Morgunblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975
\ý þingmál
Kvöldathöfn i
Garðakirkju
Á MORGUN fer fram kvöldhelgi-
stund í Garðakirkju kl. 8.30. Séra
Ólafur Skúlason flytur hugleið-
ingu og minnist þar landnámsaf-
mælis í Kanada.
Kirkjukór Bú-
staðakirkju heimsækir Garða-
söfnuð og syngur við athöfnina
ásamt Garðakórnum. Ennfremur
syngur barnakór Öldutúnsskólans
í Hafnarfirði.
Um þessa helgi er safnað gjöf-
um til Hjálparsjóðs Garðasóknar,
en flest félög í byggðinni leggja
þeirri söfnun iið. Sjóður þessi er
notaður til skyndihjálpar þeim, er
fyrir óvæntum áföllum verða.
Tekjustofnar
sýslufélaga
Friðjón Þórðarson (S) og Jó-
hannes Árnason (S) flytja til-
lögu til þingsályktunar þess
efnis, að skorað er á ríkisstjórn-
ina að gera nú þegar ráðstafan-
ir til að auka tekjur sýslufélaga
í samræmi við þau margþættu
verkefni, sem þeim eru falin að
lögum, og önnur aðkallandi
viðfangsefni í héraðsmálum. I
greinargerð eru rekin marg-
þætt og lögbundin verkefni
sýslufélaga, sem þeim hafi f
tímans rás verið falin á hendur
án þess að tryggja þeim að
sama skapi tekjur til að sinna
viðfangsefnunum. I greinar-
gerðinni segir m.a.:
„Þá má benda á, að ef ekki
verður hið fyrsta ráðin bót á
fjárþörf sýslufélaganna með
nýjum tekjustofnum, en þess í
stað haldið áfram á sömu braut,
þ.e. að leggja stöðugt hærri
sýslusjóðsgjöld á hreppana, þá
er hætta á því að hin stærri
hreppsfélög í hverju umdæmi
geri í vaxandi mæli kröfur um
að þeim verði veitt kaupstaðar-
réttindi. Þess er skemmst að
minnast, að er 5 hreppsfélög,
Bolungarvfk, Dalvík, Eskifjörð-
ur Grindavík og Seltjarnarnes-
hreppur, voru gerð að kaup-
stöðum árið 1974, þá var m.a.
bent á greiðslu hárra sýslu-
sjóðsgjalda og sýsluvegasjóðs-
gjalda sem eina af röksemdun-
um fyrir breytingunni. Það er
skoðun flutningsmanna að það
sé ekki æskileg stefna að rjúfa
tengsl þéttbýlisstaða og sveit-
anna í kring vfðs vegar um
landið á stjórnarfarslegu tilliti.
Þvert á móti beri í vaxandi
mæli að efla samstöðu hrepps-
félaganna í hverri sýslu til
lausnar þeim mörgu framfara-
málum, sem drepið hefur verið
á hér að framan og Ijóst er að
ekki verða leyst í hverju
hreppsfélagi fyrir sig.“
Jafnrétti
kynjanna
Gylfi Þ. Gíslason og fleiri
þingmenn Alþýðuflokks flytja
svohljóðandi þingsályktunartil-
Iögu:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta semja frum-
varp til laga um jafnrétti kynj-
anna. Samtökum kvenna sé
veitt aðild að samningu frum-
varpsins. 1 frumvarpinu skulu
meginatriði gildandi laga um
launajöfnuð kvenna og karla,
nr. 60/1961, og laga um Jafn-
launaráð, nr. 37/1973, ásamt
öðrum gildandi lagaákvæðum
um slíkt efni, sameinuð í eitt
frumvarp. Jafnframt því verði
einstök atriði endurskoðuð í
ljósi fenginnar reynslu og
nánarí ákvæði sett í samræmi
við eftirfarandi grundvallar-
sjónarmið.
Verndun og rœktun
forystufjár
Sigurður Björgvinsson (K)
mælti fyrir frumvarpi sínu til
breytinga á búfjárlögum í neðri
deild Alþingis í gær. Þingmað-
urinn hefur að vísu áður tekið
þátt f umræðu i þinginu, en
þetta var þó nánast hans „jóm-
frúrræða“. Frumvarpið gerir
ráð fyrir því að Búnaðarfélag
íslands sjái um verndun og
ræktun forystufjár, en þing-
maðurinn álítur, að án sér-
stakra verndunaraðgerða muni
þessi sérstæði, fslenzki fjár-
stofn hverfa úr búsmala þjóðar-
innar. Flutti hann langt og
skorinort mál um ágæti þessa
fjárstofns og þá skyldu, sem
þjóðinni væri á höndum um
varðveizlu hans.
NÚ Á húsfriðunarári Evrópuráðs-
ins gangast Umhverfismálaráð
Reykjavfkur, Samband fsl. sveit-
arfélaga og Arkitektafélagið f
samráði við Söguféiagið fyrir ráð-
stefnu um húsafriðun undir kjör-
orðinu „Að fortíð skal hyggja“.
Stendur ráðstefnan I tvo daga,
laugardaginn 22, og sunnudaginn
23. nóvember f hátíðasal Háskóla
Islands. Verður þar f nokkrum
fyrirlestrum fjallað um ýmsar
hliðar verndunarmála og reynt að
ná áttum f þeim efnum, en það
dylst engum sem leiðir hugann að
varðveizlu gamalla sögulegra
bygginga hér á landi, að við höf-
um ekki enn áttað okkur á þeim
þætti málsins, sem snýr að hag-
nýtri framkvæmd og tilhögun
slíkrar verndar, sagði Elfn Pálma-
dóttir, formaður Umhverfismála-
ráðs, er hún kynnti ráðstefnuna
blaðamönnum ásamt Páli Líndal
formanni Sambands ísl. sveitarfé-
laga.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Birgir Isl. Gunnarsson mun setja
ráðstefnuna og dr. Kristján Eld-
járn flytur ávarp. En því næst
flytja tveir norrænir fyrirlesarar
erindi, þau Vibeke Fischer Thom-
sen arkitekt og kennari við Kaup-
mannahafnarháskóla og Einar
Hedén, borgarminjavörður f Staf-
angri, sem bæði standa framar-
lega í húsafriðunarmálum í sínu
landi. Birgir Thorlacius talar um
húsfriðunarárið 1975, Þór Magn-
ússon þjóðminjavörður um húsa-
friðun á Islandi, Björn Þorsteins-
son, sagnfræðingur um skráningu
húsa og minja, Páll Líndal borgar-
lögmaður um löggjöf um húsa-
friðun, Nanna Hermannsson
borgarminjavörður um stefnur
um verndun gamalla bygginga,
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt
um gamlar byggingar í Reykjavík
og verndun þeirra, Jón Páll Hall-
dórsson formaður byggðasafns
Vestfjarða um gamla bæinn á ísa-
firði og vanda sveitastjórna við
friðun húsa, Guðrún Jónsdóttir
um Bernhöftstorfuna og starf-
semi áhugamannasamtaka, Hjör-
leifur Stefánsson um byggingar
sem lesefni og Baldvin Halldórs-
son leikari segir frá reynslu sinni
af endurnýjun timburhúsa. Ráð-
stefnustjóri er Unnar Stefánsson.
Það er von þeirra, sem að ráð-
stefnu þessari standa, að þar
verði kynnt nútíma sjónarmið í
húsafriðunarmálum hér heima og
í nágrannalöndunum, að fram
fari eins konar úttekt á stöðu okk-
ar ísléndinga í þessum efnum og
að síðast en ekki síst megi takast
að vekja áhuga almennings á
þeim menningarverðmætum sem
þjóðin kann að eiga á sviði bygg-
ingarlistar, sagði Elfn á blaða-
mannafundinum.
Ráðstefnan er opin öllum.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að tilkynna fyrirfram þátt-
töku sfna skrifstofu Sambands fsl.
sveitarfélaga í síma 10350, á skrif-
stofu Reykjavíkurborgar í síma
18800 eða til skrifstofu Arkitekta-
félags Islands í sfma 85510.
Hvöt með flóamarkað
á Hallveigarstöðum
í DAG laugardag, kl. 2 hefst á
Hallveigarstöðum svokallaður
flóamarkaður, sem Sjálfstæðis-
kvennafélagið Hvöt efnir til. Er
það í fyrsta skipti sem félagið
hefur uppi þessa fjáröflunarað-
ferð, og hefur því ýmislegt ágætra
hluta komið fram á háaloftum og
skápum félagskvenna og velunn-
ara.
Á boðstólum eru nýir og gamlir
munir og fatnaður. Þar má nefna
eldavél, rafmagnstæki, handlaug-
ar, skrautmunir og búsáhöld alls
konar, og mikið af fatnaði og
skóm á börn og fullorðna.
1. Konum skal í reynd tryggt
algert jafnrétti á við karlmenn
á öllum sviðum þjóðlifsins.
Konur og karlar skulu eiga
jafnan rétt til vinnu og mennt-
unar.
2. Við ráðningu í störf, flutn-
ing milli starfa, skiptingu i
launaflokka, veitingu orlofs frá
starfi eða uppsögn skal
óheimilt að miða reglur eða ráð-
stafanir við það, hvort um karla
eða konur er að ræða. Geti bæði
karlar og konur gegnt starfi, er
óheimilt að miða auglýsingu
þess við annað hvort kynið.
Auglýsing má ekki heldur gefa
til kynna að vinnuveitandi óski
þess að væntanlegur starfs-
maður sé fremur af öðru kyn-
inu en hinu. Umsækjandi, sem
fær ekki stöðu sem hann hefur
sótt um, getur krafist þess að
vinnuveitandinn Iáti honum í
té skriflegar upplýsingar um
hvaða menntun, reynslu og
aðra hæfni sá umsækjandi hafi
til að bera sem stöðuna hlaut,
3. Kveðið sé skýrt á um að
með sömu launum fyrir sömu
vinnu sé. átt við allar greiðslur
og hlunnindi, sem vinnuveit-
andi lætur af hendi, og að laun-
in skuli ákveða með sama hætti,
hvort sem um er að ræða karl
eða konu.
4. Konur og karlar, sem
starfa hjá sama vinnuveitanda,
skulu eiga sama rétt til starfs-
menntunar og starfsþjálfunar
ásamt orlofi til þess að afla sér
slíkrar menntunar og þjálf-
unar.
5. Auglýsingar mega ekki
vera með þeim hætti, að i ósam-
ræmi við grundvallarregl-
una um jafnrétti kynjanna, né
heldur þannig að þær særi sið-
ferðisvitund annars hvors
kynsins.“
Frádráttur vegna
vinnu eiginkonu
bðnda
Helgi F. Seljan (K) o.fl.
flytja frumvarp til laga um
skattfrádrátt búandkvenna,
svohljóðandi:
Við 1. gr. laganna bætist nú
Framhald á bls. 23
Jón Árnason, formaður fjár-
veitinganefndar.
Fjárveitinganefnd:
Annir á
Alþingi
ÞINGSTÖRF eru önnur og
meiri en fram koma á fundum
deilda og sameinaðs þings.
Margþætt nefndarstörf liggja
að baki athugun mála áður en
þau koma til lokaumræðu í
þingsölum. Sú þingnefnd, sem
mest mæðir þó á, er fjárveit-
inganefnd. Hún hefur nú til
meðferðar frumvarp til fjár-
laga fyrir árið 1976. Augu al-
þjóðar beinast ekki hvað slzt að
störfum þessarar nefndar, sem
oft hafa verið erfið, en máske
aldrei verið vandasamari en nú.
í þessari nefnd verður mótuð
fyrsta afstaðan til þeirrar að-
haldsstefnu, sem fjárlagafrum-
varpið felur í sér, og svo miklu
varðar, að ekki verði raskað um
of.
Formaður fjárveitinganefnd-
ar er gamalreyndur og traustur
þingmaður, Jón Árnason.
Sveitarstjómarmenn
þinga um fjármál
ÞAÐ ER mikil ráðstefnuvika hjá
Sambandi Isl. sveitarfélaga I
næstu viku, enda hagkvæmt að
sveitarstjórnarmenn geti komið á
marga fundi I einu, þegar þeir
þurfa að koma til Reykjavíkur.
Bendir margt til að fjármál sveit-
arfélaga verði I brennidepli
næstu vikur og því fjallað um
fjármál.
Þriðjudaginn 18. og miðviku-
daginn 19. nóvember verður
tveggja daga ráðstefna um fjár-
mál sveitarfélaga. ■ Lögð verður
fram og kynnt greinargerð um
búskap sveitarfélaga eftir Jón
Sigurðsson,, forsföðumann Þjóð-
hagsstofnunar, og kynntar verða
tillögur, sem uppi eru um stað-
greiðslukérfi gjald- og virðisauka-
skatt. Á ráðstefnunni verður
kynnt nýtt form fjárhagsáætlana
og ársreikninga sveitarfélaga og
leiðbeint um uppgjör bókhalds
sveitarfélaga og skólareikninga.
Síðari dag ráðstenunnar verður
sérstaklega fjallað um gerð fjár-
hagsáætlunar sveitarfélaga árið
1976 og Jón Árnason, formaður
fjárveitinganefndar Alþingis, tal-
ar um samstarf fjárveitinga-
nefndar við sveitarstjórnir.
Hinn 20. nóvember verður
aukafundur fulltrúaráðs sam-
bandsins, þar sem m.a. verður
fjallað um það hvaða breytingar
sé hægt að gera á verkaskiptingu
sveitarfélaga og rlkis vegna hug-
mynda I fjárlögum, sem nú liggja
fyrir, um að sveitarfélögin fái 8%
af söluskatti og taki fleiri verk-
efni en nú er.
Hinn 21. nóvember er svo
hafnasamband sveitarfélaga með
ársfund sinn. En helgina 22. og
23. efnir Sambandið, Umhverfis-
málaráð Reykjavíkur og Arki-
tektafélagið til ráðstefnu um
húsafriðunarmál I hátíðasal Há-
skólans.
Ráðstefna um
húsafriðunarmál
Hefur fólk sýnt málefnum sjóðs-
ins frábæra velvild og stuðnihg á
undanförnum árum.
Af blaðamannafundi um væntanlega húsafriðunarráðstefnu. Nær sitja blaðamenn, en fjær frá hægri:
Páll Líndal, formaður Samhands sveitarfélaga, Elfn Pálmadóttir, formaður Umhverfismálaráðs Reykja-
vlkur, og Unnar Stefánsson, ritstjóri Sveitarstjórnarmála og eru þau að segja frá tilhögun ráðstefnunnar.
Ljósm. Friðþjófur.
AUGLÝSIIMGATEIKIMISTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810