Morgunblaðið - 15.11.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975
3
Áskorun Öruggs aksturs til félagasamtaka:
Haldið fund umörygg-
ismál í eina kvöldstund
- — — Ljósmynd Sv. Þorm.
Þetta gæti komið fyrir þig — lesandi gðður. Aktu því með varúð og gætni.
„ÉG SKORA á öll félaga-
samtök i landinu, sem alltaf
eru að halda fundi annað
slagið, að eyða nú einni
kvöldstund i að ræða
umferðaröryggi og úrbætur
i umferðarmálum og jafnvel
ef þeir telja nauðsynlegt að
fá sérfróðan mann til þess
að halda erindi um þessi
mál. Aukin umræða um
umferðarmál eykur þá
ábyrgðartilfinningu, sem
vegfarandinn þarf að hafa."
Eitthvað á þessa leið mælt-
ist Herði Valdimarssyni,
varaformanni Lands-
sambands Klúbbanna
Öruggur akstur, á blaða-
mannafundi sem stjórn
landssambandsins boðaði
til i gær.
Kristmundur J. Sigurðsson,
aðstoðaryf irlögregluþjónn I
rannsóknarlögreglunni og for-
maður Reykjavíkur-klúbbsins,
bætti því við þessa ðskorun, að
einnig væri þörf þess, að sérhver
hópur I þjóðfélaginu ætti að taka
mðlin til sérstakrar umræðu, sér-
hver fjölskylda ætti að ræða um-
ferðaröryggismðl og hinir reyndari
ættu að uppfræða hina reynslu-
minni. Hann kvað það siðferðilega
skyldu hvers einasta félagsskapar
að gera þessi mðl að umræðuefni,
hverrar einstakrar fjölskyldu og
ekki dygði neitt nema miskunnar-
laus ðróður fyrir bættri umferðar-
menningu. Kristmundur sagði að
enginn tryði þvi, hve miklar hörm-
ungar og hve mikil sorg fylgdi
þeim vðgesti, sem umferðarslys
væru, nema hann hefði reynt slíkt
persónulega og hann kvað störf
þeirra manna, sem ynnu að þvl að
koma ð slysstað og vinna þau
nauðsynlegu störf, sem hinu opin-
bera ber að Iðta fram fara. vera
orðin yfirþyrmandi.
Stefðn Jasonarson, bóndi I
Vorsabæ, sem er formaður Lands-
sambands klúbbanna Öruggur
akstur sagði að margir skildu ekki,
hvað bóndi eins og hann væri að
vasast [ umferðaröryggismðlum,
en hann benti ð að mðlið væri ekki
svo einfalt. Bóndi utan af landi
gæti kannski verið stórhættulegur
[ umferðinni, er hann kæmi inn [
borgina og jafnt gæti borgarbúinn
verið hættulegur við þær
aðstæður, sem fólkið úti ð landinu
byggi við. lausamöl og annað
sllkt. Hann kvað 71 ðr slðan fyrsti
blllinn kom til landsins, en nú
væru bllar rúmlega 71 þúsund ð
öllu landinu. Hér hefði ekki ðtt sér
stað þróun heldur bylting.
Klúbbarnir eru nú 10 ðra. Fyrsti
klúbburinn var stofnaður ð Isafirði
1965 en þð hafði ð undan, áríS
1964, gengið yfir mjög alvaríag
slysaalda. Stefðn kvað það sorg-
lega staðreynd að þegar haldið
væri 10 ðra afmæli klúbbanna,
riði yfir landið einhver versta
slysaalda, sem komið hefði. Þetta
sýndi að betur mætti ef duga
skyldi og auka þyrfti umferðar-
fræðslu, umferðarmenningu og
þar með umferðaröryggi. Stefðn
sagði að hann vildi fremur mæta
góðum bílstjóra ð lélegum bil, en
lélegum bilstjóra ð góðum bll I
umferðinni, þvl að raunin væri sú
að öll umferðarslys væru af mann-
legum völdum og engum væri
unnt að kenna um þau. nema
manninum sjðlfum.
Ingjaldur fsaksson, sem er for-
maður klúbbsins I Kópavogi, kvað
aðalkröfu klúbbanna alltaf hafa
verið aukin umferðarfræðsla, en
þvl miður hefði verið daufheyrzt
við þessari kröfu, þótt reynslan
hefði sýnt og sannað að hér hefði
verið um mjög brýna ðbendingu
að ræða. Kvað hann meira að
segja svo langt gengið að
umferðarf ræðsla væri ekki
stunduð I Kennaraskólanum. Eina
umferðarfræðslan sem stunduð
hefði verið væri ð vegum lögregl-
unnar og hefði annast hana
Ásmundur Matthlasson. Þð hefðu
klúbbarnir einnig krafizt bættrar
aðstöðu fyrir Bifreiðaeftirlitið og
enn væri fjöldi bíla óskoðaður á
ðrinu 1975, sem væri hreint
ótækt. Þð kvað hann litið gert af
þvi að uppfræða gamalt fólk um
umferðaröryggi, en visir að þvl
hefði þó hafizt i Kópavogi. Hann
benti ð að í sambandi við
umferðarlagabreytinguna yfir I
hægri umferð hefði slysatíðni stór-
lega minnkað. Þð gagnrýndi
Ingjaldur einnig umferðarkennslu
og kvað hana eiga að fara inn !
skólakerfið, í unglingaskólana.
Hann kvað dæmi þess i3 17 ðra
unglingar hefði jafnvel fengið öku-
leyfi eftir einnar kennslustundar
nðm I akstri og flestir ökumenn
Framhald á bls. 23
Night
íiilif
Straufría sængurfataefnið er nú
fyrirliggjandi í mörgum mynztrum \
og litum. 1
Einnig í saumuðum settum.
Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk,
sofið þægilega og lífgið upp á litina
í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvik sími28200
Haustsýning FIM
í Norræna húsinu
Sýnir alls um 300 verk í borginni
HAUSTSÝNING Félags ís-
lenzkra myndlistarmanna
verður opnuð í kjallara
Norræna hússins í dag. Á
sýningunni eru 96 verk 50
listamanna, en þar af eru
félagsmenn 29 að tölu. Af
utanfélagsmönnum eru 9,
sem ekki hafa átt verk á
haustsýningu félagsins
áður. Þeir eru: Brynhildur
Ósk Gísladóttir, Gunnar í.
Guðjónsson, Helgi Vilberg,
Kjartan Ásmundsson, Óli
G. Jóhannsson, Sólveig H.
Jónasdóttir, Bragi Hannes-
son, Steingrímur E. Krist-
mundsson og Vigfús
Heiðar Guðmundsson.
Á sýningunni eru teikningar,
grafíkmyndir, „collage" eða
klippimyndir, vatnslitamyndir,
olíumálverk, vefnaður og högg-
myndir.
Þá stendur félagið um þessar
mundir fyrir myndlistarsýning-
um á vinnustöðum viðs vegar í
borginni, meðan haustsýningin
stendur yfir. Tilgangurinn er sá
að stuðla að nánara sambandi
myndlistarmanna og listunnenda,
en verkunum hefur verið komið
fyrir á matstofum viðkomandi
fyrirtækja, og eru sýningarnar
ekki opnar almenningi. A
hverjum stað eru verk 1—4 lista-
manna, sem allir eru félagar í
FlM. Þegar þessi verk eru með-
talin má ætla að alls séu um 300
verk til sýnis í borginni á vegum
FlM.
Haustsýningin í Norræna hús-
inu verður opið kl. 14—22 dag-
lega til 15. nóvember.
Á fundij sem stjórn FÍM og
sýningarnefnd, héldu með frétta-
mönnum i gær kom fram sú
spurning, hvort eitthvað væri að
gerast í Kjarvalsstaðamálinu svo-
kallaða. Hjörleifur Sigurðsson
formaður félagsins sagði, að mik-
ill og góður vilji til að leysa deil-
una væri fyrir hendi hjá báðum
aðilum málsins, og hefðu við-
ræður um málið farið fram að
undanförnu.
Sýningarnefnd FlM sér um framkvæmd sýningarinnar f Norræna húsinu og þegar við litum þar inn f
fyrradag var verið að leggja sfðustu hönd á undirbúninginn. — (Talið frá vinstri): Hrólfur Sigurðsson,
Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Guðmundur Benediktsson, Hringur Jóhannesson og Hallsteinn Sigurðsson.
A myndina vantar Þorbjörgu Höskuldsdóttur, Sigurjón Ólafsson og Leif Breiðf jörð.