Morgunblaðið - 02.11.1975, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975
— Stuttsíðan
Framhald af bls. 15
voru Stuðmenn, sem
„produceruðu" plötuna.
V: Platan var bara ákveðin
eigingirni hjá Jakobi, sem við
skulum nú ekkert fara að
tfunda.
SB: Jakob var með miklar
hugmyndir um að gera kvik-
mynd um Sumar f Sýrlandi og
nota tónlistina við kvikmynd-
ina.
V: Jakob talar nú svo margt.
ST: Já, hver er þáttur Jakobs
f plötunni?
V: Hann spilaði svo til öll
hljómborð.
ST: Atti hann engar hug-
myndir í þessu?
V: Jú, jú þetta var náttúrulega
hópvinnu verkefni. Og hann
ásamt Livingstone nokkrum
hönnuðu myndaserfuna á al-
búminu. Livingstone þessi
gerði einnig grímurnar þekktu.
... það getur jú notað
grfmurnar f rúminu ...
SB: Hvar eru Grímurnar?
B: Eg heid, að Jakob hafi
tekið þær með sér.
E: Nei, ætli það sé ekki búið
að stela þeim.
V: Já, þær þekkjast strax ef
þær sjást. Það dugar nú Iftið
fyrir fólk að eiga grfmur, sem
ekki er hægt að nota. Það getur
að vfsu notað þær f rúminu.
ST: í sumar voru svo
Stuðmenn skipaðir ykkur þrem
ásamt Jakobi (hljómborð),
Þórði (bassi) Preston Ross
(trommur) Alan Murphy
(gftar) og Steinunni Bjarna-
dóttur (söngur)
V: Já, þetta voru þeir sem við
fórum með á öll sveitaböllin.
E: Við æfðum aldrei „band-
ið.“ Bandið hefur aldrei verið
æft, ekki fyrir plötuna heldur.
V: Það var nú ýmislegt sem
kom upp á í þessari ferð Stuð-
manna á Sveitaböllin og ýmsar
furðulegar stöður komu upp.
... maraþon spilarf fyrir
sveitamanninn, sem hristi
sig og drakk af stút.. .
E: Það var t.d. auglýst meira
heldur en í raun kom fram. Það
var ekki diskótek og Baldur
Brjánsson kom ekki fram. Og
Whitebachman tríó, sem voru
með klukkutfma prógramm
urðu því að spila f fjóra tfma.
Þeir höfðu aldrei kynnst svona
maraþon spiliríi fyrir sveitar-
manninn sem hristi sig og
drakk af stút og skyldi ekkert f
tónlistinni.
ST: Hvernig var stemmning-
in, þegar Stuðmenn komu
fram.
V: Hún var nú oft helvfti
mögnuð, t.d. í Vestmannaeyj-
um grét fólk og einnig var mjög
gaman á Akureyri og f Vala-
skjálf.
E: Já, það var stórkostlegt.
ST: Þið komið fyrst fram f
Festi snemma f sumar, eða var
að ekki?
V: Það var nú alveg ferlegt.
E: Það var upphafið að þessu
öllu saman. Þá kom Jakob 10
mínútum áður en við áttum að
byrja með flugvél frá Bret-
landi, blindfullur. Honum var
þá fleygt f sturtu til að hressa
hann við og svo beint inn á svið.
Þar sem byrjað var í algerri
óvissu.
V: Svo sat Jakob með
grfmuna sem var nokkurs
konar andarhaus skakka og
kinkaði kolli allan tímann en
sá ekkert út og við sem vorum
að reyna að hafa samband við
hann héldum við að allt væri f
góðu gengi, sem reyndist svo
ekki vera meira en svo.
E: Þetta var alveg ofsalegt.
Svonalagað gerist ekki nema
einu sinni.
ST: Hver var þáttur Stein-
unnar f þessu ferðalagi.
V: Hún söng. — Steinunn er
perla.
E: Hún er sú hjartahreinasta.
Hún er nákvæmlega, eins og
FJOLBREYTTUR MATSEÐILL
Allir réttir okkar eru serlagaöir.
Viö höfum opiö frá kl. 9-21.30
alla daga nema sunnudaga 10-21.30
Viö bjóöum i dag fjölbreyttari
matseðil en nokkru sinni áöur
m.a. 28 steikur, 15 tegundir af
pizza og 20 smárétti.
Pizzurnar okkar eru
rómaöar, en þar höfum
viö líka langa reynslu
aö baki.
og Nautasteikurnar, i
miklu úrvali.eru ekki síöri
Hreindýrasteikur okkar
eru í sérflokki
Sendum heim of óskað er: Smárett
fyrír einn eða snittur fyrir heilt partý
— en þá verður að panta með
fyrirvara.
Sími 34780 JM
Viö bjóðum ydur skjóta
þjónustu í þægilegu
og notalegu umhverfi.
Ljúffengt
og gott
HALTI HANINN
LAUGAVEG 178 (VIÐ HLIÐINA Á SJÓNVARPINU)
hún kemur fyrir, það var illa
farið með hana í sjónvarpinu.
E: En svo Iagaðist tónlistin
með hverjum firðinum sem
farið var um. Og á Austf jörðum
slóst hljómsveit Lótust f förina
og bjargaði miklu varðandi
„diskótek“-vandamálin.
........Stuðmannaplatan
háalvarleg plata.....
ST: Hversu mikil alvara
liggur bak við Stuðmenn og
plötur þeirra?
V: Stuðmenn byggjast
náttúrulega upp á þvf að fá alls
konar fólk. Virkja krafta og fá
ákveðna breidd. Ég hlustaði
mjög mikið á Stuðmannaplöt-
una áður en hún kom út og ég
spilaði hana fyrir alls konar
fólk og var alltaf að sjá hana f
nýju Ijósi. Ég er Ifka alltaf að
lesa nýtt og nýtt milli línanna.
B: Stuðmannaplatan er
háalvarleg plata.
SB: Ég hef alltaf skilið Stuð-
mannaplötuna sem mjög alvar-
lega plötu.
ST: Mér hefur fundist þetta
grfn um sveitamennskuna vera
mjög f ætt við sveitamannagrfn
Ómars Ragnarssonar sbr. lagið
Sveitaball.
V: Hann er bara að segja
brandara. Við vorum að reyna
að búa til stemmninguna en
ekki brandara. Grfnið er bara á
yfirborðinu. Stærsti hlustenda-
hópurinn lítur aldrei neitt
lengra.
E: Platan er nokkurs konar
dæmisaga. Hún byrjar á þessu
brennivínsþrugli, sem okkar
kynslóð byrjaði á og var þá f
ákveðinni músfk. Svo þróuðust
þeir áfram með nýrri músik og
nýjum efnum.
B: Já, músfkin breytist mjög
greinilega upp úr „Lyfja gras-
inu“ (1 Bláum Skugga).
... Það langaði marga að
ljóstra upp um Stuð-
menn...
ST: Var það ákveðið fyrir-
fram, þegar Ijóstrað var upp
um Stuðmenn.
B: Nei, það gerði Ómar Valdi-
marsson án Ieyfis.
ST: Var ákveðið með leynd-
ina yfir Stuðmönnum fyrir-
fram?
V: Þetta kom með litlu plöt-
una (Honey Will you merry
Me, og Gjugg f Borg). Þegar
verið er að gera svona grfn þá
getur kannski verið gott að fela
sig. En það er kannski Ifka ein-
hvers konar skræfuskapur.
S.B: Ómar Valdimarsson
sagði að þetta væri sölutrikk,
og það hvfldi Iengi á samvizku
hans að verið væri að pretta
þjóðina.
B: Ég held að hann hafi nú
bara verið að þessu til þess að
koma með eitthvað grand. Það
vissu allir blaðamenn hverjir
Stuðmenn voru.
SB: Það langaði marga að
uppljóstra þessu og Ómar sér-
staklega. Ómar sagði það strax
áður en Sumar á Sýrlandi kom
út.
B: Ómar ræddi um
uppljóstrunina við okkur á
Akureyri, en við sögðum nei,
eða „Alla vega láttu okkur vita
hvenær þú gerir það og hvern-
ig“ Hann hefur ætlað að hætta
glæsilega. (Að skrifa stuttsfðu
M.b.l.). Annars var þessi leynd
ekkert sölutrikk. Mér fannst
þetta aftur mjög jákvætt fyrir
músikina á plötunni. Þetta
skapar t.d. engar poppstjörnur.
SB: Fólk kaupir ekki plöt-
una, af þvf það eru einhverjir
ónafngreindir menn úti f bæ,
sem eru að gera hana. Það
„pælir“ ekki f því hverjir spila,
fyrr en það hefur heyrt tón-
listina. Þess vegna er fáránlegt
að halda því fram að leyndin sé
sölutrikk.
ST: Hvað með nýja Stuð-
mannaplötu.
V: Aldrei er öll von úti lengi
er von á einum.
M (a,YSIN(,ASIMINM EH: é'Fk
22480 ^