Morgunblaðið - 16.01.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1976
27
/ stuttu máli
LAUGARDALSHÖLL 14. JANtlAR
ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD.
(JRSLIT: ARMANN — GRÓTTA 20—18
(11—8)
GANGUR LEIKSINS.
MlN. ARMANN GRÓTTA
2. Pélur 1:0
4. 1:1 Arni
5. Friðrlk 2:1
6. Pétur 3:1
7. 3:2 Hörður
9. Pétur 4:2
9. 4:3 Hörður
11. Friðrik 5:3
16. Hörður H. (v) 6:3
18. Hörður H. 7:3
19. 7:4 Arni
20. Pétur 8:4
22. 8:5 Halldór
23. Hörður 9:5
26. 9:6 Arni
26. Pétur 10:6
27. Hörður H. (v) 11:6
28. 11:7 Björn P.
29. 11:8 Halldór (v)
HALFLEIKUR
32. 11:9 Magnús
34. Hörður H. 12:9
36. Hörður K. 13:9
36. 13:10 Axel
38. 13:11 Georg
40. Björn 14:11
43. 14:12 Magnús
45. Hörður K. (v) 15:12
46. 15:13 Arni (v)
47. Friðrik 16:13
48. Jðn A. 17:13
49. 17:14 Arni (v)
51. 17:15 Arni (v)
55. 17:16 Hörður
56. Björn 18:16
56. 18:17 Halldór
56. Jens 19:17
57. 19:18 Hörður
60. Pétur 20:18
MÖRK ARMANNS: Pétur Ingólfsson 6.
Hörður Harðarson 5. Friðrik Jóhannsson
3, Björn Jóhannesson 2, Hörður Kristins-
son 2, Jón Astvaldsson 1, Jens Jensson 1.
MÖRK GRÓTTU: Arni Indriðason 6,
Hörður Már Kristjánsson 4, Halldór
Kristjánsson 3, Magnús Sigurðsson 2,
Axel Friðriksson 1, Georg Magnússon 1,
Björn Pétursson 1.
BROTtVlSANIR AF VELLI: Axel Frið-
riksson og Arni Indriðason, Gróttu, I 2
mfn., Stefán Hafsteín og Hörður
Kristinsson, Armannf, f 2 mfnútur.
MISHEPPNUÐ VfTAKÖST: Ragnar
Gunnarsson varðí vftakast frá Birni
Péturssynf á 14. mfnútu og 32. mfnútu.
Halldór Kristjánsson átti vftkast f stöng
á 44. mfnútu og Hörður Harðarson skaut
framhjá úr vftaksti á 42. mfn.
— stjl.
LAUGARDALSHÖLL 14. JANUAR
ISLANDSMÓTIÐ 1. DEILD:
(JRSLIT: FRAM — VALUR 15—21
(5—9)
GANGUR LEIKSINS:
MtN. FRAM VALUR
4. Hannes 1:0
9. 1:1 Þorbjörn (v
11. 1:2 Guðjón
11. Hannes 2:2
13. Pálmi 3:2
14. 3:3 Jóhann
16. Arni 4:3
17. 4:4 Jóhann
19. 4:5 Jóhannes
22. 4:6 Bjarni
23. Magnús 5:6
25. 5:7 Gunnar
28. 5:8 Guðjón
30. 5:9 Stefán
HALFLEIKLR
32. Pálmi 6:9
34. Pálmi (v) 7:9
37. 7:10 Jón P.
38. Pálmi 8:10
38. 8:11 Jóhann
40. Pétur 9:11
43. 9:12 Jón P.
45. 913 Guðjón
48. Pálmi 10:13
50. 10:14 Gunnsteinn
51. 10:15 Steindór
52. 10:16 Stefán
53. Pálmi 11:16
53. 11:17 Guðjón
55. 11:18 Guðjón
55. Pálmi 12:18
57. Gústaf 13:18
58. 13:19 Bjarni
58. Magnús 14:19
59. Pálmi 15:19
60. 15:20 Þorbjörn
60. 15:21 Bjarni
MÖRK FRAM: Pálmi Pálmason 8,
Magnús Sígurðsson 2, Hannes Leífsson 2,
Arni Sverrisson 1, Pétur Jóhannesson 1,
Gústaf Björnsson 1
MÖRK VALS: Guðjón Magnússon 5,
Bjarni Guðmundsson 3, Jóhann Ingi
Gunnarsson 3, Þorbjörn Guðmundsson 2,
Jón P. Jónsson 2, Stefán Gunnarsson 2,
Steindór Gunnarsson 1, Gunnsteinn
Skúlason 1, Gunnar Björnsson 1,
Jóhannes Stefánsson 1.
BROTTVlSANIR AF VELLI: Engar
MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Guðjón
Erlendsson varði vftakast Þorbjörns
Guðmundssonar á 17. mín. Jón Pétur
Jónsson átti vftakast f stöng á 45. mfnútu
og Ólafur Benediktsson varði vftakast
Pálma Pálmasonar á 42. mfn.
STAÐAN
STAÐAN 1 1. deildar keppni Is-
Iandsmótsins í handknattleik er
þannig eftir leikina í fyrrakvöld:
Valur 8 6 1 1 156:118 13
FH 8 5 0 3 174:156 10
Haukar 9 4 2 3 168:156 10
Víkingur 8 4 0 4 165:166 8
Fram 9 3 2 4 141:146 8
Þróttur 9 3 2 4 167:177 8
Armann 9 3 1 5 151:188 7
Grótta 8 2 0 6 139:154 4
Markhæstu leikmennirnir f
deildinni eru eftirtaldir:
Friðrik Friðriksson, Þrótti 55
Páll Björgvinsson, Vfkingi 52
Hörður Sigmarsson, Haukum 47
Pálmi Pálmason, Fram 46
Þórarinn Ragnarsson, FH 40
Björn Pétursson, Gróttu 38
Geir Hallsteinsson, FH 38
Viðar Símonarson, FH 38
STADA GROTTC ERFID EFTIR
TAP FYRIR ÁRMEMINGUM
Jens Jensson hefur snú-
ið á Georg Magnússon og
fer inn úr horninu. Að
þessu sinni tókst honum
ekki að skora. Hörður
Már Kristjánsson og
Pétur Ingólfson fylgjast
með, spenntir á svip.
Ljósm. Mbl. RAX
SELTJARNARNESLIÐIÐ Grótta
stendur nú mjög höllum fæti f
baráttunni f 1. deild Islandsmóts-
ins f handknattleik. Eftir tap liðs-
ins fvrir Armenningum f Laugar-
dalshöllinni á miðvikudags-
kvöldið situr það yfirgefið á botn-
inum, með 4 stig, en Ármenn-
ingar, sem voru aðeins með einu
stigi meira en Gróttuliðið fyrir
leik þennan, eru hins vegar með 7
stig. Eftir góða frammistöðu
Gróttu f deildinni í fyrra áttu
fæstir von á þvf að liðinu myndi
vegna svo illa f vetur sem raun
ber vitni, en miklu minni kraftur
er f liðinu núna en var f fyrra og
einhvern veginn virðist svo sem
málunum sé þannig komið að
Gróttumenn trúi ekki lengur á að
þeir geti sigrað f leikjum sfnum.
Töluverðs taugaspennings
gætti hjá báðum liðunum i leik-
byrjun í fyrrakvöld. Ármenn-
ingar voru þó til muna ákveðnari
og allt annað að sjá til þeirra að
þessu sinni en var í leiknum gegn
FH á sunnudagskvöldið. Nú
örlaði a.m.k. fyrir baráttu I liðinu,
og öðru hverju brá fyrir hjá því
ágætu spili. Þetta geta Ármenn-
ingar, og með meiri festu í leik
sinum og þolinmæði gætu þeir
ugglaust náð mun lengra en þeir
hafa náð til þessa.
Leikurinn var nokkuð jafn í
byrjun, en síðan sigu Armenn-
ingar frammúr jafnt og þétt og
náðu nokkrum sinnum fjögurra
marka forskoti. En þegar á leik-
inn leið brugðu Gróttumenn á það
ráð að taka Hörð Harðarson úr
umferð, en hann hafði reynzt
þeim mjög erfiður f leiknum,
skorað sjálfur mark eftir mark og
auk þess verið „primus mótor“ i
spilinu hjá Ármenningum. Við
þetta kom nokkurt los á Ármanns-
liðið og Grótta saxaði verulega á
forskotið. Þegar 5 mínútur voru
til leiksloka var markamunurinn
aðeins eitt mark og þannig var
staðan einnig þegar 3 mínútur
voru eftir. Fengu Gróttumenn þá
þrfvegis tækifæri til að jafna, en
höfðu ekki þolinmæði til að bíða
eftir sæmilegum skotfærum og
svo fór að það voru Ármenningar
sem áttu siðasta orðið í leiknum
og unnu þvi tveggja marka sigur,
20—18, sem telja verður fyllilega
verðskuldað.
Það sem breytti tvimælalaust
svip Armannsliðsins til hins betra
var, að nú lék markvörður þess,
Ragnar Gunnarsson, með. Ekki að
Ragnar ætti neinn stjörnuleik að
þessu sinni, heldur var það frem-
ur að Armenningar voru miklu
öruggari í vörninni og ekki sama
pat á þeim og var i leiknum á móti
FH á dögunum. Þó nær Armanns-
vörnin ekki verulega vel saman,
— samvinna leikmanna er stund-
um takmörkuð og slíkt býður upp
á góð tækifæri fyrir andstæðing-
ana.
Hörður Harðarson var atkvæða-
mestur Ármenninga í sóknar-
leiknum og skoraði mjög falleg
mörk með því að renna knettinum
meðfram gólfinu í mark Gróttu.
Virðist mjög erfitt fyrir mark-
verði að ná slíkum skotum. Þá átti
Pétur Ingólfsson einnig ágætan
leik, og nýtir hann jafnan vei þá
möguleika sem bjóðast.
I Gróttuliðinu hafði Árni
Indriðason höfuð og herðar yfir
félaga sína og hefur sennilega
aldrei verið betri en um þessar
mundir. Hann er gifurlega
sterkur varnarleikmaður og fjöl-
hæfni hans sem sóknarleikmanns
fer auk þess mjög vaxandi. Hins
vegar kom það nokkuð á óvart
hve Björn Pétursson var daufur i
þessum leik. Hann reyndi tölu-
vert að skjóta en skoraði aðeins
eitt mark. Má vera að það geri
gæfumuninn fyrir Gróttu í vetur,
að Björn hefur aldrei fundið
formið, en hann var annar mark-
hæsti leikmaður Islandsmótsins i
fyrra og skoraði þá fast að 100
mörkum.
SIÐASTI DAGUR
útsölunnar er á morgun. Ennþá má gera reyfarakaup.
50-70%
afsláttur
DOMUDEILD 1. HÆÐ
HERRADEILD 2. HÆÐ