Morgunblaðið - 03.01.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1976
13
CIA neitar að hafa
sent menn til Angóla
Washington 2. janúar AP — Reuter.
BANDARÍSKA leyniþjónustan
CIA gaf ( dag út yfirlýsingu, þar
Brezkur íhalrtsjnn^maAur:
Hvetur til
nýrra landhelg-
isviðræðna
London, 30. desember.
Cinkaskeyti til Mbl. frá AP.
BREZKI þingmaðurinn
Michael Brothertan (Ihalds-
flokknum) hvatti ( dag til þess
að hafnar yrðu „gamlar og
góðar diplómatfskar þreifanir
bak við tjöldin" milli
(slenzkra og brezkra valdhafa
til að binda endi á fiskveiði-
deiluna. Brotherton sagði
þetta er hann hitti Niels P.
Sigurðsson, sendiherra tslands
( London, sem tjáði þing-
manninum hins vegar að
(slenzka rfkisstjórnin myndi
ekki taka ( mál að hefja nýjar
samningaviðræður fyrr en
Bretar kölluðu freigáturnar út
úr 200 mdunum. Brotherton
sagði fréttamönnum eftir
fundinn: „Aðaltilgangur
heimsóknar minnar (sendiráð-
ið var að leggja á það áherzlu
við sendiherrann hversu brýn
þörf er á nýjum viðræðum. Ég
trúi ekki að við þurfum að
bfða eftir þvf að manntjón
verði áður en við getum setzt
aftur að samningaborðinu."
Brotherton sagði að mesti
vandinn væri, sá að fslenzka
rfkisstjórnin hefði tekið
ósveigjanlega afstöðu.
sem sagði að fréttin í Bostonblað-
inu Christian Science Monitor
um að CIA hefði þjálfað og sent
300 fvrrverandi bandaríska her-
menn til Angóla, væri hreinn
uppspuni. Talsmenn Hvfta húss-
ins, varnarmálaráðunevtisins og
utanrfkisráðuneytisins báru
þessa frétt einnig algerlega til
baka. I frétt blaðsins sagði einnig
að 300 menn hefðu hlotið þjálfun
til viðbótar og biðu þess að verða
sendir til Angóla.
Frétt þessi kemur í kjölfar sjón-
varpsviðtals fyrir nokkrum dög-
um við menn, sem sögðust hafa
barizt í Vietnam, og héldu því
fram, að þeir hefðu undirritað
samning um að fara til Angóla og
berjast.
Ford Bandarikjaforseti og
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra hafa báðir lýst opinberlega
áhyggjum sínum með þróun mála
í Angóla, einkum þætti Sovétríkj-
anna og Kúbumanna í aðstoð við
marxistahreyfinguna MPLA.
Hafa þeir gefið skýrt til kynna, að
Bandarfkjamenn muni eftir
mætti aðstoða andstæðinga
MPLA f baráttunni, UNITA og
FNLA, en lagt höfuðáherzlu á að
Bandaríkin muni ekki senda
menn, aðeins fjárhagslega aðstoð.
Hafa Bandaríkjamenn þegar veitt
32 milljónir dollara til FNLA og
UNITA.
Ron Nessen, blaðafulltrúi
Fords forseta, neitaði í dag að
svara spurningum fréttamanna
um hvort verið væri að þjálfa
menn af öðru þjóðerni en banda-
rísku til að senda til Angóla.
Vilja nýja rannsókn
á morði dr. Kings
Now York 2. janúar AP-Reuter.
FRÉTTADEILD bandarfsku sjón-
varps- og útvarpsstöðvarinnar
CBS hefur hvatt til þess að ný
rannsókn fari fram á morði
bandarfska blökkumannaleið-
togans Martins Luther Kings, sem
myrtur var 1968. I heimildamynd
um morðið í Memphis er sagt, að
það séu svo margar spurningar f
samhandi við mál þetta, sem ekki
hafi fengizt fullnægjandi svör
við, að það réttlæti nýja rann-
sókn.
Fréttamaðurinn Dan Rather,
sem stjórnaði rannsókn CBS á
málinu í sambandi við gerð
myndarinnar, segir að það sé ekki
fullsannað, að James Earl Ray,
sem dæmdur var í 99 ára fang-
elsi fyrir morðið, hafi verið
einn að verki. Ray sjálfur hef-
ur tekið játningu sína aftur og
farið fram á nýja málsrann-
sókn. Rather segir, að eng-
in vitni hafi verið að því að
skotið var á King, engin rjúkandi
byssa hafi fundizt og enginn
getur bent á mann, sem flúði af
staðnum. Þá hefur ekki verið
sannað að fullu hverjar forsendur
Ray hafi haft fyrir morðinu og
játning hans, sem tekin hafi verið
sem fullgild sönnun á sekt, hafi
verið dregin til baka, þremur dög-
um eftir að dómur féll. Fór Ray
þegar fram á ný réttarhöld og
verður tekin afstaða til kröfu
hans innan skamms. Segir CBS,
að aðeins opinber rannsóknar-
nefnd geti gengið úr skugga um
hvort ym samsæri hafi verið að
ræða eða ekki.
1 AP-myna
FORD A HAUSNUM — Ford Bandarfkjaforseti er léttur f lund þótt
pann hafi farið á hausinn f skfðaiðkunum sfnum f Vail f Colorado-fylki
um jólin. Til taks vinstra megin á myndinni er þó öryggisvörður, en til
hægri er skfðakonan Susie Patterson.
‘J Feel Vvc Forgotten Somethirig...’
‘Oh, Ycs.'
Myndin táknar samskipti Gandhis við fjölmiðla f Indlandi. „Eg hef gleymt einhverju, já þessu," segir
forsætisráðherrann og ber f jölmiðlana niður með offorsi.
Indira frestar kosningum og
boðar stjómarskrárbreytingar
Nýju-Delhi 2. janúar AP — NTB.
LANDSFUNDUR indverska
Kongressflokksins, flokks Indiru
Gandhis forsætisráðherra, sam-
þvkkti um helgina að nevðar-
ástandið f landinu, sem lýst var
yfir 26. júnf 1974, skvldi gilda
áfram um óákveðinn tíma og sam-
þvkkti einnig tillögur rfkisstjórn-
arinnar um að fresta nýjum þing-
kosningum f landinu.
I ræðu á fundinum gaf forsætis-
ráðherrann ákveðið til kynna að
umfangsmiklar breytingar yrðu
gerðar á stjórnarskrá landsins. Er
búizt við að frú Gandhi muni
leggja fram á næstunni tillögur
um stjórnarskrárbreytingar, en
þingfundir hefjast að nýju á
mánudag. Talið er hugsanlegt að
breytingartillögurnar hafi í för
með sér að upp verði tekið for-
setavald svipað og nú er í Frakk-
landi. Frú Gandhi lýsti því yfir í
nýársræðu sinni, að hún teldi að
þingið hefði fulla heimild til að
gera stjórnarskrárbreytingar án
þess að leggja þær undir þjóðar-
atkvæðagreiðslu, eða láta kjósa
sérstakt stjórnarskrárþing. I
ræðu sinni gagnrýndi frú Gandhi
harðlega ónefnd erlend öfl, sem
reyndu að vera með íhlutun í
indversk innanríkismál og sagði
að enn væru uppi öfl, sem reyndu
að skapa óróa og öngþveiti í Ind-
landi og yfirlýst neyðarástand
hafði bjargað Indlandi frá öng-
þveiti sem því, sem ríkti i
nágrannaríkinu Bangladesh í
kjölfar erlendrar íhlutunar.
Eldhafið gaus upp á
nokkrum sekúndum
La Louviere, Belgíu 2. janúar AP.
BLÖÐ f Belgfu krefjast f dag
stóraukins eldvarnareftirlits f
landinu í kjölfar brunans í litlu
veitingahúsi á gamlárskvöld, sem
kostaði 15 ungmenni lffið og 33
brenndust, sum mjög alvarlega.
Slökkviliðsmenn segja að veit-
ingahúsið hafi verið hrein eld-
gildra og að bent hafi verið á
fyrir þremur árum, að slökkvi-
búnaði og nevðarútgöngum hafi
verið mjög áhótavant, en engar
úrbætur hafi verið gerðar. Húsið
var troðfullt, er eldurinn kom
upp og varð alelda á aðeins þrem-
ur mfnútum og ægileg skelfing
greip um sig meðal gesta. Einn
þeirra, sem komust lffs af, sagði
að það hefði komið eins og
smáblossi við afgreiðsluborðið,
en sfðan hefði salurinn orðið al-
elda á að því er virtist örfáum
sekúndum.
Hefur eigandi hússins nú verið
ákærður fvrir manndráp.
■ ■■ '
\f/
ERLENT .
4-
Nýtt námskeið
hefst aftur 5. janúar
6 vikna tvisvar til fjórum sinnum í viku. Dag- og
kvöldtímar. Sauna, sturtur, sápa, sjampó, gigtar-lampi,
háfjallasól, olíur og hvíld, nudd, vigtun, og matarkúr.
Sentimetramál tekið.
Sérstakt megrunarnámskeið 4 sinnum í viku
með verðlaun
sólarferð með Flugfélagi Íslands.
Mjög góður árangur hefur verið á þessum námskeiðum.
Æskilegt væri að pantaðir tímar væru ítrekaðir 4. janúar
milli kl. 2 og 5, og verður þá opið, einnig er hægt
'að hringja í síma 42360. Nýir nemendur láti innrita sig
í síma 42360, 31486 og 43724.
eba
Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360