Morgunblaðið - 09.04.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976
3
Smyglið í
Laxfossi
LEIT var haldið áfram í gær í Laxfossi, þar sem
skipið lá við Gufunes. Enginn smyglvarningur
fannst til viðbótar þeim 2—300 flöskum af 75%
vodka, sem fundust í hólfi undir vél skipsins í
fyrradag. 7 skipverjar hafa játað að eiga áfengið.
Myndirnar voru teknar í gær. Sýnir önnur þeirra
tollvörð halda á loki yfir hólfinu, þar sem áfengið
fannst, en hin sýnir birgðirnar.
Ljósmynd Friðþjófur
Nú eiga möskvar í
dragnót að stækka
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út nýja reglugerð um drag-
nótaveiðar. I henni segir, að lág-
marksstærð möskva [ poka drag-
nótar skuli vera 170 mm, óg ávallt
skuiu a.m.k. öftustu 5 metrar
dragnótarinnar vera úr 170 mm
riðli. Lágmarksstærð f öðrum
hluta dragnótar skal vera 135
mm.
Öheimilt er að nota nokkurn
þann útbúnað, sem þrengir eða
herpir á nokkurn hátt möskva þá,
sem áður er lýst, þó skal ekki
teljast ólögmætt að festa undir
poka dragnótar segldúk, net eða
annað efni í því skyni að koma í
veg fyrir eða draga úr sliti, þó
þannig, að þessir slitvarar eða
Framhald á bls. 20
Al-hús
til sýnis
tSLENZKA álfélagið h.f. hefur
látið reisa hús úr áli að Hauka-
nesi 15. Verður húsið sýnt boðs-
gestum f dag en verður sfðan
opnað almenningi frá og með deg-
inum á morgun. Verður það opið
daglega fram til 19. aprfl klukkan
14 til 21.
Álhúsið sem reist er sem aug-
lýsing til þess að sýna á hvern
hátt er unnt að nota þennan málm
í byggingariðnaði, er hannað af
arkitektunum Helga og Vilhjálmi
Hjálmarssonum og Alusuisse.
Burðarþolsteikningar hefur
Vilhjálmur Þorláksson gert, en
teikningar að hitakverfi, vatns-
kerfi og skólpi hefur verkfræði-
skrifstofa Guðmundar og
Kristjáns annast. Rafmagnslögn í
húsið er gerð af Rafteikningu s.f.
Byggingarstjóri hefur verið
Pálmi Stefánsson verkfræðingur.
Grind hússins er úr áli, en
einnig er notað báruál. Þá eru
veggja samlokur úr áli, inngangur
og bílskúrshurð. Er allt þetta
framleitt af Alusuisse. Gluggar
eru framleiddir af Constral í
Sviss.
Húsið er sýnt með húsbúnaði
frá ýmsum verzlunum. Bygg-
ingarmeistari hússins er Sævar
Gunnlaugsson, múrarameistari
Ólafur Bjarnason, pípulagninga-
meistari Garðar Hannesson raf-
tækjameistari Skúli Þórsson og
málarameistari Kolbeinn G.
Óskarsson.
Hollendingarnlr f Garðyrkjuskólanum f Hveragerði ásamt ylræktarmönnum, er hlýddu á erindi um
ljóstækni. Ljósm. Ragna Hermannsdóttir.
Við gætum selt Hollendingum blóm
„VIÐ ÞORÐUM ekki að láta þetta
birtast f fjölmiðlum 1. aprfl, þvf
það hefði enginn trúað þvf,“ sagði
Arni Kristjánsson, aðalræðismað-
ur Hollands. Atti hann þá við
fréttir af athugun á þvf hvort
unnt sé að koma á blómaútflutn-
ingi héðan til Hollands.
Brezkt máltæki líkir fjarstæðu-
kenndum fyrirætlunum við það
að flytja kol til Newcastle. í hug-
um Islendinga er Holland eitt
gríðarstórt blómabeð, og hugsun-
in um að flytja þangað blóm frá
Islandi er álíka fjarstæðukennd
og kolaflutningarnir i brezka mál-
tækinu. Engu að siður er hér um
þaulkannaða hugmynd að ræða,
sem gæti komizt i framkvæmd
jafnvel á þessu ári.
Eins og skýrt var frá hér í blað-
inu á laugardag eru 6 Hollending-
ar staddir hér á landi til viðræðna
við íslenzka ráðamenn um hugs-
anlega smíði gróðurhúsa, sem
næðu yfir 3V6 hektara, eða 35 þús-
und fermetra lands. Ef úr verður
er ætlunin að rækta þar
chrystanthemum og flytja græðl-
inga vikulega til sölu i Hollandi.
Reiknast sérfræðingum svo til að
uppskeran yrði um ein milljón
græðlinga á viku, eða um 4 tonn.
Lætur nærri að það sé 6% heild-
armagnsins, sem selt er f Evrópu
vikulega.
Eins og er fá Hollendingar
chrysanthemum-græðlinga frá
ýmsum suðrænum löndum, til
dæmis frá Kenya, Tanzaníu, Ital-
iu, Frakklandi og Portúgal. Sá er
þar galli á að i öllum þessum
löndum er hætta á plöntusjúk-
dómum, sem ekki þekkjast hér.
Hollendingarnir sex hafa rætt
við forsætis-, landbúnaðar- og iðn-
aðarráðherra, auk þess sem þeir
hafa náið samband og samvinnu
við dr. Björn Sigurbjörnsson for-
stöðumann Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins og Gretar Unn-
steinsson, skólastjóra Garðyrkju-
skólans í Hveragerði. Þrir Hol-
lendinganna eru frá Philips-
fyrirtækinu hollenzka og hafa
Douwe Vries landbúnaðarráðu-
nautur (t.v.) og Arni Kristjáns-
son aðalræðismaður.
þeir meðal annars flutt fyrir-
lestra um ljóstækni í Garðyrkju-
skólanum fyrir ylræktarmenn og
ljóstæknifræðinga. Þá hafa Hol-
lendingarnir rætt við fulltrúa
Eimskipafélags tslands varðandi
hugsanlega flutninga á 1100 tonn-
um af byggingarefni í gróðurhús-
BUlÐ er að kalla skipstjóra 8
báta af 10, sem teknir voru á
friðaða svæðinu á Selvogsbanka,
fyrir rétt. Hafa þeir allir viður-
kennt að hafa verið á veiðum á
umræddu svæði. Mál skipstjór-
anna hafa verið send til saksókn-
ara rfkisins og tekur hann ákvörð-
un um hvað gert verður f málinu.
Páll Hallgrimsson, sýslumaður
á Selfossi, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að skipstjór-
ar 4 báta af 6, sem teknir voru og
gerðir eru út frá Þorlákshöfn
hefðu komið fyrir rétt f gær-
morgun. Hefði enginn þeirra
rengt mælingar varðskipsmanna.
Eftir ætti að yfirheyra skipstjóra
tveggja báta og yrði það gert um
leið og þeir kæmu að landi.
Valtýr Sigurðsson fulltrúi
bæjarfógeta í Keflavik, sagði, að
Athugun gerð
á smíði 35 þús.
fermetra
gróðurhúss
in, við Iscargo um flutninga á
græðlingum, og við Kassagerð
Reykjavíkur um kaup á 1000 köss-
um á viku undir græðlingana, ef
takast skyldi að finna grundvöll
fyrir þessum miklu framkvæmd-
um.
Douwe Vries landbúnaðarráðu-
nautur við hollenzka sendiráðið i
London, er ásamt Arna Kristjáns-
Framhald á bls. 20
skipstjórar af þrem bátum hefðu
mætt þar fyrir rétt í gær. Allir
hefðu viðurkennt að hafa verið á
þeim stað, sem varðskipið gaf
upp. Hins vegar hefðu skipstjórar
bátanna borðið þvi við, að þeim
hefði ekki verið kunnugt um að
friðaða svæðið hefði Verið
stækkað frá þvi i fyrra. Þeir
hefðu lagt fram kort, sem þeir
væru með um borð i bátunum, og
á því væri teiknað svæðið eins og
það var áður. Mál skipstjóranna
var sent saksóknara til umfjöll-
unar.
Mál skipstjóra Vestmannaeyja-
bátsins sem var á friðaða svæðinu
var tekið fyrir af Jóni Þorsteins-
syni fulltrúa i Eyjum í fyrra-
kvöld. Skipstjóri bátsins viður-
kenndi mælingar varðskips-
manna og var málið sent sak-
sóknara.
Viðurkenna veiðar
á friðaða svæðinu