Morgunblaðið - 15.11.1975, Síða 28

Morgunblaðið - 15.11.1975, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÖVEMBER 1975 Sagan af Gisku kerling... um, án þess að vökna i fætur. Bóndinn tók hann þá á bakið og bar hann yfirum. Hann fór hægt og varlega, og þegar þeir voru komnir næstum því yfir, sá Giska þá og hélt það vera þjófana, sem kæmu með geit. ,,Er hún feit, er hún feit?“ æpti Giska, svo bergmálaði í skóginum. 1 sama bili setti bóndinn prest niður hinumegin mýrinnar. Hann hafði heyrt Gisku kalla og bar nú hönd fyrir auga og horfði á hana. — „Æ, hvernig dettur yður það í hug, bóndi góður, að þetta sé fjandinn," sagði hann. „Þetta er hún Giska og engin önnur, nú hefir húsbóndi hennar verið að hrekkja hana. — Giska, Giska mín, komdu hingað,“ kallaði prest- ur til hennar. „Er það satt, prestur minn, er ég Giska, er ég þá ekki fjandinn.“ Og hún kom hlaupandi á harða spretti til prestins: „Af hverju er ég svona svört?“ „Æ, skyldi hann húsbóndi þinn ekki hafa málað þig svona,“ sagði prestur, en nú skulum við koma og tala við hann nokkur orð.“ Ekki veit ég hvaða orð það hafa verið, en víst er um það, að eftir þrjár vikur stóð Giska hvítþvegin fyrir altarinu með bónda sínum og datt engum framar í hug að hún væri neitt í ætt við þann gamla. Grœni riddarinn EINU sinni var konungur, sem var ekkjumaður, og hann átti eina dóttur barna, en gamalt máltæki segir, að ekkju- mannsharmur sé eins og olbogaskot, hann sé sár, en hann hjaðni fljótt, og svo gifti konungur sig aftur drottningu, sem átti tvær dætur, og þessi drottning var ekki betri, en stjúpmæður eru vanar að vera, alltaf var hún vond við stjúpdóttur sína. Þegar stjúpsysturnar voru vaxnar upp, kom stríð, og konungurinn varð að fara til þess að stjórna her eínum og berjast fyrir land og ríki. Dæturnar þrjár áttu að fá að segja, hvað konungur ætti að kaupa og koma með heim til þeirra aftur, ef hann sigraðist á óvinunum. Áttu nú stjúpdæturnar fyrst að láta óskir sínar í ljós, og bað sú eldri þá um stóran rokk úr skýru gulli, en sú yngri um svo stórt gullhesputré, að annað eins hefði aldrei sést. Þetta vildu þær fá, en það var nú ekki af því þær væru svo duglegar að vinna eða spinna, síður en svo. En dóttir konungsins sjálfs, hún vildi ekki biðja föður sinn um neitt annað, en að skila kveðju til Græna riddarans. Konungur lagði nú af stað í stríðið, og hvernig sem það nú gekk til, þá vann hann sigur, og svo keypti hann það, sem hann hafði lofað stjúpdætrum sínum, en var alveg búinn að gleyma hvað það var, sem dóttir hans sjálfs hafði beðið hann um, en svo hélt hann mikla sigurveizlu. Þar sá hann Græna riddarann, og mundi þá eftir bón dóttur sinnar og bar honum kveðju frá henni. Riddarinn þakkaði honum fyrir, hann var hinn glæsilegasti maður, og fékk honum svo bók með gull- DRÁTTHAGIBLÝANTURINN vtw MORö'dNí Mffinu . . .og hvað var það sem þú veiddir í Loch Ness? Þessi maður segist hafa fundið upp tæki sem gerir fólk ósýnilegt! Kennari einn sannaði fyrir nemendum sfnum, hve hæpið er að trúa sögum, sem ganga munnlega manna á milli. Hann tók einn nemanda sinn afsíðis og sagði honum eftir- farandi sögu: — Skömmu fyrir dagrenn- ing kaldan vetrarmorgun árið 1899 heyrðust þrjú skamm- byssuskot frá veiðisetri Rudolfs krónprins Austur- rfkis. Vinir Rudolfs brutust inn f húsið. Þeir fundu allt á tjá og tundri, vfnflöskur á gólf- inu og kvenmannsföt á bekk fyrir framan arininn. I rúm- inu Iá Rudolf klæðlaus, en skotinn gegnum höfuðið. Við hlið hans lá nakinn kven- Jæja, rigningin er þó altént heitari en heima! mannslíkami. Andlitið var hulið brúnu hári hennar. Kennarinn sagði nemand- anum að segja sessunaut sfn- um söguna, og síðan átti hvcr nemandi að segja söguna f eyra næsta manns. Kennarinn sagði sfðan tuttugasta og fjórða nemandanum að skrifa söguna á skólatöfluna. Hann skrifaði: — Fjórir karlmenn og fjórar konur fóru inn f klefa kvöld eitt, og er þau komu út aftur höfðu þau gleymt, hvers vegna þau fóru inn. X Á strfðsárunum spurði Þjóð- verji Norðmann að þvf, hvaða álit hann hefði á Bretum. — Ég vil heldur vinna fyrir Þjóðverja en Breta, svaraði maðurinn. — Já, er það ekki, sagði Þjóð- verjinn. Hvað gerirðu annars? — Ég er útfararst jóri. Moröíkirkjugaröinum Eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjóns- dóttir þýddi. 34 legri mótsögn við nábleikt andlit hennar og flóltalega brottför og svo mikill var munurinn að við vorum hálf vandræðaleg að verða vitni að þessu. Barbara greip þó fljótlega athvgli okkar á ný því að hún varpaði sér grátandi niður f næsta ha*gindastól. Einar hélt áfram að vera hinn þckkilegi ljúflingur. Hann rétti henni vasaklútinn sinn og kiappaði henni róandi á hnéð og strauk henni blfðlega um hárið. En Christer Wijk horfði hugsandi á hana og sagði sfðan: — Jæja, frú Sandell, eftii þessi ósköp held ég að þér verðið að skýra ýmislegt fyrir okkur. Nú skuluð þér bara segja hrein- skilnislega frá þvf um hvað þetfa mál snýst eiginlega. Barbara snýtti sér í vasaklút Einars og hnipraði sig skjálfandi saman í stólnum. — Er nokkur sem á...? Takk fyrir. Hún þreif áfergjulega sígarettuna, sem henni var rétt og sogaði að sér reykinn. — Já, ég skal reyna að segja ykkur allt af létta, nákvæmlega eins og Arne lýsti því margsinnis fyrir mér. Þið skiljið... ég var ekki þarna, svo að ég get auðvitað ekki tekið ábyrgð á því, hvorl Arne hefur ýkt þetta smávegis eða kannski misskilið eitthvað. En ég veit eitt fyrir vfst og það er að Arne var ákaflega æstur þegar hann talaðí um þetta og þetta hafði snortíð hann mjög illa. Hún horfði sínum grænbrúnu augum framhjá okkur öllum og starði á eitthvað sem löngu var liðið. — Það var sfðast í júní 1948. Ég var einkaritari Gerhards Motander. Þetta var áður en ég trúlofaðist Arne. Ég man að for- stjórinn kom ekki á fund sem hann átti að mæta á I verksmiðj- unni, svo að ég hringdi heím til hans. Tekla Motander kom f sfmann og var ákaflega stutt f spuna og sagði það eitt að maður- inn hennar væri veikur og hann kæmi ekki til Kila þcnnan dag. Þá var klukkan tíu fyrir hádegi. Klukkan ellefu um kvöldið hringdi frú Motander heim til Arnes og pantaði bfl til að aka forstjóranum inn til bæjarins, því að hún sagði að hann hefði orðið veikur og yrði að komast á sjúkra- hús. Þegar Arne kom þangað var forstjórinn meðvitundarlaus og hann varð að bera hann út f bif- reiðina. Arne varð skelkaður og spurði hana, hvort hún hefði ekki kallað á lækninn. Tekla staðhæfði að engin alvarleg sjúkdómscin- kenni hefðu komið I Ijós fyrr en um hálf ellefu leytið. Hún sagðist hafa reynt árangurslaust að ná í lækninn f Kila, en þegar það tókst ekki hefði hún hringt beint á sjúkrahúsið. Þar hafði mönnum dottið f hug að um bráða botnlangabólgu væri að ræða og henni var ráðlagt að koma strax með hann til spftalans. Já, og svo lögðu þau sem sagt af stað... Barbara hafði gleymt sfgarettunni sinni og askan hrundi niður á svarta kjólinn hennar. — Bfllinn, scm Arne átti þá, var frekar lítill og það var engin glerrúða milli bflstjórasætis og aftursætis. Á leiðinni rumskaði forstjórinn við sér og fór að tala og enda þótt Arne hefði verið allur af vilja gerður gat hann ekki að þvf gert þótt hann heyrði hvað hann sagði. Og eftir þvf sem Arne sagði var það ýmislegt mjög skrftið. Hann sagði skýrt og skil- merkilega: — Jæja, svo að þú hefur sent eftir bfl, Tekla. En nú er það of seint og það veiztu vel. Ertu nú ánægð, nú fer þetta allt cins og þú hefur alltaf verið að hugsa þér? Já, og annað gerðist ekki nema það að forstjórinn dó áður en þau komust til sjúkrahússins. Botnlanginn hafði sprungið. Læknirinn var fokvondur yfir þvf að ekki hefði verið komið með hann fyrr, en Tekla grét hástöf- um og sagði að hún hefði haldið allan daginn að þetta væri bara væg magakveisá og honum hefði ekki liðið neitt sérstaklega illa. En... eins og þið heyrðuð hana segja hafði hún ekki hrcinní sam- vizkn en það að skömmu sfðar grátbað hún Arne að segja aldrci frá þvf sem hann hafði heyrt for- stjórann segja f bflnum. Stund- um... stundum hvarfiaði að mér að hún hefði boðið honum peninga til að þegja, en það er bara mfn hugmynd og ég hef ekk- ert fyrir mér f þvf... Hún kom hægt aftur til nútfðar- innar, uppgötvaði öskuna á kjóln- um sínum, dustaði hana burtu og sneri sér síðan að Christer Wijk. — Orð dcyjandi manns, sagði hann hægt. — Það er ekki hægt að byggja neitt á þvf. — Komst maður yðar þá aldrei að þvf hvað gerzt hafði heima hjá Motander- hjónunum fyrr um daginn? Ef forstjórinn hefur veikzt alvarlega hljóta einhverjir aðrir á heimilinu að hafa tekið eftir ein- hverju — Susann, og vinnufólk- ið? — Susann var erlendis þegar þetta gerðist. Og sfðasta dag júnf- mánaðar var vinnustúlkan f frfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.