Morgunblaðið - 10.03.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.03.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1976 3 Nokkrar af 22 kvenmönnum í leikritinu. Ljósm. RAX. Þrír aðalleikarar leikritsins Þingkonurnar. LEIKLISTARFÉLAG Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir í kvöld leikritið Þingkon- urnar eftir Aristofanes. Er þetta jafnframt í fyrsta sinn sem þetta leikrit er flutt á tslandi en áður hefur leikritið Frum- sýning á íslandi Ragnheiður Tryggvadöttir á æfingu leikritsins. „Þingkonurnar” í Mennta- skólanum við Hamrahlíð Lýsistrata eftir sama höf- und verið flutt hér við góða aðsókn. Islenska gerð annaðist Kristján Arnason en leikstjóri er Stefán Baldursson. í leiknum eru samtals 28 hlutverk, þar af 22 kven- hlutverk. Tónlistarflutn- ing annast 7 manna hljómsveit úr skólanum en alls hafa yfir 40 ein- staklingar lagt hönd á plóginn við uppsetningu verksins. Leikritið Þingkonurnar ger- ist i\Aþenu á fimmtu öld fyrir Krist. Frjálsir og velefnaðir karlmenn ráða ríkjum og er al- menningur ekki harla ánægður með ástandið í landinu eins og oft vill verða. Sérstaklega eru það konur sem eru óánægðar enda undirokaðar og plagaðar. Þær taka því það ráð að dulbú- ast semkarlmenn laumastinn í þingið og ná aö hrifsa til sin völdin. Á þingi fá þær því fram- gengt að kvennaveldi er komið á fót. Hugsa þær sér að stjórna ríkinu á sama hátt og kvenfé- lagi og telja sig geta grætt á tá og fingri. Þessu kvennaveldi fylgja lagabreytingar og sam- þykktir sem karlmönnum fell- ur ekki alls kostar vel við. Höfundur!nn Aristofanes er þekktasti gamanleikjahöfund- ur Grikkja. Hann var uppi á fimmtu öld f. Kr. og gerist leik- urinn einnig á þeim tíma. Samdi hann 40 verk en mörg þeirra eru nú glötuð. Þingkon- urnar er eitt af siðustu verkum Aristofanesar. Nú á þessari öld hefur Aristofanes notið mikilla vinsælda Hafa verk hans verið sett upp í leikhúsum um allan heim, auk þess sem þeim hefur verið útvarpað og sjónvarpað. Aðeins eitt annað verk Aristofanesar hefur verið þýtt Stefán Baldursson leikst jóri. og flutt á íslenzku en það er Lysistrata sem hlotið hefur mjög góðar undirtektir hér á landi sem annars staðar. Leikritið Þingkonurnar tekur um hálfan annan tíma í flutn- ingi. Með aðalhlutverk fara Ragnheiður Tryggvadóttir, Karl Ágúst Ulfsson og Stefán Tryggvason en einnig fara Hrafnhildur Sveinsdóttir, Jón Erlingur Jónsson, Hrefna Har- aldsdóttir Halldóra Magnús- dóttir Auður Fr. Halldórsdóttir og Helga Haraldsdóttir með stór hlutverk. Tónlist er eftir Ölaf Hauk Símonarson en As- geir Steingrímsson sem er nem- andi í skólanum útsetti hana fyrir hljómsveitina. Leiktjöld eru gerð af myndlistafélagi MH. í fyrra sýndi leiklistafélag MH leikritið Gísl, einnig undir leikstjórn Stefáns Baldursson- ar við mjög góðar undirtektir. Gísli V. Einarsson endurkjörinn fonnaður Verzlunarráðs íslands AÐALFUNDUR Verzlunarráðs Islands hófst að Hótel Sögu, Súlnasal klukkan 10 í gærmorgun. Fundinn setti formaður ráðsins Gísli V. Einarsson og fjallaði hann í ræðu sinni aðallega um þann efnahags- vanda, sem við er að striða f dag, orsakir hans og afleiðingar og hvernig við eigi að bregðast ef finna á varanlega lausn. Slðan flutti Jónas Haralz bankastjóri ræðu og fjallaði þar um fríverzlun og þróun efnahagsmála hér á landi og í heiminum umhverfis okkur. Síðan tóku við venjuleg aðal- fundarstörf og stjórnarkjör. Gísli V. Einarsson var einróma endur- kjörinn formaður Verzlunarráðs Islands næstu tvö ár og aðrir í stjórn voru kosnir Hjörtur Hjart- arson, Albert Guðmundsson Hjalti Geir Kritjánsson, Öttar Ellingsen, Haraldur Sveinsson, Jón Magnússon, Hilmar Fenger, Höskuldur Ölafsson, Jóhann J. Ölafsson, Þorváldur Guðmunds- son, Vilhjálmur H. Viðhjálmsson, Önundur Ásgeirsson, Gunnar As- geirsson, Pétur Ö. Nikulásson, Halldór Jónsson, Kristmann Magnússon, Sveinn Björnsson skókaupmaður og Sigurður Gunn- arsson. Stjórnin mun á fyrsta fundi sínum kjósa 5 manna fram- kvæmdarstjórn úr sínum hópi. Klukkan 4,30 var aðalfundi Verzlunarráðsins slitið. Næsti fundur verður að tveimur árum liðnum. Á fundinum voru sam- þykktar ýmsar ályktanir. Að lokn- um fundinum bauð Verzlunarráð- ið fundarmönnum í móttöku i húsakynni sín, Þverá við Laufás- veg. Fyrirspurn á finnska þinginu um stofnun sendi- ráðs í Reykjavík í FYRIRSPURNARTÍMA I finnska þinginu fyrir skömmu bar þing- maðurinn Par Stenbaáck fram þá fyrirspurn hvort ráUgert væri a8 styrkja diplomatisk tengsl Finnlands og islands, og þá meS þvl a8 finnskur sendiherra yr8i búsettur I Reykjavik. Ráðherra utanríkisviðskipta, Sakari Lehto, varð fyrir svörum og sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar I þessu efni en rlkisstjórnin myndi slðar skoða málið með tillitit til vilja sérstakr- ar utanrikismálanefndar þingsins, sem taldi æskilegt að stofna sendiráð I Reykjavlk. Sagði ráðherrann að fjár- veitingarmál spiluðu þarna inn I. í framhaldi af þessu hafði Mbl. sam- band við Einar Ágústsson utanrlkisráð- herra Hann sagði að ekki hefði komið til tals nýlega að auka tengsl Islands og Finnlands með gagnkvæmum stofnun- um sendiráða. Ýmsir hefðu látið I Ijós óskir um sllkt og yrðu þessi mál skoð- uð. BUNAÐARÞINGSFULLTRUAR fóru um síðustu helgi f skoðunarferó um Suðurlandsundirlendið. Fyrst heimsóttu þeir Stóðhestastöð Búnaðarfélagsins á Litla-Hrauni, skoðuðu sfðan Safnahúsið á Selfossi og er þessi mynd tekin þar. Þá heimsóttu þeir einnig hevkögglaverksmiðjurnar f Gunnars- holti og á Stórólfshvoli við HvolsvöII. Búnaðarþingi lýkur í dag BUNAÐARÞING hefur nú staðið á þriðju viku og er gert ráð fyrir því að þinginu verði slitið síð- degis í dag. Meðal mála, sem Búnaðarþing hefur afgreitt á fundum sínum siðustu daga má nefna ályktun um merkingu nautgripa og breytingu á kjötsmatsreglum og ályktun um ráðstafanir til að bægja búfé frá þjóðvegum. Þá samþykkti þingið ályktun þar sem lýst er yfir fyllsta stuðningi við efni frumvarps um að bjarga mjólk frá eyði- leggingu i verkföllum en þingið gerði þá ábendingu að rétt væri að taka upp í frumvarpið ákvæði, sem tryggði óhindraða flutninga mjólkur frá framleiðendum til mjólkurbúa í verkföllum. Þingið hefur samþykkt ályktun um skólakostn- að. Er í henni fjallað um kostnað við kyndingu á skólum skyldunámsstigsins, auk þess sem óskað er eftir þvi að kostnaður við akstur skólabarna verði framvegis greiddur mánaðarlega, þ.e.a.s. hlutur ríkissjóðs. Eins og áður sagði hefur þingið einnig sent frá sér ályktun um ráðstafanir til að bægja búfé frá þjóðvegum landsins og er í álykt- uninni bent á að umferðaróhöppum af þessu tagi fari fremur fjölgandi og beinir þingið því til bænda að þeir sjái til þess að viðhald girðinga meðfram þjóðvegum sé nægilegt og þá eru bændur hvattir til að koma upp ristarhliðum á heimreiðum og hliðarvegum. Þá beinir þingið því til Vegagerðar ríkisins að hún færi eldri girðingar í rétta fjarlægð frá vegi. Þingið vekur einnig athygli á því hvort ekki sé rétt að beita ákvæðum laga sem heimila að hrossaeigendur séu skyldugir til að hafa hross sin í vörslu allt árið eða tiltekinn hluta þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.