Morgunblaðið - 16.01.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976
fHtvgisitMafetfe
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40.00 kr. eintakið.
Ihita baráttunnar við
Breta á fiskimiðunum
megum við ekki gleyma þeim
meginmarkmiðum, sem við
stefnum að í landhelgismálum
okkar, sem eru full yfirráð yfir
200 mílna fiskveiðilögsögunni,
sem tók gildi hinn 15. október
síðastliðinn. Þessi útfærsla er
tilkomin vegna knýjandi nauð-
synjar á verndun fiskstofnanna
og varð mönnum enn Ijósari,
þegar skýrsla Hafrannsókna-
stofnunar um ástand fiskstofn-
anna og þá ekki sízt þorsk-
stofnsins var birt fyrri hluta
októbermánaðar.
Mikilvægt er, að menn átti
sig á því, að útfærslan í 200
mílur hefur þegar borið umtals-
verðan ávöxt Við höfum nú
þegar náð hagkvæmum samn-
ingum við tvær þjóðir, sem
veitt hafa á íslandsmiðum,
Vestur-Þjóðverja og Belga.
Með þessum samningum hefur
heildarafli þeirra á íslandsmið-
um verið skertur mjög verulega
frá því sem verið hefur undan-
farin ár og alveg sérstaklega
hefur þorskafli þessara tveggja
þjóða verið skorinn mjög niður
en það er auðvitað mikilvægast
fyrir okkur, að takmarka svo
sem kostur er, við núverandi
aðstæður, veiðar erlendra
þjóða á þorski.
Þá er einnig þýðingarmikið.
að við gerum okkur grein fyrir
því, að þrátt fyrir það, að Bretar
hafa stefnt hingað miklum flota
herskipa og verndarskipa til
þess að auðvelda fiskveiðiflota
sínum veiðar á íslandsmiðum
og þrátt fyrir það, að brezkum
togurum hafi fjölgað verulega
frá því sem verið hefur undan-
farin misseri, höfum við einnig
náð vissum árangri í að tak-
marka veiðar Breta hér. Þessi
árangur er í fyrsta lagi fólginn I
því, að afli þeirra á togara hefur
minnkað talsvert og í öðru lagi
að veiðar Bretanna eru tak-
markaðar við tiltekin svæði og
verndarskipin hafa ekki treyst
sér til að gefa togaraflotanum
leyfi til að veiða t.d. á tveimur
svæðum. Þetta er árangur,
sem máli skiptir.
Þannig er augljóst, að þótt
baráttan við Breta á fiskimið-
unum gangi erfiðlega eins og
við mátti búast, þar sem við
ofurefli er að etja, eru ýmsar
bjartar hliðar á tilverunni og
fleiri en þær, sem nú hafa verið
nefndar. Þannig hljótum við
íslendingar, að binda verulegar
vonir við þróunina í hafréttar-
málum á alþjóðavettvangi. í
marzmánuði verður hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
fram haldið og að þessu sinni í
New York. Það sem af er
fundum hafréttarráðstefnu
hafa hagsmunamál okkar ís-
lendinga fengið jákvæðar
undirtektir og við hljótum að
reyna að haga málum okkar á
þann veg, að svo verði áfram.
Hins vegar er óhyggilegt að
búast við niðurstöðu á haf-
réttarráðstefnunni ! marz. Gert
er ráð fyrir öðrum fundi ráð-
stefnunnar síðar á þessu ári og
margir eru þeirrar skoðunar, að
ekki megi búast við niðurstöðu
fyrr en á árinu 1977.
Hins vegar er Ijóst, að sívax-
andi kröfur eru um það í ýms-
um löndum, að fiskveiðilöq-
Yið höfum
náð árangri
saga þeirra verði færð út ein-
hliða í 200 sjómílur. Nú hefur
utanríkisráðherra Mexíkó lýst
því yfir, að Mexíkó muni lýsa
yfir 200 sjómílna fiskveiðilög-
sögu í mai eða júnímánuði og
fyrir Bandaríkjaþingi hefur um
skeið legið frumvarp, sem upp-
haflega gerði ráð fyrir útfærslu
bandarískrar fiskveiðilögsögu í
200 sjómílur á miðju þessu ári.
Hins vegar er kunnugt, að
Bandaríkjastjórn hefur verið
andvíg því en tillögur munu
hafa verið uppi um að breyta
frumvarpinu á þann veg, að
útfærslan taki gildi hinn 1.
janúar 1977 og að Bandaríkja-
forseti muni e.t.v. ekki hreyfa
andmælum við því, ef tveir
fundir hafréttarráðstefnunnar á
þessu ári bera engan árangur.
Þá er einnig vitað, að bæði í
Kanada og Noregi eru uppi
vaxandi kröfur um útfærslu í
200 sjómllur. Þær kröfur verða
háværari ef hafréttarráðstefnan
dregst á langinn.
Augljóst er, að útfærslur
annarra ríkja í 200 sjómílur á
þessu ári eða í byrjun næsta árs
munu mjög styrkja stöðu okkar
íslendinga í landhelgisdeilunni
við Breta. Erfitt mun fyrir Breta
að halda uppi hernaðarlegu of-
beldi gagnvart íslendingum ef
fleiri og fleiri riki í okkar heims-
hluta bætast í hóp þeirra, sem
lýst hafa yfir svo viðáttumikilli
lögsögu. Þess vegna munum
við vinna þessa deilu á tíma ef
ekki á annan hátt, og þá skiptir
miklu, að við gerum engin þau
mistök nú i hita bardagans,
sem ekki verða aftur tekin.
THE OBSERVEF THE OBSERVER á&fc THE OBSERVER iStít THE OBSERVER iStít THE OBSERVER
Erfið barátta
FBI við öfgahópa
San Fransisco
HRÓÐUR bandarísku alríkislögreglunnar FBI
jókst verulega, er henni tókst að handsama
Patriciu Hearst fyrir skömmu Hafði leitin að
þessum fræga milljónaerfingja, sem gerzt hafði
byltingarsinni, svo og vinum bennar, staðið í 1 9
mánuði og verið ákaflega víðtæk og skipulögð.
Hins vegar er ekki Ijóst enn, hvernig FBI reiðir af
í baráttunni gegn öðrum hryðjuverkahópum,
sem láta mjög að sér kveða í Bandaríkjunum um
þessar mundir Þeir láta minna á sér bera en
Patty Hearst og félagar hennar, en eru yfirleitt
færari á sínu sviði og hafa staðið fyrir liðlega
1 000 sprengjutilræðum það sem af er þessu
ári
Svo virðist sem FBI verði ekki á næstunni
nægilega vel ágengt í þessari baráttu, þrátt fyrir
margvíslegar áætlanir um gagnnjósnir í því
skyni að ná tökum á hreyfingunum innan frá og
sundra þeim þannig Þá hefur FBI leitazt við að
efna til uppþota innan skemmdarverkahópanna
og reynt ýmiss konar „bolabrögð" til að fá ýmsa
stuðningshópa uppreisnarmanna til að láta þá
lönd og leið eða gera þá samábyrga fyrir glæpa-
verkunum En allt hefur komið fyrir ekki og
Clarence Kelly, yfirmaður alríkislögreglunnar,
sagði fyrir skömmu: „Ég er hræddur um, að við
getum ekki náð tökum á þessum hópum bylting-
armanna, sem vilja kollvarpa stjórn landsins
með ofbeldi '
Allar líkur benda til þess, að átökin milli
leynilögregluhópa og hermdarverkamanna, t d
Weather-hreyfingarinnar nálgist nú suðumark
Hermdarverkamennirnir, sem eru yfirleitt vel
menntuð börn bandarlskra miðstéttarmanna, eru
mjög fíknir í að sýna mátt sinn og megin á
opinberum minningarhátíðum og þess háttar
Telur FBI mikla hryðjuverkahrmu í vændum
á næsta ári, en þá verður þess minnzt með
pompi og pragt að 200 ár verða liðin frá
stofnun Bandarlkjanna, auk þess sem forseta-
kosningar munu fram fara
Ekki er þar með sagt, að borgarskæruliðar í
Bandarfkjunum hafi látið déigan síga á þessu ári.
Eftir fyrstu 7 mánuðina höfðu þeir 31 mannslíf á
samvizkunni og 206 manns höfðu hlotið meiri
eða minniháttarmeiðsl af þeirra völdum, en
eignatjón af tilræðisverkum þeirra nam milljón-
um dollara Hefur starfsemi skæruliðanna kostað
þrefalt fleiri mannfórnir þar sem af er þessu ári,
heldur en allt sl ár
Kalifornía hefur um nokkurt árabil verið gróðr-
arstía fyrir starfsemi skæruliðahópa Samkvæmt
opinberum upplýsingum þaðan eru hermdar-
verkamenn þar nú í þann veginn að koma sér
upp eigin hergagnabúrum Eru þeir sagðir
kaupa riffla, sem stolið hefur verið úr vopnabúr-
um hersins, og afla sér sprengjuefna frá bygg-
ingafyrirtækjum í híbýlum Bill og Emely Harris,
bandamanna Patty Hearst, fann FBI námu af
upplýsingum, sendibréf, skjöl. morðáætlanir
o.fl sem komið gætu að gagni er skyggnzt yrði
inn í myrkviði skæruliðastarfsemi í Bandaríkjum
í híbýlum Harrishjónanna í Morse Street í San
Francisco fundust byssur og sprengjur og auk
þess yfirlýsing frá Frelsisfylkingu Nýja heimsins,
NWLF, þar sem samtökin lýstu á hendur sér
ábyrgð á bankaráni í Kaliforníu í apríl sl., þar
sem kona ein lét lífið NWLF er í flokki ötulustu
skæruliðahópa i Kaliforníu, og hafa samtökin ófá
sprengjutilræði á samvizkunni Telur lögreglan
þau skilgetið afkvæmi Symbónesíska Frelsis-
hersins, SLA, sem nú hefur verið upprættur, en
hafði raunar um skeið aðeins verið svipur hjá
sjón eða frá því í maí 1974, er 6 helztu
leiðtogarnir féllu í viðureign við lögregluna í Los
Angeles Var sjónvarpað frá þeim atburði um
gervöll Bandaríkin.
Eftir
Charles Foley
Meðal annarra framsækinna skæruliðahópa á
vesturströnd Bandaríkjanna má nefna Svarta
Frelsisherinn, George Jacksons-fylkið, en það
efndi til sprengjuaðgerða í kjörbúð i Seattle í
hefndarskyni fyrir handtöku Harris-hjónanna og
Patty Hearst, Rauðu skæruliðafjölskylduna og
siðast en ekki sizt, Weather-neðan-
jarðarhreyfinguna, sem er elzti skæruliða
hópurinn en jafnframt sá stærsti og slyngasti.
Weather-fólkið kallaði sig áður Weather-menn,
en nafngiftinni var breytt til að sýna fram á
jafnrétti kynjanna, enda konur i tæpum meiri-
hluta í samtökunum Þau hafa lýst sig ábyrg á
liðlega 40 sprengjutilræðum á undanförnum
fjórum árum. Þau hafa komið fyrir sprengjum i
bönkum, skrifstofum fjölþjóðafyrirtækja og jafn-
vel i húsakynnum öldungadeildar Bandaríkja-
þings i Kapítol. Siðasta „afrek" Weather-
samtakanna var sprenging i Kennecott Copper
byggingunni i Salt Lake City.
Fáir skæruliðahópar leggja sig eins i fram-
króka um að verða ekki mönnum að bana og
Weathersamtökin Þau senda alltaf frá sér við-
varanir áður en árásirnar eru gerðar Árið 1 974
var sú skýring gefin á þessari tillitssemi í greina-
safni félaganna, Weather-Auganu, að sprengju
tilræðin væru ,,að miklu leyti táknræn ', lita bæri
á þau sem herÆidaraðgerðir gegn byltingunni i
Chile, er stjórn Allendes var steypt, en leyniþjón-
ustu Bandarikjanna hefur verið borið á brýn að
hafa skipulagt hana. „Tilgangurinn er að upp-
lýsa," sagði Weather-Augað, en FBI erá öðrú
máli. Þar er sú skýring gefin, að samtökin forðist
mannfórnir af ótta við að þær myndu styggja
marga vinstri sinnaða stuðningsmenn samtak-
anna Og borgarskæruliðar Bandarikjanna hafa
ekki ráð á þvl. I landinu eru þúsundir og jafnvel
milljónir manna, sem telja sig róttæka og gera
þessum fáu ofbeldisseggjum kleift að halda
áfram starfsemi sinni, leyfa þeim að synda eins
og fiskum i vötnum vilhallra, svo að notuð séu
orð Maós formanns. Jafnvel þótt FBI verði stöku
sinnum vel ágengt, eins og t.d i Seattle, 24.
sept., er þeir handtóku Leonard Handelsman,
einn stofnfélaga Weather-samtakanna, hafa þeir
sjaldnast erindi sem erfiði i viðureigninni við
þennan þrautskipulagða hóp
„Þeir eru undir mjög ströngum aga," segir
einn af starfsmönnum FBI „Þeir eru undir
verndarvæng friðsamra, róttækra hversdags-
manna, og ekki er unnt að hafa hendur í hári
þeirra á sama hátt og annarra glæpamanna " Til
marks úm þetta leika flestir þeirra 40 forvigis-
manna samtakanna, sem FBI er kunnugt um,
enn lausum hala. Einn kunnasti leiðtogi samtak-
ann, Berardine Dohrn, hefurtil að mynda urr
fjögurra ára skeið verið I hópi þeirra, sem FBI
hefur lagt mest kapp á að ná. Dohrn var
lagastúdent i Chicago-háskóla, sem gerðist
hermdarverkamaður eftir mótmælaaðgerðirnar
meðan á frægu samsærisréttarhöldunum i Chi-
cago stóð
Þrátt fyrir mótmæli þingmanna vegna ofsókna
sem gerðar voru gegn vinstri sinnum, þegar J
Edgar Hoover var yfirmaður FBI, og demókrati
frá Kaliforniu sagði vera „andstyggilegar og oft
ólöglegar," hafa starfsmenn aðalbækistöðvanna
lýst yfir þvi, að gagnnjósnastarfsemi verði haldið
áfram Aðferðirnar hafa litið breytzt siðan
Hoover var og hét, og einkum fólgnar i þvi að
brjóta samtökin niður að innan. Það er tiltölu-
lega auðvelt, þegar um er að ræða samtök, sem
starfa opinskátt, og kosta kapps um að bæta við
liðsmönnum, svo sem Ku Klux Klan og
Kommúnistaflokkinn Hins vegar er ekki heygl-
um bent að beita slikum aðferðum gegn neðan-
jarðarhreyfingum, sem vel menntað fólk, mikið
til stúdentar og háskólafólk, hefur byggt upp
„Þeir eru vel heima í flestum gagnnjósnabrögð-
um," — segir yfirmaður einnar helztu leyni-
lögregluskrifstofu á vesturströndinni. „Og fullt
eins slyngir og flestir FBI menn."
Yfirvöldin virðast ekki vera sérlega vandlát á
fólk, sem það greiðir fyrir að afla upplýsinga Til
dæmis má taka Söru Jane Moore, miðaldra,
fráskilda konu, sem hafði unnið fyrir FBI í eitt ár,
áður en hún gerði misheppnað banatilræði við
Ford Bandarikjaforseta I september sl Hún
hafði verið bókhaldari hjá Randolph Hearst, og
var i hópi þeirra sem fengnir voru til þess að
dreifa matvælum fyrir fjórar milljónir dollara, en
það var lausnargjald, sem Symbónesiski frelsis-
herinn krafðist fyrir Patty Var hún fengin til þess
að þefa uppi ýmsa stuðningsmenn Symbónes-
iska frelsishersins, en sjálf kveðst hún hafa verið
neydd til þess Vinstri sinnar i San Francisco
segjast hafa gert sér Ijósan tilgang hennar undir
eins. Einn þeirra sagði: „Við kölluðum hana
FBI-frúna Þegar hún kom og spurði heimsku-
legra spurninga, fékk hún jafn heimsuleg svör
Til dæmis var henni sagt að Mark Rudd (einn af
félögum Weather-samtakanna, sem eftirlýstur
Framhald á bls. 13