Morgunblaðið - 16.01.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976
3
Borholan í Bjarn-
arflagi kæld
Björk Mývatnssveit — 15. jan.
SVO sem kunnugt er var boruð ein
hola f Bjarnaflagi eftir að hætt var
að bora f Kröflu f vetur. Var þeirri
horun lokið f desember. Var bor-
inn þá tekinn niður og fluttur
suður f Mosfellssveit. Var þessi
hola 1803 metra djúp og þvf lang-
dýpsta hola sem borið hefur verið
f Bjarnarflagi. Settur var svipaður
lokunarbúnaðar á þessa holu og
aðrar svipaðar þar. Var hún sfðan
látin hfða fram yfir áramót.
Þegar starfsmenn Orkustofn-
unar komu til að líta eftir henni
upp úr áramótum. kom í ljós að
þrýstingur f henni var komin í um
90 kg. Einnig varð þess vart að loki
var farinn að gefa sig, sem kannski
var ekkert óeðlilegt, þar eð hann
var ekki gerður fyrir svona mikinn
þrýsting. Var nú brugðið við og
útvegaða öflugar dælur og annar
útbúnaður. Einnig var hafizt
handa um að setja traustari búnað
á holuna til frekara öryggis, jafn-
framt sem undirbúin var dæling i
hana. Nú hefur tekizt að kæla
hana niður með dælingu, og er
gert ráð fyrir að halda því áfram
stanslaust í vikutíma að minnsta
kosti. Síðan verður settur á hana
nýr og traustari lokunarbúnaður,
og verður þá trúlega hægt að mæla
hita og þrýsting í henni. Kemur þá
væntanlega í ljós hversu mikil
orka býr í þessari holu.
— Kristján.
Hörpudiskskílóið
hækkar um 4 krónur
YFIRNEFND verðlagsráðs sjávar-
útvegsins ákvað nýtt verð á hörpu-
diski f gær, og gildir það frá 1. jan.
sl. til 31. janúar n.k. Nú verður
greitt fyrir hörpudisk f vinnslu-
hæfu ástandi kr. 26 pr. kg og er þá
átt við fisk, sem er 6 cm og stærri.
Fram til þessa hafa verið greiddar
kr. 22 fyrir hvert kg og miðað við
fisk, sem er 7 cm og stærri.
1 fréttatilkynningu frá Verðlags-
ráði sjávarútvegsins segir, að
verðið sé miðað við, að seljendur
skili hörpudiski á flutningstæki
við hlið veiðiskips og skal hörpu-
diskurinn veginn á bílvog af lög-
giltum vigtarmanni. Sjór má ekki
fylgja með.
Þetta nýja verð miðast við gæða-
og stærðarmat Framleiðslueftirlits
sjávarafurða og fari gæða- og
stærðarflokkun fram á vinnslu-
stað.
Verðið var ákveðið af odda-
manni og fulltrúum seljenda í
nefndinni gegn ákvæðum fulltrúa
kaupenda.
1 yfirnefndinni áttu sæti:
Gamalíel Sveinsson, sem var odda-
maður nefndarinnar, Jón Sigurðs-
son og Kristján Ragnarsson af
hálfu seljenda og Eyjólfur Isfeld
Eyjólfsson og Marías Þ. Guð-
mundsson af hálfu kaupenda.
„Viðgerðarmaðurinn
hvarf með lyfjakassann
ÞAÐ BAR til um borð f loðnu-
skipinu Dagfara sfðdegis f gær, að
maður nokkur birtist og kynnti
sig sem viðgerðarmann, sem
pantaður hefði verið til viðgerða
um borð. Byrjaði maðurinn að
skrúfa plötur á hurð stýrimanns-
ins og skipverjar tðku þetta gott
og gilt, en einhverjir þeirra voru
að vinna f skipinu. Var viðgerðar-
maðurinn hinn ræðnasti og
kvartaði mikið undan álaginu
sem væri á viðgerðarmönnum
núna f byrjun loðnuvertfðar, þeir
hreinlega þvtu á milli skipa með
tól sfn.
Stuttu síóar var tekið eftir því
að viðgerðarmaðurinn var á bak
og burt og sömuleiðis lyfjakassi
Lítill snjór í
Neskaupstað
Neskaupstað 14. janúar.
VINNU er haldið áfram af fullum
krafti f nýju sfldarbræðslunni
hér. Verkið sækist vel og má þar
þakka góðu veðri f mest allt haust
og vetur.
Snjór er hér tiltölulega lítill,
hvað mestur í bænum sjálfum, en
hann hefur skafið ofan úr fjall-
inu.
Margir Norðfirðingar urðu var-
ir við jarðskjálftann í gær og var
það í fyrsta sinn, sem Norðfirð-
ingar finna fyrir jarðskjálfta svo
VÍtað Sé. — Asgeir.
skipsins, sem geymdur var inni
hjá stýrimanni. Rannsóknar-
lögreglan í Hafnarfirði hefur
fengið þetta mál til meðferðar.
Rannsóknarlögreglan í Reykja-
vík hefur á síðustu dögum fengið
tvö slfk lyfjaþjófnaðarmál til
meðferðar. í fyrra tilvikinu var
brotizt inn í Draupni VE i Reykja-
víkurhöfn og þaðan stolið pillum
úr lyfjakassa. 1 seinna tilvikinu
var brotizt inn í flutningaskipið
Karlsey, sem liggur i slipp í
Reykjavik. Nokkrar hurðir höfðu
verið brotnar og mikið gramsað,
augsýnilega í leit að lyfjum en
ekkert slíkt fannst þarna.
Hópurinn fvrir utan skrifstofu „Vestrænnar samvinnu*
IJósm. Mbl. R.Ax.
Ruddust inn á skrifstofu
„Vestrænnar samyinnu”
HÓPUR fólks, samtals 27
manns, komu f gærmorgun
klukkan 10,20 á skrifstofur
Vestrænnar samvinnu í Garða-
stræti. Hópur þessi, sem nefndi
sig „Baráttuhóp verkafólks
og námsmanna" tilkvnnti
Magnúsi Þórðarsyni fram-
kvæmdastjóra, sem var einn á
skrifstofunni, að tilgangur
þeirra væri að stöðva alla starf-
semi sem þar færi fram.
Magnús gat komið boðum til
lögreglu en sfðar var honum
meinaður aðgangur að sfma
skrifstofunnar. Lögregla kom á
staðinn, en hópurinn hleypti
henni ekki inn. Varð lögreglan
að brjóta upp útidyrahurð og
hurðina að skrifstofu Magnús-
ar. Fólkið, sem sest hafði að f
húsinu neitaði að fara fyrst
eftir að lögreglan kom, en um
sfðir hvarf það á brott og voru
allir farnir klukkan 12. Lög-
reglan tók niður nöfn allra í
hópnum.
Magnús Þórðarson tjáði
Morgunblaðinu í gær, að hann
hefði verið að tala i simann
þegar hópurinn birtist á skrif-
stofunni og hefði hann getað
beðið viðmælanda sinn að hafa
samband við lögregluna áður
en siminn var rifinn úr hönd-
um hans og skellt á, og höfðu
fyrirliðar hópsins þó tilkynnt
að mótmælin ættu að fara frið-
samlega fram. Skömmu siðar
var aftur hringt og aftur kom
Magnús boðum um að haft yrði
samband við lögreglu, en sam-
bandið var slitið. 1 þriðja sinn
var hringt og var sambandið þá
slitið tafarlaust og eftir það sáu
fyrirliðarnir alveg um sfmann.
Magnús sagði að áður en
lögreglan kom hafi hópurinn
boðið honum að yfirgefa skrif-
stofuna en þvi hefði hann
neitað. Var hurðinni þá læst og
þungur sófi dreginn fyrir
dyrnar. Á neðri hæð hússins
voru nokkrir úr hópnum á
verði. Þegar lögreglan kom
ætlaði Hafsteinn Baldvinsson
hrl, sem hefur skrifstofu á
neðri hæð hússins að hleypa
henni inn, en þetta fólk
meinaði honum þess með afli
svo hann meiddist lítilsháttar.
Einhverjir úr hópnum 'lögðu
leið sina inn í skrifstofu
Hafsteins og meinuðu honum
aðgang að síma sinnar eigin
skrifstofu.
Lögreglan greip nú til þess
ráðs að brjóta upp útidyr húss-
ins og síðan dyrnar að skrif-
stofu Magnúsar. þegar hópur-
inn vildi ekki opna þær með
góðu. Var fólkið beðið að yfir-
gefa húsið, en það neitaði því í
fyrstu. En þegar lögreglan gaf
þvi 5 minútna frest til að fara
með góðu, yfirgaf fölkið skrif-
stofuna og fór sá síðasti úr
hópnum út um klukkan 12.
Tvær hurðir skemmdust og var
gert við þær í gær.
Magnús sagði að lokum, að
þótt hópur þessi kallaði sig
„Baráttuhóp verkafólks og
námsmanna" hefði þarna mest-
megnis verið um að ræða fólk
sem staðið hefði að svipuðum
aðgerðum undanfarin ár, svo
sem Gest Guðmundsson, for-
mann Stúdentaráðs, Olgu
Guðrúnu Árnadóttur, sem séð
hefur um barnatima i útvarp-
inu og Ævar Kjartansson út-
varpsþul. Margt af þessu fólki
virtist að sögn Magnúsar vera
mjög spennt á taugum, þótt
fyrirliðarnir reyndu að halda
aftur af þvi, en þó fór svo fyrir
helsta forsprakkanum, að
taugar hans virtust gefa sig
undir lokin, svo hann skalf i
hnjáliðum og átti erfitt með að
ganga.
70 áhugamenn uin Blönduvirkj-
un efna til fundar í héraðinu
120 þúsundum stolið frá
Krabbameinsfélagi Isl.
BROTIZT var inn í skrifstofu
Krabbameinsfélags Reykja-
vfkur við Suðurgötu 1 fyrri-
nótt. Þaðan var stolið rúmlega
120 þúsund krónum f pening-
um en ekki var vitað um að
annað fémætt hefði verið tek-
ið. Einhverjar skemmdir voru
unnar á skrifstofunni og inn-
anstokksmunum. Málið er f
rannsókn hjá rannsóknarlög-
reglunni.
SJÖTlU áhugamenn um virkjun
Blöndu hafa boðað Húnvetninga
til almenns fundar í félags-
heimilinu á Blönduósi n.k.
laugardag. FuIItrúi iðnaðarráðu-
neytisins mun mæta á tundinn og
kvnna virkjunarmál Blöndu og
nýjustu viðhorf f þeim efnum.
Einnig hefur alþingismönnum
kjördæmisins verið boðið til
fundarins, svo og öllum sveitar-
stjórnarmönnum f Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslu og f
fréttatilkynningu fundarboðenda
eru þeir sérstakiega hvattir til að
mæta. Þá skora fundarboðendur á
Húnvetninga að sýna stuðning
sinn við málefnið í verki og fjöl-
menna á fundinn. Hér á eftir fer
listi yfir fundarboðendurna, en
samkvæmt upplýsingum er
Morgunblaðið hefur aflað sér var
þessum nöfnun safnað á tveimur
dögum f öllu héraðinu, þrátt fyrir
mikla ófærð.
Stefán A. Jónsson Kagaðarhóli,
Þormóður Pétursson Blönduósi,
Jón Isberg Blönduósi, Hilmar
Kristjánsson Blönduósi, Árni S.
Jóhannsson Blönduósi, Lárus
Ægir Guðmundsson Skagast.
Brynjólfur Sveinbergsson
Hvammstanga, Kristófer
Kristjánsson Köldukinn II, Jón B.
Bjarnason Ási, Þórir Magnússon
S-Brekku, Gísli Pálsson Hofi,
Bjarni Jónsson Haga, Reynir
Steingrimsson Hvammi, Auðunn
Guðjónsson Marðarnúpi, Magnús
Sigurðsson Hnjúki, Ellert Pálma-
son Bjarnastöðum, Vigfús
Magnússon Skinnastöðum,
Guðmundur Jónasson Ási,
Grímur Gíslason Blönduósi,
Heiðar Kristjánsson Hæli,
Jóhannes Torfason Torfalæk II,
Lárus Sigurðsson Tindum, Björn
Pálsson Ytri-Löngumýri, Haukur
Pálsson Röðli, Páll Þórðarson
Sauðanesi, Guðni Vigfússon
Blönduósi, Sveinn Ellertsson
Blönduósi, Guðbjartur
Guðmundsson Blönduósi,
Hallbjörn Kristjánsson Blöndu-
ósi, Haraldur Jónss. pósthúsinu
Blönduósi, Bjarni Pálsson
Lárusarhúsi Blönduósi, Eggert
Guðmundsson Blönduósi,
Zóphónías Zóphóníass. yngri
Blönduósi, Pétur Pétursson
tílönduósi, Ragnar Ihgi Tömas-
son, Blönduósi, Grétar
Guðmundsson Blönduósi, Sig-
valdi Torfason Blönduósi,
Guðmundur Kr. Theódórsson
Blönduósi, Kristinn Pálsson
Blönduósi, Sigríður Þ. Sigurð-
ard. Blönduósi, Sigursteinn Guð-
mundss. Blönduósi, Valgaður
Hilmarsson Fremstagili, Sigurður
Þorbjarnars. Geitaskarði, Run-
ólfur Aðalbjörnsson Hvammi,
Sverrir Haraldsson Æsustöðum,
Pétur Guðlaugsson Brandsstöð
um, Hannes Guðmundsson Auð-
ólfsstöðum, Þórður Skúlason
Hvammstanga, Karl Sigurgeirs-
son Hvammstanga, Vilhjálmur
Guðmundsson Gauksmýri,
Guðmundur Karlsson Mýrum III,
Þorvarður Júlíusson Söndum,
Ragnar Benediktss. Barkarstöð-
um, Sigurður Lindal Lækjamóti,
Aðalbjörn Benediktss. Grundar-
ási, Einar Jónsson Tannastaða-
bakka, Adolf Berndsen Skaga-
strönd, Jón Jónsson Skagaströnd,
Sævar Bjarnason Skagaströnd,
Jón S. Pálsson Skagaströnd, Gylfi
Sigurðsson Skagaströnd,
Bernódus Ólafsson Skagaströnd,
Sveinn Ingólfsson Skagaströnd,
Jón Ingi Ingvarsson Skagaströnd,
Björgvin Brynjólfss. Skaga-
strönd, Sveinn Sveinsson Tjörn,
Rafn Sigurbjörnsson Hlið, Jónas
Hafsteinsson Njálsstöðum, Björn
Jónsson Ytra-Hóli.
Selja í
næstu viku
EKKERT skip selur í Þýzkalandi
í þessari viku, en f bvrjun næstu
viku munu fjögur skip að Ifkind
um selja f Bremerhaven og Cux-
haven.
Netabáturinn Arnar frá Þor-
lákshöfn á að seljá á mánudag og
þann dag stendur til að skuttogar
inn Guðsteinn selji. Á þriðjudag á
netabáturinn Snæfugl frá Reyðar
firði að selja og einnig skuttogar-
inn Rán.