Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976 / Hjarnið gekk í bylgjum: Stóra holan við Kröflu sprengdi allt af sér Ljósm. Mbl.: Friðþjófur. Jón Olason bóndi á Skógum sést hér ausa fjárhúsin, en þau eru sem kunnugt er mjög mikið skemmd. 99 99 Vona að þetta fari að lagast — segir Jón bóndi á Skógum sem fluttur er heim á ný Ilúsavfk. 15. janúar. Frá Inj'va Hrafni Jónssyni blaðamanni. „ÞETTA Iftur óneitanlega betur út og við hér á Skógum erum flutt niður eftir aftur og ætlum að vera hér f nótt,“ sagði Jón Ólason bóndi á Skógum f samtali við Morgunblaðið f gær, en hann og heimilisfólkið á Skógum voru flutt þaðan á þriðjudag ásamt hluta af kind- um hans vegna flóðsins úr bæjarkflnum. Ennþá eru þó hlaða og fjárhús umflotin vatni og þrátt fyrir að vatnið f kfln- um hafi lækkað um 6 sm s.l. sólarhring við framræsluna til sjávar hefur vatnið úr húsunum ekkert lækkað enn. „Það er ekkert óeðlilegt, því það tekur miklu lengri tíma að sjatna úr húsunum, en ég vona nú að þetta fari að lagast. Annars er það vindáttin, sem mestu máli skiptir og ógerlegt að segja hverjar afleiðingarnar yrðu ef hann legðist í lang- varandi norðan átt með brimi við ströndina," sagði Jón. Hann sagði einnig að lætin í skjálft- anum mikla hefðu verið óskap- leg á Skógum, og þá hefði ísinn ofan á kílnum splundrast eins og við sprengingu og vatns- súlur staðið hátt í loft upp. Að- spurður um hvenær hann von- aðist til að geta flutt féð heim aftur frá Ærlæk sagði Jón að ógerningur væri um það að spá, enn hann yrði alla vega að gera verulegar úrbætur á húsunum, áður en það yrði hægt, t.d. setja timbur í gólfið og einnig yrði að losa heyið úr hlöðunni, því hætta væri á að hitnaði í því þar sem það væri orðið mjög blautt. Loðnan fundin út af Norðurlandi Bátar finna loðnulóðningar rétt út af Siglufirði Húsavfk, 15. janúar. Frá Ingva Hrafni Jónssyni blaðamanni. MIKIL jarðskjálftavirkni var við Kröflu og á Mývatnssvæðinu í dag og um kl. 14 kom svo snarpur kippur, að starfsmenn við stöðvarhúsbvgginguna hlupu út. Voru þá gefnar út fyrirskipanir um ákveðin merki með bílflaut- um, ef starfsmenn þyrftu að forða sér út. Þá munu vfsindamenn hafa haft samband við menn í Mývatnssveit og ráðlegt þeim að vera við öllu búnir. Vinna heldur samt áfram að fullum krafti við Kröflu og sagði Þorgils Axelsson, byggingastjóri Miðfells á staðn- um, að þeir stefndu að þvf að vera búnir að skila bvggingunni um páska og ekkert benti til þess að Hafsteinn kærir til Sakadóms „ÉG vil ekkert láta hafa eftir mér í blöðin um þennan atburð, ég mun tjá mig um hann á öðrum og réttari stað þegar þar að kemur,“ sagði Hafsteinn Baldvinsson lög- fræðingur við Morgunblaðið í gær, en hann lenti í átökum við hóp þann sem kom inn á skrifstof- ur Vestrænnar samvinnu í gær- morgun. Staðfesti Hafsteinn að hann ætlaði að kæra framferði hópsins til Sakadóms, enda hefði þarna verið um greinilega frelsis- sviptingu að ræða. Rólegra á VERULEGA minna var um jarð- skjálfta á Kópaskeri f gær en næstu daga þar á undan og þegar Morgunblaðið hafði samband við Friðrik Jónsson, oddvita á Kópa- skeri, á nfunda tfmanum f gær höfðu ekki komið neinir kippir f 2—3 tfma. Hins vegar varð vart við stöðugan titring. Friðrik kvað viðgerð á vatns- veitunni ætla að ganga seint, enda árstíminn ekki heppilegur. Hins vegar átti hann von á að skriður færi að komast á þetta, þegar fengist jarðýta sú sem undanfarið hefði verið á Sandinum að grafa þar í ósnum, er tengdur væri kílnum á Skógum. Sú ýta væri búin sérstökum haka, er rifi upp jarðveginn enda þótt mikill klaki væri í honum. Einnig tefði mikill vatnselgur fyrir verkinu, en von væri á dælu frá Húsavík til að leysa þann vanda. Vonaðist Friðrik til að allur búnaður er þyrfti til þessa verks yrði kominn til Kópaskers um helgina. Þá sagði Friðrik, að alveg væri ókannað mál hvernig frárennslis- kerfi þorpsins væri leikið eftir jarðskjálftann mikla. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Almannavarnanefnd Kópaskers og Almannavörnum ríkisins: Að loknu könnunarstarfi í dag kom Almannavarnanefnd Kópa- skers saman til fundar, til að skipuleggja og samræma þær að- gerðir sem framkvæma þarf til úrlausnar brýnustu nauðsynja. Byrjað er að vinna viðgerðaráætl- un á vatnsveitu kauptúnsins og einnig er haldið áfram störfum við að finna leiðslurof, en það er seinlegt verk vegna snjóþyngsla og annarra orsaka. Unnið var að fullum krafti að útskipun á útflutningskjöti og mun stefnt að því að ljúka því f einni lotu. 30 björgunarsveitar- menn frá Húsavík vinna að því starfi. Að lokinni könnun á byggingum með tiiliti til öryggis var ákveðið að loka alveg 1 húsi, en á öðrum þrem mun þörf að gera bráðabirgðastyrkingar og þeir gætu ekki staðizt þá áætlun, enda væru þeir nú þegar á undan henni. Sagði Þorgils, að mikill baráttuhugur og dugnaður væri f mönnum við Kröflu. Þá hittu blaðamenn Morgun- blaðsins Braga Eiríksson, verk- stjóra hjá Orkustofnun á staðn- um, og tjáði hann okkur að nú hefði stðra holan við Kröflu hola nr. 4, verið endanlega afskrifuð en hún sprengdi endanlega af sér alla ventla í fyrradag og gýs nú óhindrað með ógnarlegum krafti. Sagði Bragi, að ef hægt hefði verið að virkja þessa holu, hefði verið gert ráð fyrir að hún gæti gefið 20—25 MW orku. Bragi sagði okkur einnig að hann hefði verið staddur upp við holuna, þegar jarðskjálftinn varð í dag og hefði verið sem geysilegt högg hefði komið uppundir fætur þeirra og þeir sáu hvernig hjarnið gekk í bylgjum og rifnaði þvers og kruss. Blaðamenn fóru einnig upp að holunni og er næsta ævintýralegt að standa við hana og finna þá gífurlegu orku, sem ryðst upp úr jörðinni og gæti haldið áfram næstu 1000 ár, ef ekkert verður gert til að stöðva gosið, en ein- hverjar áætlanir munu vera uppi um slíkt þegar vora tekur. Er litið var til Leirhnúks, var ekkert að sjá annað en gufubólstra á tveimur stöðum og islenzka náttúru, stórkostlega fallega og sakleysislega f vetrarbúningi. Kópaskeri brjóta niður hættulega veggi, áð- ur en umgangur verður leyfður um þau. A morgun, föstudag, verður komið á lágmarks vatns- miðlun með slökkvibifreið staðar- ins og mun hún fara reglulega um þorpið og dæla vatni í ílát fólks. Með tilliti til þeirra íbúa sem koma til baka er brýnt að þeir gefi sig fram við almannavarna- nefnd og eins að þeir tilkynni ef þeir yfirgefa bæinn aftur. Var- hugavert er þó talið að börn sem eru sýnilega jarðskjálftahrædd komi til baka fyrst um sinn. „ÞETTA er allt f áttina — við höfum fundið nokkuð mikið af loðnu á allstóru svæði — allt frá mörkum norðnorðvestur af Rauðanúpi að austan og norðaust- ur af Svfnalækjartanga að vestan og um 45—60 mflur úti,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur leiðangursstjóri um borð f Arna Friðrikssyni, þegar Morgun- blaðið náði tali af honum f gær. Hins vegar var leiðindaveður á þessum slóðum f gær og um fimm bátar sem komnir voru á þessar slóðir gátu Iftið sem ekkert kastað. Hjálmar sagði ennfremur, að þær lóðningar sem Árni Friðriks- son hefði fundið væru um 10—15 faðma þykkar og gat þess að Eld- borgin sem væri hvað austast á þessu svæði hefði fundið feikna- lega miklar lóðningar þar fyrr í gærdag. Fimm skip voru komin á svæðið í gær eftir því sem Hjálm- ar vissi bezt — og voru það, auk Eldborgar, Jón Finnsson, Þor- steinn, Örn og Ásberg. Hjálmar sagði ennfremur, að loðnan stæði fremur djúpt á því svæði sem Árni Friðriksson hefði farið yfir eða á 50 föðmum og yrði nót ekki við komið heldur fremur flottrolli. I fy/ra fannst loðnan hinn 8. janúar og var þá gengin norðaust- ur af Langanesi, þannig að hún er nokkru seinna á ferðinni nú. Gat Hjálmar þess raunar, að loðnan hefði ekki fyrr fundizt svo vestar- lega fyrir Norðurlandi sem nú og ekki væri óhugsandi að hún nýtt- ist þannig síldarbræðslunum í norðlenzku höfnunum betur en áður, þ.e.a.s. ef hún yrði veiðan- leg í nót. Fréttaritari Morgunblaðsins í Siglufirði hafði einnig spurnir af því að Siglufjarðarbátar hefðu lóðað á þykkar torfur af loðnu aðeins 5—6 sjm. út af Siglufirði. Mbl. náði tali af einum skipstjór- anna, Una Péturssyni og skýrði hann svo frá að fyrir fáeinum dögum hefði hann orðið var við lóðningar allt að 20 faðma þykkar og svo stóra torfu að báturinn hefði verið 5—6 minútur að keyra í gegnum hana. Sagði Uni að mikill svartfugl hefði verið í þessu á stóru svæði. Siglufjarðar- bátar hafa verið að fá góðan afla af óvenju stórum þorski á þessum slóðum undanfarið, þegar gefið hefur, og sagði Uni stærð þessa fisks slíka að helzt væri að likja við Suðurlandsþorskinn, sem væri mun stærri en Norðlend- ingar ættu að venjast. Kvað Uni þennan þorsk hafa verið troðinn af stórri loðnu. Morgunblaðið sagði Hjálmari Vilhjálmssyni fiskifræðingi af þessu og mátti á honum heyra, að hann hafði fullan hug á að kanna þetta frekar. Torfi ófundinn TORFI Þórðarson, Islending- urinn sem týndur er á eynni Tenerife, er ófundinn ennþá þrátt fyrir mikla eftirgrennsl- an. I frétt sem AP fréttastofan hefur eftir lögregluyfirvöldum á staðnum segir að Torfi hafi haft orð á því að hann ætlaði í fjallgöngu þegar hann fór síð- ast af hóteli sínu. Hægt miðar á sáttafundum TORFI Hjartarson ríkissátta- semjari hélt áfram samningaum- leitunum með fulltrúum laun- þega og vinnuveitenda I gær á Hótel Loftleiðum en fátt mark- vert gerðist, að sögn forsvars- manna aðila. Áframhaldandi var rætt um sérkröfur einstakra aðildarfélaga ASÍ svo sem Iðju, Sambands byggingarmanna, rafvirkja og bílstjórafélaga austur í Rangár- vallasýslu. Björn Jónsson, forseti ASl, sagði f samtali við Morgun- blaðið í gær, að þessum samninga- viðræðum miðaði ekkert áfram að hans dómi, og væri það bæði vegna þess hversu umfangsmikl- ar þær væru og að vinnuveit- endur væru ófáanlegir að ljá máls á þvf að fara að ræða um aðalkröf- una — kauphækkunina. Nýr fundur hefur verið boðaður í almennum nefndum aðila í dag kl. 3 en einnig verður í dag fundur um almennu lífeyris- sjóðina sem bæði vinnuveitendur og Alþýðusambandið eiga aðild að. Guðmundur varð 5.— 8. GUÐMUNDUR Sigurjónsson samdi um jafntefli við Vlastimil Jansa frá Tékkóslóvakíu eftir 15 leiki í 15. og síðustu umferð skák- mótsins í Hastings og varð í 5.—7. sæti ásamt Gennadi Sosonko frá Hollandi, Tony Miles frá Bret- landi og Mark Taimanov frá Sovétríkjunum með átta vinn- inga. Þrír urðu efstir og jafnir á mótinu með 10 vinninga hver: David Bronstein, Sovétrfkjunum, Vlastimil Hort, Tékkóslóvakiu, og Wolfgang Uhlmann, Austur- Þýzkalandi. Viktor Korchnoi frá Framhald á bls. 13 Sr. Einar Guðnason í Heykholti látinn SÉRA Einar Guðnason, prófastur f Reykholti, er látinn, 72ja ára að aldri. Sr. Einar fæddist á Óspaksstöð- um i Staðarhreppi i V- Húnavatnssýslu hinn 19. júlí 1903, og voru foreldrar hans Guðni Einarsson, bóndi þar, og kona hans Guðrún Jónsdóttir. Einar varð stúdent frá Mennta- skólanum I Reykjavík árið 1924 en lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Islands 1929. Hann var á árunum 1924—25 heimiiis- kennari á Brekku í Fljótsdal, en varð síðan prestur í Reykholti árið 1930. Einnig kenndi hann við Reykhóltsskóla um langt árabil og var um leið formaður skóla- nefndar. Ennfremur var hann formaður skólanefndar barna- skólans á Kleppsjárnsreykjum við stofnun hans 1961 og for- maður fræðsluráðs Borgar- fjarðarsýslu frá 1950. Séra Einar var i framboði í sfðasta biskups- kjöri, er núverandi biskup Sigur- björn Einarsson hlaut kosningu. Einar Guðnason var kvæntur Önnu Bjarnadóttur Sæmunds- sonar fiskifræðings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.