Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 10
10 ÞÓRARINN ELDJÁRN: „Ég er á móti því að talað sé um að skáld séu góð eða vond, því að það ýtir undir nokkuð sem ég held að hafi verið bókmenntaiðju til mikils skaða í áratugi, þ.e. samkeppnina. Menn hafa verið að rembast við að skrifa til þess að verða álitnir beztir." 0 Þórarinn mun flytja ný, gömul og miðaldra ljóð í Haskólabíói. PÉTUR GUNNARSSON: „Hvert tímabil á sín listaskáld og ég held að við séum alveg jafn góð fyrir okkar og önnur hafa verið fyrir sin tímabil. En ég gef ekki upp nein símanúmer hjá skáldum. Mjög oft verða skáld fyrir áhrifum af mönnum sem aldrei hafa gefið út bók og aldrei hafa fengizt við að yrkja. Og svo verður maður ekki síður fyrir áhrifum af öðrum listformum en ljóðum, t.d. kvikmynd- inni.“ 0 Pétur mun flytja prósa, og er með nýja bók í smíðum. SIGURÐUR PALSSON: „Það eru margir sem eru hlaupandi á þessum hring og ég sé ekki hver er kominn í markið. Það eru líka margir sem þjófstarta. En ég get nefnt höfund sem mér finnst hafa fal- legan stíl á hlaupabrautinni, en er ekki ljóðskáld. Hins vegar hefur hann skrifað svo heitan texta að hann er enn bann- aður hátt í tveimur öldum eftir andlátið. Það er Donatien Alphonse Francoise Sade. Hitt er svo annað mál að menn verða fyrir áhrifum af öðru en Ijóðum, öðrum formum listar, og raunar ekki einungis listar. Og hún er leiðigjörn þessi kreistingslega árátta gagnrýnenda þegar þeir finna samband milli föður og sonar í ljóðlist að þá draga þeir þá álykt- un að faðirinn hljóti alltaf að vera ljóð- skáld líka.“ 0 Sigurður mun bæði flytja nýtt og gamalt efni, en væntanlegt er annað hefti ljóðatrílógíu sem hófst með „Ljóð salt“. MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1976 Texti: Á.Þ. Myntíir: Friðþjófnr n Rax LISTASKÁLDIN vondu „eiga þaS alla vega sameiginlegt að yrkja," að því er þau segja sjálf. Af hverju „vondu"? „Af því að listaskáldin góðu eru yfirleitt dáin." En samt stendur „listaskáldin góðu" á aðgöngumiðanum? „Ætli við verðum ekki dáin eftir þennan upplestur." £ Góð eða vond. Listaskáld eða ekki listaskáld. Alla vega gefst áheyrendum kostur á að meta það sjálfir á morgun, laugardag. Þá munu átta ung skáld, sem kalla sig „listaskáldin vondu," flytja verk sín í Háskólabíói. Þau eru Birgir Svan, Guðbergur Bergsson, Hrafn Gunnlaugsson, Megas, Pétur Gunnarsson, Sigurður Páls- son, Steinunn Sigurðardóttir og Þórarinn Eldjárn. Kynnir verður Sigurður Karlsson. Flutt verða Ijóð og textar af öðru tagi, „og yfirleitt það sem menn finna hjá sér hvöt til að koma á framfæri á þessu augnar- bliki. Ég veit ekki til þess að Jesús hafi verið með Fjallræðuna skrifaða." eins og Megas sagði á blaðamannafundi listaskáldanna vondu. „Þó geta menn ekki átt von á þvi að þarna verði flippað út," bætti hann við, og að við fáum einhver núdistaköst." „Okkur finnst spennandi að taka þennan sjans með að flytja skáldskap í Háskólabiói," sögðu skáldin. „En ef við förum út úr þessu með bullandi tapi þá neyð- umst við að sjálfsögðu til að endurtaka þetta." Verði aðgöngu- miða er að sögn þeirra „stillt í óhóflegt hóf eða 250 islenzkar krónur. Ókeypis verður fyrir börn innan 12 ára og ellilífeyrisþega vegna bágra kjara þeirra. Og við hvetjum barnafólk sérstaklega til að mæta og munum hafa þraut- þjálfaðar barnapiur til að passa börnin á meðan. Þó verður ekki skipt á þeim, en foreldrar kallaðir upp inní sal ef til sliks kemur." Miðasalan er hafin í Háskóla- bíói, en dagskráin á laugardaginn hefst kl. 2 e.h. stundvislega og mun hvert listaskáld flytja verk sin i um 1 5. minútur. • MORGUNBLAÐIÐ bar þá spurningu fyrir listaskáldin vondu hver væri að þeirra smekk lista- skáldið góða og þau svöruðu hvert um sig. GUÐBERGUR BERGSSON: „Ætli það sé ekki hún Steinunn. Það er vegna þess að hún yrkir svo afskaplega vel og sér- staklega vil ég nefna ljóð hennar um Snæfellsjökul." 0 Guðbergur mun á morgun flytja áður óbirt ljóð, sem hann hefur fært sem fórn til Freys, en þau eru úr nýrri ljóðabók. STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR: „Eg les aldrei nema eigin verk, svo að ég get ekki svarað spurningunni. I þessu felst vitaskuld að ég er sammála Guðbergi." 0 Steinunn mun lesa efni úr nýrri bók sem væntanleg er á þessu ári. BIRGIR SVAN: „Mig langar til að nefna tvo menn sem ég les mér til hvað mestr- ar ánægju. Það er i fyrsta lagi bezta pólitíska skáldið á Islandi, Einar Ólafs- son, félagi minn. Af eldri höfundum nefni ég Stefán Hörð Grímsson, þótt hann sé ekki dáinn og þar af leiðandi ekki gott listaskáld." 0 Birgir mun flytja ný ljóð sem hann nefnir „nætursöltuð ljóð“. MEGAS: „Ef við tökum sérstaklega skýrt dæmi um gott listaskáld, Jónas Hallgrímsson, þá fara að rifjast upp fyrir manni bein, og það eru ekki öll skáld sem ná þeim árangri. Gæði skálda eru erfið viðureignar vegna þess að skáld eru lífverur og geta rekið upp öskur. En við höfum voðalega litla þýð- ingu fyrir pípuhatta. Þess vegna er strollan frá því í gamla daga metin nú eftir því hvernig hægt er að brúka hana. Nú eru skáldin sem betur fer smám saman að raða sér undir merki raf- magnsins." 0 Megas mun hafa hljóðfæri meðferðis í Háskólabíó en lofar engu um hvernig það verður tónað. Hann er farinn að HRAFN GUNNLAUGSSON: „Er það ekki þessi fugl sem syngur þennan eina tón. Skáldið á greininni. Allt sem skríkir og hlær.“ • Hrafn kveðst hafa í sigti að flytja ljóð sem hann er búinn að vera að setja saman lengi og heitir „Grafarinn með fæðingartengurnar“. En hvort af þvf getur orðið segir hann fara eftir hvernig veðrið verður á laugardaginn — hvernig hellist upp á könnuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.