Morgunblaðið - 02.11.1975, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975
33
Frakklandskvöld hjá
Alliance Francaise
FRANSK-íslenzka félagið, Alli-
ance Francaise, mun f vetur
standa fvrir reglubundnum dag-
skrám annan hvern þriðjudag
fyrsta og þriðja þriðjud. f hverj-
um mánuði, f Franska bóka-
safninu á Laufásvegi 12
og verður hin fyrsta n.k.
þriðjudag 4. nóvember. Á
dagskrám þessum verður í vet-
ur bryddað upp á ýmsu efni,
sem tengt er franskri menningu
og samskiptum lslands og Frakk-
lands fyrr og nú. Hér er um að
ræða bæði fyrirlestra, myndasýn-
ingar, flutning á köflum og
atriðum úr bókmenntum og á
ýmiss konar tónlist. Sendiráð
Frakklands á tslandi mun þar að
auki sýna þar reglulega franskar
kvikmyndir aðra þriðjudaga f
hverjum mánuði, bæði nýjar og
eldri, og verða þær allar með
enskum textum.
Á þriðjudagskvöldið hefst dag-
skráin kl. 20.30 og eru það
umræður um hvernig Island er
kynnt í Frakklandi. Sýndar verða
tvær Islandskvikmyndir, — Þrír
svipir Islands (með frönskum
texta) eftir Magnús Magnússon
og Ern eftir aldri eftir Magnús
Jónsson. Báðar eru þessar myndir
nýjar og er ætlað að kynna Island
og íslenzk viðhorf erlendis sem
innanlands. Dagskrár í Franska
bókasafninu i vetur verða jöfnum
höndum á íslenzku og frönsku og
er öllum sem áhuga hafa heimill
aðgangur. Franska bókasafnið er
auk þess opið alla virka daga frá
kl. 17—19.
Sundlaugaframkvæmdir
í 2 Breiðholtshverfum
í ÞESSARI viku er verið að byrja
á sundlaug við Breiðholtsskóla og
ætti hún að geta komist upp á
2—3 vikum. Þessi laug er nær 17
metrar að lengd og 8 m á breidd
og verður komið fyrir þarna til
frambúðar. Búningsklefum verð-
ur komið fyrir til bráðabirgða, en
þeir eiga sfðar að verða f viðbótar-
byggingu við skólann. Upphaf-
lega átti þessi sundlaug að vera
við Fellaskóla, en þar eru byrjað-
ar framkvæmdir við eina sund-
laug. Eru áformaðar þar tvær
sundlaugar, önnur er innisund-
laug sem á að leysa þarfir Fella-
skóla á skólaárinu 1976—77, og til
viðbótar kemur svo hin stóra úti-
sundlaug, sem er hluti sama
mannvirkis og kemur til nota þeg-
ar það er byggt. Þannig er nú
um tvær sundlaugabyggingar að
ræða, sfna f hvoru Breiðholts-
hverfi.
Fræðsluráð Reykjavíkurborgar
taldi þessa lausn hagkvæmasta
fyrir frambúðaraðstöðu til sund-
kennslu í Breiðholti I og III. Fyr-
ir lá að nemendur í Breiðholti III
í þeim aldursflokkum, sem venja
er að stundi sundnám eru samtals
970, þ.e. 800 í Fellaskóla og 170 í
Hólabrekkuskóla. En nemendur í
sömu aldursflokkum í Breiðholts-
skóla f Breiðholti I eru 800 tals-
ins. Nemendur úr Breiðholti III
munu á yfirstandandi skólaári
sækja sundkennslu í Breiðholts-
skólann, en aðeins þétta eina ár,
þar sem kennslusundlaugin við
Fjölbrautarskólann mun væntan-
lega taka við sundkennslunni inn-
an hverfisins á næsta skólaári. En
nemendur úr Breiðholti I munu
njóta sundkennslu í sínu hverfi í
vetur, en hefðu annars þurft að
sækja sund i Breiðholt III um
ófyrirsjáanlegan tíma.
Skátaþingi nýlokið:
Páll Gíslason endur-
kjörinn skátahöfðingi
SKÁTAÞING var haldið á Akra-
nesi helgina 24.—26. október s.l.
Þingið sóttu 100 fulltrúar frá
hinum ýmsu skátafélögum á
Páll Gíslason
landinu, en þau eru 40. t þessum
félögum starfa 6000 skátar.
i Þingið hófst á laugardag með
því að lögð var fram skýrsla
Ferðir að
hefjast til
Tenerife
Um þessar mundir hefja Flug-
leiðir ferðir til Tenerife á Kanarf-
eyjum, en þangað cru áformaðar
sjö ferðir f vetur. Sú fyrsta verður
farin um miðjan desember en sú
sfðasta um páskana.
stjórnar og reikningar. Þá var
ennfremur á laugardag tekið
fyrir aðaimál þingsins, markmið
og leiðir í skátastarfi og hafði
Ólafur Proppé framsögu. Þetta
mál var mikið rætt á þinginu.
önnur merk mál sem voru til
umræðu á þinginu, voru t.d.
grunnskólalögin með hliðsjón af
skátastarfi, framsaga Arnfinnur
Jónsson, og samstarf skátafélaga
og æskulýðsráða, framsaga Páll
Gislason. Reynir Karlsson æsku-
lýðsfulltrúi var sérstakur gestur
þingsins og fjallaði hann um
þennan málaflokk. Var Reyni
veitt borgaramerkið, sem er
heiðursmerki, það æðsta sem
skátahreyfingin veitir aðilum
utan hreyfingarinnar. Á sunnu-
deginum var kynning á starfsemi
hjálparsveita skáta og annaðist
hana Tryggvi Páll Friðriksson.
Þá fór fram stjórnarkjör á
sunnudaginn. Páll Gíslason var
endurkjörinn skátahöfðingi til
næstu fjögurra ára. Borghildur
Fenger og Jón Mýrdal voru end-
urkjörin aðstoðarskátahöfðingjar.
Gjaldkeri var kjörinn Sigurður
Baldvinsson og fyrirliðar er-
lendra samskipta Arnfinnur Jóns-
son og Ragnheiður Jósúadóttir.
Aðrir áttu ekki að ganga úr
stjórn. Mótsslit voru á hádegi á
sunnudag í Gagnfræðaskóla Akra-
ness, en þar fór þingið fram.
Skátaþing eru haldin annað
hvert ár. Síðan skátaþing var
síðast haldið hafa íslenzkir skátar
staðið i stórræðum, og ber þar
hæst landsmótið að Úlfljótsvatni í
fyrra, sem á þriðja þúsund manns
sóttu, Nordjamb 75 i Noregi sem
350 íslenzkir skátar sóttu og
Evrópuráðstefna skáta sem
haldin var hér á Islandi.
^jívantt 6t?rgs6rœc>u r
t AUCaAVEGI 24 SlMAH
RtVKJAVIK
Verð
Kr. 2060
Kr. 2360
Kr. 2680
Kr. 3347
SKOVERZLUN
JM jB • .VÉteitó.. 'v • K'J ssrj. Wf/
11II
“ * 1 ' ■* »
m .