Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976 5 gallabuxur! 5 NÝ SNIÐ ÞAR Á MEÐA g DRAPE LINE (mjóar niöur) KÖFLÓTTAR FLANNEL < GALLABUXUR J .V'vV.'.'V , ■'"• J TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI.^2 LAUliAVEG 66 LÆKJARGOTU 2 SIMI FRA SKIPTIBOROI 28155 Simi frá skiptiborði 281 55 GUÐMUNDUR Björgvinsson, 21 árs gamall stúdent við hðskólann I Redlands I Kali- fornfu hefur reist stóra högg- mynd af Asa-Þór og mun mvnd- inni verða komið fyrir á háskólalóðinni. Meðfylgjandi mynd er af Guðmundi við hlið höggmyndarinnar. Var hún tekin áður en hann lauk við höggmyndina. — Guðmundur stundar nám I sálarfræði og list við University of Redlands. Hann er nú staddur hér heima og opnar mvndlistarsýningu f svningarsal Arkitektafélags ís- lands að Grensásvegi 11 n.k. laugardag kl. 2. e.h. Hæstu vinningar Happ- drættis Háskólans FIMMTUDAGINN 15. janúar var dregið f 1. flokki Happdrættis Háskóla tslands. Dregnir voru 6,030 vinningar að fjárhæð 82,170,000 krónur. Hæsti vinningurinn niu milljón króna vinningar, kom á númer 58246. Trompmiðinn og tveir heil- miðar voru seldir í Verz’uninni NESKJÖR við Ægissíðu. Einn milljón króna vinningur var seldur í STYKKISHÖLMI og annar á SUÐUREYRI. Akureyri: Stolið úr íþrótta- sjóði lamaðra Akureyri 9. jan. INNBROT var frarniö í Plastiðj- una Bjarg milli kl. 6 og 7 í kvöld og var stolið þaðan um 30 þús. kr. í peningum frá fþróttafélagi lamaðra og fatlaðra. Farið var inn á skrifstofu Sjálfsbjargar, félags fatlaðara, sem er eigandi Plastiðj- unnar, og þar brotinn upp pen- ingakassi og úr honum voru pen- ingarnir hirtir. Innbrotið hefur ekki verið upplýst enn, en lög- reglan vinnur að rannsókn máls- ins af kappi. Sv. P. 500.000 krónur komu á númer 35345. Trompmiðinn og þrir heil- miðar voru seidir hjá Arndisi Þor- valdsdóttur á Vesturgötu 10 og fjórði heilmiðinn var seldur í AÐALUMBOÐINU Tjarnargötu 4. 200,000 krónur komu á númer 53025. Trompmiðinn og tVeir heil- miðar voru seldir á SELFOSSI og hinir tveir heilmiðarnir voru seldir á STOKKSEYRI. 50,000 krónur: 3782 — 4338 — 4962 — 12926 — 13281 — 15714 — 17042 — 19328 — 20872 — 26921 — 31233 — 34579 — 40530 — 44059 — 45572 — 46589 — 55972 — 58245 — 58247. Pólverjar senda konur til viðræðna við mjölseljendur í VIKUNNI er væntanleg hingað sendinefnd frá Póllandi í því skyni að ræða við íslenzka mjöl- framleiðendur — og seljendur. Engan veginn er vitað enn, hvort samningar um sölu á loðnumjöli til Póllands takast. Helztu samn- ingamenn Pólverja í þessum mál- um eru tvær konur, sem hafa ver- ið í þessu starfi í fjölmörg ár. Stúdent opnar listsýningu í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.