Morgunblaðið - 16.01.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976
17
smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
íslenzka — Enska
Ungur bandaríkjamaður
búsettur hér á landi óskar
eftir að fá æfingu í að tala
íslenzku gegn því að kenna
ensku 1 —2 kvöld í viku.
Robert Felch, Karfavogi 23,
kjallara, er heima eftir kl. 6.
Sniðkennsla
Kvöldnámskeið hefst 21.
janúar. Kenni nýjustu tísku.
Innritun í síma 1 91 78
Sigrún Á Sigurðardóttir,
Drápuhlíð 48, 2. hæð.
—\rg-yy—
til sölu
____<w*t_
Útsala
Peysur á alla fjölskylduna.
Bútar og garn.
Anna Þórðardóttir h.f.
Skeifan 6. (vesturdyr).
Verðlistinn
Munið sérverzlunina með
ódýran fatnað, Laugarnes-
vegi 82, simi 31 330.
Ný kjólasending
Stuttir og siðir kjólar i
stærðum 36—48.
Dragtin, Klapparstig 37.
Álnabær Keflavík
Stór — útsala og bútasalan
stendur aðeins yfir þessa
viku.
Útsala. Útsala
Rauðhetta. Iðnaðarhúsinu.
Skólastúlkur
1 8 og 20 ára óska eftir vinnu
með skóla. Uppl. i s. 34047
frá 17—22 næstu daga.
Múrari getur tekið
að sér múrverk simi 84376.
Athugið
óska eftir atvinnu strax, hef
meirapróf og þungavinnu-
vélaréttindi. Allt kemur til
greina. Uppl. i sima 75823
eftir kl. 1 e.h.
r--ryv---w—irýv----
í húsnæöi
Keflavík
Til sölu nýlegt raðhús ásamt
bilskúr. Skipti á minni ibúð
kemur til greina.
Fasteignasalan, Hafnargötu
27, Keflavik, simi 1420.
íbúð i nýju húsi
í Keflavík til sölu.
Húsnæðismálalán áhvílandi.
Möguleiki á ýmsum skiptum
t.d. bíl eða íbúð í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 92-2734.
Húsnæði til leigu
Til leigu er raðhús í neðra
Breiðholti. Getur verið laust
strax. Tilboð sendist blaðinu
merkt „íbúð: 2396 '.
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu ca. 200 fm. strax.
Uppl. í síma 82276.
Framtalsaðstoð
Timapantanir í sima 1 7938.
Haraldur Jónasson, lögfræð-
ingur.
Vagoneer óskast
Árgerð 1970 — 73, uppl. i
sima 52468.
Vil kaupa
þurrhreinsunarvél. Upplýs-
ingar i sima 371 23.
Laugard. 17/1. kl. 20
Tunglskinsferð við
Lækjarbotna
blysför, leikir, stjörnuskoðun.
Fararstjóri Jón f. Bjarnason.
Brottför frá B S.l. (vestan-
verðu). Verð 500 kr. (fritt
fyrir börn í fylgd með fu.ll-
orðnum).
Sunnud. 18/1 kl. 13
Fjöruganga á Álfta-
nesi.
Fararstjóri Gísli Sigurðsson.
Brottför frá B.S.Í. vestan-
verðu Verð 500 kr., frítt fyrir
börn i fylgd með fullorðnum.
Útivist.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar
býður eldra fólki i sökninni á
skemmtun i Domus við Egils-
götu sunnudaginn 1 8. janúar
kl. 3 siðdegis. Fjölbreytt
skemmtiatriði.
Stjórnin.
I.O.O.F. 12 = 157168VÍ =
Þ.K.
K vartmiluklúbburinn
heldur fund laugardaginn
1 7. janúar kl. 13.30 í
Laugarásbiói. Sýndar verða
nýjar kvartmílumyndir. frá
U.S.A. úr okkar eigin safni
ásamt nokkrum gullmolum.
Framtíðarbrautarmál, rædd.
Öllum heimill aðgangur.
Aðrir en félagsmenn greiði
100 kr. Bílaáhugamenn, sin-
um samstöðu. Stefnum að
því að koma hraðakstri af
götum borgarinnar inn á lok-
að löglegt svæði.
Stjórnin.
Frá Guðspekifélaginu
Á Vegamótum
nefnist erindi sem Sigvaldi
Hjálmarsson flytur i Guð-
spekifélagshúsinu Ingólfs-
stræti 22 i kvöld föstudag
16. jan kl. 9. Öllum heimill
aðgangur.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Hefur þú fundið
hvíta villihestinn??
Keppnin um hvíta villihestinn er enn í
fullum gangi. Stendurtil 20. þ.m.
Takið bækling í næstu búð.
Olympíuleikarnir í Mont-
real Kanada 17. júlí til 1.
ágúst 1976.
Sölu aðgöngumiða að leikjunum er að
Ijúka og eru því þeir sem hafa hug á að
kaupa aðgöngumiða vinsamlega beðnir
að hafa samband við okkur nú þegar.
FERÐASKRIFSTOFA RÍK/SINS
Reykjanesbraut 6. Sími. 25855.
Tilkynning
til launagreiðenda er hafa í þjónustu sinni
starfsmenn búsetta í Kópavogi.
Samkvæmt heimild í 7. tölulið 103. gr.
reglugerðar nr. 245/1963, er þess hér
með krafist, að öllum þeim er greiða laun
starfsmönnum búsettum í Kópavogi og
ekki hafa skilað starfsmannalistum í
janúar, að þeir skili nú þegar skýrslu um
nöfn starfsrnanna hér í umdæminu, sem
taka laun hjá þeim, nafnnúmer, heimilis-
fang og gjalddaga launa. Jafnframt skal
vakin athygli á skyldu kaupgreiðenda til
að tilkynna er launþegar hætta að taka
laun hjá kaupgreiðenda og þeirri ábyrgð,
er kaupgreiðandi fellir á sig ef hann
vanrækir skyldur sínar samkvæmt ofan-
sögðu, eða vanrækir að halda eftir af
launum upp í þinggjöld samkvæmt því
sem krafist er, en í þeim tilvikum er hægt
að innheimta gjöldin hjá kaupgreiðenda,
svo sem um eigin skuld væri að ræða.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
tilboö — útboö____________I
Útboð
Sjómannadagsráð í Reykjavík og Hafnar-
firði óskar eftir tilboðum í sölu á mið-
stöðvarofnum í Dvalarheimili Aldraðra við
Garðaveg í Hafnarfirði. Tilboðsgögn eru
afhent hjá Verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Álftamýri 9. Tilboð verða opnuð í
skrifstofu Sjómannadagsráðs að Hrafn-
istu miðvikudaginn 21. janúar 1976 kl.
1 1 .
Fiskiskip til sölu
207 lesta byggður i Austur-Þýzkalandi 1 975.
1 60 lesta byggt 1 964 með nýjum vélum
1 50 lesta byggt 1 967
1 90 lesta byggt i Noregi mjög gott togskip
29 lesta eikarbátur byggður á Akureyri 1973 með öllum
nýjustu siglingar- og fiskileitartækjum útbúinn á linu, tog og
netaveiðar.
Einnig Bátalónsbátar 1971 og 1973.
FISKISKIP
Austurstræti 14, 3. hæð,
sími 224 75 heimasími 13 742.
Þórður Bjarnason
bókari—Minning
F. 4.1. 1901.
D. 9.1. 1976.
Hann var sonur hjónanna
Bjarna Loftssonar kaupmanns á
Bíldudal og Gislínu Þórðardóttur
Þórður var faeddur á Bíldudal.
Bjarni faðir Þðrðar var frá
Brekku á Hvalfjarðarströnd. Móð-
ir Þórðar var frá Tálknafirði. Þær
ættir eru alkunnar. Bræður Þórð-
ar voru Loftur útgerðarmaður og
forstjóri f Hafnarfirði og Hval-
firði og Kristján skipstj. á skipum
Eimskipafélagsins. Hann fórst
með skipi sínu í stríðinu, þá á
bezta aldri. Að Kristjáni skip-
stjóra var mikill mannskaði. Allir
voru þeir bræður kunnir menn
vegna hæfileika sinna.
Þórður Bjarnason sem hér
verður minnzt með nokkrum
orðum var nemandi Flensborgar-
skóla og tók þaðan fullnaðarpróf
gott því hann var námsmaður í
bezta lagi. Sérstaklega lá reikn-
ingur honum í handraða. Hann
var glímumaður ágætur. Á Verzl-
unarskólanum í Reykjavík var
Þdrður um sinn og byrjaði skrif-
stofustarf hjá verzl. Sæm.
Halldórssyni í Stykkishólmi, sem
þá hafði þar mikil umsvif og var
þekkt og mikils metið fyrirtæki á
sinni tið. Þdrður gat þó ekki verið
þar lengi þvi hann varð að fara á
Vífilsstaðahæli eins og svo margir
aðrir sem hlutu skaða af þeim
skæða sjúkdómi, berklunum á
þeim árum svo sem alkunnugt
var.
Eins og að líkum lætur var
þetta mikið áfall fyrir vinnufúsan
hæfileikamann i blóma lífsins, til-
búinn til strits og starfs. Þó fékk
Þdrður rönd við reist og vann bug
á sjúkdómi sínum. Þegar bati var
íenginn fór Þdrður til starfs án
tafar fyrst hjá fyrirtækjum í
Reykjavík, svo í Hafnarfirði þar
sem það skyldi mikið verða.
Árið 1929, þegar h/f Júpiter
var stofnað, réðst Þdrður á skrif-
stofu okkar og varð hluthafi. í því
starfi var hann til 1945. I árslok
1947 fiuttu félögin Júpiter og
Marz til Reykjavíkur. Á skrifstofu
okkar höfðu starfað ásamt Þdrði
og fleirum þeir bræður Björn og
Öfeigsson og Guðmundur Ófeigs-
son. Þeir fylgdu félögunum til
Reykjavíkur, en Þdrður var kyrr
hjá Venusi h/f.
Eftir nokkur ár óskaði Þórður
Bjarnason eftir að komast á skrif-
stofu h/f Júpiters og Marz og
vinna með sinum gömlu starfs-
bræðrum og er ekki að orðlengja
það að aldarfjdrðungi bætti hann
við á skrifstofu félaganna. Þá var
hans starfstími hjá þeim orðinn
40 ár.
Áhugi Þdrðar á útgerð og afla-
brögðum var mikill. Hann var oft
snemma á fótum og gekk þá ofan
á bryggju i Hafnarfirði til að
ganga úr skugga.um afla skipa og
sölur. Svo hafði hann það til að
svipast um á togarabryggjunni f
Reykjavík ef skip var að landa. Þá
fyrst hélt hann á skrifstofuna,
auðvitað á réttum tíma.
Fyrir nokkru ókum við hjónin
niður á Ægisbryggju þar sem
togarinn Neptúnus liggur. Þá
kom bíll. I honum voru þeir feðg-
ar Þórður og Bjarni. Þdrður var
hress og glaður í bragði eins og
venjulega. Hann heilsaði okkur
og sagðist mundu bráðlega koma
til vinnu sinnar á skrifstofu okkar
því batinn væri i nánd. Við
sáumst ekki aftur. Batinn varð
með öðrum hætti.
Nokkuð táknrænt var að við
skyldum kveðjast í síðasta sinn
við Neptúnus sem legið hefur 134
ár mannalaus en hafði á sínum
tíma borið hróður Islands á brezk-
um markaði með heimsmeti og
hélt því lengur en nokkur annar,
13 ár.
Þdrður Bjarnason var búinn að
vera hæfileikamaður f togaraút-
gerð lengi og vel. Happasæld
þekkti hann af eigin raun. Hans
velgengni var velgengni þess
félags sem hann var hjá. Hann
var skilamaður að eðlisfari og
vildi allt gera til velfarnaðar þeim
sem hann vann. Stundvisi hans
var sérstök og ósérhlífni hans al-
þekkt. Hann var einstakt prúð-
menni og skapfestumaður af
gamla skólanum. Kunni þó vel að
sjá nýja bjarmann en frumhlaup í
framkvæmdum voru honum
fjarri skapi.
Nú er þessi grandvari vinnuvík-
ingur genginn til hinztu hvildar
eftir langan starfsdag og stundum
nokkuð erilsaman og erfiðan, vel-
metinn og vel virtur af öllum sín-
um samferðamönnum.
Þau hjónin Þorður Bjarnason
og Valgerður Jóhannesdóttir hafa
mikið barnalán. Þau eru Viðar,
skipstjóri, Hrafnhildur, bankarit-
Framhald á bls. 13