Morgunblaðið - 02.11.1975, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1975
47
300 millj. kr. nýtt happ-
drættislán ríkissjóðs
GEFIN hefur verið út reglugerð
um happdrættislán rfkissjóðs
1975, skuldabréf G, vegna upp-
byggingar þjóðvegakerfisins.
Samtals er happdrættislánið að
upphæð 300 milljónir króna og
falla bréfin f gjalddaga eftir 10 ár
eða hinn 1. desember 1985. Hvert
bréf er að nafnvirði 2 þúsund
krónur og fyrsti útdráttardagur
lánsins er 23. janúar 1976. Bréfin
bera ekki vexti, en vaxtafjárhæð,
10%, verður varið f happdrættis-
vinninga. Þau eru verðtryggð með
vfsitölu framfærslukostnaðar.
Vinningar í happdrættisláninu
eru á ári samtals 942 að upphæð
30 milljónir króna. 6 vinningar
eru að upphæð ein milljón, 6 á
hálfa milljón, 130 á 100 þúsund
krónur og 800 vinningar á 10 þús-
und krónur. Bréfin eru undan-
þegin framtalsskyldu og eignar-
sköttum, en vinningar svo og
verðbætur eru undanþegnar
tekjuskatti og tekjuútsvari.
t reglugerðinni segir m.a.: „Við
innlausn happdrættisskuldabréfs
greiðir ríkissjóður verðbætur á
höfuðstól bréfsins í hlutfalli við
þá hækkun, er kann að verða á
lánstímanum á þeirri vísitölu
framfærslukostnaðar, er reiknuð
er 1 nóvember 1975 til gjalddaga
hinn 1. desember 1985. Miðað við
skráningu Hagstofu Islands á visi-
tölum framfærsiukostnaðar.
Kauplagsnefnd reiknar vísitölu
framfærslukostnaðar, og eru nú-
gildandi lög um hana nr. 70 29.
nóvember 1967, sbr. lög nr. 1 frá
30. janúar 1959. Happdrættis-
skuldabréfin skulu innleyst á
nafnverði, þótt vísitala fram-
— Flugleiðir
Framhald af bls. 2
ur minni ef eitthvað er. Ferða-
málafrömuðir ættu ekki von á
aukningu farþega á Atlantshafs-
leiðinni á næsta ári, m.a. vegna
þess hve mikið verður um að vera
í Ameríku þá.
— Sáttafundur
Framhald af bls. 2
sögn fulltrúa BSRB úr kjaradómi
og efasemdir BSRB-manna um
lögsögu dómsins i kjaradeilu
þeirra af þeim sökum. Höskuldur
kvað samninganefnd rfkisins hafa
ritað BSRB bréf þar sem skýrt
væri frá því að samninganefndin
liti svo á að þeir menn er setið
hefðu í Kjaradómi af hálfu BSRB
sætu þar áfram þar til Bandalagið
hefði tilnefnt nýja menn í þeirra
stað, þar eð litið væri svo á að
mennirnir hefðu sagt sig úr
dóminum sem einstaklingar en
ekki sem fulltrúar BSRB.
Höskuldur sagði að af hálfu ríkis-
ins væri þannig litið á að það væri
kjaradóms að úrskurða hvort
hann væri hæfur til að fjalla um
mál BSRB eða ekki þegar að því
kæmi að dómurinn ætti að taka á
þessu máli og svo færi að enginn
mætti fyrir hönd BSRB en á það
hefði eðlilega ekki reynt ennþá.
Basar og
kaffisala
Foreldra og styrktarfélag
heyrnardaufra heldur basar og
kaffisölu að Hallveigarstöóum
íunnudaginn 2. nóv. kl. 2. e.h.
Á boðstólum er margt eigulegra
muna, svo sem lopapeysur og aðr-
ar prjónavörur, mikið af fallegum
barnafatnaði, ýmsir góðir munir
til jólagjafa og lukkupokar.
Kökusala verður í tengslum við
basarinn.
Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra vinnur að gerð
orðasafns fyrir heyrnarskert
börn, bæði yfir bendimál það, er
þeir nota mikið sín á milli og
orðasafn með skýringum í máli og
myndum.
Fyrrnefnda orðasafnið er nú að
koma út í tilraunaútgáfu.
Félagið starfar einnig með Fé-
lagi heyrnarlausra að félagsmál-
um þeirra.
færslukostnaðar hafi á timabilinu
til gjalddaga þeirra verið lægri en
hún var reiknuð i nóvember 1975
og sé lægri á gjalddaga þeirra.
Happdrættisskuldabréfin verða
ekki innleyst að hluta.“
Sala bréfanna hefst í nóvember
og lýkur fyrir dráttardag, sem er
23. janúar 1976.
— Herða þarf
Framhald af bls. 48
einum sem staðnir eru að
slíku og afhenda þau ekki
aftur fyrr en menn hafa
greitt sektir sem þá munar
um. I dag geta menn ekið
á ofsahraða um göturnar
og það eina sem þeir fá eru allt
of lágar sektir sem svo koma
eftir dúk og disk. Það er ekkert
samræmi í því að þessir menn
sleppi en t.d. maður sem sezt
ölvaður undir stýri og kannski
hreyfir bílinn 1—2 metra, miss-
ir ökuleyfið í ár og borgar stór-
sektir. Með þessu er ég alls ekki
að mæla brennivininu bót,
þvert á móti. En það er alveg
augljöst að eitthvað þarf að
gera, menn geta bara litið i
kringum sig i umferðinni stutta
stund til að sannfærast. Þar er
alltaf eitthvað að gerast sem
telja má forkastanlegt hjá veg-
farendum," sagði Torfi Jónsson
að lokum.
— Glit
Framhald af bls. 2
Þýzkalands á u.þ.b. helmingi
framleiðslunnar, sem orðin er
bæði mikil og fjölbreytt.
Sýningin i Blómabúðinni Lauf-
ási verður opin á venjulegum af-
greiðslutíma verzlana til 8.
nóvember.
— Sv. P.
— Aðalskipulag
Framhald af bls. 48
nefndin sjálf gæti lokið sinum
störfum fyrir áramót og stefnt
væri að þvi að ganga frá endur-
skoðuninni á þessum vetri.
Ölafur var að því spurður hvort
endurskoðunin myndi hafa i för
með sér miklar breytingar á aðal-
skipulaginu. Játaði Ölafur því og
benti á að i fyrsta lagi væru þegar
orðnar nokkrar smávægilegar
breytingar á aðalskipulaginu en
siðan yrði nú gerð tilraun til að
ákveða nánar t.d. landnotkunina í
gamla bænum og inn í myndina
kæmu einnig nýju svæðin sem
ekki hefði verið búið að taka
ákvörðun um við gerð aða.lskipu-
lagsins, svo og hafnarsvæðið, þar
sem núna yrði gengið frá tillögum
um að aðskilja meira einstaka
þætti við höfnina en verið hefði.
Auk þess kæmi nú inn í endur-
skoðunina nýi miðbærinn, þar
sem búið væri að ganga frá skipu-
lagi fyrsta áfanga og að öðru leyti
lægi það fyrir þeim mæli að
skipulagsnefnd hefði samþykkt
ákveðnar forsendur til að nota við
gerð umferðarlíkans þess sem
nefnt var í upphafi, þannig að
segja mætti að komnar væru
hinar breiðu linur I það mál.
— íþróttir
Framhald af bls. 46
leika stffan sóknarleik.
Melavöllurinn er f góðu ásig-
komulagi um þessar mundir og
Baldur Jónsson, forstjóri
fþróttavallanna f Reykjavfk,
lofar þvf að haldist veðrið eins
milt og undanfarið verði völlur-
inn eins og á sumardegi.
Nauðsynlegar breytingar verða
gerðar á vellinum fyrir leikinn
og Háskólavöllurinn verður
notaður sem bflastæði.
Leikmenn Dvnamo Kiev
koma til landsins á morgun
með cinkaþotu og fara væntan-
lega á æfingu annað kvöld. A
þriðjudaginn er ætlunin að
þeir fari í kynnisferð til Akra-
ness. Það er þó hæpið að þeir
hitti þá leikmenn lA, sem
flestir verða eflaust við vinnu
sfna. Á miðvikudaginn klukkan
20.00 hittast leikmenn beztu
liða tslands og Ráðstjórnarrfkj-
anna, hins vegar á Melavell-
inum.
— Samráð
Framhald af bls. 2
hið opinbera hefur með höndum,
og hvort það þjóni betur almanna-
hagsmunum að sú starfssemi fær-
ist í hendur einstaklinga eða
félaga þeirra.
„EG hefi ákveðið,“ sagði ráð-
herrann, „að fá til liðs við mig
menn, sem hafa reynslu og góða
þekkingu á rekstri og fjármálum
þjónustu og atvinnufyrirtækja í
einkaeign eða i eigu samvinnu-
félaga, til þess að meta og leggja á
ráðin um, hvaða aðgerðir teljist
skynsamlegar i þessu efni.“
"STEREO 2 — QUADRADIAL4"
SYRPAN
Fyrir nokkru síðan kynntu MARANTZ verksmiðj-
urnar nýja syrpu utvarpsmagnara. sem nefnd var
„Stereo 2—Quadradial 4“ syrpan. Þykja þessir út-
varpsmagnarar enn sanna yfirburðasnilli þeirra
manna, sem að baki MARANTZ framleiðslunni
standa. Um þetta má nefna eftirfarandi dæmi: Um
1—2ja ára skeið hafa allir meiriháttar framleiðend-
ur byggt svokallað Dolby kerfi inn í segulbands-
tæki sín, en þetta kerfi eyðir suði og aukahljóðum
og eykur tóngæði verulega. Hafa segulbandstækja-
framleiðendur stórbætt stöðu sina á þennan hátt,
en notkun þessarar tækni hefur verið takmörkuð
við þau tæki. Hér varð MARANTZ til að marka
þáttaskil, eins og oft áður, þvi að i „Stereo 2 —
Quadradial4“syrpunni erstillanlegt Dolby kerfi inn-
byggt i utvarpsmagnarana sjálfa, og gætir hinna
hagstæðu áhrifa Dolby kerfisins þvi við alla notkun
tækjanna (hvort heldur er útvarpsnotkun eða magn-
aranotkun með plötuspilara, segulbandi eða hljóð-
nema). — Að öðru leyti eru tækin í „Stereo 2 —
Quadradial4“syrpunni byggð fyrir stereo-,fjórvídd-
ar- og fjögrarása notkun, og er viðtækið gert fyrir
fjögrarása útsendingar útvarps, en tilraunir með
slikar útsendingar eru byrjaðar i Bandaríkjunum.
— Ekki þarf að fjölyrða um gæði eða almenna
tæknilega byggingu og frágang þessara tækja frek-
ar en annara MARANTZ tækja. — MARANTZ 4230,
sem sýnt er hér að ofan, er eitt tækjanna i „Stereo
2—Quadradial 4“ syrpunni, og kostar það krónur
171.200,00 án húss. Dýrasta tækið í þessari syrpu
er MARANTZ 4400, sem er jafnframt öflugasti og
fullkomnasti útvarpsmagnari veraldar, en hann kost-
ar kr. 417.600,00. — Tækin i „Stereo 2—Quadradial
4“ syrpunni eru framleidd fyrir þá, sem vita, hvað
þeir vilja og vilja það bezta.
NESCO
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviói sjónvarps-útvarps- og hljómtækja,
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788