Morgunblaðið - 02.11.1975, Síða 13

Morgunblaðið - 02.11.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975 13 — Ekki tími Framhald af bls. 39 efnahagsmála og annarra framfara- mála á því rúma ári, sem núverandi haestvirt ríkisstjórn hefur setið að völdum. Þar má til nefna nokkur mikilvæg atriði Islenzk fiskveiðilög- saga hefur verið færð út í 200 mílur. Tekizt hefur að tryggja af- komu atvinnuveganna, afstýra alls- herjar átökum á vinnumarkaði og halda uppi fullri atvinnu og þrótt- miklum framkvæmdum hvarvetna um landið, sérstaklega I orkumálum, sem ekki var vanþörf á, eins og ástand þeirra mála var orðið við stjórnarskiptin. Og verð ég að segja I því sambandi að orð hæstvirts þingmanns Benedikts Gröndal, sem hann viðhafði hér áðan um Kröflu- virkjun, voru hálfnöturleg ! garð Norðlendinga miðað við ástand, sem þar er! raforkumálum. EKKI TÍMI TIL KRÖFUGERÐAR En þótt ýmislegt hafi áunnizt sigur enn í hreinskilni sagt ýmislegt á ógæfuhlið, sumt, sem ekki verður við ráðið, en annað, sem unnt væri við að ráða hér heima fyrir, ef allir legðust á eitt. Útflutningsatvinnu- vegirnir berjast ! bökkum vegna markaðsörðugleika og innlendra kostnaðarhækkana. Verðbólgan er enn þá geigvænleg þótt hægt hafi á henni slðustu mánuði. Gjaldeyris- staðan er I hættu, ekki sizt vegna mikillar tvlsýnu I alþjóðlegum efna- hagsmálum og þar með markaðs- málum okkar, Það er því ekki ein- ungis alvarlegt ástand nú I efna- hagsmálum okkar, horfurnar eru þv! miður ekki sllkar, að óvænt höpp muni væntanlega falla okkur ! skaut á næstunni, þvert á móti. En sé þessi mynd sönn, sem ég hef dregið hér upp af ástandi og horfum efna- hagsmála, og hæstvirtir stjórnarand- stæðingar dregið enn þá dekkri lit- um, sé hún sönn, sem ég hygg raunar, að allir hugsandi (siendingar viti, þá er spurningin þessi: Gefur þetta alvarlega ástand efnahagsmál- anna tilefni til þess að einstakir launþegahópar, alþingismenn, sveitarstjórnarmenn, raunar allir fslenzkir þjóðfélagsþegnar, geri ýtrustu auknar fjárhagskröfur til þjóðfélagsins. Eigum við þm að krefjast meiri framkvæmda hver á sinu kjördæmi en nokkru sinni fyrr. Eiga launþegahópar að krefjast, jafnvel með ólögmætum hætti, hækkaðra launa I krónutölu? Eigum við enn einu sinni að krefjast meira ! hlut hvers og eins en fyrir er til að skipta? I sannleika sagt bjóst ég við að fáum blandaðist hugur um svarið við þessari spurningu að fenginni biturri reynslu Þau alvarlegu tlðindi hafa hins vegar gerzt, að nokkrir starfshópar hafa einmitt nú sett fram auknar kröfur slnar með þeim hætti að hrópa ýmist eða beinllnis brjóta ! þv! skyni íslenzk lög. Hér er auð- vitað um afskaplega alvarlegt mál að ræða, ekki slður alvarlegt en sjálft efnahagsástandið. Ég ræði það ekki frekar að sinni, en varpa fram þeirri spurningu: Hvað vilja menn láta koma i staðinn fyrir lög og rétt á íslandi, ef ekki er unnt að virða lög og rétt, með hvers konar valdi á að stjórna þessu landi? Þegar svo alvarlega árar ! efna- hagsmálum sem nú er, er einungis um eina leið að ræða I stjórn þjóðar- búskaparins Spyrna verður við fót- um í eyðslu, leggja aukna kröfugerð á hilluna, stilla framkvæmdum, rlkisútgjöldum og skattheimtu á al- menningi I hóf, treysta gjaldeyris- stöðuna og draga úr verðbólgu. þannig að afkoma atvinnuveganna verði tryggð og þar með full atvinna I landinu. Að þessu stefnir hæstvirt núverandi rlkisstjórn, annars vegar með þv! fjárlagafrumvarpi, sem lagt var fram ! upphafi þessa þings og að þessu verður einnig stefnt með margvlslegri annarri löggjöf Þessi stefna er sjálfsagt ekki að öllu leyti vinsæl, en hún er þjóðarnauðsyn eins og nú er ástatt og ég er þess fullviss, að þingmenn stjórnar- flokkanna á Alþingi muni standa fast að baki rlkisstjórninni I þv! að koma fram þeirri llfsnauðsynlegu stefnu, sem beinist að úrlausn vandans og leggur grunn að áframhaldandi framförum I landinu AUfil.VsiNKASIMINN EK: 22480 Veitum afslátt af öllum okkar vörum mánudag 3.11. og þriðjudag 4.11. Vegna komu nýstungls HAUST-SKÓRNIR ’75 FYLGJA FATATÍZKUNNI ’75 Skórnir ná upp á miðja fótleggi gerðir úr ekta anilín skinni með hrágúmmísólum hlýfóðraðir og fótlaga. Póstsendum Skðverziun s. waage, í Dómus Medica, Egilsgötu 3, stmi 18519. Einnig nýkomið hjúkrunarkvennaskór, norskir og danskir, bamakuldaskór, Berkemann tréskór norskir karlmannakuldaskór. Nýjar gerðir af Mans karlmannaskóm o.fl. o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.