Morgunblaðið - 02.11.1975, Page 35
MOHGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975
35
JEANS
ÞU ERT
NÆSTUR
48
LAUGAVEGUR
3r-21599
s?«?<
BANKASTRÆTI ^
1 ®-14275 ^
Bírgír Þorvaldsson,
iðnrekandi
Teikning eflir örlyg
Sigurðsson.
,,hringnum“ f köldum keppni-
bragga á Hálogalandi í gamla
daga, og ekki hvað sízt áhorfend-
um, sem iðuðu sér til hita f
titrandi spennu leiks og átaka.
Eftir að hafa marga hildi háð í
„hringnum" fór Birgir alltaf með
sigur af hólmi, nema í eitt skipti,
að ég hygg. Það var víst þegar
„brútall“ bullu-Bauni barði Bigga
bylmingshögg undir beltisstað.
Þegar Birgir lagði sfðar box-
hanzkana á hilluna vegna lög-
banns leikanna hérlendis, var
hann jafn heill og óskaddaður
andlega sem lfkamlega, án þess að
hafa hlotið teljandi skrámu og
merkjanleg glóðaraugu. Slíkt má
teljast einstætt um jafn harðsnú-
inn leik, hættulegan og hrotta-
fenginn. Þá sneri Birgir sér brátt
að jákvæðari og verðugri verkefn-
um og tók upp haldbetri og heilla-
vænlegri hanzka og fór að hamra
málminn í staðinn og „sló í gegn“
með framleiðslu hinna lands-
kunnu Rúntal-ofna. Þeir hlýja nú
mörgum landsmönnum engu sfð-
ur en rauðglóandi leikirnir á Há-
logalandi forðum. Hann hefir
stofnað til þriggja öfnaverk-
smiðja, í Reykjavfk, á Ákureyri
og i Keflavík.
Egill sterki á Borg var jafnvfg-
ur á járn og ljóð, en Birgir sterki
á járn og hljóð, þegar hvetja þarf
gamla íþróttafélagið hans, K.R.,
til stórræðanna með tilheyrileg-
um brýningum og hvatningarköll-
um. Þá skortir Birgi sjaldnast óp
og hróp, ráð né dáð. Meira að
segja, þegar mikið liggur við, fæst
Birgir við að berja saman drápu
eins og afl-bróðir hans á Borg og
kappinn Cassius Clay. Hann sendi
mér eina slíka fimmtugum ásamt
meiru. Aldrei hefi ég séð afmælis-
barnið berja nokkurn utan
„hringsins“ og misnota hæfileik-
ann. Þó tel ég ekki örgrannt um,
að sumir ókunnugir séu orðvarari
en ella f návist hans, þegar þessi
þrekvaxni og vígabarðalegi
bangsi birtist. Svo var um mig
fyrir mörgum árum, sem lítt er
um slagsmál gefið nema með
kjaftinum. Ég átti smávegis
vantalað við Birgi.út af samskipt-
um, sem gátu leitt til hitamáls. Þá
greip ég í barnslegri einfeldni
minni og hræðslu til símans í
öryggisskyni til að langur og eld-
snöggur sleggjuarmur og slag-
hamar hans næði sfður til mín.
Síðar kynntumst við betur og þá
sá ég brátt, að innst inni er Biggi
gæflyndur sem saklaust barn í
þfugu hlutfalli við fyrirferðina og
órótt gufuhvolfið í kring um
hann. Ég hefi jafnvel oft síðar
fundið til mikillar öryggiskennd-
ar í návist hans á öldurhúsum
höfuðborgarinnar. Slíkir geta oft
reynzt bjargvættir og lífgjafar í
raun og reynd, án þess að þurfa
að hreyfa legg né lið. Stundum
nægir aðeins að sýna litla Tarz-
anspennu brjóstkassans með
viðeigandi smáhnykk. Birgir
er sonur Þorvalds Helgason-
ar, skósmfðameistara, og
konu hans Kristínar Súsönnu.
Birgir vann í nokkur ár
hjá Burmeister og Wain og
Titan-smiðjunum miklu og lauk
tæknifræðiprófi í sinni grein
í Höfn, eftir að hafa lokið
bæði iðnskóla- og vélskólaprófi í
konan, Helga fagra, dóttur-dóttir
Helga f Tungu við Suðurlands-
braut er fædd á þeim fræga stað,
Kvfabryggju, glæsileg kona á velli
og f vatni (sundlaugunum). Ef
svo snöggar sveiflur í hjúskapar-
málum og skammur tfmi hefði
ekki liðið milli eiginkvenna er
ómögulegt að vita nema Biggi
hefði sjálfur getað lent sem vist-
maður á Kvíabryggju, þvf að
fjöldaframleiðsla virðist kapps-
mál hans og keppikefli, altént í
stórframleiðslu Rúntal-ofna.
Að lokum óska ég þessum inn-
fædda reykvfska kappa úr Vestur-
bænum, frækna framkvæmda-
manni og iðjuhöldi til hamingju
með daginn og megi honum
heppnast að berja alla aðvífandi
ellibelgi framtíðarinnar f klessu
með leiftursnöggum „upper cut“
og „knock out“ glaðlegs og gáska-
fulls lífernis, jákvæðra hugsana
og framkvæmda, svo að seint
frjósi á Rúntal-kerfi hjartans með
viðeigandi frostlegi.
Hnefaleikum hætti loks,
án heilinn færi að dofna.
t uppbætur sér Biggi Box
býr til Rúntal-ofna.
örlygur Sigurðsson.
Birgir tekur á móti gestum í dag,
milli kl. 15.00—19.00 í Félags-
heimili tannlækna að Sfðumúla
35, 3. hæð.
— Bridge
Framhald af bls. 16
h/f. Það er í annað sinn í röð
sem Sigrfður og Sigurður
vinna þennan grip.
XXX
Frá Bridgefélagi Akureyrar.
Fjögurra kvölda tvimennings-
keppnin er nú lokið. Spilað var
f tveimur riðlum og urðu úrslit
þau að Gunnlaugur Guðmunds-
son og Magnús Aðalbjörnsson
sigruðu nokkuð örugglega,
hlutu 532 stig. Röð efstu para
varð annars þessi:
Ármann Helgason —
Jóhann Helgason 511
Alfreð Pálsson —
Guðmundur Þorsteinsson 497
Mikael Jónsson —
Þórir Leifsson 485
Dfsa Pétursdóttir —
Soffía Guðmundsdóttir 472
Friðrik Steingrímsson —
Davfð Zophonissson 461
Ingimundur Árnason —
Stefán Sveinsson 438
Adam Ingólfsson —
Hörður Steinbergsson 437
Haki Jóhannesson —
örn Ragnarsson 434
Angantýr Jóhannsson —
Friðfinnur Gfslason 432
Næsta þriðjudag verður spil-
að í landstvfmenningi BSÍB
en aðalsveitakeppni félagsins
hefst svo annan þriðjudag. I
fyrra varð sveit Alfreðs Páls-
sonar Akureyrarmeistari.
Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
XXXX
Nýlega hófst sveitakeppni
hjá Bridgefélagi Reykjavíkur
og er spilað eftir svissneska
kerfinu, sem margir kalla
Monrad.
Af fyrstu umferð lokinni eru
þessar sveitir efstar:
Sveit
Helga Jóhannssonar 20stig
Einars Juðjohnsen
(NPC) 20 stig
Benedikts Jóhanness. 20 stig
Stefáns Guðjohnsen 20 stig
Gylfa Baldurssonar 18 stig
Jóns Hjaltasonar 17stig
Lárusar Hermannssonar 17 stig
Hjalta Elíassonar 12 stig
I næstu umferð spila saman
sveitir 1 og 2, 3 og 4 o.sv.frv. og
má búast við áhugaverðum leik
er Benedikt og Stefán leiða
saman hesta sfna. Þetta eru
gamlir keppinautar í gegnum
árin og láta ógjarnan undan
sfga. Spilað er f Domus Medica
á miðvikudögum. A.G.R.
Reykjavfk. Hann er tvfkvæntur.
Fyrri konan er Guðrún, dóttir
Einars þess er fyrstur dró íslenzk-
an fána við hún. Dugnaðar- og
hæfileikakona hin mesta. Síðari