Morgunblaðið - 16.01.1976, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976
Risaskipið
Berge Istra
talið af
Osló. 15. jan. — Reuter
EIGENDUR norska risaskipsins
Berge Istra, sem ekkert hefur
heyrzt frá 1 17 daga, telja að það
hljóti að hafa farizt á vestanverðu
Kvrrahafi með allri áhöfn, 29
körlum og þremur konum. Tals-
maður útgerðarfélagsins Sigvald
Bergesen Company skýrði frétta-
mönnum í Osló frá því að áfram
væri leitað að skipbrotsmönnum
af Berge Istra, sem er 227.556
tonn að stærð, en ekkert hefði
hevrst frá skipinu frá þvf fvrir
áramót. Skipið var þá á leið frá
Brasilfu til Japans með 180.000
tonn af járngrvti, og átti að koma
til Kimitsu, skammt frá Tókfó, 5.
janúar.
Talsmenn Lloyds tryggingar-
félagsins brezka segja að skipið
sjálft, fyrir utan farminn, hafi
verið tryggt fyrir 18,2 milljónir
dollara, og gæti því verið um að
ræða mesta fjárhagslega tap
tryggingarfélaga í sögu sigling-
anna. Skipið er um 70% tryggt í
London. Ekkert er vitað um hvað
komið hefur fyrir, en getgátur
eru uppi um að ef til vill hafi
skipið steytt á kóralrifi og sokkið
fyrirvaralaust.
Fundur Einingarsamtaka Afrfkurfkja um Angóla fór út um þúfur án þess að samstaða næðist um
ráðstafanir samtakanna vegna styrjaldarinnar f landinu.
Fyrir miðju á myndinni er Idi Amin, forseti Uganda, sem jafnframt er forseti Einingarsamtaka
Afrfkurfkja, f forsæti á fundinum, sem haldinn var f Addis Abeba. Til vinstri á mvndinni er fulltrúi
Eþfópfu, Tafari Banti, en upplýsingar um nafn mannsins til hægri liggja ekki fvrir.
Gegn eitur-
efnum í sjó
Briissel 15. jan. — Reuter
RÁÐ Efnahagsbandalagsins
hefur beint þeim tilmælum til
aðildarrfkja EBE að þau banni
algjörlega að olfu, geislavirk-
um úrgangsefnum, kvikasilfri
og eiturefnum verði varpað f
sjóinn. f tillögum sfnum fer
ráðið fram á að viðkomandi
rfkisstjórnir banni skipum og
flugvélum að varpa þessum
efnum f sjóinn á yfirráða-
svæðum þeirra. Þá er gert ráð
fyrir þvf að skip og flugvélar
þurfi sérstök leyfi til að varpa
ýmsum öðrum tilteknum efn-
um f sjóinn.
Ráðið leggur til að rfkis-
stjórnir EBE-landanna gangist
fyrir nauðsvnlegum lagabreyt-
ingum hver f sfnu landi,
þannig að tillögur þessar öðlist
lagalegt gildi innan hálfs
annars árs frá þvf þær fást
samþvkktar.
Peron rekur fjóra
hófsama ráðherra
Buenos Aires, 15. janúar.
AP. Reuter.
MARIA Estela Peron forseti vék f
dag úr stjórn sinni fjórum hóf-
sömum ráðherrum sem hafa hvatt
til viðræðna við andstæðinga
peronist a.
Áhrífamesti maður stjórnarinn-
ar, Angelo Robledo, var sviptur
skipaður
Fords
ERLENT
WashinKton. 14. janúar. Reuter.
FORD forseti hefur skipað Roger
Morton fvrrverandi viðskiptaráð-
herra ráðgjafa Hvfta hússins með
ráðherratign. Morton er vinur
forsetans og verður ráðunautur
hans f innanlands- og efnahags-
málum.
Jafnframt mun Ford fela
Morton að hafa á hendi yfirstjórn
samstarfs við Repúblikanaflokk-
inn og kosninganefnd sína.
Ron Nessen blaðafulltrúi
neitaði því að Morton mundi
stjórna kosningabaráttu Fords.
Morton er fyrrverandi þingmaður
og fyrrverandi formaður lands-
stjórnar Repúblikanaflokksins.
Nessen sagði að Howard Callo-
way færi sem fyrr með yfirstjórn
kosningabaráttunnar. Hann benti
á að Calloway hefði sjálfur stung-
ið upp á því að Morton yrði skip-
aður í hið nýja embætti þar sem
hann vildi geta snúið sér til em-
bættismanns í Hvítahúsinu vegna
pólitískra ákvarðana.
Morton sagði blaðamönnum, að
hann væri þess fullviss, að Ford
tækist að koma í veg fyrir að
Ronald Reagan, fyrrverandi ríkis-
stjóri í Kaliforníu, yrði tilnefndur
forsetaefni repúblikana.
Margir repúblikanar hafa gagn-
rýnt Calloway fyrir lélega stjórn á
baráttunni gegn Reagan.
embætti innanrikisráðherra og
eftirmaður hans skipaður
Roberto Ares, gamalreyndur
peronisti, hagfræðingur og
bankastjóri.
Manuel Aruz Castex utanrfkis-
ráðherra og Tomas Votter land-
varnaráðherra voru settir af og
öðrum ráðherrum falið að fara
með utanríkis- og varnarinál. Jose
Deheza var skipaður dómsmála-
ráðherra í stað Ernesto Corbalan
Nanclares.
Upphaflega krafðist frú Peron
þess að allir ráðherrar segðu af
sér svo að hún gæti endurskipu-
lagt stjórn sína en vék að lokum
aðeins hófsömum ráðherrum úr
stjórninni.
Robledo fyrrverandi innan-
ríkisráðherra er jafnframt vara-
formaður peronistaflokksins og
hefur haft mikil áhrif í hófsama
átt síðan hann tók sæti í stjórn-
inni í ágúst. Hann var um tíma
sakaður um að stjórna tilraunum
til að telja frú Peron á að láta
undan kröfum hersins um að
segja af sér.
Breytingarnar á stjórninni eru
því talinn sigur fyrir íhaldssama
harðlínumenn f flokki peronista,
verkalýðshreyfingu þeirra og
stjórninni. Þær eru túlkaðar sem
tilraun af hálfu frú Peron til að
gera stjórnina þróttmeiri og sam-
stilltari.
Þar með hafa verið gerðar 55
breytingar á stjórn Argentínu
síðan peronistar komu aftur til
valda í maí 1973. Ares er sjötti
innanríkisráðherra frú Peron
siðan hún tók við forsetaembætt-
inu eftir lát eiginmanns sins í júlí
1974.
Vilja samninga
London, 15. jan. — Reuter.
LUNDUNABLAÐIÐ Daily
Express segir í ritstjórnargrein f
dag að kominn sé tími til að leysa
fiskveiðideilu Breta og Islend-
inga með samningum.
Blaðið leggur á það áherzlu að
Iagalega sé það rétt hjá Bretum að
hafna kröfu Islands um 200 mílna
Skýrsla um framtíð EBE:
Samstaða í varnar- og efnahagsmál-
um auðveldar sameiningu Evrópu
LEO Tindeman, forsætisráð-
herra Belgíu, hefur birt
skýrslu þá, sem leiðtogafundur
Efnahagsbandaiagsrfkjanna I
desember 1974 fól honum að
semja um framtíðarskipan
málefna bandalagsins með
sameinaða Evrópu að mark-
miði.
Hann leggur áherzlu á að
hraðað verði aðgerðum til að
koma á samstöðu ríkjanna í
efnahags- og gjaldeyrismálum.
Hann telur jafnframt að um
sameiningu Evrópu geti ekki
orðið um að ræða fyrr en ríkin
hafi markað sér sameiginlega
stefnu í varnarmálum, en eins
og nú horfi muni þau ekki
verða fær um það i náinni fram-
tíð. Tindeman segir, að hin nfu
ríki bandalagsins verði að sam-
ræma stefnu sína í utanríkis-
málum, viðskipti sfn við ríki
utan bandalagsins og aðstoð við
vanþróuð ríki. Þá kemur fram
það álit hans, að samskipti
handalagsrfkjanna við Banda-
ríkin, sem séu handamenn,
samstarfsþjóð og stundum
keppinautur Efnahagsbanda-
lagsrikjanna, valdi hinum
síðarnefndu oft á tíðum mikl-
um vanda, og nauðsyn sé að
ráða bót á honum með því að
bandalagsríkin og forysturiki
Vesturlanda á sviði efnahags-
mála, stjórnmála og hermála
hefji viðræður án tafar. Hann
heidur þvf fram, að tillögur
hans um efnahags- og gjald-
eyrismál séu raunhæfar og Iík-
legar til að koma sameiningar-
málinu á hreyfingu eftir að það
hafi legið í láginni um skeið.
Viðbrögð ráðamanna í ríkjum
Efnahagsbandalagsins eru á
ýmsa Iund, en ljóst er að skýrsl-
an vekur mikla athygli og um-
ræður, enda varða sum atriði
hennar ýmis grundvallaratriði
stjórnarfars. Þannig leggur
hann t.d. til, að neitunarvald
það er fulltrúar einstakra rikja
hafa haft í atkvæðagreiðslum
fastaráðs bandalagsins falli úr
gildi.
Þá telur Tindeman vafa-
samt, að Efnahagsbandalagið
geti komið fram gagnvart
Bandaríkjunum sem ein heild
meðan skilningur hinna fyrr-
nefndu á vandamálum í sam-
bandi við varnarmál sé mis-
munandi og fari ekki saman í
veigamiklum atriðum.
í brezkum blöðum er
skýrslunni misjafnlega tekið.
F'inancial Times segir, að
skýrslan sé aðeins greinargerð,
en ekki liggi fyrir að eftir
henni verði farið um leið og
gagnrýnt er að í skýrslunni sé
ekki lögð áherzla á stofnun
Evrópuþings, sem blaðið telur
forsendu fyrír sameinaðri
Evrópu og það eina sem gefið
geti bandalaginu á ný það giidi
er það sé á góðri Ieið með að
glata. The Daily Telegraph
telur skýrsluna hina merkustu
og fulla af viturlegum ráðlegg-
ingum og innblæstri. „Eftir
þessum tillögum verður að
fara, eða við verðum allir
hengdir, hver I sínu lagi,“ segir
blaðið. Hollenzka stjórnin
tekur undir tillögur Tinde-
mans um nauðsyn sameigin-
legrar utanrikismálaráðstefnu
bandalagsríkjanna, ef efla eigi
einstakar stofnanir bandalags-
' ins, um leið og stjórnin telur
skýrsluna fela í sér raunhæfar
tillögur sem auðveldað geti
sameiningu Evrópu.
Anker Jörgensen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, segir, að i
skýrslunni komi fram skoðanir,
sem danska stjórnin sé ósam-
mála, og átti þar við tillögur um
samstarf í öryggismálum og af-
nám neitunarvalds. Hann telur
þó, að ýmis atriði skýrslunnar
séu til bóta og samræmist þau
skoðunum Dana um æskilega
þróun Efnahagsbandalagsins.
Skv. einkaskeyti frá fréttarit-
ara Mbl. I Kaupmannahöfn
hafa umræður um skýrslu
Tindemans verið miklar. Eru
viðbrögð manna þar yfirleitt
heldur neikvæð, sérstaklega
hvað viðkemur afnámi neitun-
arvalds og reglum um meiri-
hluta I atkvæðagreiðslum. Þá
hefur Jafnaðarmannaflokkur-
inn vísað á bug tillögum um
sameiginlegar varnir banda-
lagsins.
fiskveiðilögsögu, en segir svo:
„Enginn grundvallar ágreiningur
ríkir milli Bretlands og íslands.
Við skulum þvi setjast að raun-
hæfum samningum... Verum
raunsæir. Innan árs eða svo
munum við sjálfir færa út fisk-
veiðilögsögu okkar í 200 mílur, og
það I fullum rétti. Ef önnur lönd
ætla að leika þennan leik, getum
við ekki annað en gert það
sama.... Við skulum hætta þess-
um leik — og ná samningum sem
tryggja húsmæðrum okkar sann-
gjarnt fiskverð, og sleppa kon-
unglega flotanum við að þurfa
að senda freigátur sínar til
óskemmtilegra skyldustarfa á Is-
landsmiðum, meðan þær ættu að
vera að vernda hagsmuni bæði
Bretlands og íslands innan sam-
taka NATO.“
Sara Moore
í ævilangt
fangelsi
San Francisco. 15. jan. Reuter.
SAHA Jane Moore var í dag
dæmd f ævilangt fangelsi fyrir að
reyna að ráða Ford forseta af
dögum.
Áður en hún var dæmd lýsti
hún því yfir að tilræði gæti verið
réttlætanlegt til að knýja fram
stjórnmálabreytingar. Aðspurð
neitaði hún því að hún iðraðist.
Samuel Conti dómari sagði: „Þú
stæðir ekki hér ef við hefðum
haldgóð lög um dauðarefsingu.
Þú ert afkvæmi þjóðfélags þar
sem allt er leyfilegt. Þú vilt vera
dómari og böðuli. Þú iðrast
einskis. Ég bið guð á hverju
kvöldi að okkur megi auðnast að
búa áfram við þá stjórn sem við
höfum I þessu landi.“