Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÖVEMBER 1975
31
Samkeppni í ljóðaskreytingum
fyrir íslenzka listamenn
Den norske Bokklubben gefur
út ljóð 25 íslenzkra skálda
A1MJUD4GUR
3. nóvember
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Iþrðttir
Myndir og fréttir frá fþrótta-
viðburðum heigarinnar.
Umsjónarmaður Bjarni
Feiixson.
21.10 Vegferð mannkynsins
Bresk-amerfskur fræðslu-
myndafiokkur um upphaf
og þróunarsögu mannkyns-
ins.
3. þáttur. Stórvirki úr steini
Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
22.00 Sullens-systurnar
L (litur)
Breskt sjónvarpsieikrit úr
myndaflokknum Country
Matters, byggt á sögu eftir
A. E. Coppard.
Nítján ára piltur verður ást-
mmw
fanginn af konu, sem er sjö
árum eldri en hann, og hann
vill að þau gifti sig.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
22.50 Skólamál
„Það er hægt að kenna
öllum allt“
Þátturinn fjallar að þessu
sinni um hugmyndir dr.
Jerone S. Bruners um nám
og kennslu, en hann var til
skamms tfma prófessor f
uppeldis- og kennslufræðum
við Harvardháskóla f Banda-
ríkjunum.
Þátturinn er gerður f sam-
ráði við _ Kennaraháskóla
fslands og tekinn upp þar.
Hann er sendur út f tengsl-
um við tvö útvarpserindi um
sama efni, sem flutt voru 26.
og 28. október s.l.
Umsjónarmaður Helgi
Jónasson fræðslustjóri.
23.10 Dagskrárlok.
AIMUD4GUR
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar Örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pfanóleikari
(a.v.d.v.) Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Séra Erlendur Sigmundsson
flytur. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45. Guðrún Guð-
laugsdóttir les „Evjuna hans
Múmfnpabba“ eftir Tove
Jansson í þýðingu Stein-
unnar Briem (4). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. Búnaðarþáttur kl.
10.25. Magnús B. Jónsson
talar um búnaðarfræðslu. Is-
lenzkt mál kl. 10.40. Endur-
tekinn þáttur Ásgeirs Bl.
Magnússonar. Morguntón-
leikar kl. 11.00. Jascha Sil-
berstein og La Suisse
Romande hljómsveitin leika
Fantasfu fyrir selló og hljóm-
sveit eftir Jules Massenet;
Richard Bonynge stjórnar /
Hljómsveit Tónlistarháskól-
ans f Parfs leikur „Arstfð-
irnar“, ballettmúsik op. 67
eftir Alexander Glazunoff;
Albert Wolff stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Á
fullri ferð“ eftir Oscar
Clausen Þorsteinn Matthías-
son les (14).
15.00 Miðdegistónleikar La
Suisse Romande hljómsveit-
in leikur „La Source" —
„Lindina" eftir Delibes. —
Leonid Kogan og Alexander
Ivanoff. Victor Olof stjórnar
„Lindina" eftir Delibes.
Victor Olof stjórnar. —
Leonid Kogan og Alexander
Ivanoff-Kromskoy leika
Dúett f A-dúr fyrir fiðlu og
gftar eftir Granyani. Svjato-
slav Richter og Fílharmoníu-
sveitin í Varsjá leika Pfanó-
konsert nr. 2 f e-moll eftir
Sergej Rachmaninoff;
Stanislav Wislocki stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynr.ingar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.00 Ungir pennar Guðrún
Stephensen sér um þáttinn.
17.30 Að tafli. Ingvar
Ásmundsson menntaskóla-
kennari flytur skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkyi.i.
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Stefán Þorsteinsson kennari
f Ólafsvfk talar.
20.00 Mánudagslögin
20.30 Gestir á Islandi. Þættir
úr fyrirlestrum. — Ólafur
Sigurðsson fréttamaður sér
um þáttinn. t fyrsta þætti
verða kaflar úr fyrirlestri
Gro Hageman um norska
kvennasögu.
21.00 Strengjakvartett f F-dúr
eftir Maurice Ravel Craw-
ford-kvartettinn Ieikur.
21.30 (Jtvarpssagan: „Fóst-
bræður eftir Gunnar
Gunnarsson. Jakob Jóh.
Smári þýddi. Þorsteinn 0.
Stephensen leikari les (10).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Úr tón-
listarlffinu. Jón Ásgeirsson
sér um þáttinn.
22.40 Skákfréttir
22.45 Hljómplötusafnið f
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.40 Fréttir f stuttu máii.
Dagskráriok.
NORSKI bókaklúbburinn vinnur
nú að útgáfu á völdum fslenzkum
Ijóðum 25 skálda frá tfmabilinu
eftir síðari heimsstyrjöldina og
mun bókin koma út næsta ár.
Bókaútgáfan óskar að Ijóðasafnið
verði myndskreytt með svarthvft-
um myndum gerðum af einum
eða fleiri fslenzkum listamönn-
um.
Norski bókaklúbburinn hefur
nú auglýst samkeppni fyrir is-
lenzka listamenn um myndskreyt-
ingu bókarinnar og sem prufu-
verkefni er ljóðið Upphaf úr Inn-
löndum Hannesar Péturssonar og
eru listamönnunum algjörlega
frjálsar hendur á hvern veg þeir
spreyta sig á viðfangsefninu, en
hver listamaður getur sent eina
til þrjár prufumyndir. Skulu
myndirnar sendast Bókasafni
Norræna hússins merktar Den
norske Bokklubben, fyrir 10. des.
1975 og skulu myndirnar merktar
nafni listamannsins og heimilis-
fangi á baksíðunni. Prufumynd-
irnar verða endursendar eftir
athugun og þá haft samband við
þá listamenn sem koma til með að
myndskreyta ljóðabókina.
Myndskreytingarnar sem verða
notaðar i útgáfu ljóðasafnsins
verða greiddar með 400—600
norskum krónum fyrir hverja
mynd. Reiknað er með að 16
myndskreytingar verði notaðar á
heilum síðum í ljóðasafninu í
stærðinni 12x15,5 sm.
Islenzku Ijóðskáldin sem munu
væntanlega eiga ljóð í norsku út-
gáfunni eru: Jóhannes úr
Kötlum, Þorgeir Sveinbjarnar-
son, Snorri Hjartarson, Steinn
Steinarr, Kristján frá Djúpalæk,
Jón úr Vör, Þorsteinn Valdimars-
son, Stefán Hörður Grímsson,
Einar Bragi, Jón Óskar, Hannes
Sigfússon, Jónas Svafár, Sigfús
Daðason, Sigurður A. Magnússon,
Halldór Laxness, Matthías Jo-
hannessen, Vilborg Dagbjarts-
dóttir, Jón frá Pálmholti, Hannes
Pétursson, Dagur Sigurðarson,
Þorsteinn frá Hamri, Jóhann
Hjálmarsson, Ölafur Haukur
Símonarson og Pétur Gunnars-
son.
Norski bókaklúbburinn mun
gefa út 6 ljóðabækur á næsta ári,
1976, og verður íslenzka eftir-
stríðsára ljóðasafnið nr. 2 i röð-
inni.
Þýðendur íslenxku ljóðanna
yfir á norsku eru: Camilla Carl-
son, Ivar Eskeland, Ivar Orgland,
Eilif Straume og Knut Ödergaard.
Fer hér á eftir ljóðið Upphaf
sem notað er í samkeppninni:
UPPHAF
Enn strýkur vorkoman
af augum mínum svefn.
Ég vakna
við vatnaþyt og söng
í brumandi trjám og við ljósið
sem logar og steypist fram
af hengjum skýjanna! Vakna
við kunnuglegt upphaf
innan hins lokaða hrings
árstíðanna.
Nú er einskis að sakna
allt er ný
endurlffgandi byrjun!
— Leyni-
samkomulag
Framhald af bls. 1
hinnar sameiginlegu fiskveiði-
stefnu bandalagsins.
Bæði Islendingar og Norðmenn
eiga fiskveiðihagsmuna að gæta á
miðum f „Efnahagsbandalags-
sjónum'* sem myndast er EBE
færir út í 200 mílur. Þá hagsmuni
er ekki unnt að tryggja án sam-
komulags við EBE-löndin níu.
Brezka stjórnin þarf á skilningi
annarra EBE-landa að halda ef
nást á samkomulag sem er að-
gengilegt fyrir brezka sjómenn,
en þar kann að verða hængur á,
segir í fréttinni í Sunday Times.
Loks segir Peter Kenyon að
heimildir sínar i Briissel haldi þvi
fram að það sé aðeins tímaspurs-
mál að brezka ríkisstjórnin
neyðist til að viðurkenna mikil-
vægt hlutverk Efnahagsbanda-
lagsins í heild, í viðleitninni til að
tryggja hagsmuni brezkra sjó-
manna.
— Indland
Framhald af bls. 1
landamærunum f Himalaya í
ágúst sl. Indverjar og Kínverjar
háðu blóðuga styrjöld i einn
mánuð á landamærum sínum
1962, eftir fjölda atvika, sem
báðir aðilar sökuðu hinn um að
hafa átt upptökin að.
Talsmaður Indlandsstjórnar
sagði að fregnir af atburðinum
hefðu ekki borizt fyrr vegna sam-
bandsleysis við hið afskekkta
svæði. Lík hermannanna 4 hafa
verið flutt til Nýju-Delhí. Að sögn
talsmannsins gerðu um 40 kín-
verskir hermenn árásina á 6
manna indverskan herflokk.
— Skák
Framhald af bls. 3
mál í vestanverðri Evrópu:
enska og islenzka.
Að 9 umferðum loknum er
staðan í mótinu þessi: 1. Ribli 7
v. (8), 2. Liberzon 6 v. og biðsk.
(9), 3.—4. Friðrik og Parma 5,5
v (8), 5.—6. Ostermayer og
Jansa 5 v. (8), 7.—8. Timman
og Zwaig 5 v. (9), 9. Poutiainen
4 v. og biðsk (8), 10. Hamann
3,5 v. og biðsk. (8), 11. Harstson
3 v. og biðsk. (8), 12. Murray 2
v. 8(9, 13.—14. Laine og van
den Broeck 1,5 v (9), 15. Björn
1 v. (9).
Tfunda umferð verður tefld f
dag og hefst kl. 14. Þá tefla
saman: Ribli og Ostermayer,
Poutiainen og Murray,
Hartston og Liberzon, Hamann
og Timman, Friðrik og Zwaig,
Jansa og v.d. Broeck, Parma og
Laine. Björn situr hjá.
— Árni Grétar
Framhald af bls. 23
Bergs, formann Viðlagasjóðs, að
upplýsa og sanna fyrir eigin frum-
kvæði fyrir dómi, að ég hafi viðhaft
við starfsmann Viðlagasjóðs þau um-
mæli, sem hann er borinn fyrir að ég
hafi sagt. Þá skora ég ennfremur á
hann að birta opinberlega allar
ákvarðanir Viðlagasjóðs ! þessu máii,
svo framarlega, sem snefill af þvl,
sem haft er eftir honum i Timagrein-
inni sé frá honum kominn.
Lokaorð
Ég hef nú lokið við að rekja þetta
mál, sem pólitiskir andstæðingar
minir hafa reynt að nota gegn mér.
Ég hef reynt að rekja það frá sem
flestum hliðum, meðal annars með
birtingu bréfa frá aðilum, sem eru
hlutlausir i málinu, eins og Viðlaga-
sjóður. Þar sem einhver vafi kann að
leynast i áburði þeirra, hef ég skorað
á þá að sanna mál sitt fyrir dómi eða
með framlagningu vottfestra gagna.
Geti þeir það ekki falla ummæli |
þeirra dauð og ómerk.
Að lokum þetta: Þroskaheft börn,
sem i daglegu tali eru nefnd vangef-
in. eru hluti af því lifi, sem við lifum.
Allir geta eignazt slík börn, en erfið
leikunum, sem því fylgja, skal ég
ekki reyna að lýsa. Samt er
væntumþykja foreldra til þessara
barna sizt minni en til þeirra heil
brigðu. Það er trú min. að fslenzka
þjóðin sé það þroskuð og mannleg,
að hér beri allir kærleikshug til
þessara barna Að nota málefni
þeirra til árása á pólitiskan andstæð-
ing, hefði ég aldrei trúað, að nokkur
maður væri tilbúin að reyna. Þar er
ég nú reynslunni rikari. Sé frú Ragn
heiði Sveinbjörnsdóttur einhver fró-
un i þvf að telja sjálfri sér og öðrum
trú um að ég sé á móti stuðningi við
þroskaheft börn i Hafnarfirði, þá skal
sú ánægja ekki frá henni tekin, en ég
vorkenni henni.
Vetraráætlun milli-
landaflugs
VETRARÁÆTLUN Flugfélags
Islands og Loftleiða 1 millilanda-
flugi gekk í gildi hinn 1. nóv-
ember eöa 1 gær. Fluginu 1
vetur verður hagað með svipuðu
sniði og f fyrravetur, en þó verður
sú breyting á að þotur Loftleiða
munu fljúga til Chicago allan vet-
urinn, en í fyrra varð hlé á þvf
flugi fyrir og eftir jól. Ekki verð-
ur neitt beint flug til Stokkhólms
1 vetur.
Til New York verða daglegar
ferðir og til Chicago verður flogið
á þriðjudögum og föstudögum. Til
Luxemborgar verða 9 ferðir á
viku, tvær að miðvikudögum og
föstudögum. Til Luxemborgar
verða 8 ferðir á viku, tvær á mið-
Maðurinn er
milljón árum
eldri en tal-
ið hefur verið
Washington 1. nóv. Reuter.
FUNDIZT hafa leifar manna f
Tanzanfu sem sanna að okkar
elztu forfeður voru komnir á
kreik fyrir næstum þvf fjórum
milljónum ára, þ.e. um milljón
árum áður en hingað til hefur
verið talið. Steingerðir kjálkar og
tennur átta fullorðinna og
þriggja barna sem fundust í
desember s.l. f Laetolil, skammt
frá Olduvaidalnum þar sem áður
hafa fundizt merkar fornleifar.
Hefur aldur steingervinga nú ver-
ið reiknaður um 3,350,000 til
3,750,000 ár. Það var dr. Mary
Leakey sem fann steingerving-
ana, en hún og eiginmaður
hennar, Louis Leakey, sem nú er
látinn, hafa áður gert uppgötv-
anir sem sannað hafa að kenn-
ingin um að maðurinn eigi sér
ekki háan aldur á jörðunni var
ekki á rökum reist.
Á blaðamannafundi í fyrradag
sagði dr. Leakey að þessir nýju
steingervingar ættu mörg ein-
kenni sameiginleg með yngri
steingervingum sem fundizt hafa
í Kenýu og Eþíópfu. Þessir stein-
gervingar væru allir af annarri
gerð en Australopithecus, sem
hingað til hefur verið talinn for-
faðir mannsins, og taldi dr.
Leakey að hinn nýi fundur
sannaði þá kenningu að Austra-
lopithecus hefði verið „samtima-
skepna" mannsins sem siðar hefði
dáið út.
Flugleiða
vikudögum og tvær á laugardög-
um. Til Kaupmannahafnar verða
daglegar ferðir ogtilGlasgowfjór-
ar ferðir í viku, á mánudögum,
miðvikudögum, föstudögum og
laugardögum. Til London verða
ferðir á þriðjudögum og laugar-
dögum, en auk þess ferðir til
London um Glascow, sem að fram-
an greinir. Til Óslóar verður flog-
ið á fimmtudögum og sunnudög-
um, en frá Ósló á þriðjudögum og
laugardögum. Til Færeyja verður
flogið á sunnudögum.
— Líknardráp
Framhald af bls. 3
efna til fundar um þetta mál á
sunnudaginn kemur.
Framsöguerindi á fundinum
flytja þeir:
Örn Bjarnason, skólayfirlækn-
ir,
dr. Björn Björnsson, prófessor í
guðfræði og
Jónatan Þórmundsson, prófess-
or í lögfræði.
Að loknum framsöguerindum
þeirra svara þeir fyrirspurnum og
taka þátt i frjálsum umræðum
fundarmanna.
Fundurinn verður á sunnudag-
inn 2. nóvember f Norræna hús-
inu og hefst kl. 14.00 ( kl. 2.00
eftir hádegi).
Orator hefur boðið lækna- og
guðfræðistúdentum sérstaklega
til fundarins, en allir eru vel-
komnir til fundarins og þátttöku í
umræðum.
Fréttatilkynning frá Orator.
— Kartöflur
Framhald af bls. 48
uppskeran um 130 þúsund tunn-
ur.
Hann sagði, að mjög erfitt væri
að fá kartöflur í viðskiptalöndum
Grænmetisverzlunarinnar um
þessar mundir. Uppskera hefði
orðið með minna móti f Evrópu í
sumar vegna mikilla þurrka. Verð
á kartöflum hefði hækkað af þess-
um sökum og nú kostaði hvert kg
komið í íslenzka höfn um 400
krónur.
Jóhann kvað nokkurt hlé verða
nú á kartöfluinnflutningnum; þó
þyrfti að flytja inn eitthvað af
stórum kartöflum fyrir þá sem
bökuðu kartöflurnar í ofni, en
upp úr áramótum yrði farið að
flytja kartöflur inn í ríkum mæli.