Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976 7 Verðlags- eftirlit Jón G. Sólnes, alþingis- maður, ritar áramótahug- leiðingu I vikublaðið ís- lending, og kemur víða við Um verSlagseftirlit segir hann ma: „Á neyBartlmum t.d. á strlSstimum þegar þarf að tryggja ráttláta dreifingu takmarkaSs varnings, þá á verðlagseftirlit rétt á sér, en undir öðrum venjulegum kringumstæð- um á það að heyra til undantekninga að gripið sé til sllks eftirlits og þá aðeins um örskamman tima. Það er hin mesta firra að halda þvi fram, að við þær aðstæður, sem við búum við nú, sé verð- lagseftirlit launþegum til hagsbóta. þvert á móti. Lfklega myndi algert af- nám verðlagseftirlits hverju nafni sem nefnist, verða einhver hin mesta kjarabót sem hægt væri að rétta launþegum og öðrum þegnum þjóð- félagsins á nýbyrjuðu ári. Þetta kann að hljóma ein- kennilega fyrir eyrum eftir þá fordýrkun sem við- gengist hefur á verðlags- eftirliti hér i okkar landi sfðasta mannsaldurinn og þá sérstaklega hjá þeim sem telja sig málsvara hinna vinnandi stétta. En hvert sem litið er til ann- arra þjóða, þá hefur þetta orðið reyndin, og við er- um fyrir löngu orðnir að viðundri meðal t.d. þeirra annarra vestrænu lýðræð- isþjóða sem við höfum nánust samskipti við, fyrir það hversu óhönduglega við höfum haldið á þess- um málum. Það er fyrir löngu kominn timi til þess að mönnum skiljist þau sannindi að langvarandi verðlagseftirlit veldur ávallt hærra verði á neysluvarningi. heldur en þyrfti að vera, vegna þess að verðlagseftirlit a.m.k. eins og það hefur frá upp- hafi verið framkvæmt hjá okkur, dregur gersamlega Jón G. Sólnes. úr hvatanum að gera góð innkaup og útilokar þar með þá hagkvæmni sem neytandinn verður aðnjót- andi f lægra atmennu vöruverði, þar sem frjáls samkeppni fær að ráða verðmynduninni." Kjölfestan i heilbrigðum rekstri þjóðarbúsins Um liðið ár og vanda efnahagsmála okkar segir Jón G. Sólnes: „Nú. þegar árið 1975 hefur kvatt, getum við öll verið forsjóninni þakklát fyrir það, að þrátt fyrir margvislega erfiðleika sem vissulega hefur verið við að etja, þá hefur árið 1975 verið blessunarlega gott fyrir þjóðina i heild. Enginn skyldi þó skilja þessi orð á þann veg, að erfiðleikarnir væru að baki og hættan liðin hjá. Slikt væri fjarri öllum sanni. til þess eru dæmin of nærtæk úr efnahags- legu ástandi þjóðarbúsins. Það er öllum Ijóst, að þar er við gifurlega mikinn vanda að etja. og að við verðum með öllum tiltæk- um ráðum, að stefna að þvi, með sameiginlegu átaki þjóðarinnar allrar, að sigrast á þvi ófremdar- ástandi sem verðbólgubál- ið, óhagstæður greiðslu- jöfnuður jafnt þjóðarinnar út á við og rikissjóðs inn á við hefur valdið okkur. Hér er um fjöregg þjóðar- innar að tefla. þvi það er grundvallaratriði fyrir þvi, að lýðræðislegt stjórnar- far geti yfirleitt haldið velli með þjóðinni, að hún sé efnahagslega sjálfstæð þ.e. að hallalaus rekstur sé tryggður og að erlend skuldabyrði hins opinbera verði ekki óeðlilega há, þvi á þann veg einan er hægt að tryggja gjaldmiðil þjóðarinnar, sem er og verður á öllum timum kjölfestan I heilbrigðum rekstri þjóðarbúsins i heild. V 1976 1 GÓLFTEPPI verdlæ^Jkjun ~ kul en hve íengi Tollur Vörugjald Þessi tolla- og vörugjaldslækkun kemur þegar fram í VERÐLÆKKUN ALLRA GÓLFTEPPABIRGÐA Nýjar sendingar verða að sjálfsögðu á lága verðinu að öllu óbreyttu. En hver treystir á stöðugt verðlag á þessum tímum? Hjá okkur getið þér valið á milli 60 LITA í mismunandi gerðum gólfteppa. Röskir sölumenn eru ávallt reiðubúnir til aðstoðar við teppavalið, enda eru kjörorð okkar: ÞEKKING — REYNSLA — ÞJÓNUSTA ■nnréHTi Grensásvegi 3 - Sfmi 83430 Félag pipulagningameistara og Iðnþróunar- stofnun íslands hafa ákveðið að efna til námskeiða fyrir pípulagningamenn og byggingafulltrúa til kynninga á íslenskum staðli um notkun plastefna í frárennslislagnir. Námskeiðin verða haldin á tímabilinu 26. janúar til 7. febrúar n.k. og verða ýmist hálfsdags- eða kvöldnámskeið, sem hér segir. 26. jan. — 31. jan. 1976. 2 timar á kvöldi og Vi laugardagur 2. febr. — 7. febr. 1976. 2 tímar á kvöldi og V2 laugardagur 28. jan. — 31. jan. 1976. hálfsdagsnámskeið 2. febr. —4. febr. 1976. hálfsdagsnámskeið Frekari upplýsingar er að fá hjá Iðn- þróunarstofnun íslands, Skipholti 37, sími 8 — 1 5 — 33. Nýkomnir Bambusruggustólar Opiö til kl. 8 í kvöld. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112 I Matvorudeild S-86 111, Vefnaðarv.d. S-86 113 er ekki kominn timi tii atf eignast NÝJAN &C BETRI STÖL danskan T • t cardmal stólinn, sem stydur wid bakid S----- SHIFSTimtlM I.F. Hverflsgðtu 33 Simi 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.