Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.11.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975 3 Flugvél Harðar Guðmundssonar á SuðureyrarflugvelH, en flugvél hans var fyrsta flugvélin, sem þar lenti. Ljósm.: Halldór. Flugvöllur á Suðureyri Suðureyri, 23. október — INNAN örfárra daga Iýkur framkvæmdum við flugbraut á svokölluðum Hjöllum fyrir utan Suðureyri. Hefur verið unnið af ðg til f sumar við gerð þessarar flugbrautar, sem nú er orðin 525 metra löng, en fullgerður á flugvöllurinn að verða 600 metrar. Standa vonir til, að ljúka megi gerð hans næsta sumar. Á næstunni mun að öllum Ifkindum hefjast hingað reglu- bundið flug, þrjár ferðir f viku frá Reykjavík og að öllum Ifkindum einnig þrjár ferðir f viku frá tsafirði. — Frá Reykjavfk eru það Vængir h.f. sem munu halda uppi flugferð- um, en frá tsafirði Hörður Guð- mundsson. — Halldór. Líknardráp til umræðu í Norræna húsinu Á SÍÐUSTU vikum hafa nokkr- um sinnum birzt í dag- blöðunum stuttar frásagnir af einstaklega athyglisverðu dóms- máli í Bandaríkjunum. Málið snýst um ósk foreldra stúlku nokkurrar, sem haldið er á lífi með öndunarvél, þess efnis að öndunarvélin verði tekin úr sam- bandi og stúlkan þannig látin deyja. Læknar stúlkunnar telja að hún eigi alls enga lífsmögu- leika í framtíðinni, en e.t.v. sé hægt að halda hjartanu gangandi með vélum um óvissan tíma. Þetta mál er einkum athyglisvert fyrir þá sök að atbeina dómstóla hefur verið leitað um að „svipta manneskju Iffi“. En þá vaknar raunar sú spurning, hvort um er að ræða lff, þegar lífsmöguleik- arnir felast eingöngu í starfi véla. Um þessar mundir fara umræð- ur um líknardráp fram hvar- vetna, einkum þó meðal þeirra stétta sem málið snertir mest þ.e. lækna, lögfræðinga og guðfræð- inga. Ótal margar læknisfræðilegar- lögfræðilegar og siðferðilegar spurningar vakna þegar rætt er um liknardráp. Til dæmis má Eyfirðingar í Súlnasal á sunnudag KVENNADEILD Eyfirðingafé- lagsins f Rvfk efnir til hinnar árlegu kaffisölu eða fjölskyldu- kaffis í súlnasal Hótel Sögu kl. 3 nk. sunnudag 2. nóvember. Fé- lagið hefir efnt til þessarar kaffi- sölu árlega, sem hefir verið vel sótt af Norðlendingum búsettum hér syðra. Að þessu sinni verður nefna: Hvenær er maður dáinn? Hvað er líf og hefur það rétt sem slíkt? Hver er munurinn á virku og óvirku líknardrápi? Á maður- inn ekki rétt til að deyja? Líknar- dráp og afstaðan til þeirra er tví- mælalaust mál sem nauðsynlegt er að ræða og brjóta til mergjar. Hér er í raun og veru um að ræða einhverja alvarlegustu og flókn- ustu spurningu nútímans. Orator, félag laganema við Há- skóla Islands hefur ákveðið að Framhald á bls. 31 basar haldinn samhliða kaffisöl- unni þar sem ýmsir eigulegir munir verða boðnir til sölu. Kvennadeildin býður sérstaklega öllum Eyfirðingum 67 ára og eldri ókeypis veitingar á sunnudaginn f tilefni dagsins. Eyfirðingafélagið hefur að undanförnu unnið að þvf að styrkja margvíslega líknar- og menningarstarfsemi norðanlands, m.a. lagt fram fé til hjartabílsins á Akureyri, til Minjasafnsins og til fleiri mála. öllum ágóða kaffi- sölunnar verður varið til sam- bærilegra mála norðanlands. Ribli hefur örugga forgstu Friðrik Ólafsson sat hjá í 9. umferð svæðismótsins, og mátti þá glöggt sjá á hverju áhorfend- ur hafa mestan áhuga. I þessari umferð voru þeir sárafáir. Zoltan Ribli hefur auðsjáan- lega ekki f huga að sleppa for- ystunni og í þessari umferð sigraði hann Irann J. Murray. Athyglisvert er, hve fyrir- hafnarlítið Ribli vinnur skákir sínar, manni dettur helzt f hug Fischer þegar hann var og hét. Ekkert sérstakt virðist vera að gerast, en allt í einu situr and- stæðingurinn uppi með gjör- tapað tafl. Hvftt: J. Murray Svart: Z. Ribli Grúnfeldsvörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 — d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. g3 — Bg7, 6. Bg2 — Rb6, 7. Rf3 — Rc6, 8. e3 — 0-0, 9. 0-0 — e5, 10. d5 — Re7, 11. e4 — Bg4, 12. h3 — Bxf3, 13. Bxf3 — c6, 14. Db3 — cxd5, 15. Rxd5 — Rbxd5, 16. exd5 — Rf5, 17. Bg2 — Rd4, 18. Dd3 — f5, 19. d6 — Dxd6, 20. Bxb7 — Had8, 21. Bg2 ~ f4, 22. Be4 — De6, 23. Kh2 — h5, 24. b3 — Kh8, 25. Ba3 — fxg3+, 26. Dxg3 — Bh6, 27. Dh4 — Bf4+, 28. Khl — Hf6, 29. Hcdl — g5 og hvftur gaf. Fyrir þessa skák notaði Murray 2 klst. og 10 mín, en Ribli 52 mínútur. E. Laine tefldi kóngsind- verska vörn gegn Jansa. Stór- meistarinn fékk snemma betri stöðu, en Laine tókst að verjast stóráföllum unz hann lék skyndilega af sér heilum hrók í 24. leik og varð að gefast upp. Björn Þorsteinsson hafði svart gegn Parma. Snemma í miðtaflinu urðu Birni á slæm mistök, sem kostuðu skiptamun og peð og eftir það átti hann sér ekki viðreisnar von. H. van den Broeck beitti franskri vörn gegn Ostermayer, og náði hinn siðarnefndi snemma undirtökunum. Skákin var spennandi á tímabili, en Ostermayer gætti sín vel fyrir öllum gagnsóknartilraunum andstæðingsins. Stórmeistarinn Jan Timman hefur tapað þremur skákum f röð, en nú tókst honum betur upp og lagði Hartston í snaggaralegri skák. Hvftt: J. Titnman Svart: W. R. Hartston Grúnfeldsvörn 1. Rf3 — Rf6, 2. g3 — g6, 3. Bg2 — Bg7, 4. 0-0 — 0-0, 5. c4 — Rc6, 6. d4 — d5, 7. cxd5 — Rxd5, 8. Rc3 — Rb6, 9. e3 — He8, 10. Rel — Be6, 11. Rc2 — Bc4, 12. Hel — a5, 13. b3 — Ba6, 14. Bb2 — e5, 15. Re4 — exd4, 16. Rxd4 — Rxd4, 17. Bxd4 — Bxd4, 18. exd4 — c6, 19. Dd2 — a4, 20. h4 — Rd5, 21. bxa4 — Rf6, 22. Rc5 — Hxel+, 23. Hxel — Dd6, 24. Hbl — h5, 25. a5 — De7, 26. Bf3 — Rg4, 27. Hel — Df6, 28. Bxg4 — hxg4, 29. Re4 — Df5, 30. Dh6 — Bc4, 31. h5 — Bd5, 32. hxg6 — hxg6, 33. Rg5 — Df6, 34. Dh7 + — Kf8, 35. Dxb7 og svartur gafst upp. Arne Zwaig hafði allan eftir JÓN Þ. ÞÓR timann undirtökin í skák sinni við Hamann. Undir það er skákin átti að fara i bið virtist Daninn þó hafa jafnað metin nokkuð. Þá lék Zwaig hins vegar óvæntum og fallegum leik og knúði andstæðinginn til uppgjafar í einu vetfangi. Lokin eru þess virði að lfta á þau. Hvftt: A. Zwaig Svart: S. Hammann Vængtafl 1. g3 — Rf6, 2. Bg2 — g6, 3. c4 — Bg7, 4. Rc3 — 0-0, 5. e4 — c5, 6. Rge2 — Rc6, 7. d3 — d6, 8. 0-0 — Bd7, 9. Hbl — Re8, 10. a3 — a5. 11. Rb5 — a4. 12. Rec3 — Rd4, 13. Rxd4 — cxd4, 14. Rd5 — e6, 15. Rb4 — e5, 16. f4 — Bc6, 17. Df3 — Bh6, 18. f5 — Bxcl, 19. Hbxcl — f6, 20 fxg6 — fxg6, 21. h4 — Bd7, 22. Rd5 — Rc7, 23. Rb6 — Ha6, 24. Rxd7 — Dxd7, 25. Hc2 — b6, 26. Hcf2 — Haa8, 27. h5 — g6, 28 h6 — g4, 29. Ddl — Re8, 30. Hf5 — Kh7, 31. Dxg4 — Hg8, 32. Dh4 — Hg6, 33. Bh3 — De7, 34. Hh5 — Kh8, 35. Bf5 — Hg8, 36. h7 — Hg7, 37. Hh6 — Df7, 38. Bg4 — Hxh7, 39. Hf5 — Hxh6?, 40. Dxh6+ — Kh8, 41. Hg5H og svartur hafst upp. Eftir skákina tóku keppend- ur hana til rannsóknar og var óneitanlega hjákátlegt að heyra Danann og Norðmanninn tala saman á ensku. Styrkir þetta þá kenningu, að eftir svo sem ára- tug verði ekki töluð nema tvö' Framhald á bls. 31 Kanaríeyjar 1975—1976 GRAN CANARIA: Nú eru aðeins laus sæti í eftirtaldar ferðir: Brottför: 20. nóv. 3 vikur 4. des. 2 vikur 25. marz 3 vikur 22. aprfl 3 vikur Verð frá kr. 38.900.- TENERIFE: 4, jan 2 vikur 1 8 jan 2 vikur 1 feb 1 9 dagar 1 9 feb 24 dagar 1 4. marz 3 vikur 4 april 1 8 dagar Allir fara í ferð með ÚTSÝN í Kaupmannahöfn Brottfor 23 nóv Furniture industry Brottfor 14 feb Scand menswear fair Brottfor 13 marz Scand fashion week Brottfor 23 apr Scand gold & silver fair Verðfrá kr. 38.300 Skíðaferðir til Lech í Austurríki Brottför 15 jan og 7 febr Verð með gistingu og V2 Bangkok og Pattaya Ógleymanleg ævintrýaferð Brottför: 1 9. des 15. feb. Kenya Brottför: 13. marz Safari og vikudvöl við London Ódýrar vikuferðir Brottför nóvember: 18. 15. 22. 29. Verðfrá kr. 38.000 Glasgow Helgarferðir Brottför: 7. og 21. nóv. Verðfrá kr. 27.500 FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 Frankfurt Hópferð á teppasýningu 13.—19. jan. Verð frá kr. 60.000,- SÍMAR 26611 OG 20100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.