóknarstofnana, viðurkenndrar Iíknarstarfsemi og kirkjufélaga séu skatt- frjálsar, en þó ekki meira en tlu af hundraði skattskyldra tekna gefenda. Hér er lagt til að ein- stakar gjafir til stjórnmála- flokka séu einnig undanþegnar skatti, en þó ekki hærri upp- hæð en nemur 5% af skatt- skyldum tekjum gefenda. Ráð er fyrir því gert að lögin öðlist gildi 1. janúar næstkom- andi og mundu þá fyrstu fram- töl flokkanna send skattayfir- völdum á árinu 1977, en naum- ast er unnt að gera flokkana framtalsskylda fyrr en þeir hafa ótvírætt verið bókhalds- skyldir um eins árs skeið. Ný þíngmál • STJÓRNARFRUMVÖRP Lagt hefur verið fram á Al- þingi frumvarp til laga um sam- þykkt á ríkisreikningum fyrir árið 1973 og frumvarp til fjár- aukalaga fyrir sama ár. • FLUGVALLAGJALD Sighvatur Björgvinsson (A) flytur frumvarp til laga um breytingu á fyrri lögum, þess efnis, að flugvallagjald innan- lands verði fellt niður. Flug- vallagjald skal vera kr. 2.500 fyrir hvern farþega, sem ferð- ast frá Islandi til annarra landa, þó kr. 1.250.- fyrir far- þega á aldrinum 2—12 ára. Gjaldið skal fella inn í verð farseðils. • FJÁRREIÐUR STJÓRNMALAFLOKKA Ragnar Arnalds (K) o.fl. flytja þingsályktunartillögu, sem gerir ráð fyrir hvoru tveggja, að 5 manna nefnd at- hugi fjárreiður stjórnmála- flokka og semji frumvarp að lögum um opinberan stuðning við starfsemi stjórnmálaflokka og eftirlit með fjárreiðum þeirra. • FYRNINGARAKVÆÐI. HAMARK VAXTAFRÁ- drAttar og Aætluð lagmarkslaun. Ragnar Arnalds (K) flytur þingsályktunartillögu um endurskoðun fyrningarákvæða, hámark vaxtafrádráttar og áætluð lágmarkslaun þeirra, sem hafa tekjur slnar af eigin rekstri. Gerir tillagan ráð fyrir þvl, að ríkisstjórnin undirbúi lagafrumvarp um breytingu á tekjuskattslögum, byggt á slíkri endurskoðun. Frumvarpið feli m.a. I sér: 1) ákvæði um fyrn- ingu skv. verðhækkunarstuðli og flýtifyrningu verði afnumin og fyrningarhlutfall miðað við endingu eigna, 2) takmörkun á vaxtafrádrætti með hliðsjón af meðalvöxtum, Ibúðarverði og fjölskyldustærð, 3) aðilum, sem hafa tekjur af eigin rekstri verði áætlaðar lágmarkstekjur, hvort sem reksturinn skilar bókhaldslegum hagnaði eða ekki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.