Morgunblaðið - 03.01.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1976
27
Banaslys í umferðinni
aldrei fleiri en 1975
A ÁRINU 1975 urðu 30 banaslys f
umferðinni hér á landi og f þeim
létust 33 manns segir f tilkynn-
ingu frá Umferðarráði. Þetta er
tveimur færra en segir í skýrslum
Siysavarnafélags Islands og birt-
ust hér f blaðinu á gamlársdag,
en skráning slysa er gerð með
mismunandi hætti hjá þessum
tveimur stofnunum.
Samkvæmt tilkynningu Um-
ferðarráðs hafa því 13 fleiri látist
á síðasta ári en 1974 en þá létust
20 manns í umferðarslysum á ís-
landi. Hafa aldrei fleiri látist á
einu ári í umferðarslysum frá því
skráning umferðarslysa fyrir allt
landið var tekin upp. Flest hafa
Sprengiefn-
ið fundið
SPRENGIEFNIÐ, sem stolið var
úr vinnuskúr í Kópavogi um jólin,
er komið í leitirnar. Tveir piltar,
18 og 20 ára, voru handteknir á
gamlársdag vegna málsins og
viðurkenndu þeir þjófnaðinn. Er
sprengiefnið komið í leitirnar.
Piltarnír voru báðir úrskurðaðir í
allt að 20 daga gæzluvarðhald á
meðan rannsókn málsins fer
fram, en hana annast rannsóknar-
lögreglan í Kópavogi.
Datt í stiga
og skarst illa
LÖGREGLAN var kölluð að húsi
einu í Breiðholti á nýársdags-
morgun klukkan 8. Maður nokkur
hafði verið á leið heim til sín úr
veizlu en svo illa tókst til að hann
datt í stiga og skarst allmikið á
kviði þegar flaska sem hann var
með í beltinu brotnaði. Maðurinn
féll ekki einu sinni heldur tvisvar
og jukust ákverkarnir við seinni
byltuna og skarst hann þá m.a. á
fæti. Hann var fluttur á slysa-
deild, en var ekki talinn lífs-
hættulega slasaður.
Fundið mynd-
riss eftir
Michelangelo
Flirens 2. janúar — Reuter
DRÖG að mvndum, sem talin
eru eftir meistarann
Michelangelo, hafa fundizt á
veggjum kjallara eins undir
Medici-kapellunum í Flórens,
að þvf er embættismenn
borgarinnar upplýstu f dag.
Rissið sem fannst undir
tveimur lögum af gifsi, er
meðal annars af tveggja metra
hárri mynd af Kristi upprisn-
um, tveimur englum og all-
margar myndir af
mannslfkamanum. Talið er að
myndrissið hafi verið gert
milli 1520 og 1530.
Michelangelo byggði hluta af
kapellunni á sfnum tfma, svo-
kallaða „nýja skrúðhúsið“, og
gerði höggmyndir f Medici-
grafhvelfingarnar þar.
—Aflaaukning
Framhald af bls. 1
árangurinn hlytiaðverðatakmark-
aður gagnvart herskipum. „Hins
vegar erum við ekki síður
þrjózkir en Bretar og þetta kallar
alls ekki á að við setjumst að
samningaborði með þeim. Að
mínu áliti munum við ekki ræða
við þá á meðan herskip eru innan
200 mílna lögsögunnar Við
verðum því að þreyja þorrann og
góuna og vona jafnframt að haf-
réttarráðstefnan í New York færi
okkur sigurinn. Þá hefur okkar
barátta borið árangur."
banaslys áður orðið árið 1973 en
þá létust 25 manns í 24 slysum.
Þótt endanlegar tölur liggi ekki
fyrir um fjölda meiri og minni
háttar slysa í umferðinni er þó
ljóst að í ár verður minnst fjölgun
umferðarslysa milli einstakra ára
og þarf að leita allt til ársins 1967
til þess að finna samanburð.
Meðalaldur þeirra er Iátist hafa
á þessu ári eru 35.5 ár. Er það
svipaður meðalaldur og árið 1974
en þá var hann 33 ár. 16 banaslys
hafa orðið í þéttbýli á móti 11
slysum árið 1974 en 14 í dreifbýli
á móti 9 banaslysum 1974. 9
dauðaslysanna (10 látnir) urðu í
Reykjavík. 1974 létust 9 manns í 9
slysum í Reykjavík. Karlmenn
eru í miklum meirihluta þeirra
sem látist hafa eða 24, en konur
eru 9. Af þeim 33 er létust eru 4
börn 14 ára og yngri — 10 vorú
ökumenn bifreiða, 7 farþegar, 11
gangandi vegfarendur, 2 öku-
menn vélhjóla og 3 hjólreiða-
menn. Af 30 banaslysum áttu 8
sér stað við árekstur, 10 við bíl-
veltu, ekið var á 11 gangandi veg-
farendur og einn féll af reiðhjóli.
Á þeim 10 árum sem nú eru
liðin frá því fyrst var farið að skrá
umferðarslys á íslandi, eða árið
1966, hafa 199 manns látist í 185
umferðarslysum. Auk ofan-
greindra 33ja manna hafa 3 aðrir
látist í slysum þar sem ökutæki
átti aðild að, en slys þessi falla
ekki undir reglur um skráningu
umferðarslysa.
Það er eftirtektarvert, að bana-
slys í umferð eru Iangt undir
meðallagi fyrstu mánuði ársins
1975. Þannig er tala látinna 3
fyrstu 5 mánuði ársins, frá janúar
tii maí, en síðustu 7 mánuði
ársins, frá júní til desember látast
30 manns í umferðarslysum.
• •
— Ongþveiti
Framhald af bls. 1
til verzlunareigenda um að snúa
aftur til búða sinna til að leita að
fleiri spengjum. Miðborgin hvarf
að mestu i reyk er eldar kvikn-
uðu, og slökkvibifreiðar urðu að
mjakast hægt gegnum umferðar-
þröngina sem skapaðist. Maður
einn sem kvaðst vera fulltrúi
öfgahóps eins irska sjálfboðaliðs-
ins, hringdi til stöðva BBC í
Belfast og sagði að hópur þessi
bæri ábyrgð á sprengingunum.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
portúgölskum vinum sínum og
unnið á samyrkjubúi.
Allmargir hermenn og lögreglu-
menn særðust i svipuðum óeirð-
um í gærkvöldi fyrir ofan Caxias-
fangelsið nærri Lissabon, þar sem
aðrir vinstri menn hafa verið í
haldi undanfarnar vikur, að því
er talsmaður hersins sagði.
Ofbeldisaðgerðirnar í gær vöktu
að nýju athygli á hinum djúp-
stæðu átökum sem enn eru undir
niðri í þjóðlífi Portúgals.
Viðræður eiga að hefjast í
næstu viku milli stjórnmálaflokk-
anna og hersins um skiptingu
valdsins milli hersins og borgara-
legrar stjórnar sem mynda á eftir
kosningar til löggjafarþings
næsta vor. Talið er líklegt að
borgaralegir stjórnmálaflokkar
muni eftir þessar viðræður fá
mun meira vald en gert var ráð
fyrir í sáttmála þeim sem flokk-
arnir og hreyfing hersins undir-
rituðu í apríl s.l. Þá er þess vænzt
að áður en langt um líður muni
núverandi stjórn Pinheiro de
Azevedos, forsætisráðherra,
lenda í erfiðleikum vegna hinna
ströngu ráðstafana sem hún hefur
tilkynnt til að reyna að koma
efnahag landsins í betra horf. Að-
gerðirnar sem að nokkru leyti
tóku gildi fyrir jól hafa þegar
hleypt benzínverði upp, svo og
fargjöldum með almenningsvögn-
um, söluskatti á fjölda vara,
afnotagjöldum á sjónvarpi o.fl.
Laun eru fyrst þar til í febrúarlok
og búizt er við miklum verðhækk-
unum á næstunni.
Flestir látast í október, 7 manns
en 5 manns létust í júní og des-
ember og 4 létust í september og
nóvember.
— Skákin
Framhald af bls. 28
verið vanhugsaður. Kortsnoj
hafði hvítt og valdi kóngsind-
verska vörn og mátti Guð-
mundur gefast upp eftir 25
leiki. Guðmundur á biðskák
við Bretann Miles úr 3. umferð
og fór hún aftur í bið i gær-
morgun. Kvaðst Guðmundur
vera að reyna að kreista vinn-
ing út úr skákinni. Næst teflir
Guðmundur við Stean, því
næst við Kaplan og síðan við
Hort. Stórmeistararnir Bron-
stein, Kortsnoj og Uhlmann
eru efstir eftir 4 umferðir með
3 vinninga en Guðmundur er
með 1 vinning og biðskák þar
sem hann hefur vinningslikur.
Hún átti að teflast áfram í gær-
kvöldi. Guðmundur sagði að
hann hefði þreytzt við að tefla
biðskákina í gærmorgun og þvf
verið í heldur litlú stuði þegar
hann settist að skákinni gegn
Kortsnoj.
Á mótinu 1 Hallsberg eru 38
þátttakendur. Margeir var í
efsta sæti framan af en í 6.
umferð tapaði hann fyrir mjög
sterkum júgóslavneskum pilti,
Barlov. 1 gærkvöldi átti hann
að tefla við Rússann Vladimir-
ovic. Tefldar eru 9 umferðir og
var Margeir ánægður með
frammistöðu sina til þessa þeg-
ar Mbl. ræddi við hann í gær,
taldi hana betri en hann hefði
átt von á.
Helgi Ölafsson, sem er Norð-
urlandameistari unglinga, hef-
ur staðið sig mjög vel og er
kominn í úrslitaflokk á EM
vinninga og biðskák eftir 6 um-
ferðir. Biðskákin er við Hol-
lendinginn Van der Stern, en
þeir tefldu saman í gær.
Kochiev frá Sovétríkjunum er
efstur á mótinu með 4 vinn-
inga og biðskák.
— Óspektir
Framhald af bls. 2
-fulltrúar barnaverndarnefndar
hefðu verið á stöðinni allan tfm-
ann og aðstoðað lögregluna við
ráðstöfun á ungum börnum, er
tekið höfðu þátt í óspektum
þessum og einnig við að flytja
börnin heim og afhenda þau
foreldrum. Var rætt við for-
eldra um þessi mál en oftar en
einu sinni kom það fyrir að hin
sömu börn voru handtekin síð-
ar um nóttina, jafnvel mjög
seint og þá þar sem þau voru
enn við óspekktir. Höfðu þau
m.a. kveikt á brunaboða og
fleira af því tagi. Mestu óláta-
öldunni lauk um miðnættið en
þá hófst dansleikur í Félags-
heimilinu Bifröst. Stóð hann til
kl. 4 en lögreglan þurfti þó að
hafa afskipti jafnvel af börnum
eftir þann tíma, eins og fram
kemur á undan.
Jón Hjalti kvaðst harma að til
atburða af þessu tagi skyldi
þurfa að koma á hverju
gamlárskvöldi og þetta setti
óneitanlega blett á bæjarlífið.
Ölæti af þessu tagi heyrðu for-
tíðinni til og annars staðar væri
í langflestum tilfellum búið að
komast fyrir þau. Hann taldi
hugsanlega skýringu á þessu
vera þá, að á Sauðárkróki væri
ekkert gert til afþreyingar fyrir
unglinga á gamlársdagskvöld
og enginn aðili virtist fáanlegur
til að taka eitthvað slíkt að sér,
enda þótt rætt hefði verið um
slíkt af hálfu lögreglunnar.
— Jarðskjálftinn
Framhald afbls. 28
móti taldi Guðrún símstjóri á
Kópaskeri aldrei hafa verið til-
takanlega miklar jarðhræringar
þar, mest borið á vægum kippum
og titringi.
Síðustu dægur virðast upptök
kippanna aftur hafa flutzt meira i
suðurátt, sennilega í suðaustan-
vert Kelduhverfi
Um Kelduhverfi er það að
segja, að mælingamenn telja ekki
ólíklegt að allt svæðið frá Tó-
veggjarsprungunni og Veggjar-
endum, og vestur að Eyvindar-
stöðum og Lindarbrekku sé að
síga en breidd þess er um 5 km
frá austri til vesturs, og telja að
sigið nái norður í Sandinn. Innan
þessa svæðis ber mest á 8 signum
ræmum austan við Lyngás á um 1
km belti og nemur sigið í þessum
ræmum hálfum til einum metra,
og sumar sprungur þar opnar.
Einnig ber á 10—12 sprungum I
þjóðveginum hjá Lindarbrekku
með nokkurra sentimetra sigi við
suma sprungubarma. Svo hefur
gömul grasi gróin sprunga opnast
hjá Eyvindarstöðum og ér nú að
a.m.k. hálfur metri að breidd eða
meira.
Björn Benediktsson, bóndi í
Sandfellshaga í Axarfirði, fór á
vélsleða norður r Axarfjarðar-
heiði á nýársdag — að svipast um
eftir verksummerkjum í sam-
bandi við brennisteinsþef sem
fólk á Kópaskeri og Raufarhöfn
taldi sig finna úr þeirri átt fyrir
nokkrum dögum. Fór hann upp á
Kálfafjöll á heiðinni, þaðan sem
útsýni er gott. Skyggni var ágætt,
snjór yfir öllu en hann sá engin
merki um gos þar.
Fólki líður ágætlega þrátt fyrir
allar þessar jarðhræringar, en er
auðvitað orðið hálf þreytt á öllum
óþægindunum sem þessu fylgja.
En það sýnir fulla stillingu, held-
ur sínar hátíðir eins og ekkert
hafi í skorizt og sækir kirkju sem
ég get bezt um vitnað. Helzt er
það að menn óttast skemmdir á
mannvirkjum af völdum jarð-
skjálftahrinanna.
Sr. Sigurvin
— Fyrstu
loðnuskipin
Framhald afbls. 28
minnsta kosti, sagði Guðbjörn að
lokum.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands islenzkra útvegs-
manna, sagði að gert væri ráð
fyrir, að öll þau skip, sem
stunduðu loðnuveiðar f fyrra,
héldu til loðnuveiða að þessu
sinni og jafnvel yrðu skipin
heldur fleiri en þá, en á síðustu
loðnuvertíð stunduðu rösklega
100 skip veiðarnar þegar þau voru
flest.
Hann sagði að útgerðarmenn
loðnuskipa hefðu verið kallaðir til
fundar á mánudaginn. Þá yrði
rætt hvort ætti að una þvi, að
ekkert loðnuverð yrði ákveðið
fyrir janúarmánuð, eins og rætt
hefði verið um. Það sýndist a.m.k.
einkennilegt að skip ættu að vera
á sjó i heilan mánuð án þess að
nokkuð verð væri á fiskinum sem
veiddur er.
Þá hafði Mbl. samband við einn
fiskmjölsframleiðanda — og
seljanda. Hann sagði, að fyrstu
dagarnir í þessum mánuði væru
alveg dauðir á mjölmörkuðunum,
en viku af janúar færi að lifna
•yfir þeim á ný. Nokkuð hefði ver-
ið selt af mjöli á verðinu
4.15—4.45 dollarar proteineining-
in, en einn aðili hefði selt nýverið
lítilsháttar á 4.70 dollara protein-
eininguna. Annar aðili hefði feng-
ið hærra verð en það, með föstum
afhendingartíma, sem alltaf veeri
áhættumál. — En allar hækkanir
sem kæmu nú á mjölverðið kæmu
til góða fyrir hráefnisverðið.
— Baráttukveðjur
Framhald af bls. 2
ykkar í Englandi. Láttu pá fá
það óþvegið!"
Hr. og frú Paul Brian
Hefford og fjölskylda í Kent
senda hr. og frú Helga
Hallvarðssyni og fjölskyldu
beztu jóla og nýársóskir. Frú
Hefford skrifar jafnframt á
kortið: ,,Ég og eiginmaður
minn höfum fylgzt með varð-
skipinu Þór í sjónvarpi og erum
snortin af föðurlandsást yðar
og ákveðni. Hvernig svo sem
þorskastríðið fer, óskum við
yður gleðilegra jóla. Við berum
mikla virðingu fyrir yður, yðar
einlæg. Pat Hefford.“
Þá hefur Helga Hallvarðssyni
borizt bréf frá J.E. Hogan, sem
býr í Texas í Bandaríkjunum.
Hogan er rithandasafnari og
óskar eftir að fá eigin-
handaráritun Helga og jafn-
framt sýnishorn af stimpli varð-
skipsins Þórs.
Loks sendir Karen Marggr.
Honnens í Frydensborg í Dan-
mörku Helga Hallvarðssyni
langt bréf í jólakorti. Hún
segir:
„Við höfum fylgzt með
hreystilegri frammistöðu ykkar
gegn „göturæningjunum“, sem
ekki hafa fengizt til þess að
virða 200 sjómílurnar við
Island, bæði í sjónvarpi, út-
varpi og nú síðast í Billed
Bladet. Okkur finnst þetta
óskaplegur yfirgangur og
frekja, þar sem vitað er að
lífshagsniunir Islands eru fisk-
veiðar bæði nú og í framtíðinni.
Þessi rányrkja hefur 1 för með
'sér að flestar þjóðir færa út
fiskveiðilögsögu sína í dag —
ekki sízt Danmörk. Ég vil lýsa
hrifningu minni og virðingu
fyrir yður og stýrimanni yðar,
Hermanni Sigurðssyni, sem
hleypti af fallbyssunni. Einnig
bið ég fyrir kveðjur til allrar
áhafnarinnar og gleðst yfir því
að enn séu til hraustir menn,
sem ekki eru að drukkna í orða-
gjálfri og úreltum hlutum. Ég
ber þá von í brjósti að þið með
hreysti ykkar náið því takmarki
á nýju ári að friður verði um
hin nýju 200 mílna takmörk."
— Borgarafundur
Framhald af bls. 2
tryggt yrði að síldarleit yrði
skipulögð fyrir Vesturlandi í því
sambandi. Meðal margra annarra
liða í ályktuninni um atvinnu-
málin var svo sú, að á meðan ekki
væri gerður út skuttogari frá
Ölafsvik, yrði fiskvinnslustöðvum
hér tryggt verulegt magn af afla
annarra skuttogara, ef hráefnis-
skortur yrði.
Þá var einnig ályktað að skora á
ríkisstjórn að láta hefja nú þegar
undirbúning að byggingu
fullkominnar fiskimjölsverk-
smiðju á Snæfellsnesi í samræmi
við samþykkt Alþingis á sl. vori.
Síðan ályktaði fundurinn að eðli-
legt væri að hafin yrði undir-
búningur að smíðum eða kaupum
á tveimur skuttogurum fyrir
Ólafsvik, stofnað yrði hlutafélag
þar sem aðaleigendur yrðu fisk-
vinnslustöðvarnar allar, útgerðar-
menn, verkalýðsfélagið og aðrir
ibúar hreppsins með stuðningi
sveitarfélagsins. Skoraði fundur-
inn á stjórnvöld landsins að
greiða fyrir því máli þegar til
þeirra yrði leitað.
Einnig samþykkti fundurinn að
skora á stjórnvöld og lánastofn-
anir að greiða fyrir því að framan-
greind atriði til styrktar atvinnu-
málum í Ólafsvík næðu fram að
ganga.
— Fréttaritari
— 20 marka
strákur
Framhald af bls. 3
Fæðingarheimilinu síðasta
barnið á kvennaárinu og það
var stúlka sem vóg 16 merkur.
Foreldrar hennar eru Kristin
Vignisdóttir og Gústaf Stolzen-
wald. Þó ekki hafi liðið nema 14
tímar og 40 mínútur milli
fæðinga þessara tveggja
stúlkna er það eftir sem áður
staðreynd að þær eru fæddar
hvor á sínu árinu. Þær stöllur
hefja því skólagöngu með eins
árs millibili og sú, sem fæddist
á gamlárskvöld, verður sjálf-
stæður skattgreiðandi einu ári
fyrr en sú sem fæddist á nýárs-
dag.
Eins og tekið var fram i upp-
hafi er það ætlun nokkurra fyr-
irtækja og stofnana að færa
fyrsta barninu. sem fæðist á
Islandi á árinu 1976, og foreldr-
um þess ýmsar gjafir ogvarfrá
þessu skýrt í auglýsingu í
Morgunblaðinu 31. desember
s.l. Ekki er vitað hvort einhver
börn hafa fæðzt utan Reykja-
víkur á undan drengnum, sem
fæddist á Fæðingardeildinni kl.
00.04 en í auglýsingunni er
tekið fram að tilkynna þurfi
fæðingartíma barna, sem
fæðast utan Reykjavikur á
fyrsta degi þessa árs.