Morgunblaðið - 09.04.1976, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976
í dag er föstudagurinn 9.
apríl, sem er 100. dagur árs-
ins 1976. í Reykjavik er ár-
degisflóð kl. 01.23 og síð
degisflóð kl. 14 10. Sólar
upprás er í Reykjavík kl.
06 17 og sólarlag kl 20 44.
Á Akureyri er sólarupprás kl.
05.56 og sólarlag kl. 20.34.
Tunglið er i suðri í Reykjavík
kl. 21.24. (íslandsalman-
akið)
Visa mér veg þinn, Drott-
inn, lát mig ganga í trú- .
festu þinni, gef mér heilt |
hjarta, til þess að óttast
nafn þitt. (Sálm. 86,
11.12.)
LARÉTT: 1. 3 eins 3 ká 5.
tfmabilin 6. veiða 8. átt 9.
vökvi 11. á flösku 12. 2eins
13. knæpa
LÓÐRÉTT: 1. ílát 2. árar 4.
mannsnafn 6. svarar 7.
(myndskýr) 10. ólfkir
Lausn á síðustu
LARÉTT: 1. VII 3. ol 4.
álút 8. sálast 10. starir 11.
man 12. NA 13. ný 15. farg
LÓÐRÉTT: 1. votar 2. il 4.
ássmá 5. láta 6. ílanna 7.
otrar 9. sin 14. ýr.
VINKONUR þessar að
Eyjabakka 11 í Breið-
holtshverfi efndu um
daginn til tombólu til
styrktar Hjálparsjóði
RKl. Þær hafa nú afhent
peningana sem voru um
1200 krónur. Þær biðja
fyrir kveðjur og þakkir
til þeirra er hjálpuðu
þeim á einn eða annan
hátt. — Þær eru Hrefna
Hallgrimsdóttir með húf-
una — og Helga Gunnars-
dóttir.
Hávaðinn þreytandi en
ekki hættulegur heym,
— segir Erlingur Þorsteinsson yfirlæknir um tækið f fangélsinu á Akranesi
'TGr o ND
Ég hef aldrei kunnað að meta þessa elektrónisku músík, vinur!
rFRÉTTIPI
I NÝJU Lögbirtingarblaði
er tilk. frá heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu um
lækningaleyfi sem veitt
hafa verið í marzmánuði
síðastl. en læknarnir sem
leyfin hlutu eru þessir:
cand. med. et chir. Ragnar
A. Finnsson til almennra
lækninga. Sigurður B. Þor-
steinsson til að starfa sem
sérfræðingur í lyflækn-
ingum, sérstaklega smit-
sjúkdómum. Cand. med. et
ehir. Vilhjálmur Rafnsson
til almennra lækninga,
cand. med. et chir. Auð-
bergur Jónsson til al-
mennra lækninga. Þá
hefur Þórarinn B. Ólafsson
læknir verið skipaður yfir-
læknir við svæfinga- og
gjörgæzludeild Landspítal-
ans.
MESSUR
AÐVENTKIRKJAN
Reykjavík. A morgun,
laugardag: Biblíurannsókn
kl. 9.45. Guðþjónusta kl. 11
árd. Appenzeller prédikar.
Ifráhöfninni I
ÞESSI skip komu og fóru
frá Reykjavíkurhöfn í gær:
Irafoss fór til útlanda, svo
og Dettifoss. Togarinn
Bjarni Benediktsson kom
af veiðum. Norskur línu-
bátur sem kom af Græn-
landsmiðum um daginn fór
aftur á veiðar.
PEfMIM AVIfMIR
HÉR á eftir fara nokkur
nöfn fólks erlendis, sem er
í leit að pennavinum hér á
landi.
A EYJUNNI Möltu er
pennavina-klúbbur sem
dreifir til félaga sinna
pennavinasamböndum er-
lendis frá. Utanásk’-'ftin
til klúbbsins er þessi:
Malta Correspondence
Club, 5 Duke of York
Street, Hamrun — Malta.
I PARlSARBORG: 19 ára
stúlka, — sem Iíka skrifar
á ensku: Christine Niel, 67
Avenue Du Général De
Gaulle, 92130 Issy-
Les-Molinaux — útborg
Parísar.
1 FÆREYJUM: Niels
Poulsen, Selatra, Föroyar.
Hann vill komast í penna-
vinasamb. við stúlkur á
aldrinum 19—35.
ÁRfMAO
HEILLA
SJÖXUG er í dág frú
Guðrún Björnsdóttir,
Freyjugötu 26 hér i borg.
Hún tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir kl. 7 i
kvöld.
GEFIN hafa verið saman i
hjónaband Vilborg Sigurð-
ardóttir og Rúnar Björns-
son. Heimili þeirra verður
að Mariubakka 10, Rvik.
(Ljósm.st. Gunnars Ingi-
mars.)
GEFIN hafa verið saman í
hjónaband Ólafia Þóra
Bragadóttir og Jón Arna-
son. Heimili þeirra er að
Bandagerði 1, Akureyri.
(Ljósm.st. Gunnars Ingi-
mars.)
. . . án takmarkana.
TM R*o U.S P«t. Ott.—Al riflht* reaarvod
C 1979 by Lo» Angel— Tkn®«
DAGANA frá og meS 9. april til 15. aprfl er
kvöld- og helgarþjónusta apótekanna i
Reykjavik sem hér segir. í Apóteki Austur-
bæjar. en auk þess er LyfjabúS Breiðholts
opin til kl. 22 þessa daga nema sunnudag.
— Slysavarðstofan I BORGARSPÍTALANUM
er opin allan sólarhringinn. Simi 81200.
— Læknastofur eru lokaðar á laugardögum
og helgidögum, en hægt er að ná sambandi
við lækni á göngudeild Landspitalans alla
virka daga kl. 20—21 og á laugardögum frá
kl. 9—12 og 16—17, sími 21230. Göngu-
deild er lokuð á helgidögum. Á virkum dögum
kl. 8—1 7 er hægt að ná sambandi við lækni i
sima Læknafélags Reykjavtkur 11510, en þvi
aðeins að ekki náist i heimilislækni. Eftir kl.
1 7 er læknavakt I sima 21230. Nánari upp-
lýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu eru
gefnar f símsvara 18888. — TANNLÆKNA-
VAKT á laugardögum og helgidögum er I
Heilsuverndarstöðinni kl. 17—18.
ÓNÆMISAÐGERÐIR fyrir fullorðna gegn
mænusótt fara fram i Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur á mánud. kl. 1 6.30—1 7.30. Vin-1
samlegast hafið með ónæmisskírteini.
HEIMSÓKNARTÍM
AR. Borgarspitalinn.
Mánudaga — föstudaga kl. 18.30 — 19.30,
laugardaga — sunnudaga kl. 13.30—14.30
og 18.30—19. Grensásdeild: kl.
18.30— 19.30 alla daga og kl. 13 —17 á
laugard. og sunnud. Heilsuverndarstöðin: kl.
15—16 og kl. 18.30—19.30. Hvita bandið:
Mánud.—föstud. kl. 19—19.30, laugard. —
sunnud. á sama tíma og kl. 15—16. —
Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl.
15.30— 16.30. — Kleppsspitali: Alla daga
SJÚKRAHUS
kl. 15—16 og 18 30—19.30. Flókadeild:
Alla daga kl. 15.30—17. — Kópavogshælið:
E. umtali og kl. 15—17 á helgidögum. —
Landakot: Mánudaga -— föstudaga kl.
18.30— 19.30 Laugardaga og sunnudaga kl.
15—16. Heimsóknartimi á barnadeild er alla
daga kl. 15—17. Landspitalinn: Alla daga kl.
15—16 og 19—19.30. Fæðingardeild: kl.
15—16 og 19.30—20. Barnaspitali Hrings-
ins kl. 15—16 alla daga. —, Sólvangur:
Mánud. — laugard. kl. 15—16 og
19.30— 20. '— Vifilsstaðir: Daglega kl.
15.15—16.15 og kl 19.30—20
CnCIU BORGARBÓKASAFN REYKJA-
ourm VÍKUR: — AÐALSAFN
Þingholtsstræti 29A, simi 12308. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 9—22. Laugar-
daga kl. 9—18. Sunnudaga kl. 14—18. Frá
1. mal til 30. september er opið á laugardög-
um til kl. 16. Lokað á sunnudögum. —
KJARVALSSTAÐIR* Sýning á verkum
Ásgrims Jónssonar er opin þriðjudaga til
föstudaga kl. 16—22 og laugardaga og
sunnudaga kl. 14—22. Aðgangur og
sýningarskrá ókeypis.
BÚSTAÐASAFN, Bústaðakirkju, simi 36270.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 14—21. —
HOFSVALLASAFN, Hofsvallagötu 16. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 16—19. — SÓL-
HEIMASAFN Sólheimum 27, simi 36814.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 14—21.
Laugardaga kl. 14—17. — BÓKABÍLAR.
bækistöð i Bústaðasafni, simi 36270. —
BÓKASAFN LAUGARNESSKÓLA. Skólabóka-
safn. simi 32975. Opið til almennra útlána
fyrir börn mánudaga og fimmtudaga kl.
13—17. BÓKIN HEIM, Sólheimasafni. Bóka-
og talbókaþjónusta við aldraða, fatlaða og
sjóndapra. Upplýsingar mánud. til föstud. kl.
10—12 1 sima 36814. — LESSTOFUR án
útlána eru i Austurbæjarskóla og Melaskóla
— FARANDBÓKASÖFN. Bókakassar lánaðir
til skipa, heilsuhæla, stofnana o.fl. Afgreiðsla
i Þingholtsstræti 29A, simi 12308. — Engin
barnadeild er opin lengur en til kl. 19. —
KVENNASÖGUSAFN ÍSLANDS að Hjarðar-
haga 26, 4. hæð t.v., er opið eftir umtali. Simi
12204. — BÓKASAFN NORRÆNA HÚSS
INS: Bókasafnið er öllum opið, bæði lánadeild
og lestrarsalur. Bókasafnið er opið til útlána
mánudaga — föstudaga kl. 14—19, laugar-
daga og sunnudaga kl. 14—17. Allur safn-
kostur, bækur, hljómplötur, tfmarit, er heimill
til notkunar, en verk á lestrarsal eru þó ekki
lánuð út af safninu. og hið sama gildir um
nýjustu hefti timarita hverju sinni. Listlána-
deild (artotek) hefur graffkmyndir til útl., og
gilda um útlán sömu reglur og um bækur. —
AMERÍSKA BÓKASAFNIÐ er opið alla virka
daga kl. 13—19. — ÁRBÆJARSAFN er opið
eftir umtali (uppl. i sima 84412 kl. 9—10) —
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR er opið
sunnudaga og miðvikudaga kl. 13.30—16.
— NÁTTÚRUGRIPASAFNIO er opið sunnud..
þriðjud , fimmtud og laugard. kl. 13.30—16.
— ÞJÓÐMINJASAFNIÐ er opið þriðjudaga.
fimmtudaga. laugardaga og sunnudaga kl.
1.30—4 siðdegis. SÆDÝRASAFNIO er opið
alla daga kl. 10—19.
BILANAVAKT
VAKTÞJÓNUSTA
borgarstofnana
svarar alla virka daga frá kl. 1 7 siðdegis til kl.
8 árdegis og á helgidögum er svarað allan
sólarhringínn. Síminn er 27311. Tekið er við
tilkynningum um bilanir á veitukerfi borgar-
innar og I þeim tilfellum öðrum sem borgar-
búar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstarfs-
manna
I' MRI ■ Fyrir 50 árum má lesa i blaö-
IVIIjLlinu frásögn af ræðu sem
lávarður nokkur, Thomson að nafni flutti
í borginni Manchester. Þar hafði hann lýst
bardagaaðferðum í næsta ófriði og rætt
um þá breytingu sem lofthernaður myndi
hafa í för með sér. Hann sagði t.d.: Flug-
menn koma eins og þjófar á nóttu. Fáeinir
menn geta tortímt þúsundum friðsamra
borgara. — Og: Lendi Englendingar í
ófriði geta þeir aldrei varizt svo vel að
þeir ekki eigi það á hættu, að stórborgir
þeirra verði að einhverju leyti lagðar í
rústir. (Þetta var árið 1926. Það kom fram
14 árum siðar, sem lávarður þessi hafði
sagt.)
GENGISSKRANING
NR. 69 — 8. apríi 1976
1 Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandarfkjadollar 177,80 178,20
1 1 Sterlingspund 330,90 331,90*
. 1 Kanadadollar 181,40 181,90*
100 Danskar krónur 2939,20 2947,50*
100 Norskar krónur 3235,50 3244.60*
1 100 Sænskar krónur 4030,20 4041,50*
100 Finnsk mörk 4624,10 4637,10*
| 100 Franskir frankar 3812,35 3823,05*
1 100 Belg. frankar 455,65 456,55*
100 Svissn. frankar 6997,50 7017,20
| 100 Gyllini 6616,40 6635,00*
1 100 V.-Þýzk mörk 7000,65 7020,35*
. 100 Lfrur 20,58 20,64*
100 Austurr. Sch 975,55 978,35*
100 Escudos 602,85 604,55
1 100 Pesetar 264,50 265,20
| 100 Yen 59,73 59,90*
. 100 Reikningskrónur —
Vöruskipt alönd 99,86 100,14
1 Reikningsdollar —
Vöruskiptalönd 177,80 178,20
Sölugengi sænskrar krónu f skráningu nr. 68 —
7. apríl 1976 var rangt, átti ad vera kr. 4040,30.