Morgunblaðið - 15.11.1975, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975
Grótta—Þróttur
S-
Haukar—A rmann
leika í 1. deild um helgina
NÚ UM helgina fara fram tveir leikir
I 1. deildar keppni karla í handknatt-
leik. Verða þeir leiknir I Íþróttahúsi
Hafnarfjarðar annað kvöld og eru þar
lið Gróttu og Þróttar sem eigast við
annars vegar og lið Hauka og Ár-
manns hins vegar. Það er sem sagt
aðeins eitt af toppliðunum sem
verður í baráttunni um helgina ef
það er þá hægt að tala um einhver
lið sem topplið. Sú staða virðist vera
komin upp I mótinu, að ekkert lið er
öruggt með sigur í leik við annað, og
Ijóst má vera að margir eru kallaðir,
þótt aðeins einn verði útvalinn þegar
upp verður staðið að lokum.
Búast má við harðri viðureign í
leik Gróttu og Þróttar, en lið þessi
eru tvímælalaust nokkuð áþekk að
getu. Eftir góðan sigur Gróttumanna
i tveimur síðustu leikjum sínum, er
líklegra að veðja á þá sem sigurveg
ara í leiknum annað kvöld, en hinu
má þó ekki gleyma að hinir „stóru"
hafa átt í erfiðleikum með Þróttar-
liðið að undanförnu, en Þrótturunum
fer tvímælalaust fram við hvern leik
og álíta sjálfsagt að þeir séu að
berjast fyrir lífi sínu í 1. deildinni, er
þeirmæta Gróttumönnum.
Haukarnir eru sigurstranglegra liðið
i leiknum við Ármann, en leiki þeir
hins vegar ekki betur en þeir gerðu á
móti Gróttu um fyrri helgi getur
brugðið til beggja vona.
Leikur Gróttu og Þróttar hefst kl.
20.05 og skráðir dómarar á hann eru
Jón Friðsteinsson og Gunnlaugur
Hjálmarsson, en leikur Hauka og
• Ármanns hefst kl. 21.20 og skráðir
dómarar eru Kristján Örn Ingibergs-
son og Kjartan Steinbech.
2. deild:
Fjórir leikir fara fram I 2. deild
karla um helgina. allir hér syðra
Akureyrarliðið Þór kemur i heimsókn
og leikur við Leikni i Laugardalshölt-
inni kl. 18.00 i dag, og við ÍBK í
Njarðvikum á morgun kl. 13.00. Þá
leika ÍR og ÍBK i Laugardalshöllinni
kl. 21.10 á morgun og UBK og Fylkir
leika i Iþróttahúsinu Ásgarði i Garða-
hreppi kl. 17.10.
1. deild kvenna:
Aðeins einn leikur hefur farið fram
I 1. deildar keppni kvenna. en um
helgina verður töluvert um að vera á
þessum vettvangi — fjórir leikir.
Verða þeir eftirtaldir:
SUNNUDAGUR:
Garðahreppur kl. 15.00:
UBK — VÍKINGUR
Laugardalshöll kl. 19.00:
FRAM — ÁRMANN
Laugardalshöll kl. 20.05:
VALUR — IBK
Hafnarfjörður kl. 19.00:
FH — KR
Aðrir leikir
Aðrir handknattleiksleikir helg-
arinnar verða eftirtaldir:
SUNNUDAGUR:
Njarðvfk kl. 14.15:
UMFG — ÞRÓTTUR
(2. deild kvenna)
Njarðvfk kl. 15.15:
UMFN — FYLKIR
(2. deild kvenna)
Garðahreppur kl. 16.05:
STJARNAN — lR
(2. deild kvenna)
Framhald á bls. 23
Ali
MUHAMMAD AIi, hcimsmoislarinn f
hncfalcikum þungavigtar, hefur ákvcðið
að kcppa við landa sinn, Duanc Bobick, 7.
fcbrúar n.k. og Icggur hann titil sinn að
vcði. Kcppnin á að fara fram í Miinchcn
og fær Ali 1,5 milljðnir dollara f sinn
hlut fyrir lcikinn.
Duanc Bobick cr aðcins 22 ára og hcfur
hann aldrci tapað lcik sfðan hann gcrðist
atvinnumaður f hncfalcikum. Hann mun
fá 350.000 dollara í sinn hlut fyrir lcik-
inn, auk þcirrar frægðar scm fylgir þvf
að kcppa við hcimsmcistarann.
Sklðafólkið unga er heldur nú utan til Olympíuæfinga: Fremri röð frá vinstri: Steinunn Sæmundsdóttir,
Hafþór Júlíusson, Sigurður Jónsson, Margrét Baldvinsdóttir. Efri röð: Haukur Jóhannsson og Árni
Óðinsson.
ÓiympíuUmdsttðið á ungttnga-
fargjöldum tillnnsbruck í dag
SEX úr hópi fremsta skfðafólks
landsins heldur í dag til Austur-
ríkis þar sem dvalist verður við
æfingar, keppni og annan undir-
búning fyrir Ólympfuleikana 1
Innsbruck, sem hefjast I febrúar
á næsta ári. 1 viðbót við þau 6 sem
fara utan I dag bætast svo tvö við
þegar komið verður til Austur-
rfkis, þau Jórunn Viggósdóttir og
Tómas Leifsson. Þau sem fara I
dag eru þau Árni Óðinsson,
Haukur Jóhannsson, Sigurður
Jónsson, Hafþór Júlíusson, Stein-
unn Sæmundsdóttir og Margrét
Baldvinsdóttir. Allt er þetta ungt
fólk og svo sannarlega efnilegt í
sinni fþrótt. Árni Óðinsson er
elztur I hópnum liðlega 25 ára.
Hin öll eru 22 ára eða yngri,
þannig að stærsti hluti Ólympfu-
liðsins flýgur utan á unglingafar-
gjöldum. Tveir göngumenn munu
svo æfa f Noregi næstu vikurnar.
Reykjavíkurstúlkan Steinunn
Sæmundsdóttir er yngst í hópn-
um, aðeins 15 ára. Árni er elztur
eins og áður sagði og verður hann
fjárhaldsmaður hópsins meðan á
heim úr þessari rúmlega mánaðar
keppnis- og æfingaferð. Þess má
geta að enginn væntanlegra
olympíuþátttakenda hefur áður
r \
10 fremstu skíðamenn
landsins verða við œf-
ingar ytra fram að jóhun
ferðinni stendur, en reiknað er
með að hópurinn komi heim rétt
fyrir jól. Austurrfkismaðurinn
Kurt Jenni tekur á móti hópnum
í Innsbruck og mun hann þjálfa
hópinn meðan á ferðinni stendur
og annast á sjálfum Ólympíu-
leikunum. Endanlegt olympíulið
Islands á skíðum verður valið
fljótlega eftir að komið verður
Islandsmótið í handknattleik
STAÐAN f íslandsmótinu f hand- Geir Hallsteinsson, FH 15(6)
knattleík er nú þessi: Stefán Gunnarsson, Val 15(6)
1. deild: Viðar Simonarson, FH 15(6)
Valur 6 4 11 122:91 9 Hörður Sigmarsson,
FH 6 4 0 2 124:113 8 Haukum 14(5)
Haukar 5 3 11 89:78 7 Jón Karlsson, Val 14(6)
Víkingur 6 3 0 3 124:123 6 Ólafur Benediktsson, Val 14(6)
Fram 6 2 2 2 94:94 6 Viggó Sigurðsson, Vikingi 14(6)
Grótta 5 2 0 3 87:94 4 Guðjón Erlendsson, Fram 13(6)
Ármann 5 113 69:97 3 Jóhannes Stefánsson, Val 13 (6)
Þróttur 5 0 14 77:97 1 Pétur Jóhannesson, Fram 13(6)
Markhæstir Brottvísanir
Eftirtaldir leikmenn eru mark- af velli:
hæstir i 1 . deild: Brottvisanir af velli hafa i verið
Páll Björgvinsson, Vfkingi 41 þannig:
Hörður Sigmarsson, Haukum 34 Vikingur
37 mfn.
Pálmi Pálmason, Fram 33 FH 35 mfn.
Viðar Sfmonarson, FH 29 Fram 30 mín.
Friðrik Friðriksson, Þrótti 28 Haukar 25 mfn.
Þórarinn Ragnarsson, FH 27 Ármann 24 mín.
Geir Hallsteinsson, FH 26 Grótta 21 mín.
Björn Pétursson, Gróttu 26 Þróttur 14 mín.
Jón Karlsson, Val 25 Valur 2 mín.
Jón Pétur Jónsson, Val 23 Þeir sem oftast hefur verið
Stefán Halldórsson, Vfkingi 23 vfsað af velli, eru:
Viggó Sigurðsson, Vfkingi 21 Ingimar Haraldsson,
Stefán Gunnarsson, Val 18 Haukum 11 min.
Elías Jónasson, Haukum 16 Andrés Bridde, Fram 9 min.
Arnar Guðlaugsson, Fram 15 Geir Hallsteinsson, FH 9 min.
Kjartan Gíslason, Fram 15 Hörður Kristinss., Ármanni 9 mín.
Stighæstir Pétur Jóhannesson. Fram 9 min.
Eftirtaldir leikmenn eru stig Misheppnuð
hæstir f einkunnagjöf Morgun- vitaköst:
blaðsins: Misheppnuð vitaköst skiptast
Páll Björgvinsson. Vikingi 18(6) þannig milli liða:
Pálmi Pálmason, Fram 18 (6) Þróttur 9
Elias Jónasson, Haukum 16 (5) Ármann 7
Jón Pétur Jónsson, Val 16(6) FH 6
Vikingur
Valur
Fram
Grótta
Haukar
Varin vítaköst:
Eftirtaldir markverðir hafa varið
flest vftaköst:
Birgir Finnbogason, FH
Gunnar Einarsson, Haukum
Marteinn Árnason, Þrótti
Ragnar Gunnarsson, Ármanni
Rósmundur Jónsson, Vikingi
Sigurgeir Sigurðsson, Víkingi
2 deild:
Staðan i 2. deild er nú þessi:
KA
KR
f R
Þór
Fylkir
Leiknir
ÍBK
UBK
108:91
74:59
43:34
64:62
28:34
57:64
30:34
27:53
Markhæstir:
Ef tirtaldir leikmenn eru nú
markhæstir i 2. deild:
Simon Unndórsson, KR 23
Þorleifur Ananiasson, KA 21
Ármann Sverrisson, KA 20
Hafliði Pétursson, Leikni 18
Hiimar Björnsson, KR 18
Halldór Rafnsson, KA 18
Sigtryggur Guðlaugsson, Þór 18
Hörður Hilmarsson, KA 16
Sigurður Sigurðsson, KA 16
Benedikt Gunnarsson, Þór 15
tekið þátt í Ólympíuleikum, en
hins vegar tóku þeir Árni og
Haukur þátt í Heimsmeistara-
keppninni 1974.
MIKILL KOSTNAÐUR
OG VJNNUTAP
Skíðaíþróttin er dýr fyrir þá
sem vilja halda sér í fremstu röð.
Fyrir utan allan kostnað vegna
útbúnaðar við íþróttina þá eru
gífurlega kostnaðarsöm ferðalög
nauðsynleg og af því leiðir svo
virinutap. Til að mynda hafa þeir
Haukur og Árni sennilega verið
um fjóra mánuði frá vinnu á
þessu ári þegar dæmið verður
gert upp um áramót. Kostnaður
við æfingaferðina er á þriðju
milljón króna og hyggst Skíða-
sambandið meðal annars afla þess
fjár með happdrætti sem nýlega
var hleypt af stokkunum
ÞRIDJA BEZT 1 NOREGI
Þau Jórunn Viggósdóttir og
Tómas Leifsson hafa verið ytra
við æfingar að undanförnu eins
og áður sagði. Hefur Jórunn verið
í gósenlandi skíðamanna á
þessum árstíma, Italíu og Austur-
ríki. Hefur hún meðal annars æft
með norska skíðalandsliðinu og
við tímatökur hefur hún náð
þriðja bezta tíma „norska“ lands-
Iiðsins og er það mjög góður
árangur þegar haft er í huga
hversu sterku kvennaliði á
skíðum Norðmenn hafa yfir að
ráða.
GÖNGUMENNIRNIR LÍKA
UT TIL ÆFINGA
Halldór Matthíasson hefur ekki
gert annað í vetur en að æfa sig
fyrir Ólympiuleikana og meðal
annars æft með sænska skíða-
landsliðinu í Kiruna i N-Sviþjóð.
Hann er nú kominn til Osló og þar
hittir hann Trausta Sveinsson úr
Fljótum á sunnudaginn. Munu
þeir félagarnir síðan æfa saman
ásamt norskum göngumönnum í
um mánaðartima að minnsta
kosti.
Af þeim hópi ólympíukandidata
Framhald á bls. 23
KörfuKnattielkur
AÐEINS einn leikur verður leikinn I
1. deild I dag, leikur jS og Ármanns,
sem hefst I Kennaraháskólahúsinu I
dag kl. 17. Ármenningar eru fyrir-
fram álitnir sigurstranglegri, en fjar-
vera einhverra af toppmönnum
þeirra, sem eru ókomnir heim frá
Finnlandi, gæti gefið ÍS möguleika
ef þeir leika góðan leik.
Þetta er fyrsti leikur liðanna í 1.
deild en honum var frestað um s.l.
helgi vegna Finnlandsferðar Ár-
manns. — Kvenfólkið úr Þór og
UMFS leikur I íþróttaskemmunni á
Akureyri i dag kl. 16, og siðan er
leikur KA og Tindastóls f 3. fl.
Á morgun fer svo fram á Akureyri
mjög mikilvægur leikur í 2. deild, þar
leika Þór og UMFS, liðin sem flestir
spá sigri f mótinu.
Þessi leikur hefst kl. 14, og verður
án efa hörkuspennandi. Að honum
loknum leika Tindastóll og USVH i 3.
deild, siðan Þór og Tindastóll i 3. fl.
— Þá eru leikir i yngri flokkunum i
Hafnarfirði á morgun, og hefjast þeir
kl. 13.
Blak
ÞRÍR leikir verða i 1. deild is-
landsmótsins i blaki um helgina
og er ÍMA annar aðilinn i þeim
öllum. í dag leika þeir við UMFL
á Laugarvatni og hefst leikurinr
kl. 16:00. Á morgun leikur ÍMA
tvo leiki. Kl. 14:00 leika þeir við
UMFB á Laugarvatni og siðan við
Viking kl. 21:00 og verður sá
leikur i Árbæjarskólanum. ÍMA
menn gera það af illri nauðsyn að
leika þrjá leiki i einni ferð, en
tvær ferðir til Reykjavíkur fyrir jól
var of mikið fyrir þá. ÍMA er ekki
liklegt til að vinna leik i þessari
ferð nema ef vera skyldi gegn
UMFB, en sá leikur ætti að geta
orðið nokkuð spennandi og lík-
legt að ÍMA leggi allt kapp á að
vinna þann leik. Hætt er við að
norðanmenn verði orðnir þreyttir
er þeir loks mæta Vikingum á
sunnudagskvöld, en hvað er ekki
gert nú á siðustu og verstu
timum til að spara. — Einn leikur
verður i 2. deild og verður hann á
Laugarvatni milli Stiganda og
Skautafél. Reykjavikur, en i þvi
liði munu vera nemendur MH.
Hefst leikurinn kl. 15.