Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Þessa mynd tók Snorri Snorrason af risastórum íshelli í Kverkjökli. Maðurinn á myndinni er Hákon Aðal- steinsson. Leynisamkomulag Breta Belga og V-Þióðverja? 251. tbl. 62. árg. Átöká landa- mærum Indlands og Kína Nýju-Delhí 1. nóvember Reuter. 4 indverskir hermenn féllu í átökum við kínverska landamæra- verði i norðurhéruðum Indlands 20. október sl. að því er skýrt var frá í Nýju-Delhí í dag. Hefur Ind- landsstjórn mótmælt atburðinum harðlega við kínversk yfirvöld og segir að kínversku hermennirnir hafi gert árás úr launsátri á Ind- verjana töluvert fyrir innan landamærin Indlandsmegin. Þetta eru fyrstu staðfestu frétt- irnar um átök milli Kínverja og Indverja I nokkur ár, en ind- verska stjórnin neitaði í sumar að staðfesta fréttir um hörð átök á Framhald á bls. 31 Fyrsta skip- ið til ísra- els um Súez Kaíró 1. nóvember AP-Reuter. FYRSTA skipið á 23 árum með farm til Israels átti að fara í gegn- um Súezskurð í dag. Hér er um að ræða grlska skipið Olympus, sem er 8500 lestir að stærð og er með um 9000 lesta sementsfarm, sem fara á til Eilat. Skipið átti að fara gegnum skurðinn f gær, en það kom of seint til að geta náð skipa- lestinni þá. Israelskt skip hefur ekki farið um Súezskurð frá þvf 1952, er Nasser hrifsaði völdin af Farouk konungi Egyptalands. Ekkert hefur verið sagt um sigl- ingu skipsins af hálfu egypskra yfirvalda, en þau eru í erfiðri aðstöðu vegna harðrar gagnrýni Sýrlendinga og Palestínumanna vegna undirritunar bráðabirgða- friðarsáttmálans við Israel, sem m.a. kveður á um að farmar til Israéls sem ekki eru hernaðarlegs eðlis, fáist fluttir um Súezskurð. Saka Sýrlendingar og Palestínu- menn Egypta um að hafa brugðist málstað Araba. • Bretar, Belgar og Vestur- Þjóðverjar hafa gert með sér leynilegt samkomulag til þess að koma f veg fyrir að Islendingar tefli þeim hverjum gegn öðrum f þeim viðræðum um fiskveiðirétt- indi við Island sem nú standa yfir, að þvf er brezka blaðið Sunday Times segir í frétt frá fréttamanni sfnum, Peter Kenyon, f Brussel s.l. sunnudag. Vfsar blaðið til Lundúnaviðræðn- anna, til fundar sérstaks vinnu- hóps ráðherranefndar Efnahags- bandalagsins f Briissel s.I. mánu- dag um þetta mál, en f Reuters- fréttum af honum var sagt að Bretar og Vestur-Þjóðverjar hefðu þar samræmt sjónarmið sín til viðræðna, og til viðræðnanna milli Islendinga og Þjóðverja sem þá stóðu fvrir dvrum, og seg- ir sfðan að árangur þessara við- ræðna sé gagnkvæmt hagsmuna- mál þessara þriggja EBE-þjóða, sem nú reyna að semja um veiði- réttindi. Kenyon segist hafa það eftir góðum heimildum f Brússel að Bretar styðji umdeilda kröfu Þjóðverja um að verksmiðjuskip þeirra eigi rétt á að veiða á Is- landsmiðum. Þetta hafi tslend- ingar ekki svo mikið sem viljað ræða, og því hafi þeir ekki fengið tollalækkanir fvrir fisk sinn f EBE-höfnum, sem þeir geri svo að skilvrði fvrir þvf að veiðirétt- indi á tslandsmiðum verði fram- lengd. Þetta segir Kenyon svo vera ástæðuna fyrir þvf að Bretar, Belgar og Vestur-Þjóðverjar hafi gert með sér samkomulag um grundvallarastöðu í tvfhliða við- ræðum þeirra við tslcndinga. Síðan segir í frétt Sunday Times: Viðskiptatilslakanirnar til Islendinga voru raunar sam- þykktar fyrir þremur árum þegar EBE gerði fríverzlunarsam- komulag við öll aðildarlönd Frí- verzlunarbandalags Evrópu, EFTA, en það var áður en Bretar gerðust aðilar að EBE. En eitt I skilyrði var samkomulag um fisk- veiðiréttindi við Islaiid fyrir alla hlutaðeigandi aðila. Vestur- Þjóðverjar náðu aldrei slíku sam- komulagi, þar eð íslendingar héldu þvf fram að vegna þess að samkomulagið við Breta og Belga náði ekki til verksmiðjuskipa væri engin ástæða til að slíkt ætti við samkomulag við Þjóðverja. Þá hefur Kenyon það eftir áreiðanlegum heimildum að yfir- standandi viðræður milli Is- lendinga og landanna þriggja séu aðeins undirbúningsviðræður fyrir samkomulag sem mun að verulegu leyti taka til Efnahags- Madrid 1. nóvetiiber Reuter. I TILKYNNINGU frá lækn- um Francos þjóðarleiðtoga Spán- ar skömmu eftir hádegið sagði, að hershöfðinginn hefði átt rólega nótt, hjartslátturinn hefði verið eðlilegur og Franco hita- laus, engu að síður væri ástand hans rnjög alvarlegt. Juan Carlos prins, sem tekið hefur við völdum til bráðabirgða, hefur snúið sér að skyldustörfum sinum af fullum krafti og hélt i bandalagsins í heild. Fyrir þessu eru tvær ástæður, segir Kenyon: 1 fyrsta lagi munu tollalækkanir til Islendinga á fríverzlunarsvæðinu þurfa endurskoðunar við með til- liti til nýrrar tollaáætiunar og krafna Islendinga um að tvíhliða samningarnir séu aðeins gerðir til skamms tíma. I öðru lagi mun frekari samdráttur fiskveiðirétt- inda á miðum við Island og Noreg vegna 200 mflna útfærslu land- anna tveggja óhjákvæmilega auka þrýsting á EBE um að það lýsi einnig yfir útfærslu. Það hefur í för með sér endurskoðun Framhald á bls. 31 gær stjórnarfund, þar-sem eink- um var fjallað um framtfð Spænsku Sahara. Gerði Carlos Navarro forsætisráðherra Carlosi grein fyrir viðræðum sínum við Fulltrúa Morokkó, Mauritaníu og Alsír um málið, en Alsirstjórn er mjög í mun að koma í veg fyrir að Morokko nái hernaðarlegum yfir- burðum með því að fá yfirráð yfir Sahara. Mauritania gerir einmg kröfur til yfirráða. Spánverjar leggja alla áherzlu á að komast hjá vopnuðum átökum. Stjórn Karamis riðar til falls Beirút 1. nóvember AP-Reuter. FLEST bendir nú til að ríkis- stjórn Rashids Karamis forsætis- ráðherra Líbanons, sem farið hef- ur með völd í 4 mánuði, sé að riðlast og dagar hennar scnn tald- ir. 11. vopnahléið, sem samið hef- ur verið um á undanförnum mán- uðum, tók gildi um kl. 19.30 f gærkvöldi að fsl. tfma en það var rofið nokkrum mfnútum sfðar er deiluaðilar tóku að berjast á ný f úthverfum Beirút og beittu eld- flaugavörpum og vélbyssum. Op- inberlega hefur verið frá þvf skýrt að 1000 manns hafi fallið f átökunum sl. tvo mánuði, en talið er að hin raunverulega dánartala sé miklu hærri. Karami forsætisráðherra sakaði í dag Frjálslynda flokk Camilles Chamouns innanríkisráðherra um að standa fyrir vopnahlésbrot- unum ásamt hægrimönnum fal- angista. I fregnum um hádegis- bilið í dag sagði að ekkert lát væri á átökunum og að fjöldi manna hefði fallið. Saharamálið efst ábaugihjáCarlos

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.