Morgunblaðið - 30.10.1975, Side 36
Fiskverðshækkun hjá Coldwater í Bandaríkjunum:
10 centa hækkun á flökum,
2-5 centa hækkun á blokkum
Hans-Jiirgen Wischn-
evski aðstoðarutanrfkis-
ráðherra og Fritz Loge-
mann aðstoðarsjávarút-
vegsráðherra á blaða-
mannafundi í Ráðherra-
bústaðnum. Konan á
myndinni er túlkur.
COLDWATER, fyrirtæki S.H. í Bandaríkjunum hefur
ákveðið að hækka verulega verð á flökum, eða um 10
cent og jafnframt hefur fyrirtækið ákveðið að hækka
blokkaverð um 2—5 cent. Þessar upplýsingar koma
fram í yfirliti stjórnarformanns S.H., Gunnars Guð-
jónssonar, sem birt er á miðsfðu Morgunbiaðsins f
dag. Stjórnarformaðurinn segir, að þessi ákvörðun sé
alldjörf, eins og hann kcmst að orði „og ekki verður
fullyrt um hvort hún stenzt, fyrr en á reynir“.
Fyrrnefnd 10 centa
hækkun nær til þorsk- og
ýsuflaka, en verð á þorsk-
ýsu- og ufsablokk hækkar
um 2 cent og karfablokkin
um 5 cent.
Gunnar Guðjónsson seg-
ir ennfremur, að 9 fyrstu
mánuði þessa árs hafi orðið
um 32% aukning á heildar-
sölu Coldwater í Banda-
ríkjunum miðað við sama
tímabil í fyrra. Og enn-
fremur að nú hafi fyrir-
tækið selt jafnmikið fisk-
magn og allt árið 1974.
Stjórnarformaður S.H.
leggur áherzlu á það, að
ástæðan til þessarar
ákvörðunar sé m.a. sú, að
mjög stórir kaupendur
vestra telji sér hag í því að
Biðskák
Friðrik
hjá
SKÁK Friðriks Ólafssonar og
Hartson í sjöundu umferð
svæðamótsins, sem tefld var f
gærkvöldi, fór f bið. Staðan er
óljós, en þó er Friðrik talin
hafa öllu betri stöðu. Sjötta
umferð svæðamótsins f
Búlgarfu var tefld f gær, þá
gerði Guðmundur Sigurjóns-
son jafntefli við Bednarski og
Ermenkov gerði jafntefli við
Framhald á bls. 20
Rýrnun gjaldeyris-
stöðunnar 49,77% af
rýrnuninni í fyrra
NETTÓSTAÐA gjaldeyris-
varasjóðsins var í septem-
berlok neikvæð um 3012
milljónir króna og versnaði í
mánuðinum um 912 milljónir
króna og eru báðar tölur
miðaðar við gengi í september-
lok. Frá áramótum versnaði
staðan um 5.439 milljónir
króna.
Til samanburðar við fyrra
ár, er rétt að geta þess að á
sama tíma, janúar til septem-
ber, rýrnaði gjaldeyrisstaðan
um 10.928 milljónir króna.
Þótt halli undan fæti nú í
þróun gjaldeyrisstöðunnar er
ekki eins mikill flughraði á
rýrnun stöðunnar sem var í
fyrra.
Allar tölur, sem hér eru
nefndar, eru miðaðar við
septemberlokagengi 1975 og
því sambærilegar. Rýrnun
gjaldeyrisstöðunnar nú er því
49,77% af rýrnun stöðunnar á
sama tíma í fyrra.
kaupa góða og örugga
vöru, sem þeir þekkja, á
hærra verði en þeir geta
keypt sams konar vöru
annars staðar, og þeir geti
treyst því, að séð verði
fyrir þörfum þeirra. En
hann bætir við þeim aðvör-
unarorðum, að þessar fisk-
verðshækkanir standist því
aðeins, að gæði haldist og
þörfum kaupenda verði
fullnægt.
Mótmæla há-
hyrningsdrápi
— VIÐ í Dýraverndunarfé-
lagi Reykjavíkur mót-
mælum harðlega viður-
styggilegum aðferðum við
háhyrningaveiðar. Við
höfum alla tíð fordæmt alla
misþyrmingu á dýrum og
eru háhyrningar þar ekki
undanskildir, sagði Gunnar
Pétursson, formaður Dýra-
verndunarfélags Reykja-
víkur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Gunnar sagði, að ef
franski háhyrningafang-
arinn ætlaði sér að halda
þessum veiðum áfram
þyrfti hann að koma með
sérstakan bát og útbúnað
til þess, en ekki stóla á að
íslendingar næðu skepn-
unum, sem þeir síðan
kynnu svo ekkert með að
fara og misþyrmdu þeim á
margvíslega vegu.
Ljósmynd Öl.K.M.
Viðræðunum við V-Þjóðverja lokið:
Samkomulag tókst ekkí
- nýr fundur á naestunni
VIÐRÆÐUM Islendinga og Þjóó-
verja vegna útfærslu fiskveiðilög-
sögunnar f 200 sjómflur, lauk f
gær að sinni, og ekki hefur verið
ákveðið hvar eða hvenær fram-
haldsviðræður fara fram, en það
verður þó f náinni framtfð. Einar
Ágústsson utanrfkisráðherra
sagði f viðtali við Mbl. í gær, að
viðræðurnar hefðu af hálfu Þjóð-
verja verið vinsamlegri en oft
áður, en hann kvað enn mikið
bera f inilli aðila. Hvorki Einar
né Hans-Júrgen Wischnevski, for-
maður þýzku viðræðunefhd-
arinnar, vildu ræða einstök atriði
viðræðnanna við blaðamenn og
sagði Einar Ágústsson ástæðuna
vera þá að fyrst þyrfti að gera
ríkisstjórn, þingflokkum og land-
helgisnefnd grein fyrir gangi við-
ræðnanna.
Þriðji viðræðufundurinn á
þessum tveimur dögum, sem rætt
hefur verið saman, hófst klukkan
14 í gær í Ráðherrabústaðnum.
Kaffihlé var gert á fundinum um
klukkan 16, og að loknu hléi stóð
fundur í um það bil stundarfjórð-
ung og lauk um fimmleytið.
Einar Agústsson utanríkisráð-
herra sagði í viðtali við Mbl., að
viðræðurnar hefðu farið vinsam-
legar fram af hálfu Þjóðverja en
oft áður. Hann kvað mikið bera i
Framhald á bls. 20
Frystihús á SV-landi segja
upp fastráðnu starfsfólki
— Reksturinn stöðvast vegna taps
ALLFLEST frystihús á svæðinu
frá Vestmannaeyjum til Akra-
ness hafa nú sagt upp öllu starfs-
fólki vegna fjárhagserfiðleika.
Eigendur húsanna segja, að ekki
sé hægt að koma þeim af stað á
ný, eftir eyðuna, sem kom í
reksturinn þegar fiskveiðiflotinn
stöðvaðist, og ef hægt eigi að vera
að halda áfram rekstri húsanna á
núverandi grundvelli þurfi
110—120% afurðalán.
Slæm afkoma frystihúsanna á
þessu svæði mun fyrst og fremst
stafa af lélegri skiptingu fiskteg-
unda, en uppistaðan f aflanum
sem þau taka við er karfi og ufsi.
Frystihúsin á Vestfjörðum, vfða á
Norðurlandi og Austfjörðum fá
hins vegar þorsk og ýsu í meiri-
hluta, stm miklu hærra verð fæst
fyrir. Frystihús á svæðinu frá
Vestmannaeyjum til Akraness
munu vera um 30 talsins og hafa
þau flest sagt upp fastráðnu
starfsfólki. Morgunblaðinu er
hins vegar kunnugt um, að Bæjar-
útgerð Reykjavíkur, Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar og Isbjörninn h.f. í
Reykjavfk hafa ekki sagt upp
sfnu fólki.
Guðmundur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar í
Vestmannaeyjum sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
frystihúsin sérstaklega á SV-landi
hefðu verið rekin með stórfelldu
tapi frá því í vor. Nú þegar fiski-
skipaflotinn hefði stöðvast og
eyða komið í rekstur húsanna
kæmust þau ekki í gang aftur af
fjárhagsvandræðum. „Keðjan
slitnaði þar og verður ekki komið
saman aftur, nema eitthvað sér-
stakt komi til," sagði hann. Frysti-
húsin hafa kosið sérstaka nefnd
.til að fjalla um þetta mál við
stjórnvöld og mun hún ræða við
forsætisráðherra í dag.
Kvað Guðmundur tapið vera
fyrst og fremst vegna óhentugra
tegundaskipta. Mikill meirihluti
aflans, sem frystihús á umgetnu
svæði tækju á móti Væri karfi og
ufsi, en þau framleyddu 87% af
ufsaafurðum Islendinga og 52%
karfaafurða. Þessar tegundir
væru í miklu lægra verði á heims-
mörkuðunum en þorskur og ýsa.
Þá sagði hann að fiskiskipa-
flotinn, sem aflaði fyrir þessi hús
Framhald á bls. 20