Morgunblaðið - 10.03.1976, Blaðsíða 28
uí;iAsin<;asíminn er:
22480
JHorsnnblníití)
jwgpttttMðftifr
rUííLVSINííASÍMINN ER:
22480
JWorfitmblatitti
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1976
Hafréttarráðstefna SÞ hefst á mánudag:
Hans G. Andersen form.
íslenzku nefndarinnar
HAFRfiTTARRAÐSTEFNA Sameinuðu þjóðanna hefst í New York á
mánudaginn. Ráðstefnan mun standa fram til 7. maí og reiknað er með
því að boðað verði til nvrrar ráðstefnu f júlf og ágúst í sumar og verður
hún að öllum rikindum í Genf í Sviss.
Ákveðið er að Hans G. Ander-
sen hafréttarfræðingur verði for-
maður íslenzku nefndarinnar á
Hafréttarráðstefnunni, og heldur
hann til New York i dag. Auk
hans verða í nefndinni þeir Jón
Arnalds, ráðuneytisstjóri i sjávar-
útvegsráðuneytinu, Már Elísson
fiskimálastjóri. Jón Jónsson for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar, og fulltrúar allra þing-
flokkanna. Fulltrúi Framsóknar-
Guðmundur
teflir á Spáni
og Kúbu
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
stórmeistari heldur um næstu
mánaðamöt til Spánar, þar
sem hann mun tefla á mjög
sterku skákmóti. Fékk Guð-
mundur boð um þátttöku f
mótinu fvrir nokkrum dögum.
Friðrik Olafsson hefur teflt á
þessu móti tvö undanfarin ár
en hann verður ekki með að
þessu sinni. Ekki er vitað
hverjir teffa þar núna. en f
fyrra voru með skákmeistarar
eins og Ljubojevic, Tal, Lar-
sen og Anderson.
Að mótinu á Spáni loknu
heldur Guðmundur til Kúhu,
þar sem hann teflir á minning-
armóti um Capablanca, en það
er einnig mjög vel mannað.
Eftir að Guðmundur hækkaði i
Elo-stigum um s.l. áramót hef-
ur boðum um skákmót fjölgað
mjög og hefur hann á stuttum
tíma orðið að hafna þátttöku i
mótum í Sovétríkjunum, Israel
og Júgóslavíu. Síðastnefnda
mótið stendur einmitt núna, og
er heimsmeistarinn Karpov
meðal þátttakenda.
flokksins verður Þórarinn Þórar-
insson alþ.m., fulltrúi Alþýðu-
flokksins verður Jón Armann
Héðinsson alþ.m., fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins verður Gils Guð-
mundsson alþ.m. og fulltrúi
Frjálslyndra og vinstri manna
verður Haraldur Henrysson, saka-
dómari. Ekki er ákveðið ennþá
hver verður fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins. Fulltrúarnir munu
ekki allir sitja ráðstefnuna sam-
tímis.
Hans G. Andersen sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi
að fyrir ráðstefnuna yrði lagt
frumvarp í 400 greinum og væri
það hlutverk fulltrúanna á ráð-
stefnunni að fara í gegnum þetta
frumvarp og gera úr því eina
heild, sem fulltrúar gætu sætt sig
við. Sagði Hans að þetta væri mik-
Framhald á bls. 27
Ljósmynd Friðþjófur
ENGIN LOÐNA — Gert klárt fyrir loðnumóttöku í Reykjavíkurhöfn í vikubyrj-
un. I bakgrunni sést Bjarni Sæmundsson koma inn úr loðnuleiðangri, en í honum
fannst engin loðna. _______
63% aflaaukning brezkra
togara undir flotavernd
V-ÞYZKA blaðið Súd Deutsche Zeitung skýrir frá því 1. marz s.I. að á
tímabilinu frá 15. nóvember s.l. er brezku herskipin komu til verndar
brezka togaraflotanum á Islandsmiðum hafi togararnir aflað 20.500
tonn af fiski á tslandsmiðum, en á sama tímabili árið á undan hafi
aflinn numið 13.000 tonnum. Ef þessar tölur eru réttar þá er þetta
aflaukning sem nemur63.4%.
Morgunblaðið bar þessar tölur
undir Jón Olgeirsson, ræðismann
í Grimsby í gærkvöldi. Sagði Jón,
að hann hefði heyrt þessar tölur
áður, — en ég þori ekki að ábyrgj-
ast þær, því ég hef engar nýjar
tölur fengið frá ráðuneytinu, og
veit ekki við hvaða dag þær eru
miðaðar.
Hins vegar sagði Jón, að liklegt
væri að þessar tölur væru nærri
lagi, enda væri það stefna Breta
að hafa sam flesta togara á
íslandsmiðum á meðan núverandi
ástand ríkti.
„Eg hef heyrt að það sé stefna
stjórnvalda, að á Islandsmiðum
verði ávallt 25—30 togarar. Þetta
er líka skiljanlegt þegar helming-
ur brezka sjóhersins er notaður
til að verja þá."
Jón kvað fiskverð enn vera
mjög lágt i Grimsby og Hull, en þó
væri reytingsafli hjá þeim togur-
um, sem kæmu frá Islandsmiðum.
Afli togaranna hefði síðustu daga
verið frá80—130 tonn eftir veiði-
ferð. Undanfarna daga hefði það
kvisast út, að hluti af afla togar-
anna hefði verið seldur undir því
lágmarksverði, sem togaraeigend-
ur og sjómenn hefðu sett. Ef svo
væri þá hefði mun meira af
fiski farið í dýrafóður. Að
endingu kvað hann forsvarsmenn
sjávarútvegsins i Hull og Grimsby
hafa komið saman til fundar í
Grimsby í gær til að ræða hið
alvarlega ástand, sem nú ríkti í
brezkum fiskiðnaði.
Loðnan komin
í Breiðafjörð
Aðalvertíðin fer í hönd:
„Bara nokkuð bjartsýnn
á góða vetrarvertíð”
— segir Stefán Runólfsson í Vinnslustöðinni í Eyjum
Eyjamenn eru bjartsýnir á að nóg fáist af þorski á vertíðinni f
vetur, þó utan Náttúrugripasafnsins í Eyjum en þar tók Sigurgeir
Jónasson þessa mynd af þcim „gula“.
FRAMUNDAN er aðalvertíðar-
tíminn á vetrarvertíð. Morgun
blaðið ræddi í gær við menn f
fjórum stórum verstöðvum og
aflaði frétta af vertíðinni. Mis-
jafnt hljóð var í mönnum. A
Hornafirði var afar tregt fiskirf
og gæftir slæmar, i Vestmanna-
eyjum var sæmilegur afli og
tíðindamaður blaðsins bjart-
sýnn á góða vertíð, f Sandgerði
hafði afli glæðst mjög á síðustu
dögum eftir slæman kafla og f
Olafsvfk bíða menii eftir-hrot-
unni, sem aldrei hefur brugðist
upp úr miðjum marz.
„Það er heldur vont hljóð i
mér þessa stundina,“ sagði
Egill Jónasson frystihússtjóri
á Hornafirði við Mbl. í gær.
„Bátarnir hafa aðeins getað
róið 4 daga síðan frá verkfallí
vegna ógæfta.“
Egill sagði að afli væri lítill
þegar gæfi. Nefndi hann að 8
bátar hefðu á sunnudags-
morgun farið að vitja netja,
sem legið höfðu fimm daga í sjó
en aflinn var ekki meiri en 130
tonn samtals. Fiskurinn var
orðinn svona gamall vegna þess
að bátarnir komust ekki til að
vitja netanna vegna veðurs og
var aflinn mjög lélegur í
vinnslu eins og gefur að skilja
I gær var kolvitlaust veður og
ekkert útlit fyrir sjóveðri í dag.
Von er á skuttogaranum
Skinney inn á fimmtudaginn.
Skinney hefur fengið 3—400
tonn frá áramótum. Atvinna í
frystihúsinu hefur verið mjög
lítil og aðeins hafa verið fryst
20 tonn af loðnu.
„Eg er nú bara nokkuð bjart-
Framhald á bls. 27
I GÆRKVÖLDI klukkan 22 höfðu
29 skip tilkvnnt loðnuafla síðasta
sólarhring, rétt tæpar 10 þúsund
lestir. Var heildaraflinn orðinn
258 þúsund lestir á vertfðinni en
var 380 þúsund lestir á sama tima
í fyrra Loðnan fékkst í gær f
Breiðafirði. Engar fréttir hafa
borizt af nýjum loðnugöngum við
Suðurland en fréttir hafa borizt
um að mikil loðna sé i fiski. sem
veiðst hefur I Skagafjarðardýpi
að undanförnu.
Eftirtalin skip höfðu tiikynnt
loðnunefnd afla klukkan 22 i gær-
kvöldi:
Keflvíkingur 220, Þorsteinn
4 í gæzlu grunað-
ir um nokkur
stórinnbrot
RANNSOKNARLÖGREGLAN
f Hafnarfirði hefur í gæzluvarð-
haldi fjóra unga menn um tvf-
tugt, sem grunaðir cru um nokk-
ur stórinnbrot á Reykjavíkur-
svæðinu á undanförnum mánuð-
um. Er hér um að ræða tvö inn-
brot á bæjarskrifstofurnar á Sel-
tjarnarnesi, þar sem stolið var
samtals tæplega einni milljón
króna f peningum, innbrot i skrif-
stofu BP, þar sem stolið var 850
þúsund krónum og innbrot f
Svein Egilsson, Þ. Þorgrfmsson og
Sjóvá f Hafnarfirði, en á þessum
stöðum voru verðmæti tekin og
miklar skemmdir unnar.
320, Isleifur 220, Örn 300,
Höfrungur III 220, Alftafell 210,
Ásgeir 130, Hrafn 400, Albert 300,
Gullberg 400, Vörður 220, Húna-
röst 220, Rauðsey 450, Asberg 380,
Sæbjörg 300, Kristbjörg 200, Ölaf-
Framhald á bls. 27
Mjólkur-
skömmtun
hætt í gær
MJÓLKURSKÖMMTUN var
hætt á höfuðborgarsvæðinu f
gær, og sagði Oddur Helgason
hjá Mjólkursamsölunni við
Mbl., að vonast væri til að nú
loksins hefðu eðlilegar mjólk-
urbirgðir safnast fyrir á heim-
ilum þannig að mjólkurdreif-
ing kæmist í eðlilegt horf.
I gær var ekið 20% meira
magni í mjólkurbúðir en venja
er til en þrátt fyrir það seldist
mjólkin upp í nokkrum mjólk-
urbúðum. Oddur Helgason
sagði að Mjólkursamsalan
fengi nú eins mikla mjólk og
venjulega frá bændum á sínu
samlagssvæði og einnig væri
flutt mjólk með bílum frá Ak-
ureyri. Nægilega mikið á að
veratil af flestum mjólkurvör-
um, svo sem rjóma, skyri og
jógúrt en lítið verður um súr-
mjólk í mjólkurbúðunum í
dag.