Morgunblaðið - 09.04.1976, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976
17
Boeing reynir að
skáka Concorde
BOEING-flugvélaverksmiðjurnar
vinna að hönnun nýrrar hljóð-
frárrar þotu sem gæti gert Con-
corde-þotuna úrelta að sögn tals-
manns fyrirtækisins. Hann sagði
að hægt yrði að taka þotuna f
notkun á árunum eftir 1990.
Nýja þotan á að verða þrisvar
sinnum stærri en Concorde, ódýr-
ari og þægilegri. Bandaríska
þingið batt enda á fjárveitingar
til Boeing vegna smíði hljóð-
frárrar þotu fyrir fimm árum en
fyrirtækið telur að tilkoma Con-
corde breyti afstöðu þingsins.
Hins vegar segir Boeing að
leysa verði þann vanda hvernig
draga megi úr hávaða og halda
eldsneytiskostnaði niðri áður en
nýja þotan fái hljómgrunn i
Bandarikjunum.
Flugmálafréttaritari brezka
blaðsins Guardians segir að
frammistaða Concorde á næstu
tveimur árum mundi hafa úrslita-
áhrif á afstöðu Bandaríkjastjórn-
ar — hvort hún styður tilraunina
eða ekki. Hann segir að ef úr
þeim stuðningi verði sé líklegt að
samstarf verði haft við Breta og
Frakka meðal annars til að dreifa
kostnaði.
Spinola rek-
inn frá Sviss
Bern, 8. april. Reuter. AP.
SVISSNESKA stjórnin skýrði frá
þvi í dag að óskað hefði verið eftir
því við Antonio de Spinola, fyrr-
um Portúgalsforseta, og einka-
ritara hans að þeir færu úr landi
fyrir að hafa svikið loforð um að
taka ekki þátt í stjórnmálum á
meðan á dvöl þeirra í Sviss stæði
en upphaflega fékk Spinola
Líterskókin
kostar 125 kr.
VERKSMIÐJAN Vffilfell hefur
nú hafið framleiðslu á Iftersflösk-
um af kók. Verða f fyrstu lotu
framleiddar um 8 þúsund flöskur
og að sögn Péturs Björnssonar
forstjóra Vffilfells, er gert ráð
fyrir að nú á næstunni verði
dreift um 5—6 þúsund flöskum
hér á Suðvesturlandinu. Er þegar
mjög mikil eftirspurn eftir
þessari flöskustærð, en flaskan
kostar um 125 kr. f smásölu.
Framleiðslan hefur verið
nokkuð lengi I undirbúningi, að
því er Pétur tjáði Morgunblaðinu,
og fenginn hingað til lands
erlendur sérfræðingur til að hafa
yfirumsjón með viðbótarbúnaði
sem þarf vegna framleiðslunnar.
Er þar einkum um að ræða búnað
til að setja tappa á flöskurnar en
þeir eru skrúfaði á til að auðvelt
sé að loka flöskunum aftur.
Einnig þurfti sérstakan búnað til
að taka við tómum glerjum og ná
þessum töppum þá af.
Fundur um
efnahagsmál
HVERFASAMTÖK sjálfstæðis-
manna í Nes- og Melahverfi og
Vestur- og Miðbæjarhverfi halda
opinn fund um efnahagsmál
mánudaginn 12. aprfl. Fundurinn
verður f Atthagasal Hótels Sögu
og hefst kl. 8,30 sfðdegis.
Frummælendur verða Aron
Guðbrandsson forstjóri, Jón G.
Sólnes alþingismaður og Sverrir
Hermannsson alþingismaður. Þá
munu þeir og sitja fyrir svörum.
Fundarstjóri er Valgarð Briem
hrl.
— Ætla að klífa
Framhald af bls. 36
undirbúningi. Þeir ætluðu sér að
klífa upp svonefndan Hörnli-
hrygg, sem þætti erfiður upp-
göngu og yrðu þeir minnst 20—30
klukkustundir að klifra upp
hrygginn.
Að sögn Sighvats hafa nokkur
fyrirtæki í Reykjavík, þar á nieðal
Flugleiðir, aðstoðað þá i sam-
bandi við þessa ferð.
Piltarnir sex ætla sér ásamt 12
öðrum félögum sinum úr Hjálpar-
sveitinni austur i Öræfasveit um
páskana og þá ætla þeir m.a. að
ganga á Hvannadalshnúk.
dvalarleyfi með þessu skilyrði.
Talsmaður stjórnarinnar sagði að
rannsókn hefði leitt í ljós að
Spinola hefði unnið fyrir
portúgölsk stjórnmálasamtök, —
„Lýðræðishreyfinguna fyrir frels-
un Portúgals" (MDLP) í Sviss, en
rannsókn þessi hófst eftir að vest-
ur-þýzka tímaritið Stern birti
frétt um að Spinola hefði á laun
farið til Vestur-Þýzkalands og átt
þar viðræður við blaðamann einn
sem þóttist vera fulltrúi hægri
sinnaðra stjórnmálasamtaka um
vopnakaup fyrir valdarán i
Portúgal Spinola var sjálfur yfir
heyrður um málið í gær.
Heimildir í Genf hermdu síðdegis
að Spinola væri enn í Sviss, en
venju samkvæmt eru menn ekki
reknir úr landi fyrr en fundizt
hefur rikisstjórn sem er tilbúin
til að veita þeim hæli.
Spinola hershöfðingi, sem er 66
ára að aldri, flúði heimaiand sitt á
siðasta ári eftir misheppnaða
byltingartilraun hægri manna.
Hann kom til Sviss frá Frakk-
landi í febrúar s.l. og óskaði eftir
dvalarleyfi í Genf af heilsufars-
ástæðum.
ísland 92 —
Portúgal 76
ISLAND vann Portúgal I lands-
leik i körfubolta í gærkvöldi með
92 stigum gegn 76. I hálfleik var
staðan 46:40 fyrir Island. Stiga-
hæstur tslendinganna var Jón
Sigurðsson með 23 stig og Kol-
beinn Pálsson skoraði 14 stig.
— Spánn
Framhald af bls. 1
grípa til annarra harkalegra
lögregluaðgerða eins og við-
gengust á Francotimanum.
Ráðherrann bað Baska um
stuðning í baráttunni við ETA
og lagði áherzlu á að stjórnin
mundi ekki hægja á þróuninni
til Iýðræðislegra umbóta þrátt
fyrir morðið. Fréttaskýrendur
i Madrid telja að morðið hafi
dregið úr stuðningi Baska við
ETA.
Vinstrisinnaðir Baskar, þar
á meðal kommúnistar og
sósialistar fordæmdu morðið á
Berazadi i dag.
— Crosland
Framhald af bls. 1
Evrópu. Ilelzti keppinautur
Callaghans um forsætisráð-
herraembættið, Micahel Foot,
fulltrúi róttækra vinstri manna
lætur af embætti atvinnumála-
ráðherra og verður f staðinn
leiðtogi f neðri málstofunni, en
það er annað áhrifamesta em-
bætti stjónarinnar og tekur til
umsjónar með öllum málum
hennar f þinginu. Þá mun Foot
fara með stefnu stjónarinnar
um aukna heimastjórn á Skot-
landi og Irlandi. Areiðanlegar
48 SÍÐUR
JlfotgiiiiWbibife
227. ibl. 62, árg.
SUNNUDAGUR 5. OKTÓBF.R 1975
Prentsmlðja Morgunblaðslns.
Harðorðasta vfirlvsing frá brezkum ráðherra:
CROSLAND HÓTAR VEIÐ-
UM INNAN 50 MÍLNA
„Alvarleg tilraun til að stórspilla fyrir
samningum,” segir Matthías Bjarnason
Alþjóðleg réttarhöld vegna
skorts á mannréttindum
1 Sovétríkjunum
Kosningar í
Austurríki
Vln, 4 okiAber Reuler.
■ úirr ER >M haKJMauB «r>IN-
uui I h'MkMalufum. trm far>
■rtur larM, ll Bruno Krrl.ky
k.mlarl vrrOI uð mynda mlnnl-
hluu.ijlrn Jafuadanuauna rfllr
Fréttin f Mbl. 5. október 1975 um yfirlýsingu Croslands.
veiðum á svæðum „sem hefðu
verið hefðbundin mið þeirra í
500 ár“og íslenzka ríkisstjórnin
þyrfti ekki að fara i grafgötur
um að brezka stjórnin væri
„ákveðin í að tryggja brezkum
sjómönnum þann rétt.“
Um þessi ummæli Croslands
sagði Matthías Bjarnason
sjávarútvegsráðherra meðal
annars í samtali við Mbl.: „Svo
ég segi alveg eins og er er ég
gáttaður á þessum ummælum.
Ég fæ ekki séð að svona um-
búðalausar hótanir séu leiðin
til að greiða fyrir samningum.
Ég vísa þvi algerlega á bug að
Bretar eigi hér einhver hefð-
bundin mið..
Þótt þessi ummæli þættu
hastarleg er sagt um Crosland
að hann láti ekki pólitfsk hita-
mál, sem komi róti á hugi póli-
tiskra samherja, setja sig úr
jafnvægi. Hann er einn helzti
sérfræðingur Verkamanna-
flokksins I fræðikenningum
jafnaðarstefnunnar og hefur"
verið skeleggur málsvari
hennar í Bretlandi. Hann er
talinn miðjumaður í flokknum,
en þó hægri sinnaður, og af-
staða hans til hitamála er sögð
róleg og yfirveguð.
Þannig er á það bent að í
umræðunum fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna í Bretlandi í
fyrra um aðildina að Efnahags-
bandalaginu taldi hann báða
aðila „nokkuð skeytingar-
lausa". Hann taldi áhættusamt
fyrir Breta að snúa baki við
Evrópu, en nýlega lýsti hann
sig ósammála öfgafullum
stuðningsmönnum aðildarinnar
„sem teldu hana mikilvægustu
Harður mótherji
í landhelgismálinu
ANTHONY Crosland, hinn nýi
utanrfkisráðherra Breta, er
rólegur, yfirvegaóur og hæg-
látur Oxfordmenntaður
menntamaður, lærisveinn
Hugh Gaitskells, og hefur verið
umhverfismálaráðherra f tvö
ár. Hann hefur aldrei áður
fengizt við utanríkismál.
Crosland er 57 ára gamall,
hefur verið þingmaður
Grimsby sfðan 1959 og er
kunnur hér á landi sem einn
harðasti andstæðingur
tslendinga I landhelgismálinu.
Ræða sem hann héit f kjör-
dæmi sfnu skömmu fyrir út-
færsluna I 200 milur I fyrra
vakti mikia athygli og var birt f
Mbl. undir fyrirsögninni:
„Harðorðasta yfirlýsing frá
brezkum ráðherra: Crosland
hótar veiðum innan 50 mflna.
Alvarleg tilraun til að stór-
spilla fyrir samningum, segir
Matthfas Bjarnason."
I þessari ræðu sagði Crosland
að samkvæmt alþjóðalögum
ættu brezkir sjómenn „skýlaus-
an rétt á að veiða upp að tólf
milum við íslandsstrendur" ef
samningar tækjust ekki fyrir
útfærsluna. Crosland lýsti því
einnig yfir að Bretar „yrðu og
myndu veiða fyrir innan 50
milurnar" þar sem þeir ættu
rétt á sanngjörnum aflakvóta.
Hann sagði að Bretar hefðu
fullan rétt á að halda áfram
Crosland
ákvörðunina sem þjóðin hefði
staðið andspænis á undanförn-
um átta milljón árum.“ Hann
bætti við: „Ég er hræddur um
að ég hafi reynzt hafa á réttu að
standa."
Helztu aðfinnslurnar i garð
Croslands eru á þá lund að
hann sé hlédrægur og jafnvel
kuldalegur og nokkuð hroka-
fullur í framkomu, oft skap-
vondur og uppstökkur, einkum
gagnvart embættismönnum.
Það þykir nokkuð kaldhæðnis-
legt þar sem faðir hans var
háttsettur embættismaður.
Crosland hefur setið á þingi
síðan 1950 og var fyrst þing-
maður South Gloucestershire.
Hann varð aðstoðarefnahags-
ráðherra í fyrstu stjórn Wilsons
1964 og síðan menntamálaráð-
herra 1965—7, viðskiptaráð-
herra 1967—9 og loks sveitar-
stjórnaráðherra.
I Oxford hlaut hann fyrstu
einkunn í heimspeki, stjórn-
málum og hagfræði. I stríðinu
Framhald á bls. 20
heimildir hermdu að skipun
Croslands I embætti utanríkis-
ráðherra væri aðeins til bráða-
birgða og vilji Callaghan helzt
fá Denis Healey fjármálaráð-
herra f það embætti hugsanlega
innan eins árs eða 18 mánaða.
I millitíðinni a.m.k. verður
Healey áfram fjármálaráð-
herra. Margir höfðu talið að
Roy Jenkins innanríkisráð-
herra fengi embætti utanríkis-
ráðherraen hann verður áfram
í sínu gamla embætti. Talið er
að honum hafi verið boðið að
taka við fjármálaráðuneytinu
ef Healey fer þaðan, en Jenkins
var fjármálaráðherra á árunum
1967—70 Hann mun hafa
synjað þvi tilboði og er búizt við
því að hann íhugi að flytjast til
BrUssel og verða forseti fram-
kvæmdanefndar EBE þar í árs-
lok þegar kjörtimabil Frakkans
Ortoli rennur út. Jenkins er
ákafur stuðningsmaður EBE-
aðildar.
Reginald Maudling, tals-
maður thaldsflokksins i utan-
ríkismálum, sagði eftir að skip-
un stjórnarinnar varð kunn að
hann teldi það mistök að gera
Jenkins ekki að utanríkisráð-
herra „venga þess að hann
hefur mikla reynslu og nýtur
mikillar virðingar i Evrópu“.
Meðalaldur ríkisstjórnar
Callaghans lækkar frá þvi er
var i stjórn Harold Wilsons, og
mun það hafa verið með ráðum
gert af hálfu forsætisráðherr-
ans. Meðalaldurinn er nú 54,3
ár en var 56,6. Fjórir af ráð-
herrum Wilsonstjórnarinnar
hafa ekki fengið embætti hjá
Callaghan. Þeir eru Barbara
Castle, félagsmálaráðherra,
William Ross, Skotlandsmála-
ráðherra, Bob Mellish, sem far-
ið hefur með agamál innan
þingflokksins, og Edward
Short, leiðtogi i neðri málstof-
unni. Þau eru öll eldri en sex-
tug. Short verður áfram vara-
flokksleiðtogi.
Af öðrum embættum stjórn-
arinnar heldur annar af for-
ingjum vinstri manna, Tony
Benn, embætti sinu sem orku-
málaráðherra, Roy Mason verð-
ur áfram varnarmálaráðherra
og Merlyn Rees áfram trlands-
málaráðherra, en gert er ráð
fyrir að hann fái nýtt embætti
við næstu uppstokkun innan
stjórnarinnar fyrir árslok. Þá
er Shirley Williams verðlags-
málaráðherra falin forsjá fleiri
verkefna en áður og Peter
Shore, fyrrum viðskiptaráð-
herra, tekur við umhverfis-
málaráðuneytinu af Crosland.
Nýir menn koma inn sem Skot-
landsmálaráðherra og atvinnu-
málaráðherra, — þeir Bruce
Millan og Albert Booth. Þá kom
á óvart að hægri maðurinn Reg
Prentice, sem sætt hefur mikl-
um árásum vinstri flokksarms-
ins, heldur embætti ráðherra
þróunarmála erlendis. Líklegt
er talið að Callaghan hafi gert
það til að friða hægri menn i
flokknum sem urðu fyrir von-
brigðum með að Jenkins varð
ekki utanríkisráðherra. 1 em-
bætti Barbara Castle var skip-
aður David Ennals, sem verid
hefur aðstoðarráðherra í utan-
rikisráðuneytinu.