Morgunblaðið - 10.03.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.03.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1976 11 Pétur Kr. Hafstein lögfræðingur: Frjálst útvarp á Islandi Eitt hið örðugasta hugtak til skilgreiningar og jafnframt hið mikilvægasta er efalítið orðið frelsi. Spekingar og spámenn hafa skýrgreint það með ýmsum hætti, enda eru þverstæður hug- taksins slíkar, að menn þykjast i skjóli frelsis geta bundið sig böndum eða jafnvel tortímt sjálf- um sér. Frumregla frelsisins getur þó ekki falið það í sér, að manni skuli vera frjálst að svipta sig frelsinu. Umfang frelsisins, svo óhlutkennt sem það er, mark- ast á hinn bóginn fremur af öðru en eigin vilja. En hversu mjög á annarra vilji að skerða eigið frelsi? Það er ef til vill fávíslega spurt, en seint fæst svarið. Raunar snýst öll mannleg tog- streita í meginatriðum um þetta efni. Einn flötur þess er hið frjálsa orð. Mannréttindi eru ekki gjöf frá Guði. Þau eru grundvöllur mann- legrar tilveru, og sérhver tak- mörkun þeirra er mannanna verk. Margir stjórnfræðingar halda því fram, að enginn megi vera frjáls, fyrr en hann er hæfur til að nota frelsi sitt. Þessi kenni- setning er hliðstæð dæmisögunni um manninn, sem einsetti sér að fara ekki á sjó, fyrr en hann kynni að synda. Eigi mennirnir að biða eftir frelsinu, þar til þeir eru orðnir vitrir i okinu, mega þeir sannarlega biða til eilifðarnóns. A íslandi er orðið frjálst — i orði kveðnu. Lög og stjórnarskrá mæla fyrir um prentfrelsi, félaga- frelsi og fundafrelsi. Frelsi and- ans má hvarvetna birtast — nema á öldum ljósvakans. Islenzkt út- varp er reyrt í viðjar ríkisein- okunar. Það þykir sumum harla gott og vildu ýmsir þeirra, að hrammur ríkisins næði lengra. Hinir eru þó miklu fleiri, að ég hygg, sem teldu það hina mestu ósvinnu, ef sama gilti um hið rit- aða orð, blöð og bækur. En hversu lengi ætla þeir að bíða þess klafa- bundnir að vitkast? Umræður hafa að undanförnu farið vaxandi meðal frjálshyggju- Ný færeysk frímerki Svo sem getið var um hér í Mbl. á sínum tima, gáfu Færeyingar út fyrstu frímerki sín 30. jan. 1975. Varð eftirspurn eftir þeim gífur- leg, einkum þó stimpluð á útgáfu- degi. Færeyingar senda ný frimerki á markað 1. april nk. og af því til- efni, að þeir taka þann dag að öllu leyti við stjórn póstmála sinna og stofna Postverk Föroya. En fram að þessu hefur færeyskum póst- málum verið stjórnað af dönsku póststjórninni í Kaupmannahöfn. Postverk Fóroya er sett á fót samkv. heimastjórnarlögum Fær- eyinga frá 1948. Er þeim heimilað í þeim lögum að taka sem sérmál undir sína stjórn flest þjónustu- og félagsmál. Frímerki þau, sem út koma 1. POSTVERK F0ROYA I. APRÍL 1976 F0ROYAR IÓO apríl, eru með táknrænum mynd- um. 160 aura frimerki er með fær- eyska fánanum, og hefur Zakarias Heinesen teiknað það. Merkið er 120 fm verzlunarhúsnæði á bezta stað við Laugaveginn og að auki talsvert geymslupláss, verður til leigu í vor. Þeir, sem hafa áhuga, sendi nafn og heimilisfang á afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „Laugavegur — 3973 ". Oskum eftir að taka á leigu eða kaupa verzlunarhúsnæði við Laugaveginn. Nánari upplýsingar veittarí síma 25580. manna um frjálst útvarp á Is- landi. Urtölumönnum hefur verið sýnt fram á, að rekstur frjálsra útvarpsstöðva er sízt umfangs- meiri en útgáfa tímarita eða dag- blaða. Þessar umræður þurfa að fara vaxandi og leiða til löggjafar. Tjáningarfrelsið er einn af horn- steinum lýðræðisins og verður ekki fremur en það skorið niður við trog. Frelsi og lög eiga ætíð að fara saman. Að öðrum kosti fullnægja þau ekki kröfum skynseminnar. Frelsið getur aldrei verið skyn- samlegt, nemaþví sé haldið innan vébanda laganna. Engin lög geta verið skynsamleg, nema þau séu byggð á hinni helgu undirstöðu frelsisins. offsetprentað í prentsmiðju Finn- landsbanka í Helsinki. 125 aura frímerki er með teikn- ingu af færeyskum báti eftir Fridtjof Joensen. 800 aura frímerki er gert eftir ljósmynd af færeyskum pósti. Er hann búinn til ferðar með póst- pokann á bakinu og hefur fjalla- stöng i hendi. Þannig var póst- flutningi háttað í Færeyjum um langt skeið og svo með bátum milli eyja. Tvö seinni merkin eru grafin í stálstungu af Czeslaw Slania i Stokkhóltfli, og er nafn hans næg trygging fyrir vönduðu verki. Prentsmiðja dönsku póststjórnar- innar hefur prentað þessi merki. A öllum frimerkjunum er merki færeysku póststjórnar- innar ásamt nafni hennar og stofndegi, eins og lesendur geta séð á meðfylgjandi myndum. Upplag frimerkjanna er ekki gefið upp, en þau má panta beint -með því að skrifa til Postverk Föroya, Frímerkjadeildin, 3800 Tórshavn. Eins afgreiðir póst- stjórnin fyrstadagsumslög, og kostar hvert þeirra d. kr. 11.45. íslenzkur læknir sérfræð- ingur við The Mayo Clinic SNORRI Ölafsson, læknir, hefur verið ráðinn frá júlí 1975 sérfræð- ingur ( lyflækningum. öndunar- færa- og brjóstholssjúkdómum við „The Mavo Clinic" I Rochest- er, Minnesota, I Bandarikjunum, og kennari við læknaháskólann þar. Snorri er fæddur á Eskifirði, sonur hjónanna Guðrúnar Ingvarsdóttur ' Pálmasonar al- þingismanns frá Ekru i Norðfirði og Ölafs forstjóra Sveinssonar Ölafssonar alþingismanns frá Firði í Mjóafirði. Hann lauk læknaprófi frá læknadeild Há- skóla Islandsl959, stundaði fram- haldsnám í Bandaríkjunum, lengst af við They Mayo Clinic, en siðar í Winnipeg og Montreal í Kanada. I Bandarikjunum vann hann nær ár á styrkjum frá Bandaríkjastjórn við rannsóknir á lungnasjúkdómum, og í Kanada vann hann sem „Fellow of the Medical Research Council of Canada“ að framhaldsrannsókn- um með styrk frá Kanadastjórn. Hann hefur skrifað um rannsókn- ir sinar í vísindarit. Hann hefur lokið prófum og hlotið viðurkenn- ingu sem sérfræðingur í sérgrein- um sínum bæði i Bandaríkjunum og Kanada. Arin 1971 til 1975 vann Snorri sem sérfræðingur í lyflækn- ingum, brjósthols- og öndunar- færasjúkdómum við Landspital- ann og hafði auk þess lækninga- stofu í Reykjavík. Snorri Ólafsson hefur verið kos- inn „Fellow of the Royal College of Physicians and Surgeons of Canada“, meðlimur The Ameri- can College of Physicians, The American College og Chest Physi- cians og The American Thoractic Society og „Affiliate Fellow of the Royal Society of Medicine of London". The Mayo Clinic var stofnuð 1905 af þremur feðgum. Stofn- unin óx hratt og hlaut mikla frægð fyrir lækningar og er nú ein stærsta og þekktasta lækn- ingamiðstöð Bandarikjanna. Þar vinna nú um 1000 læknar, auk 500—600 lækna, sem eru þar við framhaldsnám. 250.000 nýir sjúkl- ingar koma þar árlega til lækn- inga, ekki aðeins frá Bandaríkj- unum, heldur einnig viða að úr heiminum, og hafa allmargir Is- lendingar leitað þangað, auk þess sem nokkrir islenzkir læknar Snorri Ölafsson hafa hlotið framhaldsmenntun sína þar. Snorri Olafsson er giftur Eliza- beth Brinkworth Ólafsson frá Philadelphia í Pennsylvaniuríki og búa þau hjónin að 1254 Camel Back Court, Rochester, Minne- sota. Beinbrotinn Breti á Norðfirði BREZKA eftirlitsskipið Hausa kom á sunnudagskvöldið inn á Norðfjörð með fótbrotinn mann. Var maðurinn með lélegt gips um fótinn og var skipt um umbúðir og fékk maðurinn síðan að fara aftur um borð í skipið, þar sem læknar töldu ekki þörf á þvi að hann væri í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Neskaupstað, enda voru fvrirmæli dómsmála- ráðuneytisins þau, að ef ekki væri þörf á því að maðurinn legðist inn í sjúkrahúsið skvldi hann aftur sendur um borð. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, kvað gisp- umbúðir þær sem maðurinn hefði fengið um borð í skipinu ekki hafa verið nægilega góðar enda væri aðstaða ekki sem bezt til þess að búa um beinbrot á rúm- sjó. Skipslæknirinn um borð i Hausa fylgdi manninum i sjúkra- húsið og beið skipið úti á firði á meðan búið var um fót mannsins. Maðurinn var sköflungsbrotinn. Baronet Baronet sófasettid. Klassískur lúxus, j stolt eigandans. KJÖRGARÐI SÍMI16975 SMIDJUVEGI6 SÍMI44544

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.