Morgunblaðið - 15.11.1975, Síða 11

Morgunblaðið - 15.11.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975 11 ORYGGI VETRARAKSTRI GOODWYEAR HJÓLBARÐA ^ ÞJÓNUSTUDEILD í rúmgóðu húsnæði að Laugavegi 172 FELGUM — AFFELGUM — NEGLUM 2 — Ráðstefna um atvinnu- mál háskólamanna BANDALG háskólamanna gengst fyrir ráðstefnu um atvinnumál háskólamanna á Hótel Loftleiðum dagana 14. og 15. nóvember n.k. Á ráðstefnunni verða flutt 15 erindi og verður í þeim meðal annars fjallað um fjölda háskólamennt- aðra manna, þróun kennslu á há- skólastigi, aðgang að háskóla- námi, námsval stúdenta, nýtingu háskólamenntaðs starfsfólks í þjóðfélaginu og framtiðarverk- efni og þarfir fyrir háskólamennt- að starfsfólk í hinum ýmsu at- vinnugreinum. Ráðstefnan hefst kl. 13.00 föstu- daginn 14. nóvember. Verða þá flutt framsöguerindi og fram fara umræður um efni þeirra. Ráð- stefnunni verður framhaldið á laugardag og hefst dagskrá henn- ar þá kl. 9 árdegis og verða þá flutt erindi umræður fara fram og vinnuhópar starfa. Ráðstefna þessi er öllum opin meðan hús- rúm leyfir, en þátttöku gjald er krónur 2000 og er það ætlað til að greiða kostnað við mat og kaffi meðan á ráðstefnunni stendur. Þátttöku verður að tilkynna á skrifstofu Bandalags háskóla- manna s. 21173 í síðasta lagi í dag, fimmtudag 13. nóvember. Ný akbraut í Elliðavogi NÝ AKBRAUT á Elliðavogi hef- ur verið opnuð til umferðar á kaflanum frá Holtavegi og Laugarnesvegi. I þessu sambandi hefur verið ákveðið að taka upp einstefnu á Kleppsvegi til austurs og á hinni nýju braut Elliðavogs til vesturs, eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Rétt er að benda á, að hámarks- hraði á milli Holtavegar og Laugarnesvegar er 45 km á klst., en 60 km á Elliðavogi fyrir sunnan Holtaveg. Gaf 100 þús. kr. til dagheimilis á Tálknafirði Tálknafirði, 12. nóvember FYRIR stuttu hélt kvenfélagið Harpa sýningu á graffkmyndum eftir Ástu Sigrfði Björnsdóttur og f sambandi við sýninguna var kaffi — og blómasala til styrktar dagheimilissjóð. Mjög mikil aðsókn var að sýningunni og seld- ust margar myndir. Það er mjög vel þegið úti á landsbyggðinni, að fá svona tilbreytni f hið daglega lff og ættu sem flestir listamenn að gefa smástöðunum kost á sýn- ingum sfnum. Stórgjöf barst dagheimilissjóði kvenfélagsins, Guðmundur Þorsteinsson bóndi á Hrauni í Tálknafirði gaf 100 þús. krónur og á hann miklar þakkir skilið fyrir framtak sitt. Næg atvinna hefur verið hér undanfarið, nokkrar ástralskar stúlkur vinna i frystihúsinu eins og undanfarin ár. Þrjár konur stunda beitningu. Tveir bátar, Tálknfirðingur og Tungufell, róa með línu og hafa fengið reytings- afla. Síðustu daga hefur verið sunnan- og suðvestan átt og lítið gefið á sjó. Þriðji báturinn héðan, Sölvi Bjarnason, hefur verið á síldveiðum i Norðursjó og aflað sæmilega. Þá er sláturtið lokið hér og gekk vel. Ragnheiður. ÞESSAR telpur efndu fyrir nokkru til tombólu að Asparfelli 6 til ágóða fyrir Styrktarfél. blindra og sjónskertra. Inn komu kr. 9.450 sem telpurnar hafa afhent. Þær báðu fyrir þakkir til hinna fjöl- mörgu sem á einn eða annan hátt hjálpuðu þeim að koma þessu f kring. — Á myndinni eru frá vinstri: Fanney Cortes, Hrefna Einarsdóttir, Jórunn Kjartansdóttir, Elfsabet Cortes og Ólaffa Danielsdóttir. Á myndina vantar Guðbjörgu Danfelsdóttur. Telpurnar eru f Breiðholtsskóla, Fellaskóla og Álftamýrarskóla. Jakob Jónsson trésmiður - 75 ára HANN afi er 75 ára í dag og get ég ekki látið hjá líða að skrifa nokkur orð um þennan sfunga fóstra minn sem hefur reynst mér svo vel. Hann er fæddur að Hlíðarhús- um á Snæfjallaströnd 15. nóv. ár- ið 1900. Við fórum fyrir 2—3 ár- um á bernskustöðvar hans en Hlíðarhús standa nokkuð utar- lega á ströndinni sem nú er al- gjörlega komin í eyði utan við Tyrðilmýri. Ganga þarf nokkra kílómetra í þýfðu svæði þar sem engan veg er að hafa og leiðin það, sjaldfarin nú að götuslóðar eru að mestu horfnir. Til að gera langa sögu stutta hljóp ég við fót báðar leiðir til að halda í við afa minn og finnst mér það segja vel til um hve ern hann er. Ungur fór hann i Bænda- skólann að Hvanneyri og út- skrifaðist þaðan sem bú- fræðingur. Þaðan lágu leiðir hans til Danmerkur að tilstuðlan skóla- stjórans á Hvanneyri og nam hann þar „gymnastik“ eða fim- Ieika. Á Alþingishátfðinni var hann meðal beztu leikfimismanna og sýndi þar með félögum sinum úr Ármanni. Afi hóf búskap og giftist Guðrúnu Guðmundsdóttur og átti með henni eina dóttur, Erlu, sem býr á Selfossi. En hann missti konu sína þegar Erla var lítil stúlka. ömmu minni Emiliu Vigfúsdóttur, kynntist hann fáum árum siðar en á þessum árum bjó hann á Hallsstöðum við Isa- fjarðardjúp. Arið 1944 fluttu afi og amma í Kópavogi og hafa búið þar siðan. Amma átti einnig eina dóttur á svipuðu reki og Erla og hét hún Viktoria. Er ég hennar frumburð- ur, fæddur 1948. Strax við fæðingu tóku afi og amma mig í fóstur og er ég í þeirra umsjá nánast enn. Uppeldi mitt hefir ábyggilega ekki alltaf verið dans á rósum en þau kvörtuðu ekki, þvert á móti. Ég vildi að ég hefði getað og gæti lært að verða sá maður sem afi minn er, duglegur, traustur og ábyggilegur við hvern sem er, hvenær sem er. Með þessum fáum orðum langar mig á þessum merku timamótum hans að þakka afa mínum og Jakob verður að heiman f dag. Flestar stærðir GOODfÝEAR snjóhjólbarða fyrirliggjandi Sími21245 Opið frá kl. 8—4 eh. Félagsvist í Iðnó Félagsvist verður í Iðnó (uppi) f dag og hefst kl. 2 e.h. Gengið er inn frá Vonarstræti. ömmu uppeldi mitt, allt og allt og óska þeim langlífis, mér og öðrum til hamingju. Guji. GÓLFTEPPASÝNING * I dag kynnum við gólfteppi með nýstárlegum mynstrum og óvenjulegum fallegum litasamsetningum Sýningin verður opin frá kl. 10—6 e.h. Verið velkomin. UOCRR Ath. vegvisar við Elliðavog og Kleppsveg. TEPPAMIÐSTOÐIN Súðarvogi 4, sími 36630 Iðnvogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.