Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976 Unnur Eiríksdóttir Fædd 7. júlí 1921. Dáin 8. janúar 1976. Hvft segl blöktu f goiunni sól skein f heiði og þið sváfuð öll ég stóð ein á ströndinni og veifaði dökkri slæðu mannlausu skipi sem sigldu fyrir hvítum seglum útíóvissuna segir Unnur Eiríksdóttir í fyrsta kvæðinu, Mannlaust skip, í ljóðabók sinni I skjóli háskans (Helgafell, 1971). Ljóð þetta má heimfæra á mannsævina: sól skín í heiði og lífið heldur áfram þótt + Móðir min FRIÐBJORG GÍSLADÓTTIR. Sogaveg 1 56 Reykjavlk andaðist 1 3. janúar eitthvert okkar tínist burt, og öll eigum við það sameiginlegt þegar kallið kemur að standa ein á ströndinni, landamærum lífs og dauða, og veifa mannlausu skipi sem siglir fyrir hvi'tum seglum vonarinnar út í óvissuna. Ég ætla ekki að minnast Unnar á hefðbundinn hátt, heldur sem mikilhæfrar skáldkonu sem hrifin var hurt í hlóma lífsins. Ég kynntist henni skömmu áður en skáldsaga hennar Villibirta kom út. Hún var þá þegar kunn fyrir smásögur sfnar og ljóð, sem birst höfðu í tímaritum, og fjölmargar þýðingar m.a. eftir Sartre, Colette og Dúrrenmatt. Já, ég kynntist henni sem glæsilegri konu sem vænti sér mikils af lífinu. Hún hafði þá fundið þann lífsförunaut sem vakti hljómgrunn í hjarta hennar, Stefán Hörð Grímsson skáld, og sem brást henni ekki undir hinum aðsteðjandi og lang- varandi veikindum. Skáldsagan Villibirta (Snæfell, 1969) lýsir þroskaferli ungrar konu frá barnæsku. Sagan gerist að mestu í Reykjavík í seinni heimsstyrjöldinni og í baksýn bregður höfundurinn upp hnit- miðuðum og skýrt dregnum myndum af hernáminu. Sögu- hetjan, Brynja, sem lifað hefur í draumheimi æskunnar, giftist barnung sér eldri manni, drykk- felldum og óábyrgum. Viðhorf þeirra til lífsins ergjörólíkt, eink- um eftir að hún hefur náð fullum þroska sem móðir. Þar með er æskudraumum ungu stúlkunnar lokið og kaldur veruleikinn blasir við. Unnur hefði án efa átt framtíð fyrir sér sem rithöfundur og skáld ef heilsa hennar hefði ekki bilað. En einmitt þegar hún er að ná hátindi í skáldskap sínum steðja veikindin að. Þó tókst henni að gefa út ljóðahók og smá- sagnasafn, og það hlýtur að hafa valdið hénni vonbrigðum að geta ekki haldið áfram að skrifa. Mér finnst einhvern veginn að Villi- birta, hennar fyrsta og eina skáld- saga, hafi ekki vakið þá athygli sem skyldi. Sagan er vel gerð og hefur sömu stíleinkenni til að bera og smásögur hennar, en stíll Unnar er fastmótaður og persónu- legur, oft táknrænn og með Ijóð- rænu ívafi. Sagan Skúlptúrí smásagnasafn- inu Hvítmánuður (Helgafell 1974) hefst t.d. þannig: „Þeir freista mín, allir þessir litir. Grænir, bláir, gullnir, og mjúkt, sveigjanlegt grasið, ilmandi og á sífelldri hreyfingu í blænum.“ Nei, ég vil ekki minnast Unnar eins og hún sé dáin því skáld lifa áfram í verkum sínum. Hún mun birtast okkur í ljóðum sínum og sögum, í litunum sem freistuðu hennar: grænum, bláum, gullnum, og í mjúku, sveigjan- legu grasinu, ilmandi og á sí- felldri hreyfingu í blænum. Og þá verður okkur hugsað til hennar eins og konunnar í Fjarskanum, ævintýrinu í Villibirtu, en frá- sögnin hljóðar svo: „Konan í Fjarskanum er lítil og grannvaxin. Hún er alltaf glöð. líka þótt eitthvað blási á móti. Hún er svo létt á fæti að líkist dansi. Orðheppin og fljót i svörum. Öllum þykir vænt um hana.“ — Þetta er í rauninni mynd af Unni sjálfri eins og hún kom mér fyrir sjónir þegar við kynntumst fyrst, og þannig vil ég minnast hennar. Ég votta hér með dætrum skáld- konunnar og unnusta samúð mína. Gréta Sigfúsdóttir. Ljúft er oss öllum að minnast vina vorra, sem varpað hafa birtu og yl á braut vora á liðnum árum, einkum þegar „skuggarnir þéttust um fætur“. Unnur Eiríksdóttir rithöfundur er látin, en ég ætla, að hún gleym- ist engum, sem fengu að kynnast henni og auðnaðist að skyggnast örlítið inn í hinn margslungna hugarheim þessarar konu. Ég hygg, að Unnur Eiriksdóttir hafi alla ævi átt sínar dýrðlegu hamingjustundir, þrátt fvrir stormviðri lífsins, sem á henni mæddu. Hamingja hennar átti fyrst og fremst rætur sínar í hennar eigin sál og einmitt vegna þess, hlotnaðist henni mannleg vinátta og hylli, sem varð henni leiðarljós um myrka stigu mann- legs lífs. Unnur Eiriksdóttir var mjög sérstæður og einnig ógleyman- legur persónuleiki. Kom það ekki einungis skýrt fram í kynnum við hana sjálfa, heldur og engu síður i verkum hennar, sem öll voru slungin þeim töfrum, sem hennar hugarheimur var ofinn af. Þegar ég nú lít til baka yfir kynni mín við Unni Eiriksdóttur, virðist mér, að með lífi sínu og lífsskoðunum hafi hún verið ljós- blik meðal sinnar samtíðar, en vandi er að meta slíkt sem vert er. Gott er að vita við leiðarlok, að allt er öruggt i hendi þess, sem lífið gaf og tekur það aftur að síðustu til sín. Engu þarf að kvíða. Ég þakka að hafa átt þess kost að kynnast Unni Eiríksdóttur. Ég bið þess að síðustu, að allir, sem sakna hennar mest megi láta ljós hennar lýsa sér til hinstu stundar. Guðm. M. Þorláksson. Unnur rithöfundur Eiríksdóttir er látin. Þýð rödd þögnuð, ljúfur söngur hljóðnaður. Eikin granna lögð að velli, langt stríð til lykta leitt. Hlýtt hjarta kulnað, dökkur brámáni slokknaður. Unnur var ein í hópi þeirra, Framhald á bls. 13 t Móðir okkar RÓSA KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum lézt að heimili sínu Keilufelli 9 1 2 janúar s.l. Stefán Brynjólfsson, Guðlaugur Valur Brynjólfsson. + Innilegar þakkir sendum við öll- um þeim, er sýnt hafa okkur samúð og vináttu við fráfall REGÍNU SVANBERGSDÓTTUR, Safamýri 34 Ásgeir Þorleifsson Þorleifur Ásgrlmsson + Þökkum innilega samúð og vin- arhug við fráfall og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, GUÐRUNAR JÓHANNSDÓTTUR Hjallaveg 1 9 JóhannesG. Jónasson Erla Helgadóttir og barnabörn. + Þökkum öllum nær og fjær auð- sýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns míns, föður, tengdasonar og fósturbróður. tNGIBERGS JENS GUÐJÓNSSONAR frá ísafirði Stigahllð 22. Rvk. Anna Helga Hjörleifsdóttir, Guðjón Sigþór Jensson Ellsabet Jensdóttir, Páll Viðar Jensson Guðrún Gunnarsdóttir Ragna Ragnarsdóttir Ólafur Herbert Skagvik Lilja Júliusdóttir. Útför GUOJÓNS GUDBJÖRNSSONAR, fyrrv. skipstjóra, Ránargötu 14. verður gerð frá Dómkirkjunni laugardaginn 17 janúar kl 10 30 f.h Blóm vinsamlegast afþökkuð Matthea Jónsdóttir. Þurlður Guðjónsdóttir, Páll Ólafsson, Helga Guðjónsdóttir, Sigvaldi Jóhannsson. + Eiginkona mín, ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR, Ólafsdal, við Einimel, andaðist aðfaranótt 1 5 janúar Karl Á. Torfason. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför systur okkar KRISTÍNAR GUÐFINNSDÓTTUR. Norðurbrún 1. Guðriður Guðfinnsdóttir, Kristjana Guðfinnsdóttir, Jóhanna Mar Guðfinnsdóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts konunnar minnar, móður, tengdamóður og ömmu JENSÍNU E. S. JÓNSDÓTTUR Brekkugerði 7 Þökkum læknum og hjúkrunarkonum Kvenlækningadeildar Landspital- ans fyrir frábæra umönnun i veikindum hennar Björn Ófeigsson, Jón Björnsson, Sunna Guðnadóttir Jóhanna Björnsdóttir Hildur Bolladóttir Ófeigur Björnsson, Haukur Alfreðsson Anna Lfsa Björnsdóttir, og barnabörn Verzlanir okkar verðalokaðarí dag frá kl. 14 00 vegna jarðarfarar. ÍSLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR Laufásvegur 2, Hafnarstræti 3. + Konan min, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LAUFEY EINARSDÓTTIR, Lækjarfit 1. Garðabæ. er lézt að Borgarspítalanum aðfararnótt 10 janúar, verður jarðsungin frá Garðakirkju laugardaginn 1 7. janúar kl 10 30 Snorri Jónsson. börn. tengdabörn og barnabörn. + Útför ÁSGERÐARKARLSDÓTTURFOXON frá Seyðisfirði, Waverton — Chester, Englandi, fer fram föstudaginn 1 6 janúar Vandamenn. + Séra EINAR GUÐNASON. fyrrverandi prófastur I Reykhoiti, andaðist á Landspitalanum hinn 14 janúar Anna Bjarnadóttir Bjarni Einarsson Gislina Friðbjörnsdóttir Steinunn Einarsdóttir Heimir Þorleifsson Guðmundur Einarsson Dóra Sigurðardóttir og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SIGRÍOAR FRIÐRIKSDÓTTUR Brynleifur H. Steingrimsson og börn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóð- ur og ömmu GUÐRÚNAR BENEDIKTSDÓTTUR Laugaveg 50 B Rafn Viggósson Svandis Guðjónsdóttir Kristin Viggósdóttir Helgi Pálsson Sigrún Viggósdóttir Valdimar J. Magnússon Benedikt Viggósson Jóna Salóme Þórarinsdóttir. og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.